Ég vildi að ég væri hommi

Mikið hlýtur að vera frábært að vera hommi. Hommar hafa það alveg einstaklega gott. Í fyrsta lagi er skítlétt að hözla ef maður er hommi, ég meina hversu erfitt gæti það verið að hözla annan karlmann? Jafn auðvelt eins og fyrir kvenfólk að hözla okkur!

Hommar hafa það líka ótrúlega gott fjárhagslega séð. Ímyndið ykkur bara tvo karlmenn, báða á karlmannslaunum sem eiga enga krakka. Það hlýtur líka að vera æðisleg tilhugsun að maður valdi Snorra í Betel og Gunnari í krossinum sálarþjáningum bara með því að vera til.

Hommar fá líka að ganga um í alls konar flottum búningum þegar það er gaypride.

Því miður er ég ekki hommi. Mér finnst ég vera að missa af mörgu og ég vildi að ég væri hommi. Það er bara þrennt sem kemur í veg fyrir það:
1) Konur eru fallegri en karlmenn
2) Ég hef ekki lyst á að hræra í réttum gærdagsins
3) Mig langar ekki í rjóma út í Swissmissið mitt

- Rökkvi