Highway to hell [***] (fáanleg í Laugarásvideo)
Alltaf er nú jafn gaman að sjá hvað frægu leikarar nútímans þurftu að leggja á
sig á leiðinni upp metorðastigann. Áður en hjartaknosarinn Chad Lowe meikaði það
með því að vera support actor fyrir mongólíta, fór hann á
kostum sem aðalhetjan í
þessari stórskemmtilegu mynd. Chad greyið í vondum málum í þessari mynd.
Hann og kærastan villtust nefnilega svo óheppilega inn á hraðbrautina til helvítis
þar sem vítislöggan tekur fólk fast og fer með það beint til skrattans. Og það
er ekki nóg með að hann Chad, stjarna Life goes on þáttana og bróðir Rob Lowes skuli
leika í myndinni, heldur er Ben Stiller þarna líka í hallærislegu og smávægilegu
aukahlutverki.
Allt í allt er þetta skemmtileg mynd með skemmtilegum púkum og skrímslum og viðeigandi
djöflagangi.
-Rökkvi
|
|
|
|