He-Man, and the Masters of the Universe [0] (fáanleg í Laugarásvideo)
Ekki láta stjörnugjöfina á þessari mynd blekkja ykkur, því þó hún sé einhver sú
vondasta og versta mynd sem ég hef séð, þá er skemmtanagildi hennar ómælt. Í hópi
hæfilega mikilla hálfvita er hreinasta snilld að horfa á þessa vitleysu.
Það er alveg klárt mál að sá sem gerði þessa mynd hefur verið meiri skápahommi en
Mr.Garrison í South Park. Búningarnir eru allir eins og fyrir drag drottningar þannig
að meirihelmingur myndarinnar lítur út eins og upptaka af Gay-pride göngu. Dolph
Lundgren gengur líka þarna um hálfalsber, smurður olíu með nokkrar leðurólar vafðar
um sig.
Hvað varðar handrit og söguþráð þá er það einfalt. Einhverjum datt í hug að troða
Conan the Barbarian inn í Star Wars ásamt því að troða hommafantasíum sínum inn í
hörmungar b-mynd. Myndin er semsagt eitthvert versta Star Wars ripoff nokkrusinni. Skeletor
er ripoff af Palpadine keisara og hermenn Skeletors eru nákvæmlega eins einhverjar fígúrur
úr vondaliðinu í
Star Wars sem ég man ekki hvað hétu. Skeletor drepst síðan á nákvæmlega sama hátt og
Palpadine í endann á myndinni.
Semsagt, ef þið viljið sjá Star Wars + Conan the Barbarian + Gaypride - söguþráð + það
að drepast úr hlátri, þá gætuð þið ekki valið betri mynd en þessa. Rock on!
-Rökkvi
|
|
|
|