Grátandi api, Ballett í leynum [****] (er á spólunni Cult 1)

Stuttmynd eftir Jón Grétar Gissurarson. Leó, karatemeistari með meiru, var drepinn af illmenninu Francodrago þegar hann var að þróa karatestíl sem byggði á balletthreyfingum. Nýfæddum syni hans Feó var hins vegar komið undan áður en glæpalýður Francodragos gæti náð honum. Nú þegar Feó er kominn til ára er honum gert ljóst að örlög hans séu að klára að þróa ballettstílinn og hefna föður síns.
Karatemynd með helling af slagsmálum, góðum húmor og örlitlu klámi í bland. Slagsmálaatriðin eru merkilega góð miðað við hverju mátti búast við.
-Rökkvi