Grátandi api, ballett í leynum [***1/2]
Lengd: ca 30 mín
Leikstjóri: Jón Grétar Gissurarson
Aðalhlutverk:
Gott fólk, aðallega af Nesinu
Grátandi api... er fyrsta myndin í trílógíu leikstjórans, en í myndunum mun hann fjalla um leit aðalhetjunnar Feó að ballettgeninu í sjálfum sér og hefnd hans á Frankódragó sem drap faðir hans. Með því að finna ballettgenið getur Feó fullkomnað ballettstílinn í karate og komið óvini sínum á kné.
ÞAÐ VAR MIKIÐ! Loksins er komin íslensk slagsmálamynd! Myndin er tekin í lit og á digital vélar (að ég held) og algerlega low budget og það er alveg ótrúlegt hvað leikstjóranum tekst að vinna vel með þann efnivið sem hann er með. Plottið er flókið og kemur skemmtilega á óvart og dialoginn er snappy og fyndinn. Leikstjórinn lét leikarana spinna mest allt sem sagt var og það kemur mjög vel út. Bardagatriðin eru skemmtileg og voru í raun það sem kom mér mest á óvart við myndina, þau eru bara nokkuð góð. Sem sagt fín skemmtun sem ég mæli tvímælalaust og eindregið með!
Nauðsynlegt bjórmagn: ekki meira en flöskubjór, bara til að chilla
- Jón Grétar
|
|
|
|