Gelgjuhornid

Langt síðan síðast....

Þá er manneskjan ég orðin selfissingur, japlandi á bleiku tyggjó gúmmýi í hummel peysu og diesel gallabuxum, ljóshærð og komin með miða í styrk (líkamsrækt)....

Selfoss hefur breyst, hnökkunum hefur fækkað og smápíkurnar of ungar til þess að ég sé að angra mig e-ð á þeim :P

Svo varð mér hugsað til þess um dagin, að hnakkarnir væru líklega ekkert færri og smápíkurnar líka 16, ég hef bara aðlagast umhverfinu, kinst fólkinu og talað við allt frá væmnustu hnökkum til hörðustu rokkara hérna á þessum stað, djammað með alls konar fólki og svona....

Ekki það, ég er mjög fyndin manneskja, eða mér finst það amk, og fyrr í vetur lenti ég í þessum týbíska vinahóp sem þið kunnið að kalla "smá"píkur, ég átti fátt sameiginlegt með þeim og sjálf man ég ekkert um hvað við töluðum annað en helgina, ég man að einu sinni sagði ég e-ð ferlega fyndið... þið hefðuð hlegið, en neijh þær litu á mig eins og ég væri ný komin frá mars og væri græn á litin, mér var brugðið yfir því hvernig þær tóku þessum brandara mínum svo ég benti á skó einnar stelpurnar og sagði "váááá ferlega flottir skór, hvar fékkstu þá" og þá var hægt að tala um skó hennar og þeirra næstkomandi 20 mínúturnar.... eins og sjá má entist ég ekki lengi þarna....

Ber einnig að nefna Iron Maiden, þar sem ég var í sjöunda himni yfir að komast á tónleika með hljómsveitinni sem 2 uppáhaldslögin mín koma frá, að ég gat um lítið annað talað, talaði við allar 13 bekkjarsystur mínar um þetta, en engin hlustaði á maiden, hvað þá ætlaði á tónleikana, ég talaði við vinkonur mínar úr öðrum bekkjum og sumar hverjar vissu ekki einu sinni hvað Maiden var.... endaði svo að ég gat aðeins talað um þessa yndislegu tónleika við stráka, mjög fáa m.a.s, var það þá aðallega bara á djamminu og í partyum og þess háttar....

Annars þá spjarar stelpan ég sig ágætlega á selfossi, tilvonandi fsu-mær og allt í blóma (þó svo að ég stefni annað á næsta ári)

Kv. Ragnheiður Bínus




TÝPUR

Það sem ég ætla að fara að kvarta yfir núna er týpufólk (aka treflar)ég er komið með upp í kok af helvítis týpufólki sem valsar um allstaðar eins og þeim sé borgað fyrir það.Maður getur ekki farið í kringluna þá eru þau þar hangandi í spútnik þeirri ógeðslegu illa lyktandi ljótu búð.Eeen sérstaklega getur maður ekki labbað um laugaveginn án þess að mæta týpufólki.. því laugavegurinn er Mekka týpufólksins.Fyrir þá sem ekki vita hvað týpufólk er þá er það fólk sem er að reyna að rembast við að vera öðruvísi. Þeim fynnst mest kúl í heimi að setja útá það að fara í ljós, kaupa sér flott föt og hlusta á Fm. Meðal annars.. því það er margt sem þau kvarta yfir.. Þau hlusta líka á ,,öðruvísi tónlist".. (hmm) eins og Björk eða eitthvað annað ömurlegt.. Og kunna ekki að raða saman fötum. sloganið þeirra er : i was uncool before uncool was cool.Þó að ég sé ekki smápíka, gelgja eða hlusta á fm þá held ég bara að þetta sé biturt fólk sem hefur orðið undir í lífinu.Mér er alveg sama hvað margir eiga eftir að hata mig efir þetta blogg.. ég varð bara að koma þessu frá mér ,.Bless.. með kveðju:D




Ég sit hérna í matsal Kvennaskólans í Reykjavík ... umkringd gelgju og skemmtilegheitum!
Þessi gelgja er þó ólík þeirri gelgju sem ég á að venjast ... nokkurnveginn fágaðari og þroskaðari gelgja en sú sem ég upplifði í grunnskólanum.
Sumir myndu jafnvel gerast svo djarfir að segja að þetta sé ekki gelgja, heldur eitthvað annað, að fólkið hér sé komið yfir gelgjuna og sé komið áleiðis á fullorðinsárin, en það er bara rugl!
Ég hef sagt það áður og segi það enn að gelgjan er alltaf ... ALLTAF í okkur og við verðum alltaf gelgjur!

Ahh ... ég er bara að rugla, vil bara ekki að þetta gelgjuhorn hér deyji út.


Yfir og ÚT!
ble
-Júlíana




Skrýtið, ég bjóst alltaf við því að gelgjan myndi minnka þegar maður færi í framhaldsskóla.
Núna veit ég að svo er ekki, hún hefur bara breyst.

Uppfull af gelgju og greddu
ég rita þetta blogg.
-Júlíana.




Æstir aðdáendur

Það er dálítið sem fer svoldið mikið í taugarnar á mér og það eru kreisí aðdáendur... ekki aðdáendur mínir sko... ég elska aðdáendur mína:P Það sem ég er að tala um er til dæmis fólk sem er svo blindað í aðdáun sinni á eitthverjum einum tónlistarmanni að það leyfir engum öðrum að komast að!
Það er líka oft þannig hjá mér að ég fíla hljómsveit eða tónlistarmann en ég fíla ekki aðdáendur hljómsveitarinnar eða tónlistarmannsins. Tökum sem dæmi xxx Rottweiler hunda. Ég kann vel að meta þá og að mínu mati var fyrri diskurinn þeirra algjör snilld! (þessi seinni var nú ekki eins góður) En shit, allir þessir kreisí fans fara í taugarnar á mér! Vá! Það má sjá hér hvað ég er að tala um...
Önnur hljómsveit sem fellur undir þetta er Metallica. Ég kann vel að meta þá og tónlistina þeirra en fólk sem sér ekkert annað og hlustar ekki á neitt annað er ekki neitt sem heillar mig.
En það sem pirrar mig langsamlega mest í sambandi við þetta eru nirvanagelgjurnar, úff... Gelgjustrákar (og stelpur reyndar líka) sem ganga um í bolum með mynd af Kurt Cobain og blóta Courtney Love (ef þeir vita þá á annað borð hver hún er)! Þessir nirvanaaðdáendur neita að trúa því að Kurt Cobain hafi drepið sig og sumir halda því meiraðsegja fram að hann sé ennþá lifandi!! Hann er dauður, og hvaða máli skiptir hvernig hann drapst? Breytir það eitthvað tónlistinni hans hvort að hann drap sig eða eitthver annar gerði það?
Ég fíla nirvana alveg en þessir aðdáendur nirvana eru eiginlega alveg búnir að eyðileggja þetta fyrir mér!!

Ég skil ekki hvernig það er hægt að einskorða aðdáun sína við einn tónlistarmann eða hljómsveit þegar það er til svona mikið af frábærri tónlist í heiminum!

Takk fyrir mig.

-Júlíana






Hvað ætti ég að gera?

Já, nú er gelgjan ég í smá vandræðum hér. Ég er að fara að útskrifast úr grunnskólanum og þá vandast málið, ég þarf nefnilega að ákveða í hvaða skóla ég ætti að fara á næsta ári! Ég er algerlega óákveðin (ég ætla samt ekki í Verzló eða FSu, og helst ekki eitthvern skóla lengst útí rassgatinu á Dóra feita!), þetta er nefnilega stór ákvörðun í mínu litla gelgjulífi.
Ég fæ sennilega einkunnirnar útúr samræmdu prófunum á morgun (eða ég vona það) og þá er ekkert annað að gera en að sækja um í skóla.. shit, þetta er ekki auðvelt! Svo er maður að sjálfsögðu stressaður útaf einkunnunum, bara að vona að ég nái og helst að ná yfir sjö eða átta í flestu.
Úff... það er erfitt að vera svona gelgja:/

-Júlíana