Greinin úr Montreal Gazette blaðinu



Þetta er grein sem var birt í Montreal Gazette um grín sýninguna sem ég var í í byrjun nóvember.

Jæja maður veit varla hvað manni á að finnast um þetta. The Montreal Gazette er aðal dagblaðið í Montreal og þetta var á fyrstu síðunni í Arts & Life dálknum hjá þeim. Á hinn bóginn er talað um mig þarna eins og ég sé soddan hálfviti - sem er svosem ekki alslæmt heldur - því fólk hlær nú oft að hálfvitum og það er nú einu sinni mitt starf að láta fólk hlægja að mér (með hvaða aðferðum sem ég get). En fólk hló VÍST að Grænlendingabröndurunum mínum. Það hafa meira verið ofurgrófir brandarar sem ég hef sagt hérna sem komu mér í vandræði (allt dót sem fólk grenjar af hlátri yfir heima auðvitað, því Íslendingar hafa enga sómatilfinningu).

Það er líka soldið frjálslega farið með staðreyndir þarna. Ég var ekki í örðu sæti í Fyndnasta manni Íslands, sem er mistúlkun á því sem ég hafði sagt við Terence. Eins og glöggir lesendur hafa kannski tekið eftir líka, þá er ég Vésteinsson en ekki "Veisteinsson". Það er hins vegar satt að ég hafi verið "professional wrestler in Iceland." Ég var ekki atvinnumaður í wrestling - nei, hins vegar heitir fake wrestling, eins og ég var í, "Professional wrestling", á meðan keppnisíþróttir í glímu kallast amateur wrestling. Þetta hefur semsagt ekkert með professionalisma að gera - nema manni finnist meira professional að feika slagsmál en að slást.

Veit nú ekki heldur hvort það sé hægt að kalla Ísland "that frozen landmass." Fyndið, miðað við að Kanadamenn vita yfirleitt slatta um Ísland, svona eins og að það er Grænland sem er virkilega kalt en ekki Ísland, að Reykjavík er höfuðborgin og hver Björk er (þeim finnst alltaf jafn merkilegt að hálfbróðir hennar Bjarkar hrekkti mig þegar ég var lítill, en ég man ekki einu sinni hvað hann hét).

Annars var þetta mjög skemmtileg sýning og mér tóks meira að segja til að fá áhorfanda til að koma upp á svið og lemja mig með stól á síðasta sýningardegi - án efa hápunktur ferils míns sem uppistandara í Kanada.

-Rökkvi