Frankenhooker [***] (fáanleg á Laugarásvideo)

       Þetta var hin fínasta mynd, enda var Finnur í Silíkon búinn að mæla sérstaklega með henni.
Ungur uppfinningamaður verður fyrir þeirri ógæfu að skvísan hans verður undir slátturvélini sem hann ætlaði að gefa tengdapabba í afmælisgjöf. Sem betur fer getur hann haldið hausnum hennar lifandi í vökvabaði í von um að vekja hana aftur til lífsins. Þá er það eina sem eftir er að finna fullkomna líkamsparta til að tjasla henni saman aftur - eða allavegana er það planið. Verst var að pjakkurinn bjóst ekki við því að skapa FRANKENHOOKER!

-Rökkvi