The Flying Saucer [**] (fáanleg á Laugarásvideo)

Ein af Killer B´s myndunum. Vísindamaður nokkur hefur fundið upp fljúgandi disk. Þar sem myndin gerist á kaldastríðsárunum, eru Rússar og Kanar að keppast um að komast yfir vitneskjuna um það hvernig á að hanna diskinn. Vísindamaðurinn er tilbúinn að selja hvorum sem er upplýsingarnar, bara ef hann fær nógan pening.

Aðalsöguhetja myndarinnar er blaðamaður sem sendur er til Alaska, þar sem fólk segist hafa séð fljúgandi diskinn á lofti. Blaðamaður þessi er að sjálfsögðu drykkfelldur kvennabósi sem augljóslega lendir í smá slagsmálum við rússneska njósnara meðan hann er að komast til botns í málinu.

Skítsæmileg mynd, sérstaklega miðað við að það hefði mátt búast við mun verru. Þar sem hún er gerð svona uppúr 1950, þá hefur hún jafnvel sennilega verið hin ágætasta mynd á sínum tíma.

-Rökkvi