Meet the Feebles [****1/2] (fáanleg á Laugarásvideo)
Örugglega eina prúðuleikarasplattermynd í heiminum. Rostungurinn Blech er framleiðandi í
skemmtibransanum. Hann rekur "The Feebles" sem er hópur prúðuleikara sem skemmta
fólki með söng, dansi og ýmsu öðru. Það er hins vegar ekki það eina sem Blech gerir
sér í gróðaskyni því hann framleiðir einnig klámmyndir og selur starfsmönnum sínum dóp.
Það sem helst stendur í veginum fyrir grey Blech er "kærastan" hans, akfeitur flóðhestur,
sem hann hefur ógeð á, en getur ekki losað sig við þar sem hún er aðal stjarnan í the
Feebles. Magnþrungið klám og ofbeldi eins og aðeins prúðuleikarar geta framkallað það!
Fleygar setningar úr myndinni: "It´s not mine, you know it´s not mine!"
"Sorry, I had a bone stuck in my throat."
"Anal antics, that will appeal to our more intellectual viewers."
-Rökkvi
|
|
|
|