Efnisleg ást [****] (fæst á Laugarásvídeó á spólunni Cult 1 sem lagmenning.is gaf út)
Einnig þekkt sem: Materialistic love
Leikstjóri: Grímur Hákonarson
Hér er á ferðinni stuttmynd úr smiðju Gríms Hákonarsonar. Í myndinni eru skyndikynni í Reykjavík
skoðuð á skemmtilegann og öðruvísi hátt en maður á að venjast. Hér sést þegar ungur drengur hözlar
unga snót, þau skipast á…jah, einhverju, og fara síðan heim sitt í hvoru lagi. Gemsa atriðið er
síðan bara stakasta snilld og hafa margir átt erfitt með að horfa á það sökum hversu vandræðalegt
það er.
Þetta er verk sem Grímur gerði fyrir nokkrum árum síðan. Þetta er nýrri mynd heldur en limir á
lausu og það sést. Öll tæknivinna er orðin mun betri og er þessi mynd í rauninni að öllu leiti
betri en hinar. Þó verður að taka tillit til þess að þegar Grímur gerði hinar myndirnar var hann
rétt skriðinn upp í menntaskóla og ber því að horfa á þær myndir sem nokkurs konar heimildarmyndir
frekar en annað.
Þessi mynd er hins vegar snilld og sker sig í hóp hans bestu verka, Varði fer á vertíð og
Klósettmenning.
Nauðsynlegt bjórmagn: Ekkert endilega nokkur dropi
-Jón Grétar
|
|
|
|