Ed Wood [****] (til í Laugarásvideo)

Leikin mynd sem segir ævisögu Ed Wood, klæðskiptings og versta leikstjóra sögunnar. Ólíkt myndunum sem Ed gerði sjálfur er þetta vönduð mynd með frægum leikurum eins og Johnny Deep og Söru Jessicu Parker úr Sex and the city þáttunum.

Ed Wood er hörmulegur leikstjóri sem leikstýrir hörmulegum leikritum, þó er hann metnaðarfullur og hyggur á mikinn frama í kvikmyndaheiminum. Ed á líka við það vandamál að stríða að hann fær mikið út úr því að klæðast kvenmannsfötum, en þorir ekki að segja frá því.

Líf Eds snýst síðan heldur betur við þegar hann vingast við útbrunna hryllingsmyndaleikarann Bela Lugosi og heyrir að gera eigi kvikmynd um kynskipting. Ed tekst að fá Lugosi í lið með sér og plata framleiðandann til að leyfa sér að leikstýra kynskiptingsmyndinni.

Eftir þetta er markið sett og Ed nær að plata hina ýmsu aðila til að gefa sér pening, allt svo hann geti dælt út úr sér einhverjum af verstu myndum sögunnar.

Þessi mynd er alger snilld. Johnny Deep er mjög sannfærandi sem Ed Wood og meðleikararnir eru einnig mjög góðir í sínum hlutverkum (t.d. gaman að sjá George "the Animal Steele). Myndin nær algerlega að sýna manni metnaðarfullan hugsjónamann, sem hefur trú - en ekkert vit - á því sem hann er að gera.

-Rökkvi