Desparate living [**1/2] (fáanleg í Laugarásvideo)
John Waters
Mér varð sæmilega illt af þessari mynd meðan ég horfði á hana. En soldið löngu eftir að
ég var búinn að sjá hana og selectively búinn að gleyma því versta, þá verð ég að
viðurkenna að hún átti nokkur snilldar atriði.
Fjallar um tvær konur sem leita skjóls í viðbjóðsbænum Mortville. Önnur þeirra er
geðbilaður hysteríusjúklingur og hin er 150 kg svört bredda (sem við fáum því miður
að sjá allsbera í myndinni - úff). Mortville er hæli glæpamanna og óþjóðalýðs og er
stjórnað af feitri ógeðslegri drottningu og hommaher hennar. Mynd þar sem fólk er eldað,
sest ofan á það og drekkt í hundamat svo fátt mætti telja. Síðan er náttúrulega
ógleymanlegt wrestling atriði og afar hjartnæm ástarsaga tvinnast inn í söguþráðinn.
Mikið af leikurunum úr Pink Flamingos eru hér á ferðinni.
Fleygar setningar úr myndinni: "I was thinking about you so much, I couldn´t concentrate
on my work all day - every little piece of trash I had to pick up today reminded me of
you."
-Rökkvi
|
|
|
|