Dark Angel Season 2 [****]

Aðalhlutverk:
Jessica Alba : Max Guevara
Michael Weatherly : Logan Cale/Eyes Only
J.C. MacKenzie : Normal
Valarie Rae Miller : Original Cindy
Martin Cummins : Ames White

Þá er snilldin víst búin. Eftir að sýningum lauk á þessari seríu hætti James Cameron framleiðslunni og snéri sér að öðru (heimildarmynd um Titanic í þrívídd!). Í þessum þáttum fáum við að sjá fleiri mutants og sagan um Manticore er skoðuð betur. Núna sjáum við allar tilraunirnar sem fóru úrskeiðis þegar verið var að blanda saman DNA úr mönnum og dýrum sem er pretty scary stuff. Þegar Max bombar Manticore og öll mutant sleppa verður allt vitlaust. Smá saman gera íbúar Seattle sér grein fyrir því að það eru "skrímsli" í borginni og almenn móðursýki tekur völdin.

Nýr vondur kall (Ames White) sem er svo miklu verri heldur en Lydecker var nokkru sinni. Vill nú ekki segja of mikið um hann en hann er frekar flottur og verulega vondur maður. Í síðasta þættinum (sem er svolítill cliffhanger) sjáum við svo wreslinggelluna Litu sem kemur og kicks some mutant ass. Þarna sér maður bodyslam, bodypress, scissors og bara allann pakkann. Mjög gaman að sjá Jessicu Alba og Litu slást...grrr.

Plottið sem byrjað var á í síðustu seríu um samsæri stjórnvalda er haldið áfram en þó er meira gert úr leyniklíkunni sem er búin að vera að rækta ofurmenni í 5000 ár. Sem er svolítið flott. Þetta eru "alvöru" manneskjur en ekki genabreyttar og hafa verið að para saman réttu einstaklingana í þúsundir ára til þess að fá ofurmenni. Í ljós kemur að leyniklíkan á vini á háum stöðum.

Þetta er gott framhald af fyrstu seríunni, reyndar ekki allir sammála um áttina sem serían fór en ég er sáttur. Fáið ykkur ammrískann flöskubjór og hafið gaman af Dark Angel

Stjörnur: ****
Nauðsynlegt bjórmagn: Ammrískur flöskubjór per þáttur

-Jón Grétar