Dark Angel Season 1 **** af fimm mögulegum
Fimm spólur, hver milli 3 og 4 tímar á lengd
Einnig þekkt sem: James Cameron´s Dark Angel
Leikstjórar:
Allan Kroeker
David Nutter
Michael Ray Rhodes
Aðalhlutverk:
Jessica Alba : Max Guevara
Michael Weatherly : Logan Cale/Eyes Only
John Savage : Donald Lydecker
Alimi Ballard : Herbal Thought
Richard Gunn : Sketchy
J.C. MacKenzie : Normal
Valarie Rae Miller : Original Cindy
Þetta er aldeilis skemmtilegur þáttur að fá hingað á klakann. Það er
nú reyndar ekki langt síðan Stöð 2 sýndi þættina þannig að þeir eru
ferskir í minni margra en eru engu að síður frábærir.
Þættirnir gerast í Seattle í Bandaríkjunum árið 2019 nokkrum árum eftir
að ráðist hafði verið á landið með rafbylgjuvopnum (Electro Magnetic
Pulse) sem eyðilögðu infrastrúktúr þess og gerðu það að þriðja heims
ríki. Lögreglan er á öllum götuhornum, hverfum skipt með girðingum og
vopnaðir verðir á check points út um allt. Aðalsöguhetjan, Max, er
genabreytt stelpa sem er sterkari en allir menn, stekkur hæð sína í
fullum herklæðum, notar augun eins og kíki og er líka með bad ass
attitude svo maður gleymi nú ekki að minnast á að hún er helvíti
foxý! En aftur að sögunni. Max er genabreyttur hermaður sem
bandaríkjastjórn var að rækta þegar ráðist var á landið og
það lagt í rúst. Hún ásamt 11 fleiri genabreyttum krökkum
(hópurinn kallast X5 í þáttunum) sleppa og reyna að komast
af í lífinu. Max er búin að koma sér vel fyrir, vinnur sem
hjólasendill á daginn en þjófur ákvöldin þegar við kynnumst
henni. Í byrjun fyrsta þáttar hittir hún Logan sem er blaðamaður
sem er á fullu að fletta ofan af spillingu í stjórnkerfinu með
rannsóknarblaðamennsku og miklum tæknibúnaði. Hann ákveður að
hjálpa henni að hafa upp á hinum krökkunum í X5 hópnum ef hún
hjálpar honum að láta sannleikinn koma í ljós um spillingu í landinu.
Þetta er fínir þættir ef maður kemst framhjá genabreytingadæminu sem
ég er ekki viss um að geti staðst nákvæma vísindalega skoðun. En ég
beini svoleiðis pælingum til Rökkva. Þættirnir eru fínt skrifaðir,
með skemmtilegum bardagaatriðum þar sem Max hoppar til og frá þegar
hún lemur vonda fólkið. Plottið er gott og sífellt er verið að vísa
í það sem gerðist í fyrri þáttum og eitthvað að gerast sem skýrist
síðar. Sárasjaldan eru atriði sem ekki standast með tilliti til þess
sem áður hefur gerst sem gerir þetta betra en margt sem maður sér í
sci-fi. Svo er líka góður húmor í þáttunum og er það helst Normal
sem sér um þann part en þó eru líka kynntir til sögunnar fleiri
húmoristar og svo fá aðalleikararnir líka fínar línur.
Max er flott og Jessica Alba er fín í þessu hlutverki. Fyrir þá
sem ekki vita hver þetta er þá er þetta foxý gellan úr Idle Hands
en er núna komin með síðara hár :þ Logan er vel skrifaður og
skemmtilegur karakter þó það sé ekkert allt of mikið chemistry
á milli hans og Max.
Aukapersónurnar eru misgóðar eins og gerist og gengur, Original
Cindy er vinkona Max og er alveg ömurlega leiðinleg lesbísk
stelpa sem sífellt talar um sig í þriðju persónu. Normal er
eigandi sendlafyrirtækisins sem Max, Cindy og vinir þeirra
vinna hjá og hann er frábær persóna, talar í sífellu um hvað
The Great Communicator Georg Bush sr. hafi verið frábær forseti
og er alveg ekta íhaldssamur plebbi. Aðal vondi kallinn er
leikinn af John Savage sem lék Claude í Hair forðum daga.
Hann er skemmtilegur vondi kall, ekki alveg vondur heldur er
reynt að gera hann aðeins mannlegann og hann verður þá trúverðugri.
Ég mæli hiklaust með þessum þáttum, góð saga, flott gella og
greinilega eitthvað lagt í þættina eins og búast má við af
Cameron. Sá sem skrifar þættina með honum skrifaði m.a. L.A.
Law, Moonlighting (sem gerðu Bruce Willis frægan) og N.Y.P.D.
Blue og starfaði með Cameron í gæðaræmunni Piranha 2 sem
aðstoðarleikstjóri.
Nauðsynlegt bjórmagn: Bara ein flaska
|
|
|
|