Crash and Burn [**]
(1990, 85 mín, fæst í Laugarásvídeó)

Leikstjóri: Charles Band
Lengd: 85 mín Kom út: 1990

Aðalhlutverk:
Paul Ganus .... Tyson Keen
Megan Ward .... Arren
Ralph Waite .... Lathan Hooks
Bill Moseley (I) .... Quinn
Eva LaRue Callahan .... Parice
Jack McGee .... Winston Wickett
Elizabeth Maclellan .... Sandra
Katherine Armstrong .... Christie
John Davis Chandler .... Bud
Kristopher Logan .... Scratch

Þetta er örugglega ein týpískasta b-mynd sem hægt er að finna. Þarna er fólk fast úti í eyðimörk í post-apocalyptic jörð og allt er að fara í klessu. Mjög einfalt!

Hópur fólks er fastur í verksmiðju úti í miðri eyðimörk og byrjar að týna tölunni. Síðan ná hetjurnar að finna hver er vondi kallinn, ræsa risavélmenni og vinna. Voðalega formúlukennd b-mynd en alveg hægt að hafa gaman að henni eftir nokkra bjóra. Nauðsynlegt bjórmagn 3

-Jón Grétar