The Cosmic man [*½] (til í Laugarásvideo)
Eldgömul svarthvít mynd um mann sem kemur úr geimnum til að boða
mannskepnunni boðskap sinn
um víðsýni. Eftir að lítil geimkúla finnst uppi í fjöllum, gerir
bandaríski herinn sér grein
fyrir að einhver geimvera sé komin til Jarðar. Vísindamaðurinn
dr.Sorensen, sem á að vinna
með hernum, á hins vegar í hinu mesta bastli með að sannfæra yfirmenn
hersins um að reyna að
nálgast geimveruna á friðsamlegum forsendum.
Týpísk svona móral og
umhugsunarmynd, nema
bara að hún er alltof léleg, grunn (og síðast en ekki síst low budget) til
að maður geti
tekið hana alvarlega eða
fundist merkilegt það sem er sagt í henni.
-Rökkvi
|
|
|
|