Class of Nuke´m High [**1/2] (fæst í Laugarásvideo á DVD)
Troma

Mynd um unglingana í Nuke´m High skólanum, sem staðsettur er við hliðina á stóru kjarnorkuveri. Því miður vill svo til að kjarnorkuverið lekur hér og þar, sem fer að hafa ansi slæm áfhrif á grey nemendurna, svo sem eins og að verða geðveikir, froðufella grænu eða breytast í ógurleg skrímsli. Svoldið í sama stíl og the Toxic Avenger með mörgum af sömu leikurunum. Frekar fyndin til að horfa á ef maður fílar splatter og grænt gums.

-Rökkvi