Chopper chicks in zombietown [***] (fæst í Laugarásvideo á DVD)
Troma
Ef bara vegna nafnsins þá verður maður að sjá þessa mynd. Geðbilaður vísindamaður
hefur komið sér upp ógrynnunum öllum af zombium í yfirgefinni námu í einhverjum litlum
redneck bæ í Suðurríkjum Bandaríkjanna. Um það bil sem gengi af leðurklæddum mótorhjólagellum
kemur í bæinn sleppa allir zomiarnir út og upphefst þar ógurlegt splatterstríð. Það fyndnasta
við þessa mynd er samt það að Billy Bob Thornton leikur lítið hlutverk í henni.
-Rökkvi
|
|