Cat women on the moon [*1/2] (fáanleg á Laugarásvideo)

Myndin er trú titlinum, annað er ekki hægt að segja. Þó er hún ekki nærri því eins vond eins og ætla mætti. Hún innihélt meira að segja söguþráð. Nokkuð gömul mynd í svarthvítum lit. Geimfarar sem koma til tunglsins komast að því að þar þrífst líf í einum af hellum þess. Þar hitta þeir "Cat women of the moon", laglegar konur í spandexi, sem hafa ill áform. Það flottasta í þessari mynd eru risa köngulærnar sem ráðast á geimfarana - eflaust hafa þær verið eitthvað sem leikstjórinn vann á lukkuhjólinu í tívolíi.

-Rökkvi