Cannibal Women (In The Avocado Jungle Of Death) [***]
Hvernig getur mynd með þessu nafni klikkað? Frábær mynd, fyndin og skemmtileg.
Aðalhetjan er ljóshært beib, sem einnig er prófessor í feminískum fræðum.
Ríkisstjórnin felur henni það verkefni að fara í avocado frumskóg dauðans og
semja við mannætukonurnar sem hann byggja. Avocado framleiðsla
Bandaríkjanna er í húfi, því Þær hafa nefnilega étið alla
sem inn í hafa reynt að tína avocado ávexti í skóginum. Nú er að duga eða
drepast, því engum hefur tekist að ráða niðurlögum hinna ógurlegu fólskukvenna,
og markaðsaðstaða Bandaríkjanna, og þar af leiðandi heimsekónómínan mun fara í
rúst ef aðgangur að avocadoávöxtunum er heftur.
Mikið af aulabröndurum og stanslaust femínista og karlrembuhúmor til skiptis
gera þessa mynd að einstaklega góðu eintaki af B-mynd.
-Rökkvi
|
|
|
|