Cannibal the musical [*1/2] (fáanleg á Laugarásvideo)
Mynd eftir Trey Parker og félaga sem gerðu South Park.
Nafnið er nú með því frumlegra. Myndin gerist á kúrekatímunum í Ameríku. Byrjunar atriðið er brilliant splatter sena, en allt í allt er þetta nú frekar langdregin mynd þó að það séu þarna nokkrir góðir punktar, sem þó eru reyndar nóg til að gera hana þess virði að sjá hana. Þarna eru líka a.m.k tvö mjög góð lög: "Let´s build a snowman" og "Hang the bastard" sem mjög auðvelt er að fá á heilann. Þeir félagarnir leika líka hlutverk í myndinni og eru mjög í karakter. Takið eftir Indíánunum í þessari mynd.
-Rökkvi
|
|
|
|