Buffy The Vampire Slayer Season 1 (1997) ***1/2 af fimm mögulegum
(fæst í Laugarásvideo)
Sarah Michelle Gellar: Buffy Summers
Nicholas Brendon: Xander Harris
Alyson Hannigan: Willow Rosenberg
Charisma Carpenter: Cordelia Chase
Anthony Stewart Head: Rupert Giles
3 spólur, 11 þættir, hver þáttur rúmlega 40 mín.
Vampýrubaninn Buffy er blautur draumur allra nörda. Þar er foxy gella að lumbra á skrýmslum
og vondum skepnum. Til að bæta svo um betur er einnig klínt inn vísindaskáldskap og
lágmenningartilvísunum í heim miðaldaógna eins og vampýra, djöfla og norna. Þættirnir
setja upp heimsmynd sem nördar eru tilbúnir að kokgleypa, þar sem ægir saman öllu því
sem fólk vill og vill ekki trúa á.
Aðalhetjan Buffy er 15 ára þegar fyrsta sería byrjar en þættirnir hefjast þar sem
kvikmyndinni Buffy the Vampire Slayer frá árinu 1992 sleppir. Eftir fyrstu kynni sín af
undirheimi vampýranna hefur Buffy flutt ásamt mömmu sinni til smábæjarins Sunnydale í
Kaliforníu. Svo óheppilega vill til að bærinn stendur á hliðum Heljar (austan megin,
miðað við stöðu sólar í 3 þætti).
Í Sunnydale hittir Buffy bókasafnsvörðinn Giles sem er umsjónarmaður hennar í dulrænum
efnum og kynnist krökkum í skólanum sem flækjast örðu hvoru í ævintýri hennar.
Þegar Buffy kemur í bæinn leysast úr læðingi ill öfl sem lengi hafa legið í dvala undir
Sunnydale. Meistarinn (en ekki Margaríta), ævagömul vampýra vaknar eftir aldalangan dvala
og leggur á ráðin um að drottna yfir heiminum. Á meðan Meistarinn undirbýr sig þarf
Buffy að kljást við ýmis ögrandi verkefni sem upp koma, auk þess að berjast gegn
liðsmönnum Meistarans. Árstíðinni lýkur svo með miklum bardaga og vopnagný þegar
Meistarinn loksins stígur upp á yfirborð Jarðar og heimsendir virðist í nánd.
Það er greinilegt að hér er um að ræða fyrstu seríu þar sem ekki er búið að þróa
tæknibrellurnar nægilega vel. Innfyllingarsögurnar eru upp til hópa frekar slappar
þrátt fyrir að vera skondnar, en hér má strax sjá þættirnir eru efnilegir og líklegir
til að komast á góðan skrið.
Söguþráðurinn er skemmtilega úthugsaður en útfærsla á persónum hefði mátt vera
markvissari. Handritshöfundar eru greinilega með persónusköpunina enn á tilraunastigi
að vissu leyti. Skemmtilegt er hvað innfyllingarsögurnar eru fjölbreytilegar þrátt
fyrir að vera ekki endilega góðar. Þær eru ágætis tilbreyting og gera það að verkum
að áhorfanda er farið að hlakka til að sjá aðalsöguna.
Orðræðan í Buffy á allan heiður skilinn. Þættirnir eru meinfyndnir og áhorfandi kemst
fljótt inn í skopskyn persónanna.
Nauðsynlegt bjórmagn: 1 flöskubjór
Jón Grétar og Berglaug
|
|
|
|