Brain Dead a.k.a. Dead Alive [****] (fáanleg á Laugarásvideo)
Óborganleg Zombie splattermynd. Rottuapi frá Súmötru er þeim kosti gæddur að allir sem hann bítur breytast í zombie. Lionel, ungur maður sem er kúgaður af móður sinni byrjar dramatískt ástarsamband við íðilfagra sígaunastúlku, gegn vilja mömmu sinnar. Þegar mamma hans er síðan bitin af apanum góða, fer mögnuð atburðarás af stað.
Klassískar setningar úr myndinni: "I kick ass for the lord!" "What we need is another war!"
-Rökkvi
|
|
|
|