Lágmenning.is lágkúrulegasta síðan á landinu!

Móðganir

Síðustu helgi fór ég í afmæli mágkonu minnar. Fyrir um 8 árum kynnti ég bróður minn fyrir henni fyrir tilviljun, því ég hafði þekkt hana smávegis úr menntaskóla. Mágkonu minni hefur þar af leiðandi eðlilega fundist að hún ætti þá að gera sitt besta til að finna konu handa mér, enda hef ég nú verið single mestallan tíman síðan.

Mágkona mín hefur semsagt í gegnum tíðina oft haft orð á því að koma mér saman við hinar ýmsu vinkonur sínar, gallinn er bara, eins og einn vinur mágkonu minnar orðaði það: "Rökkvi þú móðgar þær alltaf meira en þú heillar þær!"

Núna eru líka bara tvær vinkonur mágkonu minnar eftir sem eru einhleypar. Síðustu helgi móðgaði ég meira að segja aðra þeirra. Ég var eitthvað að ræða um það að ég ætlaði bara að fá mér yngri konu þegar ég væri orðinn miðaldra, því þá ætti ég örugglega svo mikinn pening. Einhvernveginn fannst henni felast í þessu viss karlremba og sagðist ætla að lemja mig (hún hefur nokkrum sinnum áður lamið fullorðna karlmenn í spað reyndar). Ég var samt hvergi hræddur og benti henni á að ég hafi oftar en ekki sigrað 100 kg karlmenn í glímu og að hún væri pottþétt ekki hundrað kíló - "og ef þú værir það, myndirðu örugglega ekki viðurkenna það!"

Þetta fannst henni ekki fyndið. Jæja, ég verð þá bara einhleypur þangað til ég verð orðinn miðaldra og svo ríkur að konum verði sama þó ég móðgi þær...




Dónaskapur fyrir heldra fólk

Í gær var ég að skemmta í Njarðvík af öllum stöðum. Merkilegt að síðasta uppistand sem ég var með á undan því var í stórborginni Montreal í Kanada. Enn merkilegra er líka að það var fyrir svona 40 áhorfendur miðað við svona 180 í Njarðvík!

Þetta var sem sagt þorrablót Ungmennafélags Njarðvíkur, þannig ég bjóst við ungu fólki. Þegar ég mæti á staðinn er þetta meira og minna allt miðaldra fólk, mér til mikils hryllings. Ekki það að ég sé ekki þekktur fyrir að vilja hneyksla fólk, en mér fannst samt eitthvað furðuleg tilhugsun að vera með minn klám, perra, karlrembu og rolluríðinga húmor fyrir uppdressað eldra fólk á virðulegu þorrablóti.

En viti menn, veislustjórinn sagði mér að vera bara sem grófastur, "þetta er nú einu sinni Njarðvík." Viti menn líka að minn lét þá bara kláminu rigna yfir gestina, við mikinn fögnuð og lófaklapp. Njarðvíkingar voru greinilega bara mjög auðfúsir til að fræðast um kynlíf við rollur, aldraðar grænlenskar kellingar og 200 kg offitusjúklinga. Ég mun sko glaður fara aftur til Njarðvíkur ef fólkið langar í frekari fræðslutíma.




Séð og heyrt heimsfrægð

Þetta var núa bara fínasta grein sem var birt um Montreal uppistandið mitt í síðustu viku í Séð og heyrt. Fyndið að maður kemst alltaf að hvaða fólk er að lesa þetta blað en neitar að viðurkenna það, þegar eitthvað svona gerist. Einhvernveginn þykist enginn lesa þetta, en samt er alveg ótrúlega mikið af fólki sem maður þekkir sem kemur til manns og segist hafa séð mann í blaðinu, eða fólk sem segir ættingjum manns að maður hafi komið þarna.

En það er náttúrulega ekkert eins og fólk sem ekki vissi hver maður var áður muni þekkja mann úti á götu eftir að hafa séð þetta blað. Ég var nefnilega rakaður sköllóttur eða hálfsköllóttur meðan ég var úti í Kanada og var með vel vaxið geitaskegg líka, alveg eins og á myndinni sem er núna á síðunni. Núna er ég hins vegar búinn að raka skeggið af mér og láta hárið vaxa. Gúddígaura lúkkið sem sagt komið aftur. Aldrei að vita samt nema ég taki upp hitt lúkkið aftur ef ég fer aftur að byrja í wrestling.




Árið 2005 í lágmenningu og hvað er framundan

Árið 2005 var ég næstum allt árið í Montreal í Kanada. Aðal hlutirnir sem gerðust hjá síðunni á Íslandi í fyrra voru dónalögin tvö sem bættust við: Píkuþrællinn þinn og Reykjavíkurfrík, sem bæði hafa verið sótt nokkur þúsund sinnum, það að uppistand.is var stofnuð og síðan náttúrulega fyrsta góðgerðaruppistandið undir Beygla.is.

Það vorum ég, beygla.is og Oddur Boxser skipulögðum og ég Oddur og Beggi Blindi komum fram í. Þetta var fyrsta góðgerðaruppistandið hjá Beygla.is, þar sem allur aðgangseyrir fór til Barnaspítala Hringsins og Geðhjálpar. Síðan tók ég einnig þátt í að skipuleggja annað svona uppistand síðasta nóvember, þar sem Þorsteinn Guðmundsson, Oddur og Beggi Blindi komu fram og gáfu aðgangseyrinn til Baraspítala Hringsins.

Annars var ég aðallega í því að koma fram í uppistandi úti í Montreal og Ottawa, en ég var með 22 uppistönd þar alls. Flest á svona open mike nights en eitt sem ég skipulagði sjálfur og eitt prívat. Það var mikil og góð reynsla, en hápunkturinn var örugglega þegar mér tókst að æsa upp áhorfanda til að lemja mig með stól (ekki af því að það hafi verið besta uppistandið mitt þarna, heldur bara vegna þess hvað það atvik var fyndið - sjá video). Merkilegt nokk þá var meira að segja minnst á mig í aðal enska dagblaðinu í Montreal eins og má sjá hérna.

Framundan á 2006 er fyrst og fremst meira uppistand. Næsta Beygla.is góðgerðaruppistand verður 9.febrúar með mér, Úlfari Linnet og Birgi Búasyni, með Odd sem kynni. Það verður til styrktar Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna. Það er pottþétt að þessi uppistönd verða síðan fleiri og að fleiri uppistandarar munu einnig taka þátt í þeim í framtíðinni.

Ég vona að allir geti síðan notið góðs lágmenningarárs árið 2006.




Næsta stóruppistand staðfest

Jæja, það er búið að staðfesta næsta Beygla.is uppistand. Það er fimmtudaginn 9.febrúar á Gauk á stöng klukkan 9:30. Það verða ég, Úlfar Linnet og Birgir Búason með Odd Boxser sem kynni og allur aðgangseyrir mun fara til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna.




Standup video og mp3

Jæja ég er með eitt uppistands video og eina mp3 hljóðskrá. Videoið er frá því í nóvember í Montreal og mp3 skráin er frá því í desember á síðasta kvöldinu sem ég var í Kanada. Lesendur síðunnar geta aðeins kíkt á þetta ef þeir vilja.

Uppistands video (33MB, 9mín)

Uppistands hljóðskrá (6,8MB 6mín)




Næsta uppistand

Næsta Beygla.is uppistand verður 9.febrúar á Gauk á stöng. Það verða ég og að öllum líkindum Úlfar Linnet og Birgir Búason, með Odd Boxser sem kynni. Ég hlakka mikið til að geta verið með jafnvel enn ósæmilegra og grófara efni en ég var með úti í Montreal.




Eins og ég hef alltaf hatað FM957, þá verð ég að viðurkenna að Zúbber símhrekkirnir eru margir mjög fyndnir, eins og til dæmis þessi Þessi




Kominn heim

Ég er kominn heim til Íslands aftur og alfarið fluttur hingað. Í janúar fer ég að skoða eitthvað með að vera með uppistönd í fyrsta lagi. Næsta Beygla.is uppistand yrði sennilega í janúar eða febrúar, en ég er búinn að vera í sambandi við nokkra uppistandara um að taka þátt í því. Það kemur líka í ljós hvað ég vil gera við þessa síðu, hvort það verður áfram blogg á forsíðunni eða hvort hún verður einhvernveginn öðruvísi.




Lokaspretturinn

Þetta er nú meira brjálæðið. Ég fer frá Montreal á laugardagsmorguninn, en er bókaður að koma fram öll kvöld þangað til. Í kvöld er ég að fara að koma fram í svona comedy improv í fyrsta skipti á Comedyworks, á morgun fer ég til Ottawa til að vera með uppistand, á fimmtudaginn er ég með uppistand fyrir fyrrverandi vinnufélagana og á föstudaginn verð ég með uppistand á Comedy Nest.

Ég flýg síðan heim frá Boston 12.des og lendi um moguninn 13.des. Það er ekkert skipluagt ennþá en ég býst við að næsta Beygla.is uppistand verði snemma í febrúar eða miðjan/seinni part janúar.




Síðustu dagarnir í Montreal

Ég er að fara að flytja heim til Íslands aftur og verð kominn 13.desember. Ég er með hálfgerðan "good bye tour" af uppistandi hérna áður en ég fer, enda er eins gott að kveðja með látum. Ég var með 3 í þessari viku og verð með 2 eða 3 í næstu.

Mest af efninu sem ég er með hérna úti er eitthvað sem ég samdi eftir að ég kom til Montreal og mikið af því var sérstaklega gert til að passa hérna. Eins og ég hef áður minnst á þá þarf maður meira að passa hvað maður segir hérna - eða þá passa hvernig maður segir það. Ég er svona nokkurnveginn búinn að finn línuna hérna, það er að segja hversu langt maður getur gengið.

Annars hef ég líka soldið verið að prófa improv leiklist hérna. Improv er yfirleitt kallað spuni á íslensku, en það er leiklist þar sem leikararnir hafa ekkert handrit. Þetta virkar þannig að einhver annar, eins og leikstjóri eða áhorfendur fá að ráða því hverjir leikararnir eru eða hvar þeir eru og þeir þurfa að vinna út frá því. Það eru líka ýmsir leikir með settum reglum sem improv leikarar leika.

Það eru eiginlega tvær tegundir af þessu. Þetta er annaðhvort meira leikrænt og er þá á stöðum eins og leikhúsum, eða þá að þetta er meira út í grín og er þá á svona grínklúbbum (comedyclubs). Ég var að læra báðar tegundir undir tveim mismuandi kennurum. Ég hef nokkrum sinnum komið fram í þessu leikrænna formi, en er ekkert spes góður í því. Mér gekk alltaf miklu betur í grín improvinu þegar ég var að æfa það, en hef ekki komið fram í því ennþá.

Á þriðjudaginn fæ ég hins vegar að prófa það aðeins og það verður þá forvitnilegt að sjá hvernig það heppnast. Aldrei að vita heldur nema ég athugi hvort ég geti kennt einhverjum af hinum grínistunum á Íslandi smá improv eftir að ég kem heim líka.

Jæja, nóg röfl í dag, ég blogga aftur seinna.




Grein í Montreal Gazette blaðinu um sýningu sem ég var í

Í byrjun nóvember var ég hluti af grín sýningu sem var haldin fjögur kvöld í röð í leikhúsi hérna í miðbænum í Montreal. Ég skannaði inn greinina.

Smellið hér til að sjá greinina og lesa meira um þetta

Smellið hér til að sjá stóra mynd af greininni




Uppistandið í Montreal

Vá ég er ekki búinn að blogga mjög lengi, en núna ætla ég að byrja aftur. Það er aðallega að frétta að ég er búinn að vera að koma fram sem uppistandari í Montreal og soldið sem improv/spuna leikari líka. Það tók mig langan tíma að komast á það stig að vera að koma fram reglulega, en núna er ég farinn að koma fram svona tvisvar í viku, sem er helvíti gott.

Fyrsta uppistandið sem ég var með hérna í mars, móðgaði áhorfendur heldur betur þannig ég fékk ekki að koma fram aftur fyrr en í ágúst. Ég var ekki að fara að bíða í aðra 4-5 mánuði eftir að fá að koma fram þannig ég nýtti mér það tækifæri til hins ítrasta. Fljótlega eftir það tókst mér að vinna mig upp og er núna búinn að koma fram alls 17 sinnum í Kanada, þar af 3svar í Ottawa og 14 sinnum í Montreal.

Ég er bókaður á Comedyworks klúbbnum hérna á mánudaginn og er búinn að setja upp mitt eigið uppistand með 3 öðrum grínistum á þriðjudaginn líka. Þetta er semsagt helvíti skemmtilegt dæmi, sem mun reyndar bráðum taka enda, því ég er að fara að flytja heim aftur 13. desember. Það er að vissu leiti leitt að vera að hætta í þessu hérna í Kanada núna þegar allt gengur svona vel, en ég hlakka samt til að skemmta ykkur Íslendingunum með gríninu sem er of gróft fyrir fólkið hérna :)




Fer aftur til Montreal á sunnudaginn

Það fer að styttast í að ég fari aftur út til Montreal. Ég kem örugglega aftur heim eitthvað næsta sumar í síðasta lagi. Vonandi get ég eitthvað verið með uppistand þarna úti líka og ég mun þá taka það upp á video.

Lágmenning.is verður áfram uppfærð meðan ég er úti.

Fylgist líka með á beygla.is hvernig verður með næsta beyglu uppistand. Eins og sumir hafa séð/heyrt þá erum við að reyna að hvetja þekkta íslenska uppistandara til að vera með, en héðan í frá eiga beygla.is uppistöndin öll að vera til styrktar einhverra góðra málefna eins og þetta síðasta.

Beygla.is uppistöndin verða væntanlega með svona rúmlega mánaðar fresti. Ég og Oddur erum þegar búnir að nefna það við tvo þekkta grínista að vera með í þessu og þeim leist vel á það. Boltinn er sem sagt að rúlla í þessum málum.




Er í Séð og heyrt núna

Jæja, ef þið kíkið á Séð og heyrt þá er smá grein um þegar ég, Beggi Blindi og Oddur Boxser gáfum Barnaspítala Hringsins dúkkuhús síðasta fimmtudag. Það er reyndar smá villa í þessari grein um hvernig við kynntumst. Þetta var í rauninni þannig að ég hafði hitt Odd nokkrum sinnum árið 2002, áður en hann varð grínisti, en síðan vorum við tengdir saman á MSN af sameiginlegum kunningja og byrjuðum að tala saman.

Í janúar á þessu ári nefndi ég síðan hugmyndina við Odd að hafa uppistand til styrktar Geðhjálpar og Barnaspítala Hringsins. Við fegnum Einar á begyla.is til að vera með í að skipuleggja og koma því á framfæri og Oddur fékk síðan Begga til að vera með okkur líka, því að þeir þekktust eitthvað áður.

En það er náttúrulega alltaf gaman að koma í Séð og heyrt, ef maður er að koma í því af réttum ástæðum það er að segja :)




NÝTT LAG - Reykjavíkurfrík

Jæja, nú er næsta lag hjá mér komið á netið: Reykjavíkurfrík sem er Scorpions lagið: "Wind of change" með mjög svo dónalegum texta og lítt fegurri boðskap en upphaflega lagið. Smellið á fyrirsögnina til að downloada og njótið vel.

Smellið hér til að sjá textann




Dúkkuhús handa Barnaspítala Hringsins

Í dag fórum ég og Oddur og Beggi á Barnaspítala Hringsins og gáfum leikstofunni þar dúkkuhús með húsgögnum og fólki. Ég fór í gær og keypti dúkkuhúsið og dótið hjá Barnasmiðjunni, sem voru svo ágætir að gefa 15% afslátt, sem þeir gera alltaf þegar er verið að kaupa eitthvað fyrir Barnaspítala Hringsins. Ég keypti sem sagt dót fyrir 25 þús kall, eða þann helming af uppistands peningunum sem áttu að renna til Barnaspítalans.

Við fengum síðan ljósmyndara frá Séð og Heyrt til að taka smá myndir af þessu og viðtal við okkur. Það má því búast við að sjá okkur í næsta tölublaði. Að sjálfsögðu settum við dúkkuhúsið líka saman, sem var bara stórskemmtilegt og minnti mann á þegar maður lék sér með lego í gamla daga eða þegar maður hefur verið að setja saman Ikea húsgögn (þetta var eitthvað þar á milli).

Þetta var allavegna mjög skemmtilegt og getur vel verið að maður geri eitthvað svona aftur.




Mjúki maðurinn

Í gær sendi ég email á Femínistafélagið með link á lagið mitt Píkuþrællinn þinn sem var titlað "Svona ættu allir karlmenn að vera. Lag sem þið femínistar ættuð að verða stóránægðar með".

Nú bíð ég bara eftir hundruðum bónorða frá femínistum og því að verða sæmdur heiðursorðu Íslenskra Femínista.





Eldri blogg

-Rökkvi Vésteinsson (rokkvi@lagmenning.is)