Beastmaster 2 [**] (fáanleg á Laugarásvideo)

Snilldarmynd ef horft er á hana með réttu hugarfari. Fjallar um svona Conan the barbarian týpu sem lallar um fantasíuveröldina sína ásamt gæludýrunum sýnum (sem eflaust hafa verið dópuð niður meðan á töku myndarinnar stóð). Gamanið kárnar hins vegar þegar hinn illi bróðir hans fer yfir í LA nútímans til að ná í kjarnorkusprengju (svoleiðis leikföng eiga þeir nefnilega ekki í fantasíuheiminum). Þá þarf hetjan náttúrulega að elta hann hið snarasta. Það er hins vegar erfitt að vera svona Conan-týpa í LA, t.d. er tígrisdýrið hans sett í dýragarð og fólk gerir grín að honum og kallar hann Tarzan og svoleiðis, en hann hittir samt nokkuð sæta gellu og lærir að segja "asshole" þannig að það er nú ekki alslæmt hjá honum. Síðan fer hann náttúrulega að slást soldið við vonda bróðurinn í sönnum barbarian stíl, og er þá búinn að læra þetta líka fína orð til að kalla hann.

-Rökkvi