The Beastmaster [**1/2] (fæst í Laugarásvideo)

Fantasy mynd um ungan dreng sem alinn er upp í litlu þorpi af fósturföður sínum. Hann kemst fljótt að því að hann getur lesið huga dýra og jafnvel stjórnað þeim. Þegar hinn illi óvinaher leggur þorp hans í rúst leggur Dar út í heiminn. Eftir að hafa fengið til liðs við sig svart tígrisdýr, örn og tvo merði er Dar tilbúinn til að ganga inn í týpískan söguþráð fyrir svona myndir, finna flotta gellu, berjast gegn illu, hefna föður síns og frelsa hina kúguðu og allt sem tilheyrir. Ágætis mynd til að horfa á og gaman að fylgjast með dýrunum sem notuð eru í myndinni.

-Rökkvi