Barbarella Queen of the Galaxy [***] (fæst í Laugarásvideo)
Þetta var ansi fyndin mynd og fyrsta kvikmyndin sem Jane Fonda lék í. Þarna
á geimskvísan Barbarella að finna týndan vísindamann, Duran Duran (og þótt
ótrúlegt megi virðast þá var hljómsveitin fræga nefnd eftir þessari sögupersónu).
Það hefur ekki verið stríð í heiminum í óralangan tíma, en þar sem Duran Duran
hafði fundið upp ógurlegt vopn, gæti ófriður nú aftur brotist út. Lausnin á þessu
er að sjálfsögðu að senda sætustu skvísu sólkerfisins til að finna hann og redda
málunum. Þetta er nokkuð fyndin mynd á léttsýrðan hátt.
-Rökkvi
|
|
|
|