Bad Taste [****] (fáanleg á Laugarásvideo)

Þetta er eflaust besta B-mynd allra tíma. Sérsveitin the boys, sem samanstendur af nokkrum nýsjálenskum plebbum, sem hafa það hlutverk að vernda jörðina (og tunglið) gegn árásum geimvera, kemst í hann krappan þegar lord Crum kemur til lítils smábæjar við ströndina. Lord Crum hyggst nefnilega fara að bæta mannakjöti á matseðilinn hjá Crum´s country delight veitingastaðakeðjunni sinni og hefur pakkað þegar pakkað heilu þorpi inn í nokkra pappakassa.
Klassískar setningar úr myndinni: "I´m a Derek, and Dereks don´t run." "Should have expected that."

-Rökkvi