Bad Taste

Ég settist niður og horfði á Bad Taste sem er ein besta B-mynd allra tíma, og það að það er sami leikstjóri og gerir Lord of the rings er náttúrulega bara snilld.
Myndin fjallar um náunga sem eru að eltast við geimverur í litlum bæ á Nýja Sjálandi og upphefst skemmtileg atburðarás, þar sem þeir reyna að gera út um geimverurnar.
Þetta er frábær mynd og fær hún alveg hæstu einkunn hjá mér, það er góður húmor í myndinni og vel heppnuð í alla staði.

***** af 5 mögulegum.

GEG