Lágmenning.is lágkúrulegasta síðan á landinu!

Móðganir

Síðustu helgi fór ég í afmæli mágkonu minnar. Fyrir um 8 árum kynnti ég bróður minn fyrir henni fyrir tilviljun, því ég hafði þekkt hana smávegis úr menntaskóla. Mágkonu minni hefur þar af leiðandi eðlilega fundist að hún ætti þá að gera sitt besta til að finna konu handa mér, enda hef ég nú verið single mestallan tíman síðan.

Mágkona mín hefur semsagt í gegnum tíðina oft haft orð á því að koma mér saman við hinar ýmsu vinkonur sínar, gallinn er bara, eins og einn vinur mágkonu minnar orðaði það: "Rökkvi þú móðgar þær alltaf meira en þú heillar þær!"

Núna eru líka bara tvær vinkonur mágkonu minnar eftir sem eru einhleypar. Síðustu helgi móðgaði ég meira að segja aðra þeirra. Ég var eitthvað að ræða um það að ég ætlaði bara að fá mér yngri konu þegar ég væri orðinn miðaldra, því þá ætti ég örugglega svo mikinn pening. Einhvernveginn fannst henni felast í þessu viss karlremba og sagðist ætla að lemja mig (hún hefur nokkrum sinnum áður lamið fullorðna karlmenn í spað reyndar). Ég var samt hvergi hræddur og benti henni á að ég hafi oftar en ekki sigrað 100 kg karlmenn í glímu og að hún væri pottþétt ekki hundrað kíló - "og ef þú værir það, myndirðu örugglega ekki viðurkenna það!"

Þetta fannst henni ekki fyndið. Jæja, ég verð þá bara einhleypur þangað til ég verð orðinn miðaldra og svo ríkur að konum verði sama þó ég móðgi þær...




Dónaskapur fyrir heldra fólk

Í gær var ég að skemmta í Njarðvík af öllum stöðum. Merkilegt að síðasta uppistand sem ég var með á undan því var í stórborginni Montreal í Kanada. Enn merkilegra er líka að það var fyrir svona 40 áhorfendur miðað við svona 180 í Njarðvík!

Þetta var sem sagt þorrablót Ungmennafélags Njarðvíkur, þannig ég bjóst við ungu fólki. Þegar ég mæti á staðinn er þetta meira og minna allt miðaldra fólk, mér til mikils hryllings. Ekki það að ég sé ekki þekktur fyrir að vilja hneyksla fólk, en mér fannst samt eitthvað furðuleg tilhugsun að vera með minn klám, perra, karlrembu og rolluríðinga húmor fyrir uppdressað eldra fólk á virðulegu þorrablóti.

En viti menn, veislustjórinn sagði mér að vera bara sem grófastur, "þetta er nú einu sinni Njarðvík." Viti menn líka að minn lét þá bara kláminu rigna yfir gestina, við mikinn fögnuð og lófaklapp. Njarðvíkingar voru greinilega bara mjög auðfúsir til að fræðast um kynlíf við rollur, aldraðar grænlenskar kellingar og 200 kg offitusjúklinga. Ég mun sko glaður fara aftur til Njarðvíkur ef fólkið langar í frekari fræðslutíma.




Séð og heyrt heimsfrægð

Þetta var núa bara fínasta grein sem var birt um Montreal uppistandið mitt í síðustu viku í Séð og heyrt. Fyndið að maður kemst alltaf að hvaða fólk er að lesa þetta blað en neitar að viðurkenna það, þegar eitthvað svona gerist. Einhvernveginn þykist enginn lesa þetta, en samt er alveg ótrúlega mikið af fólki sem maður þekkir sem kemur til manns og segist hafa séð mann í blaðinu, eða fólk sem segir ættingjum manns að maður hafi komið þarna.

En það er náttúrulega ekkert eins og fólk sem ekki vissi hver maður var áður muni þekkja mann úti á götu eftir að hafa séð þetta blað. Ég var nefnilega rakaður sköllóttur eða hálfsköllóttur meðan ég var úti í Kanada og var með vel vaxið geitaskegg líka, alveg eins og á myndinni sem er núna á síðunni. Núna er ég hins vegar búinn að raka skeggið af mér og láta hárið vaxa. Gúddígaura lúkkið sem sagt komið aftur. Aldrei að vita samt nema ég taki upp hitt lúkkið aftur ef ég fer aftur að byrja í wrestling.




Árið 2005 í lágmenningu og hvað er framundan

Árið 2005 var ég næstum allt árið í Montreal í Kanada. Aðal hlutirnir sem gerðust hjá síðunni á Íslandi í fyrra voru dónalögin tvö sem bættust við: Píkuþrællinn þinn og Reykjavíkurfrík, sem bæði hafa verið sótt nokkur þúsund sinnum, það að uppistand.is var stofnuð og síðan náttúrulega fyrsta góðgerðaruppistandið undir Beygla.is.

Það vorum ég, beygla.is og Oddur Boxser skipulögðum og ég Oddur og Beggi Blindi komum fram í. Þetta var fyrsta góðgerðaruppistandið hjá Beygla.is, þar sem allur aðgangseyrir fór til Barnaspítala Hringsins og Geðhjálpar. Síðan tók ég einnig þátt í að skipuleggja annað svona uppistand síðasta nóvember, þar sem Þorsteinn Guðmundsson, Oddur og Beggi Blindi komu fram og gáfu aðgangseyrinn til Baraspítala Hringsins.

Annars var ég aðallega í því að koma fram í uppistandi úti í Montreal og Ottawa, en ég var með 22 uppistönd þar alls. Flest á svona open mike nights en eitt sem ég skipulagði sjálfur og eitt prívat. Það var mikil og góð reynsla, en hápunkturinn var örugglega þegar mér tókst að æsa upp áhorfanda til að lemja mig með stól (ekki af því að það hafi verið besta uppistandið mitt þarna, heldur bara vegna þess hvað það atvik var fyndið - sjá video). Merkilegt nokk þá var meira að segja minnst á mig í aðal enska dagblaðinu í Montreal eins og má sjá hérna.

Framundan á 2006 er fyrst og fremst meira uppistand. Næsta Beygla.is góðgerðaruppistand verður 9.febrúar með mér, Úlfari Linnet og Birgi Búasyni, með Odd sem kynni. Það verður til styrktar Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna. Það er pottþétt að þessi uppistönd verða síðan fleiri og að fleiri uppistandarar munu einnig taka þátt í þeim í framtíðinni.

Ég vona að allir geti síðan notið góðs lágmenningarárs árið 2006.




Næsta stóruppistand staðfest

Jæja, það er búið að staðfesta næsta Beygla.is uppistand. Það er fimmtudaginn 9.febrúar á Gauk á stöng klukkan 9:30. Það verða ég, Úlfar Linnet og Birgir Búason með Odd Boxser sem kynni og allur aðgangseyrir mun fara til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna.




Standup video og mp3

Jæja ég er með eitt uppistands video og eina mp3 hljóðskrá. Videoið er frá því í nóvember í Montreal og mp3 skráin er frá því í desember á síðasta kvöldinu sem ég var í Kanada. Lesendur síðunnar geta aðeins kíkt á þetta ef þeir vilja.

Uppistands video (33MB, 9mín)

Uppistands hljóðskrá (6,8MB 6mín)





Eldri blogg

-Rökkvi Vésteinsson (rokkvi@lagmenning.is)