Næsta uppistandNæsta Beygla.is uppistand verður 9.febrúar á Gauk á stöng. Það verða ég og að öllum líkindum Úlfar Linnet og Birgir Búason, með Odd Boxser sem kynni. Ég hlakka mikið til að geta verið með jafnvel enn ósæmilegra og grófara efni en ég var með úti í Montreal.
posted by Rökkvi on 12/27/2005 06:10:00 PM
Eins og ég hef alltaf hatað FM957, þá verð ég að viðurkenna að Zúbber símhrekkirnir eru margir mjög fyndnir, eins og til dæmis þessi
Þessi
posted by Rökkvi on 12/27/2005 05:54:00 PM
Kominn heimÉg er kominn heim til Íslands aftur og alfarið fluttur hingað. Í janúar fer ég að skoða eitthvað með að vera með uppistönd í fyrsta lagi. Næsta Beygla.is uppistand yrði sennilega í janúar eða febrúar, en ég er búinn að vera í sambandi við nokkra uppistandara um að taka þátt í því. Það kemur líka í ljós hvað ég vil gera við þessa síðu, hvort það verður áfram blogg á forsíðunni eða hvort hún verður einhvernveginn öðruvísi.
posted by Rökkvi on 12/17/2005 08:43:00 AM
LokaspretturinnÞetta er nú meira brjálæðið. Ég fer frá Montreal á laugardagsmorguninn, en er bókaður að koma fram öll kvöld þangað til. Í kvöld er ég að fara að koma fram í svona comedy improv í fyrsta skipti á Comedyworks, á morgun fer ég til Ottawa til að vera með uppistand, á fimmtudaginn er ég með uppistand fyrir fyrrverandi vinnufélagana og á föstudaginn verð ég með uppistand á Comedy Nest.
Ég flýg síðan heim frá Boston 12.des og lendi um moguninn 13.des. Það er ekkert skipluagt ennþá en ég býst við að næsta Beygla.is uppistand verði snemma í febrúar eða miðjan/seinni part janúar.
posted by Rökkvi on 12/06/2005 08:22:00 PM
Síðustu dagarnir í MontrealÉg er að fara að flytja heim til Íslands aftur og verð kominn 13.desember. Ég er með hálfgerðan "good bye tour" af uppistandi hérna áður en ég fer, enda er eins gott að kveðja með látum. Ég var með 3 í þessari viku og verð með 2 eða 3 í næstu.
Mest af efninu sem ég er með hérna úti er eitthvað sem ég samdi eftir að ég kom til Montreal og mikið af því var sérstaklega gert til að passa hérna. Eins og ég hef áður minnst á þá þarf maður meira að passa hvað maður segir hérna - eða þá passa hvernig maður segir það. Ég er svona nokkurnveginn búinn að finn línuna hérna, það er að segja hversu langt maður getur gengið.
Annars hef ég líka soldið verið að prófa improv leiklist hérna. Improv er yfirleitt kallað spuni á íslensku, en það er leiklist þar sem leikararnir hafa ekkert handrit. Þetta virkar þannig að einhver annar, eins og leikstjóri eða áhorfendur fá að ráða því hverjir leikararnir eru eða hvar þeir eru og þeir þurfa að vinna út frá því. Það eru líka ýmsir leikir með settum reglum sem improv leikarar leika.
Það eru eiginlega tvær tegundir af þessu. Þetta er annaðhvort meira leikrænt og er þá á stöðum eins og leikhúsum, eða þá að þetta er meira út í grín og er þá á svona grínklúbbum (comedyclubs). Ég var að læra báðar tegundir undir tveim mismuandi kennurum. Ég hef nokkrum sinnum komið fram í þessu leikrænna formi, en er ekkert spes góður í því. Mér gekk alltaf miklu betur í grín improvinu þegar ég var að æfa það, en hef ekki komið fram í því ennþá.
Á þriðjudaginn fæ ég hins vegar að prófa það aðeins og það verður þá forvitnilegt að sjá hvernig það heppnast. Aldrei að vita heldur nema ég athugi hvort ég geti kennt einhverjum af hinum grínistunum á Íslandi smá improv eftir að ég kem heim líka.
Jæja, nóg röfl í dag, ég blogga aftur seinna.
posted by Rökkvi on 12/02/2005 08:16:00 PM