Lágmenning.is lágkúrulegasta síðan á landinu!
Fer aftur til Montreal á sunnudaginnÞað fer að styttast í að ég fari aftur út til Montreal. Ég kem örugglega aftur heim eitthvað næsta sumar í síðasta lagi. Vonandi get ég eitthvað verið með uppistand þarna úti líka og ég mun þá taka það upp á video. Lágmenning.is verður áfram uppfærð meðan ég er úti. Fylgist líka með á beygla.is hvernig verður með næsta beyglu uppistand. Eins og sumir hafa séð/heyrt þá erum við að reyna að hvetja þekkta íslenska uppistandara til að vera með, en héðan í frá eiga beygla.is uppistöndin öll að vera til styrktar einhverra góðra málefna eins og þetta síðasta. Beygla.is uppistöndin verða væntanlega með svona rúmlega mánaðar fresti. Ég og Oddur erum þegar búnir að nefna það við tvo þekkta grínista að vera með í þessu og þeim leist vel á það. Boltinn er sem sagt að rúlla í þessum málum.
posted by Rökkvi on 7/29/2005 02:38:00 PM
Er í Séð og heyrt núnaJæja, ef þið kíkið á Séð og heyrt þá er smá grein um þegar ég, Beggi Blindi og Oddur Boxser gáfum Barnaspítala Hringsins dúkkuhús síðasta fimmtudag. Það er reyndar smá villa í þessari grein um hvernig við kynntumst. Þetta var í rauninni þannig að ég hafði hitt Odd nokkrum sinnum árið 2002, áður en hann varð grínisti, en síðan vorum við tengdir saman á MSN af sameiginlegum kunningja og byrjuðum að tala saman. Í janúar á þessu ári nefndi ég síðan hugmyndina við Odd að hafa uppistand til styrktar Geðhjálpar og Barnaspítala Hringsins. Við fegnum Einar á begyla.is til að vera með í að skipuleggja og koma því á framfæri og Oddur fékk síðan Begga til að vera með okkur líka, því að þeir þekktust eitthvað áður. En það er náttúrulega alltaf gaman að koma í Séð og heyrt, ef maður er að koma í því af réttum ástæðum það er að segja :)
posted by Rökkvi on 7/27/2005 03:01:00 PM
NÝTT LAG - ReykjavíkurfríkJæja, nú er næsta lag hjá mér komið á netið: Reykjavíkurfrík sem er Scorpions lagið: "Wind of change" með mjög svo dónalegum texta og lítt fegurri boðskap en upphaflega lagið. Smellið á fyrirsögnina til að downloada og njótið vel. Smellið hér til að sjá textann
posted by Rökkvi on 7/25/2005 01:07:00 AM
Dúkkuhús handa Barnaspítala HringsinsÍ dag fórum ég og Oddur og Beggi á Barnaspítala Hringsins og gáfum leikstofunni þar dúkkuhús með húsgögnum og fólki. Ég fór í gær og keypti dúkkuhúsið og dótið hjá Barnasmiðjunni, sem voru svo ágætir að gefa 15% afslátt, sem þeir gera alltaf þegar er verið að kaupa eitthvað fyrir Barnaspítala Hringsins. Ég keypti sem sagt dót fyrir 25 þús kall, eða þann helming af uppistands peningunum sem áttu að renna til Barnaspítalans. Við fengum síðan ljósmyndara frá Séð og Heyrt til að taka smá myndir af þessu og viðtal við okkur. Það má því búast við að sjá okkur í næsta tölublaði. Að sjálfsögðu settum við dúkkuhúsið líka saman, sem var bara stórskemmtilegt og minnti mann á þegar maður lék sér með lego í gamla daga eða þegar maður hefur verið að setja saman Ikea húsgögn (þetta var eitthvað þar á milli). Þetta var allavegna mjög skemmtilegt og getur vel verið að maður geri eitthvað svona aftur.
posted by Rökkvi on 7/21/2005 03:27:00 PM
Mjúki maðurinnÍ gær sendi ég email á Femínistafélagið með link á lagið mitt Píkuþrællinn þinn sem var titlað "Svona ættu allir karlmenn að vera. Lag sem þið femínistar ættuð að verða stóránægðar með". Nú bíð ég bara eftir hundruðum bónorða frá femínistum og því að verða sæmdur heiðursorðu Íslenskra Femínista.
posted by Rökkvi on 7/19/2005 03:59:00 PM
NÝTT LAG - Píkuþrællinn þinnJæja, núna loksins er ég búinn að gera nýtt lag, sem heitir "Píkuþrællinn þinn." Þetta er lagið "I don´t wanna live without your love" með hljómsveitinni Chicago, sem ég er búinn að taka og setja nýjan texta við. Þetta lag er ég búinn að ætla að gera síðan sumarið 2002 og var meira að segja búinn að lofa vinkonu minni að tileinka henni þetta lag, þannig ég er mjög feginn að loksins geta klárað þetta. Það var Steinar gítarleikarinn í Coral sem spilaði og tók upp alla tónlistina við þetta og tók upp sönginn (gaulið) í mér. Hann er ekkert smá fær strákurinn, þar sem ég lét hann hafa diskinn með Chicago á föstudagskvöldið og hann var búinn að taka upp alla tónlistina um miðjan laugardaginn, hljómborð, gítar, trommur, bassa og det hele. Þetta er soldið ólíkt fyrri lögunum mínum í því að þetta er væmið ástarlag, en samt þó með ákveðnum einkennum um það að vera eitt af "mínum" lögum. Smellið á fyrirsögnina til að hlusta og njótið vel! Smellið hér til að sjá textann
posted by Rökkvi on 7/17/2005 03:04:00 PM
Mjög sátturÉg er ekkert smá sáttur með allt í sambandi við uppisandið sem við vorum með á fimmtudaginn. Ég vil líka þakka Visa á Íslandi fyrir að lána okkur posavél, SS fyrir að styrkja okkur, Ísland í bítið liðinu fyrir að taka okkur í viðtal og Blaðinu fyrir að auglýsa uppistandið. Það var líka frábært að vinna með Beygla.is, þeir gerðu góða hluti í að auglýsa uppistandið og það er mjög gott framtak að ætla að reyna að gera þetta að mánaðarlegum atburði, það er að segja að öll framtíðar uppistönd beygla.is muni vera til styrktar góðgerðarstarfs. Ég og Beggi og Oddur förum sennilega í vikunni og kaupum dúkkuhús handa leikstofu Barnaspítala Hringsins í vikunni fyrir peningana sem við söfnuðum, frekar en að bíða með að þessi Ólafía komi úr fríi og láta hana hafa peningana. Mér fannst líka frábært að finna hvað mér hefur farið fram sem uppistandara. Það var ekkert lítill munur á þessu uppistandi og fyrstu uppistöndunum mínum til dæmis, eins og þegar ég var í Fyndnasta manni Íslands eða fyrsta skiptið sem ég var á Stúdentakjallaranum. Ekki það að það hafi ekki verið hlegið að manni þá, en munurinn er samt fáránlegur. Alltaf gaman að því að sjá árangurinn af því sem maður hefur verið að gera.
posted by Rökkvi on 7/17/2005 02:55:00 PM
Frábært uppistand í gær!Uppistandið í gær gekk snilldarlega vel. Maður hefur þetta ennþá í sér greinilega. Það var æðislegt að koma aftur upp á svið eftir að hafa bara verið með 5 mín af uppistandi síðasta hálfa árið. Það var líka æði að skemmta aftur fyrir Íslendinga, sem kunna að meta kaldhæðinn húmor í staðinn fyrir að pissa í brækurnar af hneykslun eins og liðið í Montreal. Beggi og Oddur voru líka frábærir. Beggi er með endalaust mikið af endalaust fyndnum bröndurum um blinda. Hápunkturinn hjá Oddi var eflaust þegar hann las upp klassíska bréfið sitt til Afríku. Það var allavegana snilld að vinna með þessum gaurum. Visa lánaði okkur posavél ókeypis og eiga góðar þakkir skilið fyrir það. SS styrkti okkur mjög vel og keyptu 20 miða. Það voru 79 manns sem borguðu sig inn, sem með miðunum sem SS keypti gera 49.500 kr. Ég er þegar búinn að borga 24.750 til Geðhjálpar, en liðið á barnaspítalanum vill bíða með að taka við peningunum þangað til Ólafía, konan sem sér um þessi mál hjá þeim kemur úr sumarfríi 28.júlí svo þetta verði meira formlegt. Ég mun að sjálfsögðu reyna að skanna inn kvittanirnar af innborgununum á þessa aðila og setja á netið, enda alltaf best að sýna gott fordæmi með að vera með mjög hreint og sýnilegt bókhald í þessum málum. Þakka öllum sem mættu. :)
posted by Rökkvi on 7/15/2005 03:20:00 PM
Standup á Gauk á stöng á fimmtudaginnÞá fer að koma að því. Ég, Oddur Boxser af boxser.is og Beggi blindi sem er núverandi fyndnasti maður MH, verðum með uppistand á Gauk á stöng, næsta fimmtudag, 14.júlí. Mæting er kl.22:00 og það er 500 kall inn, en allur aðgangseyrir rennur til Barnaspítala Hringsins og Geðhjálpar. Þetta mun augljóslega verða ósvífinn húmor og engum hlíft, enda er 18 ára aldurstakmark inn. Ég hvet alla til að mæta og styrkja gott málefni, um leið og þið látið skemmta ykkur með ósómanum úr okkur félugunum. Sjáumst þar ;)
posted by Rökkvi on 7/11/2005 01:44:00 PM
Ég VERÐ að sjá þessa mynd!
posted by Rökkvi on 7/05/2005 05:28:00 PM
Eldri blogg
-Rökkvi Vésteinsson (rokkvi@lagmenning.is)
|