Kem heim á mánudaginn 4.júlíOk ég verð kominn heim á mánudaginn. Það er planið að halda partý fyrir vini mína föstudaginn 8.júlí. Þið getið væntanlega hringt í mig í 8950024 eftir að ég kem heim.
posted by Rökkvi on 6/30/2005 02:42:00 PM
Teletubbies leikur!Jibbí, jibbí, gaman, aftur, aftur!
posted by Rökkvi on 6/28/2005 05:33:00 PM
Standup 14.júlí á Gauk á stöngÞá er það staðfest! Ég, Oddur Eysteinn (betur þekktur sem
boxser.is) og fyndnasti maður MH, Bergvin Oddsson (betur þekktur sem Beggi blindi) verðum með massíft uppistand á Gauk á stöng fimmtudaginn 14.júli í samvinnu við
Beygla.isNánari upplýsingar munu verða birtar síðar. Allur ágóði af miðum seldum mun renna til Barnaspítala Hringsins og Geðhjálpar. Allt spons, að frátöldum þeim peningum sem við þurfum til að prenta auglýsingaplaköt og miða, munu einnig renna til Barnaspítala Hringsins og Geðhjálpar.
posted by Rökkvi on 6/23/2005 08:27:00 PM
"I seek you"Kannast einhver við eldgamla og bráðum úrelta instant messenger tólið ICQ (I seek you)? Þetta er allavegna eins og MSN messenger, nema að maður á helst að setja meiri upplýsingar um sjálfan sig þar, svo fólk geti leitað mann uppi. Þetta er ekki bara gert til að gamlir vinir manns geti leitað mann uppi, heldur líka til að láta ICQ virka eins og einkamál.is eða álíka. Þú átt semsagt að geta leitað að fólki til að chatta við (og kannski hössla).
Þetta gerir ICQ nokkurn veginn ónothæft fyrir spömurum sem vilja endilega tala við mann og selja manni eitthvað, eins og til dæmis sjálft sig.
Um daginn leiddist mér og ákvað að opna ICQ og opna mig fyrir spaminu. Ekki líður á löngu þar til það sem segist vera 21 árs stúlka frá Malasíu byrjar að tala við mig. Mér datt í hug að opna samræðurnar á kammó línu eins og:
RV: "Svo þú ert ein af þessum Malasísku konum sem ert að reyna að finna þér ríkan vestrænan mann til að giftast"
Strawberry: "Svo þú ert einn af þessum heimsku vestrænum mönnum sem halda að allar konur vilji giftast sér"
RV: "Nei, ég held ekkert að allar konur vilji giftast mér, bara þær sem eiga miklu minni pening en ég"
Strawberry: "Svo áttu ógeðslega mikinn pening?"
RV: "Sko, ég vissi að þú hefðir áhuga!"
System msg: "Strawberry appears to be offline and may not reply"
posted by Rökkvi on 6/21/2005 02:56:00 PM
Standup í júlíNú er næstum búið að ganga frá uppistandi í júlí sem ég,
Oddur Boxser og Bergvin Oddsson verðum með til styrktar Geðhjálpar og Barnaspítala Hringsins. Nánari upplýsingar síðar.
posted by Rökkvi on 6/21/2005 02:34:00 PM
"Rökki vettu lúði!"Ég er yfirleitt uppáhalds frændinn hjá öllum litlu frændsyskinum mínum. Sennilega af því að ég er næst þeim í þroskastigi. Litlu börn systur minnar halda meðal annars mjög mikið upp á mig, en það er spurning hvort það sem ég kenni þeim sé uppeldislega gott.
Einn leikur sem ég lék alltaf við litla frænda minn, var að "vera lúði" þar sem ég lét eins og asni og gerði mig heimskulegan á svipinn og hann lamdi mig með púða. Til að gera meira fjör lét ég mig alltaf detta á rassinn með miklum og lúðalegum tilþrifum þegar hann náði að lemja mig. Þetta fannst litla frænda að sjálfsögðu mjög skemmtilegt. Þótt þroskaðra fólk hefði orð á því að þetta gæti kennt honum að það sé fyndið að leggja asnalegt fólk í einelti síðar meir á ævinni. (Mér finnst svo sem alveg allt í lagi að hann læri þá staðreynd núna frekar en seinna).
Litla systir hans sem var eins og hálfs þegar hann var þriggja ára að lemja lúðann, var að sjálfsögðu strax mjög hrifin af þessum leik og gerði góðar tilraunir til að lemja mig með púðum sem hún gat tæplega loftað.
Seinna meir þegar hún varð aðeins eldri fór hún að hafa vit til að segja "Rökki vettu lúði!" Og ef ég mótmælti sagði bróðir hennar vonsvikinn: "Já en ég er tilbúinn með púða!"
Núna þegar mamma hans sagði honum að ég væri bráðum að koma heim frá Kanada sagði hann upp með sér "Já Rökkvi verður lúði og ég lem hann með púða!" Það er gott að einhver hlakkar til að sjá mig aftur.....
posted by Rökkvi on 6/12/2005 12:45:00 AM
Smá mynd af BushFann þetta á netinu, kannski ekkert vandað eða frumlegt, en mér finnst þetta soldið táknrænt....
posted by Rökkvi on 6/04/2005 07:39:00 AM
Núna er ég hræddur!Eins og ég hef áður sagt þá var íbúðin mín í Montreal alger rottuhola og ekki bara af því að gælurottan mín býr í henni, heldur fyrst og fremst af því að sóðinn ég bý þar. Allt draslið mitt var á gólfinu, ég var ekki með nein húsgögn nema sjónvarp, rúm og lítinn skáp sem ekkert komst í.
Þegar ég kom hins vegar heim um daginn brá mér heldur betur við. Það var búið að setja fatakommoðu og skrifborð inn í íbúðina, taka til, skúra gólfið og meira að segja þrífa klósettið. Eina manneskjan sem hefði getað gert þetta er gamla konan sem leigir mér íbúðina. Að vissu leyti var þetta vel þegið, en samt mjög furðulegt, ekki síst þar sem Hustler klámblaðið mitt er horfið síðan þetta gerðist.
Ég get heldur ekki neitað því að ég hef áhyggjur. Greiði krefst oft greiða á móti og leigjandinn minn er áttræð kelling. Úr því hún stal klámblaðinu mínu hef ég ástæðu til að trúa að þetta viti ekki á gott. Í gær var líka miði frá henni á hurðinni minni "Verð heima milli 9 og 11 annað kvöld" og þar sem ég verð að borga henni leiguna í byrjun hvers mánaðar get ég ekki svikist um að líta við. Ég vona bara að ég komist upp með að borga eingöngu með peningum!
posted by Rökkvi on 6/02/2005 12:22:00 AM