Lágmenning.is lágkúrulegasta síðan á landinu!

Dýralíf í Montreal

Ég hef alltaf haft gaman af hvers kyns kvikyndum, fyrir utan einstaka fyrirbærum eins og moskítóflugum, hundum sem gelta endalaust í næsta garði þegar ég er að læra fyrir próf, hundum sem reyna að ríða löppinni á mér og svoleiðis óþolandi viðbjóði.

Það er mikið af kvikyndum út um allt í Montreal og flest af þeim eru frekar skemmtileg. Um daginn var ég til dæmis að labba og sá tvo ketti í garði, sem mér fannst rosalega feitir, með mjög loðinn feld og soldið mikla kryppu. Þá voru þetta auðvitað bara þvottabirnir að spássera, alveg gersamlega óhræddir við fólk. Einu sinni þegar ég var að labba heim um kvöld sá ég líka þvottabjörn tvo metra frá mér að kjamsa á ruslapoka nágrannans - mikið var það sætt.

Íkornarnir eru líka soldið fyndin fyrirbæri. Sumir eru varir um sig, en sumir bókstaflega hlaupa upp í fangið á manni og rífa af manni matinn sem maður er með í hendinni. Eins gott að íkornar eru sætir - annars kæmust þeir aldrei upp með þetta (væri eins og ef forljót brussa færi að reyna að fá mann til að kaupa drykk handa sér, nei það myndi sko ekki virka).

Mest áberandi villtu kvikyndin hérna eru samt rónarnir. Þeir eru auðvitað sjaldnast mjög sætir þannig ég gef þeim aldrei neinar hnetur (og hvað þá peninga) ef ég mögulega kemst hjá því. Mér finnst heldur ekkert sætt þegar þeir eru að kjamsa á ruslapokum eins og þvottabirnirnir. Rónarnir eru þar af leiðandi minnst uppáhalds villidýrin mín í Montreal.




Heimkoma

Ég kem heim til Íslands eldsnemma 4.júlí og fer aftur til Montreal 31.júlí Ég mun vinna fyrstu 2 vikurnar og vera síðan í fríi. Ég mun verða með eitt eða fleiri uppistönd heima, meira um það þegar nær dregur.




Rónar og dónar

Það er auðvitað fullt af rónum og betlurum í Montreal. Yfirleitt labbar maður bara framhjá þeim án þess að horfa á þá, enda finnst mér alveg það háir skattar í Kanada að ríkið ætti að geta séð fyrir þeim. Mér finnst svo sem fínt að gefa smá peninga til þeirra sem eru að gera eitthvað skemmtilegt eins og að spila á hljóðfæri eða þess háttar, en ég vil ekki ala upp aumingjaskapinn í betlurum.

Stundum koma rónarnir samt upp að manni og trufla mann og reyna að fá pening. Því miður hef ég stundum bara látið þá fá smá svo þeir drulli sér í burtu. Í gær var samt gengið fram af mér. Einhver róni kom upp að mér og byrjaði að betla í mér á frönsku, síðan ensku þegar ég sagðist ekki kunna frönsku. Það er soldið erfitt að labba beint framhjá fólki þegar það kemur upp að manni og ætlar að taka í hendina á manni og ég endaði á því að gefa honum 2 dolllara og labba í burtu. Fer þá ekki helvítis fíflið að æpa á mig að hann verði að fá fimm!

Djöfulsins óþolandi hyski! Trufla mann úti á götu og þegar maður síðan gerir eitthvað fyrir þá byrja þeir að væla um að það sé ekki nógu gott! Það hvarflaði að mér að gefa gaurnum einn á kjaftinn, ef ekki tvo eða þrjá. Það versta var að þegar ég fór síðan að fá mér að borða - og fór beint á klósettið til að þvo mér um hendurnar eftir að hafa tekið í hendina á helvítis rónanum - var engin sápa þar. Ef ég sem sagt fæ matareitrun, ætla ég að láta mér batna, fara síðan út og finna rónann aftur og berja hann í spað - með gúmmíhönskum!




Sumarfrí

Fyrir þá sem langar að vita, þá kem ég sennilega heim í byrjun júlí, mun vinna fyrstu 2 vikurnar og vera í fríi næstu 2 og verð farinn aftur til Montreal í byrjun ágúst. Þetta er samt ekkert niðurneglt ennþá.




SNILLD!

Smellið hér og sjáið. Það er einhver búinn að setja mig á alþjóðlega download síðu fyrir tónlistamenn, þar sem fólk getur downloadað Kartöflugeymslunni, Dóra feita og Grensásveginum eins og ég sé alveru frigging tónlistarmaður sem hafi samið þessi lög (en ekki bara hálfviti sem bjó til soratexta við lög sem einhver annar samdi og setti á netið)!




Djöfull finnst mér þetta sniðugt

Video af tígrisdýri að refsa krókódíl. Kannski soldið léleg myndataka, enda er gaurinn bak við vélina kannski soldið hræddur um að tígrísdýrið fatti að reyna kannski að éta hann í staðinn (ekki með eins þykka húð og krókódíllinn).

Djöfull væri ég samt til í að vita hvort tígrisdýrið endaði á því að éta krokka.




Greinar á boxser.is

Fyrir þá sem sakna þess að ég skrifi á síðuna, þá skrifaði ég nokkrar greinar fyrir hann Odd Boxser sem eru núna á síðunni hans. Hérna eru linkarnir á þær:

Heilagur hommaskapur

Lýsing á boxbardaga

Fituslubbar og fegurðardrottingar





Eldri blogg

-Rökkvi Vésteinsson (rokkvi@lagmenning.is)