Lágmenning.is lágkúrulegasta síðan á landinu!

Þröngsýn fífl

Mér leiðist ekkert meira en "self righteous" hyski. Svona fólk sem getur vorkennt sér endalaust ef eitthvað vont kemur fyrir það, eða ef einhver gerir þeim eitthvað, en hefur alltaf snögga afsökun fyrir öllu sem það gerir öðrum.

Dettur einhverjum í hug Kanar og ellefta september árásirnar? Þeir ætla aldrei að hætta að vorkenna sér þetta eins og þeir hafi aldrei sjálfir gert flugu mein. Það var líka margur Kaninn sem var ennþá að vorkenna sér árás Japana löngu eftir að þeir voru búnir að njúka frá þeim tvær borgir til að svara fyrir sig.

Fjöldi fólksins sem lét lífið í árásunum á tvíburaturnana er mjög lítið brot af þeim fjölda sem hefur látið lífin vegna viðskiptabanna, eitrana og hernaðaraðgerða frá amerísku þjóðinni. Einhvernveginn finnst þeim samt að það sé algerlega ófyrirkallað að einhver ráðist á þá, eins og engin gæti mögulega haft neina ástæðu til að hata þá (nema bara af því þeir klisja: "hati freslið").

Þessi frétt hérna er gott dæmi. Einhver kona segir að Kanar hafi hugsanlega gert eitthvað sem leiddi til árásana og hún er úthrópuð sem hatursfull norn. Það má nefnilega aldrei neinn koma með gagnrýni á neitt, þá er hann bara ofstopamaður sem hatar alla Kana eða eitthvað. Að segja að það sé ástæða fyrir árásunum hlýtur að þýða að manni finnist þær hafa verið af hinu góða ekki satt og að það hafi verið gott á fólkið sem í þeim lenti og aðstandendur þeirra. Samt má Kani styðja hernaðaraðgerðir í landi eins og Írak þar sem fullt af fólki er stráfellt, en það þýðir engan veginn að hann hati fólkið þar, merkilegt.




Viðbjóðsegi Páfinn

Já það er til fólk sem vill láta blessa sig af manni sem:

Lagði blessun sína yfir barnamisnotkun

og Nasimsa

Meira...




Fyndinn hrekkur

Hérna eru video af fyndnum hrekk sem Oddur (boxser.is) gerði

Fyrri hluti

Seinni hluti




Nördahúmor




A rat´s view




Rökkvi klikk

Síðasta föstudag var ég alveg einsaklega gáfaður. Ég einn að labba heim þegar á leið minni varð einhver R&B skemmtisaður, með langri röð af eintómum svertingjum í biðröð fyrir utan. Það var einhver hvítur lúðalegur gaur að labba þarna framhjá áður en að ég kom að staðnum og einn svertinginn var eitthvað að djóka í honum og
bögga hann, með þeim árangri að lúðinn hnipraði sig eitthvað saman og reyndi að labba eins hratt heim og hann gat, örugglega að míga á sig af hræðslu.

Þegar ég kom þarna framhjá kom annar svartur gaur og spurði mig eitthvað hvort ég væri að fara að djamma í kvöld og eitthvað svoleiðis, týpískt lína sem dópsalar nota þegar þeir eru að spyrja mann hvort mann vanti eitthvað. "I don´t need any pot if that´s what you mean" sagði ég. "Hey, are you a cop or something?" spurði þá svertinginn sem hafði verið að atast í hvíta gaurnum áður og kom og byrjaði að leita á mér.

"Hey, why are you feeling me all over, are you a homo or something?" spurði ég að sjálfsögðu til baka. "Now I´m gonna kick your ass" sagði svarti dúddinn, en vini hans fannst þetta ógeðslega fyndið og hélt honum. Ég hélt hins vegar bara áfam að labba heim.




MONGÓ!

Vitið þið hvað er first match ef þið leitið að orðinu mongoliti í picture search á google.com? Prófiði að gá:
http://images.google.com/images?hl=en&lr=&q=mongoliti&btnG=Search
mér finnst þetta mikill heiður!




Páfaskrípið

Ef einhver var að velta því fyrir sér, þá gæti mér ekki verið meira skítsama um það að Páfinn sé dauður. Eina sem mér finnst leiðinlegt er að hann geti ekki séð að hann eyddi allri ævinni í bull, því úr því það er ekki líf eftir dauðann þá er ekki hægt að segja við hann "I TOLD YOU SO" við hann.




Komnar myndir í viðráðanlegri stærð

Ég í standup

Rottan mín




Uppistand Beyglu.is á fimmtudaginn kl.21:30

Fram koma:
-Karl Ágúst Úlfsson
-Bjarni Töframaður
-Oddur Boxser

1000kr inn og frír THULE fylgir með.

Húsið opnar stundvíslega kl:21:30




Vægar tilraunir til umburðalyndis verða að engu

Eins og ég hef áður sagt þá býr frekar freðinn náungi á móti mér í íbúðahúsnæðinu sem ég leigi. Ég er (eins og lesendur gætu kannast við) ekkert sérstaklega umburðarlyndur maður. Ég ákvað hins vegar að gleyma allri dómhörku í smá stund og átti það nú bara til að spjalla við hasshausinn, jafnvel fara með honum á bari og svona.

Það koma þessi atvik í lífinu sem minna mig á hvers vegna ég er dómharður maður með lítið umburðarlyndi. Eins og þegar hasshausinn fór út í "djúpar" umræður - eitthvað sem ég forðast yfirleitt með fólki sem ég tel illa til slíkra umræðna fallið. Hasshausinn, sem er írskur og örugglega kaþólikki, var að koma með gullkorn eins og að það væri siðferðislega rangt fyrir samkynhneigt fólk að giftast og það væri í rauninni nauðgun þegar það riði, þótt báðir aðilar væru samþykkir. Síðan var hann líka þeirra skoðunar að fólk ætti ekki að skilja (gæti hún kannski verið trúarleg?).

Þegar ég talaði um að það væri nú kannski soldill slatti af konum sem væru barðar af mönnunum sínum og hefðu kannski væga ástæðu til að líta öðru vísi á málið, kom hann með þá einstöku perlu að segja að það væri karlrembulegt að halda því fram að karlmenn væru líkamlega sterkari en konur og gætu lamið þær (já fyrirgefðu elsku Salvör mín hvað ég er mikil karlremba).

En öllum þessu gullkornum hans var því miður kastað eins og perlum fyrir svín, þar sem ég afsakaði mig og fór (ja sleppti að afsaka mig reyndar, en ég fór allavegana). Jamm það er alltaf gaman að heyra dóphausa sem vinna ekki fyrir sér tala um siðferði. Minnir mig á atvinnulausu dópistana heima, úbbs ég meina Íslenska Þjóðernissina, sem halda því fram að þeir séu lífstíðaraumingjar af því að það séu svo margir Tævanar á Íslandi sem vinni við að skrúbba og komi í veg fyrir að genetískir yfirburðir þeirra fái að njóta sín til fulls.





Eldri blogg

-Rökkvi Vésteinsson (rokkvi@lagmenning.is)