Lágmenning.is lágkúrulegasta síðan á landinu!
RottufárNei hver andskotinn. Nú sá ég um daginn að það er stelpa á Íslandi að rækta rottur og selja út um allt. Komið æði fyrir þeim á Íslandi eins og þær væru fótanuddstæki eða eitthvað. Ok ég hef áhyggjur. Trevor, rottan sem ég á, er eins og ég segi algert skaðræðiskvikyndi. Hann er alltof gáfaður til að vera hafður í búri þannig ég verð að leyfa honum að hlaupa um íbúðina mína. Hann er búinn að naga göt í öll sængurverin mín og éta ermina af einu almennilegu peysunni minni. Ég hef reynt að láta hann hlaupa í baðkarinu en hann hoppaði upp úr því. Einu sinni tókst honum meira að segja að sleppa út úr hamstrakúlu, sem á ekki að vera hægt. Ef ég leyfi honum að hlaupa um meðan ég er að lesa eða eitthvað, er hann eins og ofvirkur og athyglissjúkur krakki. Ekki það að hann vilji láta klappa sér eða halda á sér eins og venjulegt gæludýr eins og kisa eða hundur sem er kelið, eða naggrís sem er einfaldlega of feitur og latur til að vera ekki sama. Nei hann vill bara athygli og viðbrögð. Þar af leiðandi hoppar hann upp á bókina sem ég er að lesa. Skríður inn um ermina, buxnaskálmina eða hálsmálið á mér og kitlar úr mér allt vit, nagar sokkana mína eða sleikir á mér tærnar þegar ég er berfættur, klifrar upp á hausinn á mér og hvað sem mögulega gæti verið mest truflandi. Ég hef á tifinningunni að þegar það er búið að fjölga rottunum í mörg þúsund (sem er ekki erfitt því það er ekki eins og þær skorti getuna eða áhugann) og selja þær út um allt, muni Íslendingar fatta að þetta eru bara ekkert auðveld dýr að höndla og þeir munu henda þeim út á götu = rottufaraldur.
posted by Rökkvi on 3/25/2005 02:00:00 AM
Standup í gærÍ gær var ég loksins með standup hérna, fimm mínútur á open mike night. Hvernig gekk? Góð spurning, því ég fékk meiri hneykslunar fuss og svei heldur en nokkurn tíman hlátur. Ég gersamlega útrúrhneykslaði liðið. Fyrst sagði ég "I simply don´t get women... and I don´t understand them either." Þegar frekar fáir hlógu að þessu sagði ég við þvöguna: "Hey I´m Icelandic, and I tell you a joke that revolves around the ambiguity of English, and YOU GUYS don´t understand it? Are you sure this is north of the border?" Þetta fannst þeim ekki fyndið! Kanadamenn verða mjög fúlir ef þeim er líkt við Kana, svona eins og ég yrði ef einhver héldi að ég væri frá Selfossi býst ég við. Restin af uppistandinu var karlrembuhúmor, sem vildi svo til að vera illa liðinn með 80% kvenkyns áhorfendur (og nokkra píkuþræla). Engu síður fannst mér þetta bara mjög heppnað kvöld, ég skemmti sjálfum mér nokkuð vel með þessu og vinnufélögum mínum líka. Mér finnst þetta líka bara fyndnara og fyndnara því oftar sem ég hugsa um þetta. Ég tók upp á video þannig að kannski fer þetta á síðuna einhverntíman. Mér til mikillar furðu spurði ég skipuleggjandann hvort ég mætti vera aftur og hann sagði já. Honum var alveg sama um dónaskapinn í mér. Snilld. Ég ætla aftur næsta mánudag.
posted by Rökkvi on 3/22/2005 10:43:00 PM
Open mikeNæsta mánudag mun ég loksins vera með standup hérna í Montreal. Það verður á svokölluðu "Open mike night" á mánudagskvöldið, þar sem hver þáttakandi fær fimm mínútur. Það verður að vissu leyti áhugavert að vera í fyrsta sinn með svona ofurstutt standup og í fyrsta sinn með standup á ensku líka. Ætla að reyna að segja ekki neitt sem fær þá til að henda mér út úr barnum, ég er feginn að þetta eru ekki Bandaríkin, en er samt ekki viss nema þeir gætu verið viðkvæmir fyrir vissum hlutum sem ég gæti freistast til að láta út úr mér. Læt vita hvernig fór þegar þar að kemur.
posted by Rökkvi on 3/19/2005 09:45:00 PM
LÚSERMarkús Örn er lúser. Honum var plöggað í borgarstjóraembætti án þess að vera kosinn og hann var svo óvinsælla að hann var fjarlægður þaðan og Árni Sigfússon settur í staðinn um leið og horft var fram á kosningar. Síðan var Markúsi plöggað í embætti útvarpsstjóra, sem var afrek í sjálfu sér að því leiti að ná að koma enn meira óspennandi manni en Heimi Steinssyni í það embætti. Núna vill Markús endurgjalda greiðana frá vinum sínum í X-D og skipa einn af þeim í stöðu fréttastjóra. Og hann nennir ekki einu sinni að svara fyrir það, eins og þið getið séð af því að smella á hlekkinn í fyrirsögninni. Djöfull finnst mér þetta sjálstæðispakk viðbjóðslegt. En ég er sjálfsagt bara að leggja grey skinnin í einelti. Svona eins og Þorfinnur Ómarsson var að leggja Hrafn Gunnlaugsson í einelti með því að vera leiður á að kvikmyndasjóður væri prívat sparibaukurinn hans Hrafns. Og svona eins og það voru ómálefnalegar árásir á persónu Hrafns þegar hann var hækkuður í tign á RÚV eftir að hafa verið rekinn þaðan og fólk vogaði sér að kvarta. Já og allar ómálefnalegur árásirnar á Hannes Hólmstein fyrir að fara frjálslega með höfundarétt. Já ég segi það, ef Hannes var virkilega að brjóta af sér, af hverju kærði þetta hyski hann ekki bara fyrir brot á höfundarétti. Ég er viss um að Jón Steinar og Ólafur Börkur hefðu tekið mjög sanngjarnt á málinu, þannig að hvað er þetta lið líka að rífa sig? Og hvað er ég líka að rífa kjaft, gaur sem býr ekki einu sinni á Íslandi og er búinn að stórminnka líkurnar á að geta fengið vinnu þar aftur með því sem ég var að skrifa núna. Uss!
posted by Rökkvi on 3/12/2005 04:31:00 AM
Að vera wrestlerNú er ég búinn að lesa fimm ævisögur frægra wrestlera í röð, Jerry the King Lawler, "Stone cold" Steve Austin, Freddie Blassie, Ric Flair og Hollywood Hulk Hogan. Þetta voru óneitnalega áhugaverðar sögur. Jerry og Steve eru báðir fráskildir þrisvar, Freddie Blassie var hins vegar svo gáfaður að þegar hann var búinn að skilja tvisvar, fékk hann sé japanska konu, sem var of menningarlega undirgefin og þolinmóð til að fara frá honum. Ric Flair var bara skilinn einu sinni og Hogan átti alltaf sömu konuna (það er nú samt kannski engin furða því að Hogan hefur grætt svo mikinn pening að hvaða kona með modest gold digging instinct hlyti að vera óð að fara frá honum). Kosturinn hjá þessum gaurum var líka að af því þeir voru ekki alveru keppnisíþróttamenn, gátu þeir sukkað og djammað eins og vitleysingar milli þess sem þeir þóttust lemja hvorn annan. Það var hins vegar alltaf vesen í gamla daga að fólk mátti ekki vita að wresting var fake og ef að besti vinur þinn var "vondi kall" og þú varst "góði kall" þá máttirðu ekki sjást tala við hann opinberlega. Þetta lagaðist samt þegar aðal promoterinn, Vince McMahon var leiður á að borga skatta til íþróttasambanda og viðurkenndi opinberlega að wrestling væri fake. Ég vildi að ég hefði orðið wrestler. Ég hefði kannski verið of gáfaður til að umgangast þetta lið, en það hefði sjálfsagt getað lagast með ítrekuðum höfuðhöggum og félagsskap sem ævinlega útilokaði vitrænar samræður. Lífið er bara ósanngjarnt og ég varð ekki big time wrestler. Bara af því ég átti mömmu sem bannaði mér að taka stera. Líka kannski af því að ég fæddist inn í fjölskyldu sem lagði mikið upp úr menntun og bannaði mér að lemja frændsystkini mín (þannig að ég missti af mikilvægri þjálfun sem hefði getað nýttst mér í faginu). Þess vegna verð ég að láta mér nægja að vera small time wrestler í frístundum (það voru augljóslega forlög að ég myndi verða wrestler úr því ég varð það þrátt fyrir allt þetta mótlæti). Eina skiptið sem ég hef komist nálægt heimsfrægð í faginu var þegar hollensk grínsíða tengdi á wrestling video frá lágmenning.is með mér undir fyrirsögninni "sjáið þessa hálfvita sem halda að þeir geti komist í WWE" og um 10 þús download af videoinu í framhaldi af því. Það er ekki rassgat. Það hafa oft verið 70-80 þúsund áhorfendur á live wrestling. Þvílíkt ömurleg örlög fyrir mig.
posted by Rökkvi on 3/06/2005 11:19:00 PM
SpekiÉg var að heyra helvíti góða skilgreiningu á muninum á "slut" hins vegar og "bitch" annrars vegar: "A slut is someone who´ll sleep with anybody. A bitch is someone who´ll sleep with anybody except you"
posted by Rökkvi on 3/03/2005 12:44:00 AM
Eldri blogg
-Rökkvi Vésteinsson (rokkvi@lagmenning.is)
|