Lágmenning.is lágkúrulegasta síðan á landinu!
Gert grín að íslenskum uppistandaraNæst efst, lengst til vinstri.
posted by Rökkvi on 1/30/2005 07:27:25 PM
Rottur eru of gáfaðar til að vera gæludýrÞað er bara vandræði hvað rottur eru gáfaðar. Þetta eru mikil vandræði þar sem þær eru villtar (og óvelkomnar) því það gerir mannfólkinu erfiðara fyrir að eyða þeim. Þetta er líka vesen þegar þær eru gæludýr (sem er reyndar sjaldnar). Hundar eru svo sem gáfaðri en rottur, en þeir bæta það upp með undirgefni við húsbónadann. Rotta er hins vegar ekki beinlínis dýr sem leggur tryggð við fólk nema í takmörkuðum mæli. Trevor, rottan mín, sem heitir eftir rottunni í Peter Jackson myndinni Meet the Feebles er of klár. Ég er til dæmis með hamstrakúlu til að láta hann hlaupa í. Ef ég set hann í kúluna lítur hann á mig eins og til að segja "Af hverju ertu búinn að fangelsa mig í ömurlegri lítilli kúlu? Hvernig í andskotanum á ég að komast út héðan?". Síðan byrjar hann að reyna að finna út hvernig sé hægt að komast úr kúlunni, í staðinn fyrir að vera bara eins og heimsku ofvirku hamstrarnir sem hlaupa bara. Hann á líka hamstrahjól til að hlaupa á en hann notar það aldrei. Það fyrsta sem hann gerði var að moka korninu í botninum á búrinu sínu á hjólið svo það gæti ekki snúist. Síðan klifraði hann upp á það til að reyna að komast upp úr búrinu sínu (sem betur fer eru rimlar yfir því). Trevor tókst líka einu sinni að sleppa lausum með mjög mikilli kænsku. Í enn einni misheppnaðri tilraun til að fá Trevor til að hreyfa sig, setti ég hann ofan í baðkarið. Það var sami fúli "Af hverju settirðu mig á þennan leiðinlega, lokaða stað, fífl?" svipurinn sem hann sýndi mér og hann reyndi að hoppa upp úr. Það var hins vegar langt frá því að honum tækist það, svo ég var nokkuð öruggur með að setja hann ofan í karið í framtíðinni. Næst set ég Trevor í karið og fer að hringja til Íslands. Ég er að tala í símann þegar rottukvikyndið gægist út um baðherbergishurðina. "Bíddu mamma rottan er sloppin" sagði ég og gómaði Trevor. Ég er viss um að hann lét sér viljandi mistakast að hoppa úr baðkarinu í fyrsta skiptið, bara til að ég héldi að hann gæti það ekki - skaðræðiskvikyndið!
posted by Rökkvi on 1/29/2005 01:09:43 AM
Fann hasshausinn í húsinu mínuÉg er búinn að finna hasshausinn (eða allavegana einn af þeim) sem býr í sama íbúðahúsinu og ég. Ég var að tala við hann um daginn og spurði hann hvort hann væri í McGill háksólanum eins og mjög margir í þessu hverfi. Eftir svona 5 sekúndna athyglisbrest svaraði hann nei við því. Þá spurði ég hann hvað hann gerði og eftir annan athyglisbrest á svipuðum kvarða svaraði hann "I don´t really do nothin´ man." Þetta er eflaust gaur sem var í skólanum og droppaði út, en þorir ekki að segja foreldrum sínum það, sem borga fyrir hann húsaleiguna svo hann geti menntað sig. Meiri aulinn er ég líka, ég hefði auðvitað átt að segja mömmu og pabba að ég væri að fara að mennta mig í Kanada og láta þau borga húsaleigu fyrir mig svo ég gæti notið þess að vera ónytjungur (eitthvað sem ég hef alltaf haft mikinn metnað fyrir).
posted by Rökkvi on 1/24/2005 11:11:29 PM
Nýtt í sannleikshorninuHaldiði að ég hafi ekki allt í einu tekið upp á því að koma með nýja frétt í Sannleikshornið. Fjallar um mann sem "lærði villu síns vegar." Smellið á fyrirsögnina.
posted by Rökkvi on 1/22/2005 11:17:22 PM
Fór á wrestling í fyrradagÉg naut þess loksins þeirrar langþráðu lágmenningar að fara á WWE Smackdown! í fyrradag. Ég hafði að sjálfsögðu mjög gaman af þessum viðburði þótt ég sé ekki 11 ára lengur eins og þegar ég varð fyrst wrestling aðdáandi. Ég verð reyndar samt að játa að mér finnst skemmtilegra að vera með wrestling heldur en að vera einn af áhorfendunum, en ég er nú líka athyglissjúk frægðarhóra... Þótt mér hafi fundist mjög skemmtilegt að horfa á the Undertaker troða hillbilly gaur og hommavini hans ofan í líkkistu og allt, þá verð ég samt að játa að ég skammast mín soldið fyrir að hafa látið pening til WWE (World Wrestling Entertainment). WWE er nefnilega rosalega mikið rasista og þjóðernisrembu félag. Þeir fóru til dæmis nýlega til Írak til að skemmta hermönnunum "sínum" þar, alveg springandi úr stolti yfir hernáminu þar og "öllum þessum ungu hetjum sem eru að berjast fyrir frelsi í heiminum." Þar fengu hermennirnir að sjá þar sem Ameríkanskir wrestlerar lömdu japanska og franska wrestlera í klessu (samkvæmt handriti) á meðan þeir hvöttu: "USA, USA" og kynnarnir töluðu um hvað Frakkar væru ömurleg þjóð og miklar skræfur að "þora" ekki að ráðast á Írak. Hvað get ég sagt, ég gaf peninga til drulluskokka mér til skemmtunar.... verð að gefa peninga í eitthvað verðugt málefni til að bæta upp þessa skömm...
posted by Rökkvi on 1/21/2005 01:39:58 AM
Myndir til að sjáKostur við stærri borgir er að þar er meira í boði. Hversu fáránlegt eða sjaldgæft sem áhugamálið er, það er samt til staðar. Í Montreal er til dæmis Cult bíó sem ég fer oft í, sem sýnir næstum bara spes myndir, en líka margar betri frægar myndir. Ég mæli með eftirfarandi sem ég er búinn að sjá þar fyrir þá sem komast í þær: I love Huckabees (fyndin tilvistarkreppumynd með Dustin Hoffman og Mark Wahlberg), the Machinist (psychothriller), Kinsey (mynd byggð á lífi kynnlífskönnuðsins Alfred Kinseys) og DIG! (heimildamynd um hljómsveitirnar the Dandy Warhols og The Brian Jonestown massacre).
posted by Rökkvi on 1/21/2005 01:27:38 AM
Ógeðslega fyndið!Smellið á fyrirsögnina til að sjá. Það er kannski ekki besta vörnin í box bardaga að reyna að hlaupa í burtu! Eins og Hebbi sagði sjálfur: "You can´t walk away."
posted by Rökkvi on 1/19/2005 11:35:59 PM
Pólski draumurinnGamla konan sem leigir mér íbúðina mína er frá Póllandi. Hún kom um daginn eitthvað að gá hvort allt væri ekki í lagi og var með vinkonu sína með sér. Sem betur fer fékk hvorug þeirra hjartaáfall þegar þær sáu rottuna mína. Ég hafði fengið leyfi til að vera með dýr í búri "like maybe a guinea pig (naggrís) or something" eins og ég orðaði það. Ég var ekkert viss um að hún yrði neitt glöð þegar þetta "or something" væri rotta, en henni virtist vera sama. Það er líka eins gott að hún veit ekki að rottan slapp laus um daginn. En vinkona þessarar konu fór allavegana að tala við mig um fjölskyldumál sín. Hún á víst 17 ára íðilfagra stúlku fyrir barnabarn. Stúlka þessi býr ennþá í Póllandi en þráir mest af öllu að flytja til Kanada. Hún kemur stundum að heimsækja ömmu sína og er alltaf að reyna að fá dvalarleyfi hérna, en það hefur ekkert gengið. Ég stakk að sjálfsögðu upp á því að amman myndi bara finna kanadískan mann handa elsku barnabarninu sínu og hún var nú ekki lengi að svara því (með vonsvikinni rödd): "I do find man, but she say she don´t want." Ekki fylgdi með sögunni hvað það var við manninn sem litla prinsessan kunni ekki að meta, hvort hann var 30 árum eldri, alger lúði eða bara einhver mömmustrákur. Ég hefði að sjálfsöðgu boðið fram þjónustu mína, þar sem ég er bara 10 árum eldri, bara soldill lúði og of langt burt frá mömmu minni á Íslandi til að geta verið mömmustrákur. Gallinn er bara að ég er ekki með kanadískan ríkisborgararétt. Mér datt reyndar í hug að ljúga því bara að henni samt. Fannst það vera góð hugmynd alveg þangað til ég fattaði þetta: ef ég get logið, þá geta aðrir það líka. Ég sé fyrir mér mig og ömmuna eftir að ég væri búinn að skrifa undir hjúskaparsamninginn: "Ha, ha, I way LYING, I´m an Icelandic citizen, not Canadian" og hún svarar: "Ha, ha, I was lying too, my granddaughter is really horribly ugly and weighs 100 kilos!" Já það er það slæma við drauma að sumir þeirra eru líka martraðir....
posted by Rökkvi on 1/18/2005 11:24:30 PM
NÝTT WRESTLING VIDEOSmellið á fyrirsögnina. Þetta er wrestling bardagi í fullri lengd, um 5 mínútur og 27MB (íslenskt download). Takið eftir að ég er búinn að taka síðasta standup videoið út og nú munu ekki vera standup video á síðunni í soldinn tíma, helst ekki fyrr en ég er búinn að gera ný og betri.
posted by Rökkvi on 1/16/2005 08:09:12 PM
Hefndin miklaMontreal er í Quebec héraði í Kanada, sem er mestmegnis frönskumælandi að móðurmáli. Fólkið sem upphaflega byggði Quebec á það sameiginlegt að hafa verið glæpahyski, hórur og óþolandi pakk sem var rekið frá heimalandi sínu með skömm - alveg eins og íslensku landnemarnir. Já Íslendingar voru einu sinni stolt glæpahyski sem sigldi um og brytjaði auma franska og írska bændur í spað og rændi konunum þeirra (ef svo ólíklega vildi til að konurnar vildu frekar vera eftir hjá illa lyktandi bændadurgunum en koma með þeim). Já við höfðum klassa yfir okkur í þá daga. Síðan fór allt til hins verra. Íslendingar hættu að sigla og gerðust aumir bændur með hor í nös á okkar fagra en næstum óbyggilega landi. Það sem verra var tóku Íslendingar líka upp hina leiðinlegu og óspennandi kristnu trú, í staðinn fyrir ofursvölu Ásatrúnna okkar. Þetta hefndi sín líka. Í Tyrkjaráninu voru við allt í einu þessir aumu bændadurgar og Alsírbúarnir voru víkingarnir. Ekki gott hlutskipti. Þetta var hins vegar ekki okkar verst niðurlæging fyrir afturfarir okkar. Franskir bændadurgar voru allt í einu farnir að sigla til Íslands og skora kellingarnar okkar á færibandi. Þessir illa lyktandi bændadurgar voru allt í einu orðnir betri kostur en við, sem höfðum áður valtað yfir þá og stolið kellingunum þeirra eins og ekkert væri sjálfsagðara. Ég er sjálfur sönnun á þessari þjólegu niðurlægingu hins íslenska karlpenings. Samkvæmt öllum ættartölum á ég nefnilega að vera svo gott sem algerlega hreinn Íslendingur, með smá dönsku blóði langt aftur í ættir. Samt er ég frekar dökkhærður og verð mjög sólbrúnn og bróðir minn er með svart hár. Það er því augljóst að einhver langamman okkar hefur .... öhhh, ég vil ekki tala um það. En aftur að Quebec, sem einmitt leiðir að hefndinni minni. Ég ætla að hözla allt það franska kvefólk sem sýnir hin minnstu merki um áhuga. Þetta franska lið er reyndar kaþólikkar, sem má ekki stunda kynlíf utan hjónabands, en mun verða lítil fyrirstaða. Kaþólikkar virða reglurnar sínar um skilnaði, kynlíf, fóstureyðingar og slíkt álíka vel og Íslendingar virða 90 km hámarkshraða á þjóðvegum. Við Íslendingar eru ekki fátæk bændadurga þjóð lengur. Eina alþjóðlega niðurlæging okkar er hversu mikið Halldór og Davíð sleikja sér upp við Bush. Við erum Víkingar og við eigum að taka aftur það sem er okkar! Einn fyrir Ísland!
posted by Rökkvi on 1/15/2005 06:40:32 PM
Klámið ógurlegaJæja, þá er það ljóst. Ef þið smellið á fyrirsögnina getið þið séð hvernig klám eyðileggur líf manns. Mér er sjálfum ljóst að líf mitt er löngu glatað. Ég hef stundum skoðað klám og það verður ekki aftur snúið. Það er eflaust nóg að sjá nokkra nakta líkama til að spillast og ég sem rak stundum augun í klám þegar ég var krakki og átti síðar eftir að stunda nám í tölvunarfræði í Háskólanum, hef eflaust séð meira en hægt er að bæta upp fyrir. Mér er nú ljóst að líf mitt getur aldrei orðið gott. Það að ég hafi horft á klám mun óhjákvæmilega leiða til þess að ég mun reyna að nauðga öllum konum sem ég kem nálægt og mér mun vera fyrirmunað að sjá kvenfólk sem neitt annað en vitsmunalausar hórur sem á að taka með valdi. Þessar hugmyndir hafa reyndar ekki enn fest rætur hjá mér, ég hef yfirleitt átt það til að tala við kvenfólk með þeim væntingum að þær geti svarað til baka eins og viti borin fyrirbæri. Ég hef jafnvel átt það til að líta á þær í ókynferðislegu samhengi við og við. En það er bara spurning hvenær hrottaleg áhrif klámsins ná yfirhödinni og breyta viðhorfum mínum. En það er allt í lagi, ég mun fá mína réttu refsingu þegar ég fer til helvítis. Á meðan munu allir kaþólsku munkarnir sem skoðuðu ekki klám í æsku (and just look at the results) verða englar á himnum. Amen.
posted by Rökkvi on 1/14/2005 10:13:17 PM
Rottuholan mínÉg er að leigja algera rottuholu. Druslulega litla íbúð í 6 íbúða byggingu þar sem búa aðallega háksólanemar. Allir sem koma þangað inn segja að það sé óendanlega mikil hasslykt í byggingunni, ég hef bara ekki vit á því hvernig lyktin af hassi er, sem er mikil vanþekking af fyrrverandi MH-ingi að vera. Ég fann meira að segja eitthvað í íbúðinni minni sem ég var ekki alveg viss hvort var heimavafin sígaretta eða jóna og henti fyrirbærinu í ruslið, þar sem ég kann hvorugt að meta. Fyrir utan þetta er íbúðin mín bara almennt slúbbertaleg rottuhola. Ég er viss um að rottunni minni líður vel, finnst hann vera heima hjá sér. Og ætli ég fari ekki bráðum og gái í hvaða fögum hinir íbúarnir eru í háskólanum. Ég verð fyrir miklum vonbrigðum ef það er ekki að minnsta kosti einn í heimspeki....
posted by Rökkvi on 1/12/2005 11:20:28 PM
The special peoples suitÞað er kalt í Montreal á veturna, miklu kaldara en á Íslandi. Fyrir nokkru var 25 stiga frost og ég drap mig næstum við að labba heim úr vinnunni í gallabuxum og úlpu. Vinkona mín sem bjó einu sinni í Montreal sagði mér að hún hefði átt kraftgalla sem hefði komið henni vel hérna. Ég lét að sjálfsögðu senda mér kraftgallann minn frá Íslandi. Hann var vægt hallærislegur þegar ég fékk hann (14 ára) en núna er bara ótakmarkað lúðalegt að ganga um í honum. Ég er hins vegar hræddari við kulda heldur en að vera lúðalegur. Það er mikið gert grín að mér í vinnunni þegar ég er gallanum mínum og hann er núna kallaður "the special peoples suit." Samt hefur kraftgallinn ótvíræða kosti. Til dæmis er maður næstum ónæmur ef einhver kastar snjóbolta í mann. Enn betri kostur er að maður lítur út eins og róni í kraftgalla. Af hverju? Jú af því að enginn myndi ganga í svona hallærisflík nema til að bjarga lífinu. Þar sem rónarnir hérna eru úti allan daginn og eiga hvergi heima, þurfa þeir einmitt að gera það, bjarga lífinu. Fólk ályktar því alltaf að ég sé klæddur svona vegna þess að ég búi á götunni. Þetta er mikill kostur, því að alveru rónarnir halda líka að ég sé róni og láta mig þá í friði, enda ekki mikið vit í að reyna að betla peninga út úr öðrum róna.
posted by Rökkvi on 1/11/2005 01:22:31 AM
Standup video #3 komið (smellið)Jæja, síðasta standup videoið er komið á netið, smellið bara á fyrirsögnina til að skoða það. Þetta er 15 mín og 26MB innlent download. Þetta uppistand var haldið 20.apríl 2004 í Stúdentakjallaranum með aðeins 12 áhorfendur, því allir voru að lesa undir próf á þessum tíma (aumingja ég átti að vera með uppistandið fyrr í mánuðinum en var fluttur afturábak). Það vantar fyrstu 5 mínúturnar framan á þetta, því ég gleymdi hreinlega að kveikja á videovélinni áður en ég byrjaði. Videoið er 5 mín venjulegt uppistand og 10 mín ég að segja æskusögur af mér. Þetta verður síðasta videoið sem ég set á netið áður en ég bý til ný og ég ætla að láta það vera uppi í svona mánuð, síðan verða ekki standup video á síðunni fyrr en nýtt er tilbúið. Þetta er bæði vegna þess að ég vil ekki að allir hafi séð allt efnið mitt og vegna þess að ég veit að ég get gert betur en á þessum videoum og vil frekar þá taka upp betri video síðar og hafa þau uppi. Þetta video hérna er það mikið ég að segja sögur af mér að mér finnst það kannski ekki vera neitt sérstaklega "commercial" þannig ég mun sennilega ekki reyna að fá einhverja linka af tenglasíðum á það. Það er frekar ætlað fyrir lesendur síðunnar og þá sem hafa áhuga á þessu. Planið er síðan að vera með stórt uppistand heima á Íslandi í sumar, taka það upp og setja á netið og það er hugsanlegt að ég taki líka upp uppistönd sem ég yrði með hérna í Montreal og setti þau á netið. Allar athugasemdir á videoið eru velkomnar, hvort sem þær eru jákvæðar, neikvæðar eða hlutlausar.
posted by Rökkvi on 1/08/2005 01:25:53 AM
NemoÞegar vinur minn kom heim eftir að ég var búinn að vera að passa fiskana hans, fræddi hann mig um það að það væri algert kjaftæði að það væri verið að veiða upp hitabeltis-skrautfiskana. Bæði er það víst mjög dýrt að vera með saltvatns fiskabúr og síðan er alveg hægt að fá litlu sætu trúðfiskana til að hrygna í búrum. Hans voru til dæmis getnir þannig. "Saving Nemo" heimildarmyndin var sem sagt ekki honum að skapi. Það er sjálfsagt rétt að aðal ógnin að svona fiskum er ekki af því að þeir séu veiddir fyrir þá sem eiga þá fyrir gæludýr (ef það er hægt að kalla fiska gæludýr, þeir eru eiginlega meira svona skraut sem hreyfist). Ógnin er miklu frekar mengun, eyðing kóralrifja og svo framvegis. Mengun er hins vegar of langsótt (og óþægileg tilhugsun) til að fá meðal lúðann til að kippa sér upp við hana. Það þarf einhverja svona sögu eins og um Keiko eða vondu kallana sem setja litlu "Nemo" fiskana í poka til að fá samúð (og kannski í framhaldi pening) út úr fólki. Sum náttúruverndarsamtök hugsa líka svona og eru þar af leiðandi soddan fífl. Önnur náttúruverndarsamtök vita kannski hvað þau eru að gera, en vita líka að þau verða að stilla upp svona sentimental dóti til að geta fengið einhverja tekjur. Prófaðu bara að segja við hóp af Könum að það sé verið að eyðileggja skóga í Brasilíu eða að það eigi að bjarga sætum háhyrningi sem heiti Keiko og koma honum til vina sinna í náttúrunni og sjáðu til hvað þeir eru til í að styrkja. Figures.
posted by Rökkvi on 1/07/2005 02:03:10 AM
Rottan mínNúna er ég að fara að ná í rottuna mína, sem ég keypti fyrir nokkrum dögum. Mjög spennandi. Mig hefur lengi langað að eiga tamda rottu, finnst þær skemmtileg dýr. Síðan felst viss sjálfstæðisyfirlýsing í þessu, þar sem ég er nýfluttur að heiman og mamma mín þolir ekki rottur. Ég hefði þar af leiðandi aldrei getað átt rottu meðan ég bjó í heimahúsum. Mömmu finnst svo ógeðsleg dýr með hárlaust skott. Naggrísir eru í lagi hennar vegna af því þeir eru ekki með skott og íkornar líka því þeir eru með loðið skott. Ég átti þar af leiðandi alltaf naggrísi þegar ég bjó heima, en þeir eru líka svo feitir og latir að þeir geta ekki hlaupið eða stokkið og þarf af leiðandi ekki brugðið konum sem eru hræddar við mýs og rottur og önnur lítil dýr sem skjótast um. Ég hringdi til Íslands um daginn og talaði við 3ja ára frænda minn: RV: "Veistu hvaða dýr ég á núna?" litli frændi: "Rottu" RV: "Veistu hvað amma segir ef hún sér rottu?" litli frændi: "Oj barasta"
posted by Rökkvi on 1/05/2005 01:11:44 AM
Eldri blogg
-Rökkvi Vésteinsson (rokkvi@lagmenning.is)
|