Lágmenning.is lágkúrulegasta síðan á landinu!



Farinn í frí frá að blogga

Eins og þið hafið séð þá hef ég ekki mikið verið að blogga upp á síðkastið. Núna hef ég ákveðið að taka mér frí frá því um óákveðinn tíma og byrja frekar aftur seinna. Núna lítur út fyrir að ég sé að fara að flytja til útlanda eftir um það bil mánuð.

Þess vegna er ég núna að ganga frá því hvernig ég ætla að hafa hlutina í sambandi við síðuna og fleira, en ég get allavegana lofað ykkur að lágmenning.is verður áfram uppi eftir að ég fer út, hvort sem ég held áfram að blogga eða ekki (þannig þið getið áfram skoðað allt efnið sem er þegar hérna).

Annars væri ég til í að fá einhvera nýja bloggara til að blogga á síðuna, svo lengi sem þeir hafa hæfileika og skrifa um réttu hlutina. Þið getið haft samband við mig gegnum msn (rokkvi@lagmenning.is) ef þið hafið áhuga.






Kominn heim

Jæja, nú er ég kominn heim frá Danmörku/Svíþjóð, algerlega úrvinda. Fyrst var ég með vinum mínum á Roskilde og síðan hentist ég um Danmörku og Svíþjóð eins og ég hefði ekkert betra að gera en að sitja í lestum og rútum.

Roskilde var drullug og subbuleg, alveg eins og við félagarnir. Þótt David Bowie hefði aflýst var nóg af góðum böndum þarna, Pixies, Muse og Franz Ferdinand t.d. Þó ég þoli nú yfirleitt ekki rapp/hiphop/r&b drasl þá hafði ég samt rosalega gaman af Basement Jaxx, með svörtu brussuna sína í fararbroddi. Jafnvel Wu Tang Clan fannst mér skemmtilegt. Ég hugsaði samt eiginlega alla Morrissey tónleikana hversu mikið ég vildi frekar vera að hlusta á gömul Smith´s lög.

Held ég verði að segja að Pixies hafi verið aðal dæmið þarna, enda er ég búinn að hlusta á þá síðan ég var ellefu ára (reyndar fyrst nauðugur, þar sem bróðir minn var alltaf með þá á og mér fannst þeir leiðinlegir, en með árunum fór ég alltaf að meta þá betur og betur). Muse eru líka frábærir og Basement Jaxx voru án efa lang bestu performerarnir / bestir í að koma skrílnum í stuð.

Svo hözlaði ég líka þarna og stakk vini mína í Kaupmannahöfn af eitthvert lengst norður frá Kaupmannahöfn með tjellingunni minni, á meðan þeir væntanlega létu sér nægja að fara á strippsaði í Köben. Sem sagt stórgóð ferð í allt, vel nóg til að láta mann ekki langa heim allavegana.




Jeg fik nogen fisse




Danmark

Hae eg er i Danmorku og buinn ad vera a Roskilde hatidinni. Hef eiginlega ekki tima til ad segja fra thvi nuna, en eg kem heim 10.juli og fer tha aftur ad sinna sidunni. Jæja, bless, jeg skal se hvis jeg kan få nogen fisse.




SNILLD!!!

Skemmti mér konunglega á sunnudaginn í Egilshöllinni! Metallica eru enn frábærir og það var greinilegt að þeir höfðu gaman af því að vera hérna. Spiluðu flest bestu lögin sín og sýndu að Trú-í-ó (svona á víst að bera þetta fram) smellpassar inn í bandið.

Það er eiginlega til marks um hvað þetta voru góðir tónleikar að ég er enn með væl í eyrunum!
Þið sem fóruð ekki! Plebbar!!!





Eldri blogg

-Rökkvi Vésteinsson (rokkvi@lagmenning.is)