Lágmenning.is lágkúrulegasta síðan á landinu!
MetallicaFékk miða á Mettlica í seinni umferð! Yesyes, very gaman að sjá miðaldrarokkarana í Egilshöllinni. Ætla líka að drífa mig á Some Kind of Monster í Háskólabíó til að fá fílínginn. Verst með þessa tónleika er að ég þarf að hlusta á Mínus áður en Metallica koma á svið, Brain Police hlakka ég hins vegar til að heyra í!
posted by Jón Grétar on 6/28/2004 05:14:57 PM
Sjá hvað ég fannSkemmtilegar umræður um Dóra feita lagið og hvort það sé barnalegt eða ekki. Ja ég get allavegana játað að ég samdi þennan texta ekki til að reyna að sýnast vera mjög þroskaður fyrir öðru fólki, he, he.
posted by Rökkvi on 6/27/2004 04:02:42 PM
Deep Purple í gærÞetta voru auðvitað rosalegir tónleikar, þrátt fyrir fulla fólkið sem var skjögrandi utan í mann og önnur minniháttar óþægindi. Ég er ennþá með suð í eyrunum auðvitað eins og tilheyrir. Ég sá líka í speglinum í morgun að ég er víst búinn að sprengja nokkurn slatta af æðum í hálsinum og öxlunum, við það að halda bróður mágkonu minnar á herðunum gegnum heilt lag, svo hann gæti séð ellirokkarana almennilega. Deep purple eru líka miklir töffarar, sérstaklega söngvarinn, sem er ekkert ósvipaður ellitöffurunum sem leika í Dressmann auglýsingunum. Bassaleikarinn er líka fyndinn, minnir mjög mikið á Willie Nelson (nema hvað hann spilar alveru tónlist náttúrulega). Þeir eru líka með ungan gítarleikara, sem var örugglega ekki fæddur þegar hljómsveitin byrjaði, en hefur greinilega verið fljótur að ná töktunum. Uppáhaldslögin mín með þeim ellirokkurum eru Perfect strangers og Knocking on your backdoor og þeir tóku þau bæði. Alveg frábært að maður skyldi ekki missa af þessu og nú er það bara Roskilde til að sjá Bowie, Pixies og Korn.
posted by Rökkvi on 6/24/2004 06:42:49 PM
Happy, happyÁ síðasta ári notuðu adult.is dóma sem ég hafði skrifað um dönsku merkjamyndirnar til að auglýsa þær, enda eru þeir að selja þær á VHS (sjá hér).Þeir á adult eru að sjálfsögðu heiðursfólk, þannig að það stóð alltaf til að borga mér fyrir að nota dómana. Ég var hins vegar ekki búinn að semja við þá um borgun fyrr en núna nýlega, en mér fannst viðeigandi að fá einmitt svona videospólur að launum og þess vegna sótti ég núna nýlega til þeirra I Tyrens tegn, I Skyttens tegn og I Tvillingernes tegn á videospólum. Nú get ég sem sagt horft á þessa menningarlegu snilld daginn út og daginn inn, án þess að þurfa svo mikið sem drattast út í Laugarásvideo. Já, þó Ole Søltoft sé dáinn, þá lifa verk hans ennþá.
posted by Rökkvi on 6/24/2004 06:39:28 PM
Kvennadagurinn í gærÍ gærkvöldi var ég á djamminu. Þar hitti ég Salvöru Gissurar, sem spurði mig hvort ég ætlaði ekki að óska sér til hamingju með daginn (19.júní er víst kvennadagurinn). Þá var einhver gaur sem réttilega benti á að klukkan væri meira en tólf og kvennadagurinn væri búinn. "Já, þá getiði bara farið aftur á saumavélarnar, kellingar" sagði ég. Við þessi orð strunsaði Salvör í burt. Hvort hún var móðguð, eða bara að flýta sér í saumavélina sína, veit ég ekki.
posted by Rökkvi on 6/24/2004 06:37:13 PM
Davíð Oddsson - the king of trash talkJæja, er ekki bara búið að dæma Davíð fyrir meinyrði, svo hann er opinberlega kominn í röð okkar fremstu skítkastara. Reyndar er Davíð ekki fyrsti þingmaðurinn hér á landi til að fá ummæli sín dæmd dauð og ómerk, enda hafa stjórnmálamenn okkar lengi verið öflugir í skítkasti. Skítkastið gefur þessu auðvitað öllu meiri lit, innan um allt þetta málefnalega og leiðinlega þvaður sem vill svo oft verða allsráðandi á þingi. Mér hefur þó alltaf fundist Davíð skara fram úr öðrum stjórnmálamönnum hvað varðar skítkast. Ég hef meira að segja áður stungið upp á að Davíð fari að skrifa á lágmenning.is þegar hann hættir að vera forsætisráðherra, enda hefur Davíð alla burði til slíks. Ég verð meira að segja að játa það að þó ég kalli mig ósvífnasta mann Íslands, þá hef ég talsverða minnimáttarkennd gagnvart Davíð hvað varðar hæfni til skítkasts. Ég hef til dæmis aldrei fengið ummæli mín dæmd dauð og ómerk, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að ganga fram af fólki og vera með óhróður. Meira að segja örvæntingarfullar tilraunir mínar til að fá Leoncie til að kæra mig hafa engu skilað. Þess vegna er ég að hugsa um að fara út í stjórnmál. Þar gæti ég eflaust hlotið heiðurinn af nokkrum meinsæriskærum, svo ég fari nú að standa undir nafni. Þá er bara spurningin um hvaða stjórnmálaflokk ég ætti að ganga í. Sjálfstæðisflokkurinn myndi seint vilja taka við mér, enda hafa þeir nú líka Davíð "þú ert dóni" Oddsson til að sjá um skítkast fyrir sig. Samfylkingin hefur síðan náttúrulega Össur "þú er sjálfur dóni" Skarphéðinsson og hefur því litla þörf fyrir mig. Vinstri-græna vantar reyndar tilfinnanlega almennilegan skítkastara, en Kolbrún Halldórs myndi aldrei hleypa perra eins og mér í þann flokk. Ég vil ekki deyja úr leiðindum, þannig að Framsóknarflokkurinn kemur heldur ekki til greina. Valið yrði augljóslega að vera Frjálslyndi flokkurinn þá. Þeir voru náttúrulega að missa einn besta og afkastamesta skítkastara í Íslandssögunni, Sverri Hermannsson, og myndu þeir því eflaust vera fegnir að fá mann eins og mig til að fylla upp í skarðið. En síðan gæti ég náttúrulega sleppt flokkunum og farið í forsetaframboð. Það ætti nú ekki að vera erfitt, enda er þegar búið að setja fordæmi fyrir því að klikkingar taki þátt í (eða allavegana íhugi að taka þátt í) slíku framboði. Ég er reyndar of ungur til að bjóða mig fram, þannig að ég verð víst að bíða í svona tíu ár fyrst. En hafið engar áhyggjur, ég mun ekkert þroskast á tíu árum (ekki þroskaðist ég neitt á síðustu tíu árum allavegana).
posted by Rökkvi on 6/18/2004 08:58:04 PM
GærkvöldiðUppistands keppnin í gær heppnaðist ágætlega. Slatti af áhorfendum og ágæt stemmning. Ég og Steinar gítarleikarinn minn tókum Kartöflugeymsluna og Dóra feita fyrir áhorfendur við mikinn fögnuð, síðan hófst keppnin. Af þeim fjórum keppendum sem stigu á svið fékk Eyvindur Karlsson flest atkvæði áhorfenda og hreppti þar með sigurinn, sem hann að mínu mati verðskuldaði ágætlega. Í lok keppninnar voru áhorfendur að æpa á mig að syngja meira, því þeir höfðu fílað lögin sem ég tók í byrjun fjandi vel. Þá var ég ekki með neinn gítarleikara og sagði við þau að ef ég myndi syngja þá myndi ég bara syngja "She´s gone" með Steelheart. Merkilega þá héldu þau samt áfram að hvetja mig til að syngja, þannig að ég tók bara lagið, undirspilslaust. Það var ekki fyrr en ég var kominn í miðjan píkuskrækjakaflann að þau grátbáðu mig um að hætta. Ég fæ þá bara fulla útrás í kareoke á Ölveri næstu helgi. Í bænum urðum við síðan vitni að "öldruðum æringjum" - fólki yfir sextugu sem var hent út af Celtic cross. Einn gamlinginn reyndi meira að segja að troða logandi sígarettu framan í dyravörðinn á leiðinni út. Fannst dyravörðurinn sýna nokkuð góða stillingu að buffa gaurinn ekki bara, en hann lét sér nægja að grýta honum út og hringja á lögguna. Jamm, hvítt rusl er ekki bara bundið við suðurríki bandaríkjanna (þó konsentrasjónin sé mjög há þar auðvitað). En hvað sem því líður þá er góðar líkur á að það verði aftur svona uppistandskvöld í næsta mánuði og ég mun þá tiltaka það nánar þegar nær dregur.
posted by Rökkvi on 6/13/2004 10:46:29 PM
Allir að mæta á Nelly´s í kvöld kl.22:00Allir að mæta á uppistandkeppni Nelly´s og Beyglu.is í kvöld. Byrjar kl.22:00. Þið áhorfendur munuð fá að kjósa um sigurvegarann. Kynnir kvöldsins er enginn annar en ég sjálfur.
posted by Rökkvi on 6/12/2004 01:50:37 PM
Hitti sjötuga útgáfu af sjálfum mérSem fararstjóri til Kulusuk á Grænlandi er óhjákvæmilegt að maður hitti ýmsa áhugaverða karaktera. Ég held ég hafi þó hitt þann eftirminnilegasta um daginn, sjötugan mann frá Norður-Írlandi. Þó að þessi maður væri alinn upp í kaþólsku umhverfi, var hann t.d. svarinn trúleysingi ("It´s a bunch of bollocks" sagði hann um trúna). Ég var sjálfur alinn upp við trúleysi og meira að segja ömmur mínar og afar voru trúlaus, þannig að mér finnst óneitanlega tilkomumikið að vera alinn upp í þessu bulli, en finna í sér sjálfstæða hugsun til að hafna því. Garuinn sagði mér meðal annars að honum hefði verið sagt að hann yrði að hafa "character reference" (karakter meðmæli) frá kaþólskum prest, þegar hann sótti um vinnu 14 ára. Þetta fannst honum mjög fáránlegt, að fá karaktermeðmæli frá manni úr stétt sem helst er þekkt fyrir að misnota litla stráka og náði að kjafta sér vinnuna án þess að fá meðmælin. Síðan lýsti hann því fyrir mér hvað það væri mikið rugl hjá þessu fólki að fjölga sér eins og það gerir. Sagði að hann þekkti gaur sem væri að komast upp í 20 börn þarna, hneykslaður á þessari viðeleitni til að skapa fátækrastétt. Ég held samt að bestu gullmolarnir hans hafi komið þegar við vorum að tala um kvenfólk. Ótrúlegt nokk, en aldrei hefði ég getað trúað að sjötugur maður frá kaþólska-Írlandi gæti verið með nákvæmlega sömu viðhorf til kvenfólks, kynlífs og sambanda eins og ég. Sýnir það kannski að sönn viska er sígild og úreltist aldrei, he, he. Allavegana varaði hann mig mjög við svona frímerkjakellingum (líma sig á mann eins og frímerki og gefa manni ekkert pláss -> allt snýst um sambandið/giftinguna/börnin/veggfóðrið/húsgögnin....) og þó við værum af ólíkum menningarheimum og kynslóðum, vissum við báðir nákvæmlega hvað við vorum að tala um í því tilviki. "They just dig their claws inta´ya. Ya, know thar´s a little bit of Margaret Thatcher in every woman. They all wanna rule ´ya with an iron hand. Well sometimes they rule wit´ a velvet glove, but thar´s an iron hand underneath it nonethaless." Já það þarf náttúrulega heldur ekki að nefna það að þessi maður hafði aldrei verið giftur. Og eftir að tala við hann uppgötvaði ég hversu truflandi líkir við vorum. Ég held ég hafi nánast séð inn í framtíðina, því ég á örugglega eftir að vera nákvæmlega eins og hann þegar ég er orðinn sjötugur.
posted by Rökkvi on 6/11/2004 07:26:14 PM
VideoHér eru video sketcharnir í talsvert viðráðanlegri stærð en áður: Kynfræðsla í 9.bekk (3,6MB innlent)Kyssiparið (6,4MB innlent)
posted by Rökkvi on 6/10/2004 12:40:58 PM
Uppistands keppni á Nelly´s á laugardaginnNæsta laugardag, 12.júní kl.22:00, verður uppistandskeppni á Nelly´s og ég verð kynnirinn á henni. Það eru Nelly´s og Beygla.is sem standa fyrir keppninni. Auk þess að kynna keppendur, mun ég að sjálfsögðu segja nokkra góða og vonandi líka taka lagið fyrir ykkur. Allir að mæta og vil ég sérstaklega hvetja stelpur sem eru í fleygnum bolum eða stuttum pilsum til að sitja fremst. Það verða áhorfendur sem munu skera úr um sigurvegara kvöldsins, með atkvæðagreiðslu, þannig að endilega mætið og látið ykkar álit skipta máli!
posted by Rökkvi on 6/09/2004 05:35:07 PM
Ef einhver fékk sms frá mér í gær, þá var það ekki ég sem skrifaði þau
posted by Rökkvi on 6/06/2004 04:40:55 PM
Húrra!Nú bíð ég bara eftir að Davíð springi úr bræði. Kæmi mér ekki að óvart ef hann væri að fá hjartaáfall akkúrat núna.
posted by Rökkvi on 6/02/2004 04:39:51 PM
Eldri blogg
-Rökkvi Vésteinsson (rokkvi@lagmenning.is)
|