Lágmenning.is lágkúrulegasta síðan á landinu!

Þvílík útreið sem þeir fá

Þarna er verið að taka fyrir ófyndna íslenska grínista. Ég er allavegana mjög sammála með Ómar Ragnarsson og Hemma Gunn. Ég hef reyndar heyrt að Ómar hafi verið fyndinn einhverntíman svona áratug áður en ég fæddist. Ég hef nú ekki mikið séð Bjarna Töframann koma fram og ég spjalla oft við hann, þannig ég held ég verði bara að sitja hjá með hann.

Hins vegar finnst mér tilfinnanlega vanta að setja Ladda á þennan lista. Laddi var ennþá eitthvað fyndinn þegar ég var lítill krakki, svona kringum '84, en eftir það hefur þetta bara verið niður á við hjá honum. Það er ekki gott að vera 20 árum "past it" í grínbransanum, jafnvel ef maður hefur nafn til að lifa af. Það er hálf eins og að vera fertugur boxari sem neitar að hætta og verður bara sjúskaðri og sjúskaðri með hverri barsmíðinni.




Leiðinlegt starfsheiti






Versta mynd allra tíma?

Eftir að hafa horft á bíómyndina um líf lélegasta leikstjóra allra tíma, Ed Woods, og læra sögurnar á bak við nokkrar af þeim hörmulegu myndir sem hann lét frá sér, langaði mig til að sjá hvort myndirnar væru eins lélegar og maður fékk á tilfinninguna.

Ég var fyrir nokkru búinn að horfa á Bride of the monster og hafa gaman af. Ég er líka einn af fáum sem ég veit um sem hafa endst út alla Plan nine from outer space, myndina sem var kosin versta mynd allra tíma.

Þeir sem horfðu á Ed Wood bíómyndina, þar sem Wood var leikinn af Johnny Depp, muna kannski eftir að hann gerði mynd um klæð og kynskiptinga, sem hét Glen or Glenda, en sú mynd er eflaust versta mynd sem ég hef séð - margfalt verri en Plan nine. Þetta voru hreinar kvalir og maður skilur fullkomlega hvað gaurinn meinti þegar hann sagði "worst movie I ever saw" við grey Ed Wood, sem sagði "Well I´ll do better next time." Þó Wood hafi sannarlega staðið við þau orð - þýddi það ekki mikið.

En í tilefni að því að hafa kvalist yfir myndinni, var ég að ljúka við að skrifa dóm um hana hérna á lágmenningu

Smellið hér til að lesa hann.

Ed Wood bíómyndin á imdb.com

Ed Wood bíómyndin, minn dómur




Video sketchar

Nú getið þið skoðað video sketchana sem ég sendi í skethcakeppni popptíví hérna á netinu

Kyfræðsla í 9.bekk (23MB mpg innlent)

Kyssiparið (40MB mpg innlent)




Gæti ekki verið meira sammála

Áðan var umfjöllun um merkan mann í útvarpinu. Ég get ómögulega munað hvað kallinn hét, en hann var fyrrverandi íþróttafréttamaður sem fjallaði um fótbolta, en var nú búinn að fá nóg og tjá ógeð sitt á íþróttinni í bók.

Þar talaði hann um heimskuna við að pissa á sig yfir því að liðið "þitt" tapi, þegar lið eru hvort sem er ekkert nema fyrirtæki sem kaupa og selja leikmenn eins og hórur. Hann talaði um hvað væri fáránlegt að vera með endalaust drama í sambandi við eitthvað sem væri í rauninni bara leikur, engu merkilegri en hver annar leikur sem að krakkar kynnu að lyfta sér upp með.

Gæti ekki verið meira sammála þessum manni, enda skrifaði ég þessa grein ekki útaf engu. En úr því ég get ekki munað hvað maðurinn hét, vinsamlegast segið mér það ef þið vitið og bendið mér á hvar ég get lesið meira af skrifum hans.






Stríðsleikur

Jæja, hvað segið þið núna fífl? Nú er búið að frelsa Írak, jibbí. Frelsa Írak frá hverju? Meira að segja sumir Kanar eru ekki nógu heimskir til að kaupa svona, eins og sést af linkunum fyrir neðan.

Það er náttúrulega mjög auðvelt fyrir Davíð, Halldór og fullt af Íslendingum sem hafa alla tíð lifað í vellystingum að ímynda sér að það sé bara hægt að fara með her inn land langhrjáðrar þjóðar (sem þú ætlar reyndar að stela olíunni af) og "frelsa" hana þannig að allir verði happy.

Meðal Íslendingur veit ekkert hvernig það er að lifa í landi þar sem harðstjórn hefur ríkt lengi og stríð, skortur og ofsóknir hafa verið við lýði. Það er ekki bara hægt að búast við að "góði kallinn" geti komið þangað og lagað allt með því einu að reka burt einn harðstjóra.

Það vill líka svo undarlega til að góðu kallarnir eiga það til að pynta og nauðga fólki. Það vill líka svo illa til að meirihluti Íraka eru frekar strangtrúaðir muslimar, þannig að ef þjóðin fengi raunverulegt lýðræði myndu "vondu kallar" hvort sem er ráða henni.

Já Írakar eru helvíti vanþakklátir út í hermennina sem komu og fresuðu þá. Vilja bara reka þá heim og hvaðeina og langar að ráða sér sjálfir. Vita þeir ekki að það er æðislegt að vera leppríki Vesturlanda svo að þær geti fengið hráefnin manns ódýrt? Það er augljóslega ekkert fyrir Kanan að gera en að pynta og pína Írakana þangað til þeir læra að elska lýðræðið.






Cult 2

Núna erum ég og Jón að leita að stuttmyndum fyrir Cult 2. Eins og sum ykkar vita, þá gáfum við Cult 1 út haustið 2002 og er hún núna á ýmsum videoleigum.

Myndir fyrir Cult 2 ættu helst að vera í b-mynda, cult, splatter, action eða sci-fi stíl en það er ekki skilyrði. Þær mega helst ekki vera lengri en 30 mínútur. Þó að myndirnar á Cult 1 hafi flestar verið eitthvað sem má kalla b-myndir og við búumst við að það sama muni gilda um Cult 2, þá þýðir það ekki að við viljum hvaða ömurlegu mynd sem er. Myndin má ekki vera leiðinleg og ef hún á að vera fyndin, þá verður hún líka að vera það. Það er að sjálfsögðu líka betra að tökur, vinnsla og hljóð sé nokkuð vandað.

Ef einhver ykkar eruð með stuttmyndir, sem ykkur langar til að myndu koma út á video, þá getið þið haft samband við okkur gegnum email: rokkvi@lagmenning.is eða jon@lagmenning.is. Þið getið líka einfaldlega afhent starfsmönnum Laugarásvideo spólu eða disk með myndunum ykkar og sagt þeim að láta okkur hafa þær næst þegar við komum þangað.

Við munum þá horfa á myndirnar og ákveða hvort þær eigi heima á Cult 2. Þeir sem fá myndirnar sínar gefnar út á Cult 2 munu ekki fá borgað fyrir það (og við munum ekki græða pening á þessu heldur), en þetta er gott tækifæri til að fá efnið sitt gefið út, sett á videoleigur og auglýst út um allt. Látið því heyra í ykkur!




Eurovision

Eins og ég bjóst við var Eurovision nákvæmlega sama klysjan og alltaf. Það var varla lag þarna sem manni fannst maður ekki hafa heyrt fimm sinnum áður í þessari útjöskuðu keppni. Á síðustu árum hafa reyndar verið einstaka húmoristar í keppnunum, eins og austurríski furðufuglinn í fyrra, Stefan Raab með wadda-hadda-duri-da og Guildo Horn ellirokkari frá Þýskalandi, en núna vantaði þá alveg.

Vegna þess hversu miklar klysjur öll lögin voru, ákvað ég bara að halda með Úkraínu, því þeir voru í flottustu búningunum. Ég var bara mjög ánægður þegar þeir unnu, fallegar gellur, þolanlegt lag og teksti sem var bara eitthvað bull, þannig að maður þurfti ekki að heyra sömu gömlu ensku ástartextaklysjurnar í því heldur.

Íslenska framlagið sökkaði náttúrulega feitt. Veit ekki hvort Jónsa fannst það vera "rosa góður draumur" að lenda í fjórða síðasta sæti, en hann átti heldur ekki neitt betra skilið. Nördavinir mínir í partýinu reyndu að fara í svona drykkjuleik, þannig að allir áttu að taka sopa fyrir hvert stig sem Jónsi fékk, en það gekk ekkert, sáu bara fram á að vera edrú allt kvöldið með þessum leikreglum, svo þau gáfust upp.

Eftir þetta ákváðu þau að drekka alltaf ef Jónsi fékk stig, eða ef eitthvert land var augljóslega að plögga nágrönnum sínum. Þetta leiddi augljóslega til mjög óhóflegrar áfengisneyslu og þau urðu öll pissfull og syngjandi glöð litlu elskurnar.

Já, Eurovision snýst heldur ekki um tónlist, heldur að koma saman og eiga glaðar stundir, horfa á flotta búninga og fallegar gellur á skjánum og þakka fyrir að maður þarf bara að hlusta á Gísla Martein, en ekki líka horfa á hann. Já, tóm gleði og bræðralag. Gleðilegt sumar öll sömul!




Rock on!

Jæja nú er ég búinn í prófum og tilbúinn í slaginn aftur, en eins og þið hafið séð var ég mjög lítið að gera upp á síðkastið. Auk þess að fara að blogga almennilega aftur er ýmislegt annað í gangi. Ég ætla að henda nokkrum videoum upp á netið og verð sennilega með uppistand í lok maí líka. Fylgist bara með því það verður nóg að gerast.




Ólafur Ragnar

Nú eru allir voða hneyksaðir á Ólafi forseta yfir því að hafa ekki farið í brúðkaup í Danmörku. Opinbera skýringin sem hann gaf á þessu athæfi sínu er að hann hafi viljað vera á landinu þar sem það væri svo mikið af ókláruðum málum á þinginu. Og allir vita að þá á hann að vera að tala um fjölmiðlafrumvarpið.

En ég held ekki. Raunverulega ástæðan fyrir því að hann fór ekki til Danmerkur var að hannn er vinstri maður. Vinstri menn eru flestir á móti svona konungsprjáli hvað þá þegar það er hjá fyrrverandi nýlenduherrum okkar, baunum!

Þannig að:
Vinstri menn eru á móti konungaprjálsbrúðkaupum
Vinstri menn fara þar af leiðandi ekki í konungaprjálsbrúðkaup
Ólafur Ragnar er vinstri maður
Þar af leiðandi fer hann ekki í konungaprjálsbrúðkaup

Sannleikurinn er ljós! Ólafur Ragnar var að skíta yfir konungshelgislepjuna og fyrrverandi nýlenduherrana með því að fara ekki. Fór frekar á Listahátíð í Reykjavík, sem er auðvitað mun merkilegri atburður en brúðkaup hjá einhverjum Tuborg sötrandi piparkökustrák og Tasmaníudjöflinu sem hann var að giftast.

Svo gerði hann Dabba brjálaðann í leiðinni, sem er alltaf bónus ;)




Snilld!




Van Helsing

Ég fór að sjá Van Helsing í gærkvöldi. Bjóst ekki við miklu, annað hvort skemmtilegu campy fun eins og Mummy myndirnar eða over the top goth eins og Underworld. En nei, það var hvorugt. Ég held satt að segja að þetta sé lélegasta vampýru/zombie/varúlfamynd sem ég hef nokkru sinni séð. Þetta er meira að segja verra en Chopper chicks in Zombietown, Frankenhooker og Re-animator.

Nú ætla ég að skíta yfir myndina og þá þarf ég að segja frá ýmsu um myndina. Ef þið viljið ekki vita hvað gerist og hvernig hún endar, hættið þá að lesa.

Myndin byrjar ágætlega. Dr. Frankenstein að búa til skrýmslið og brjálaður lýðurinn að brjótast inn í kastalann hjá honum. Það sem hins vegar gerir þetta áhugavert að Drakúla er inni hjá honum og hefur einhvern áhuga á skrýmslinu og hvernig það er búið til. Hins vegar er Richard Roxburgh svo hrikalega over the top að það er ekki annað hægt að en skella upp úr þegar hann byrjar að labba á veggjunum og loftinu til að hræða doktorinn góða. Þegar helvítis skrýmslið vaknar síðan byrja ósköpin fyrir alvöru. Það er eins og leikarinn hafi verið fenginn beint úr Sólheimaleikhúshópnum! Hann er fáránlega lélegur leikari og hvert skipti sem hann talar hljómar eins og einhverskonar grín úr mynd eins og Scary Movie. Þegar helvítið loksins hrapar ofan í brennandi mylluna sjáum við brúðir Drakúla. Þær eru bara vondar. Það er erfitt að lýsa því hversu rosalega illa leiknar og over the top þær eru látnar vera. Sífellt hvæsandi, baðandi höndunum út í loftið og á allan hátt að líta illa út. Að horfa á þær var eins og að horfa á lélegan nútímadans, þar sem dansarinn er að reyna að vera voðalega dramatískur með því að veifa höndunum í sífellu og vera mis asnalegur í framan. Og þetta hélt áfram alla helvítis myndina!

Síðan er klippt yfir á Van Helsing að buffa Mr. Hyde í París. Ég bara skil ekki af hverju verið var að eyða peningum í þetta atriði. Það er of langt, asnalegt og hefði vel verið hægt að kynna Van Helsing til sögunnar á annan hátt. Frekar hefði Sommers (leikstjórinn) átt að eyða þessum peningum í að gera landslagið aðeins raunverulegra, mðr fannst alltaf eins og ðg vðri ð kynningu hjá tðlvuleikjaframleiðanda.
Því næst fer Van Helsing í leyniregluna sína í Vatíkaninu. Þegar hann gengur inn í Vatíkanið var ekki einu sinni haft fyrir því að láta hann bara labba inn í risastóra gamla kirkju. Nei, hann er GREINILEGA að labba í blue screen og kirkjan er svo innilega tölvugerð. Þá fer hann niður í kjallarann þar sem vopnasmiðurinn er. Sá fer að skamma Bond.. ég meina Van Helsing fyrir að skemma alltaf vopnin og sýna honum hitt og þetta áhugavert. Þetta var það mesta Bond ripp off sem ég hef séð! Ömurlegt í alla staði.

Eftir það kemur smá pása í vondheitum, svona í allavega 2 mínútur. Þá hittum við Anna og Velkan Valerius sem eru síðustu afkomendur einhvers krumpaðs karls sem ætlaði að drepa Drakúla og ekki hleypa sínu fólki inn í himnaríki fyrr en það tækist hjá honum eða afkomendum sínum. Kate Beckinsdale leikur systurina og er helvíti sexe í outfittinu sínu en er látin tala með asnalegum hreim (sem á að vera Transilvanískur örugglega) sem er bara eins og að hlusta á rússneska klámmyndastjörnu reyna að tjá sig. Bróðirinn hefði verið rekinn úr Zombie Lake, hann leikur svo illa.

Núna er ég bara búinn að fara yfir fyrstu tíu mínúturnar en samt búinn að drita endalaust á myndina. Svona heldur þetta áfram ð 132 mínútur! 132! Bara til að súmmera restina upp: Samtölin eru hallærisleg og asnaleg. Við eigum ekki að fatta neitt sjálf í þessari mynd (svona eins og í LOTR), karakterarnir eru sífellt að troða ofaní okkur staðreyndum. Mér fannst stundum eins og David Attenborough myndi koma út úr skóginum "The werewolf is a TREMENDOUS creature, with AWSOME abilities...." Þið skiljið hvað ég er að fara. Ekki nóg með það heldur á liðið bara að hendast gegnum hálfa Rúmeníu ð hálfum degi á hestbaki og svo til baka aftur á enn styttri tíma! Einhvernveginn tekst þeim líka að koma boðum til Rómar og TILBAKA á nokkrum klukkutímum.
Svo þegar kemur að lokabardaganum á milli Van Helsing og Drakúla fannst mér bara að vantaði lyklaborðið á tölvunni svo ég gæti stjórnað skrýmslunum. Þar kemur líka enn eitt svartholið í plottinu. Það eina sem getur drepið Drakúla er nefnilega varúlfur og getið hver var bitinn af varúlfi nokkrum tímum áður? Nú auðvitað Van Helsing! Heppilegt. Ekki nóg með að þá hverfi Jackman af skjánum (hann er nokkurn veginn sá eini sem er í meðallagi í þessari mynd) og í staðinn komi CGI úlfur dauðans heldur eru Vampýrur í þessari mynd aðeins öðruvísi en í öllum öðrum myndum. Þær umbreytast í einhver rosalega stór skrýmsli sem líkjast ekkert manninum sem þær eru "í raun". Þannig að við losnum við Roxburgh og Jackman og í staðinn fyrir að sjá tvær persónur úr myndinni berjast sjáum við ofurúlfinn og ofurvampýruna kútveltast í rannsóknarstofu dr. Frankenstein. Jibbý-fokking dú!

Ég held að þessi mynd sé það sem kemur út þegar ofur Nexus nördar sem eru að reyna að vera hnakkar gera horror/action mynd sem á að vera dramatísk og "dimm".

Sem sagt, ég hvet alla til að rippa þessari mynd á Kazaa eða DC++ frekar en að borga heilar 800 krónur fyrir að láta sér leiðast í 132 mínútur!

Af 5 stjörnum mögulegum fær þessi mynd 0
Nauðsynlegt bjórmagn... MIKIÐ!




Reason to live?

Einn félagi minn fékk hugmynd um hvernig mætti reka svona sjálfsmorðs-neyðarlínu á ódýrari og einfaldari hátt. Í staðinn fyrir að hafa starfsmenn þar til að tala fólkið niður, þá láta bara "Reason to live" lagið með KISS lúppa í símanum þegar fólk hringir. Myndi spara peninga, spurning hvort það myndi spara mannslíf líka.




Versti vísindamaður í heimi.... Dr. Doom!!

Fann þessa síðu þegar ég var að láta mér leiðast á netinu. Aumingja maðurinn! Hvað ætli hann fái mikið af meilum frá forföllnum Marvel Comics nördum sem eru að spyrja hann hvernig það sé að vera vond ofurhetja ! Muahahaha

Endilega sendið honum mail og spyrjið að því!




Hver segir að það þurfi að vera leiðinlegt að lesa fyrir próf?

Það vill nefnilega svo skemmtilega til að Þjóðarbókhlaðan er eitthvert mesta samansafn af fallegu kvenfólki sem finnst á landinu.






Mesti viðbjóður í heimi !

Hvaða viðbjóðslega, smekklausa hvíta rusl setur upp svona síðu?




Snillingar eða stjörnuvitlaust lið?!

Rakst á alveg frábæra síðu um daginn, Cobra the musical. Þetta eru gaurar sem hafa ákveðið að setja upp söngleik þar sem aðalhetjurnar eru vöndu kallarnir úr gömlu G.I Joe leikföngunum! Síðan túra þeir nördaráðstefnur og setja upp þennan snilldarsöngleik.

Plottið er víst á þá leið að Cobra samtökunum vantar peninga og bregða á það ráð að setja upp Hamlet... and that´s it.

Þetta er næstum því verra en að setja upp wresling show í sjónvarpi á Íslandi!!





Eldri blogg

-Rökkvi Vésteinsson (rokkvi@lagmenning.is)