Lágmenning.is lágkúrulegasta síðan á landinu!



Lúseraleikarar

Ég hef áður sagt frá því hversu gaman ég hef af leikurum sem leika alltaf lúsera og taldi þar upp William H. Macy, Steve Buscemi og Philip Seymour Hoffman. Ég reyni alltaf að sjá allar myndir með þessum þremur og núna nýlega er ég búinn að sjá tvær með þeim síðastnefnda.

Það verður að segjast að hr.Hoffman er stórleikari þegar kemur að því að leika bælda og krukklaða menn. Hann er svo góður að það er hreinlega erfitt að horfa á sumar myndir með honum, án þess að virkilega þjást. Síðasta mynd sem ég sá með honum: Owning Mahowny, er um bankastarfsmann með spilafíkn, sem svindlar milljónir dollara út úr bankanum, bara til að tapa þeim við spilaborðið. Myndin sem ég sá með honum þar áður: Love Liza, er um mann sem er nýorðinn ekkill, því konan hans framdi sjálfsmorð. Sú mynd er þolraun í að horfa á niðurdrepandi mynd, en þar nær Hoffman að tjá sálræna bugun höfuðpersónunnar eins og sjaldan hefur sést á hvíta tjaldinu.

Hinir lúserarnir tveir, Macy og Buscemi, leika yfirleitt skoplega lúsera og því auðveldara að horfa á myndirnar þeirra. Hoffman aftur á móti lætur mann einhvernveginn þjást með sér, án þess að gefa manni nokkurn séns á að sjá hann úr fjarlægð og hlægja að sér. Það er nákvæmlega það sem gerir hann að svona góðum leikara. Ég mæli því með, fyrir fólk sem þolir langvarandi þjáningar, að horfa á Owning Mahowny og ef þið lifið það af, þá horfa á Love Liza líka.




ÁFRAM BRETAR!!

Það hlaut að koma að því! Í UK er búið að setja það í námskrá að kenna má trúleysi í trúarbragðafræðslu. Reyndar er það skólastjórum í sjálfsvald sett hvort þeir kenna það en þetta er þó allavega byrjunin.

Ef þetta færi inn í skólana hér væri ég sko vel til í að kenna trúarbragðafræði... "Jæja börnin góð. Nú erum við búin að fara yfir allar draugasögurnar og stökkbreyttu hvíslusögurnar um hina ýsmu krosslafa og mömmuserða. Þá ætlum við að skoða heiminn eins og hann er í raun og veru. Þróunarkenningin, gjörið svo vel!"




IQ?

Congratulations, Rökkvi!
Your IQ score is 138

This number is the result of a formula based on how many questions you answered correctly on Tickle's Classic IQ test. Your IQ score is scientifically accurate; to read more about the science behind our IQ test, click here.

During the test, you answered four different types of questions — mathematical, visual-spatial, linguistic and logical. We analyzed how you did on each of those questions which reveals how your brain uniquely works.

We also compared your answers with others who have taken the test, and according to the sorts of questions you got correct, we can tell your Intellectual Type is Visual Mathematician.

This means you are gifted at spotting patterns — both in pictures and in numbers. These talents combined with your overall high intelligence make you good at understanding the big picture, which is why people trust your instincts and turn to you for direction — especially in the workplace. And that's just some of what we know about you from your test results.

-----------------------------------------------

Það er ekkert lítið sem þeir sleikja mann upp á þessari síðu, enda ekki furða, þar sem það var hægt að kaupa nokkurra blaðsíðna skýrslu um IQ prófið manns þarna ($12.99), til að maður gæti betur vitað hvernig heilinn í manni virkaði. Einhvernveginn á ég bágt með að trúa að svona heimasíða, sem er í rauninni bara að sleikja fólk upp til að fá það til að kaupa eitthvað, myndi raunverulega birta eitthvað eins og:

Congratulations Rökkvi!
Your score is 82

We can tell you that your type is the airhead. This means you are stupid, a word we recommend you look up in a dictionary. These talents mean other people will turn to you for exploitation. Meaning you will always have plenty of "friends" who like you because they can cheat you out of money or other things. Speaking of which, you can buy our sophisticated (that means it´s good) report on your IQ test for only $99.99. Do it, it will make your life better!




Silly shit




Hver er heitasta gellan á Íslandi?

Ég rakst á þessa stórskemmtilegu grein á múrnum, en þar skrifar hh um hvað honum þótti allar gellurnar í Fegurðarsamkeppni Reykjavíkur svipaðar í útliti og því mætti alveg eins fækka keppendum niður í tvo.

Þetta minnti mig á hugmynd sem ég fékk fyrir nokkru um nýja tegund af fegurðarsamkeppni. Þar yrði keppni með svipuðu sniði og í boxi. Fyrst yrðu valdar tvær gellur og þær látnar keppa um titilinn Fegurðardrottning Íslands, svo gætu einhverjar aðrar gellur sem telja sig geta unnið sigurvegarann skorað á hana og þá yrði haldin önnur keppni. Sitjandi fegurðardrotting yrði þannig að verja titilinn reglulega en gæti fræðilega séð haldið honum í fjölda ára (Linda Pé hefði áreiðanlega getað verið fegurðardrottning lengur en eitt ár). Ég efast samt um að nokkur gæti haldið titlinum í meira en 2-3 ár þar sem dóp- og megrunarlyfjanotkun fer auðvitað illa með útlitið.

Ég er nokkuð viss um að með þessu móti væri hægt að komast að mun nákvæmari niðurstöðu um hver er í raun heitasta gellan á landinu og réttmæt Fegurðardrottning Íslands!




Skemmtilegt dót

Ég er of upptekinn við skólann til að segja eitthvað af viti hérna, þannig að ég ætla bara að gefa ykkur linka á einhverja steypu.

Þetta er mjög fyndið fyrir alla sem hafa skoðað badgerbadgerbadger.com

Þetta er líka ótrúlega súrt og fyndið kjaftæði

Ég er nú ekki sáttur við þetta. Það eru engin tígrisdýr í Afríku!






Síðan ég fékk aðganginn hérna hef ég mikið velt því fyrir mér að finna mér einhvern til að dissa reglulega. Eftir smá blogsurf þá er maðurinn fundinn! Stefán Einar er maður sem ég veit svosem lítil persónuleg deili á, en hann er sannkristin, stuðningsmaður Bush og skilur ekkert í óánægju fólks með Bjössa Willis. Hugsanlega er hann of gott skotmark til að vera mjög spennandi, auk þess sem ég held hann sé örugglega of mikill wanker til að svara fyrir sig hér. En ef maður er að eiga góðan dag og vill dempa niður ánægjuna þá er heimasíðan hans upplagður upphafspunktur.




Allir að kíkja á Standup í kvöld, Stúdentakjallaranum kl.9

Allir að mæta. Ég er með algerlega nýtt prógramm og það er dónalegt. Eina sem ég þurfti að gera var að fá mér labbitúr í Fossvogsdalnum og mér datt ógrynnin öll af dónaskap í hug (kannski ekki furða þar sem Fossvogsdalurinn er víst algert Mekka perverta). Hvet alla femínista sérstaklega til að mæta.




Jæja menningarsnauðu fávitar! Það er víst kominn tími á að ég láti heyra í mér hérna. Fyrir þá sem ekki vita hver ég er þá er ég myndarlegi gaurinn á myndinni hérna fyrir ofan. Hér getið þið dáðst meira að yfirburða fegurð minni.

Ég bý erlendis svo ef mér tekst að móðga einhvern hérna á síðunni, sem er eitt af markmiðum mínum hér (ásamt aðdáun ýturvaxinna kvenna), þá þurfið þið að splæsa á mig flugmiða til að reyna að hefna ófara ykkar (og láta lemja ykkur).




Snilldar gaur

Vá, ef maður hefur séð Ali G. þættina, þá hlýtur maður að velta því fyrir sér hvort Ali G. hafi ekki fengið hugmyndina að "Borad from Khazakstan" eftir að hafa skoðað heimasíðu þessa gaurs (sjá link í fyrirsögn). Þvílík snilld í hálfvitaskap, ef eitthvað þá er þessi gaur ýtktari en Borad karakterinn.

T.d. finnst mér snilld að hann segir á sinni bjöguðu ensku "I make psycolojy doctora" sem hlýtur að þýða að hann sé að taka doktorsgráðu í sálfræði, en ég held einhvernveginn að maður geti ekki komist hjá því að læra að skrifa "psychology" rétt ef maður hefur það mikla menntun í henni. Fyrir utan að gaurinn segist tala ensku.




Kíkið á uppistandið á fimmtudaginn !

Kíkið á uppistandið mitt í Stúdentakjallaranum, 22. apríl kl. 21:00. Það er frítt inn.

Hérna er prómó síða fyrir uppistandið




Hmm, önnur hver forsíðufrétt á DV er um hvað einhver gella elskar einhvern krimma mikið. Það er eins og ég sagði ég verð bara að fremja einhvern alvarlegan glæp bráðum, stela fullt af peningum eða sökkva líki í höfn eða eitthvað þannig. Þá munu konur elska mig og ég verð frægur.




Fermingar, fyrirmyndir og fífl

Fermingar eru heimskt fyrirbæri. Ferming er upphafið orð yfir það þegar litlar viljalausar gelgjur eru keyptar til að játa yfir sig helling af halelújabulli eftir að hafa sofið yfir fermingarfræðslu nokkrum sinnum. Um að gera að ná þeim áður en þau eru orðin nógu gömul til að sjá í gegnum bullið. Síðan þegar þau verða aðeins eldri verða þau hvort eð er búin að gleyma nokkurnveginn öllu bullinu sem þeim var sagt í fermingarfræðslu þannig að þeim er skítsama.

Fyrir utan halelújagerpi eins og KSS-inga eða þá sem eru svo óheppnir að hafa verið aldir upp af meðlimum einhverra sértrúarsafnaða, fermast krakkar til að fá peninga og gjafir. Ég er náttúrulega trúleysingi, þannig að ég fermdist ekki yfir höfuð, en nú er víst líka til trúlaust fyrirbæri sem heitir "borgaraleg ferming." Þetta finnst mér sniðugt fyrirbæri. Íslendingar geta þá ennþá sleppt sér í eyðsluæðinu og krakkar geta fengið útrás fyrir græðgina án þess að þurfa að halelújahórast neitt. (Það gæti meira segja verið að þeim sé kennt eitthvað af viti í borgaralegri fermingarfræðslu).

Um daginn fermdist frændi minn borgaralega. Ég var svo stoltur af honum að ég mætti meira að segja í veisluna. Mér finnst þetta sérlega vel til fundið af stráknum, þar sem hin ættin hans er mjög trúuð. Ég var náttúrulega líka mjög góð fyrirmynd fyrir litlu frændsystkinin mín í boðinu. Í fyrsta lagi sagði ég þeim náttúrulega að ég myndi ekki koma í fermingarnar þeirra nema þær væru borgaralegar. Síðan pantaði frænka mín að ég myndi segja þeim sögur af öllu því versta og skammarlegasta sem ég hafði gert þegar ég var á þeirra aldri. Ég tók að sjálfsögðu góðan klukkutíma í að sinna þeirri beiðni, enda verður maður að sinna yngir kynslóðinni á tímum þar sem allir vinna 10 tíma vinnudag og enginn hefur tíma fyrir þau.

Annars fannst mér mjög fyndið að það var einhver tjellíng í þessu boði sem sagðist vera með krakkann sinn í kristilegum leikskóla. Það var lagið! Bara byrja strax að heilaþvo þau og þá verða þau svo miklu meðfærilegri seinna. Mér finnst að það ættu þá líka að vera til svona "sjálfstæðisleikskólar" sem uppar gætu sent börning sín í til að móta þau nú í rétt form og svona "vinstri grænir" leikskólar sem hippar og kommúnistar gætu sent sína krakka. Það myndi náttúrulega spara svo mikinn pening sem fer í allar þessar helvítis kosningabaráttur ef heilaþvotturinn væri bara framkvæmdur strax, meðan einstaklingurinn er móttækilegur.




Sindri kominn með bloggaðgang að lágmenningu

Nú er nýr gaur kominn með bloggaðgang á lágmenningu, en það er einmitt gaurinn á myndinni hérna fyrir ofan (í miðjunni þið óupplýstu fífl sem vitið ekki hvernig ég lít út). Hann heimtaði aðgang að síðunni úr því þessi mynd væri nú af honum þarna á annað borð. Ég varð bara að láta undan því ég nennti ekki að klippa hann út af myndinni (og þá hefði ég líka náttúrulega klippt þessa fögru konu út af í leiðinni, sem væri náttúrulega ekki gott).

Það eru þá kannski einhverjir sem spyrja hvort gellan á myndinni fái ekki aðgang líka. Ég efast um það. Ég held ekki að hún sé manngerðin til að skrifa á svona síðu. Ég er ennþá að bíða eftir því að hún fái brjálæðiskast þegar hún fattar að það er mynd af henni á forsíðunni. En það verður bara gaman, hún er mjög sæt þegar hún er reið.






RUSKI - KARAMBA !!

Neeeeiiii, Wlad Klitschko skíttapaði fyrir einhverjum nobody. Ömurlegt. Vonandi mun stóri bróðir hans sýna meiri tögg. Ég sem held svo upp á Klitschko bræðurna því það er svo gaman að sjá alla amerísku pönkass boxarana buffaða af hvítum-austur-evrópskum mentamönnum. I am not amused by this. Ich bin ganz enttauscht.






Föstudagurinn langi

Í gær var föstudagurinn langi, sem er örugglega sá dagur sem fæstir þola. Allt lokað og ömurlega leiðinlegt.
Ég hafði það alltaf að sið að segja til hamingju með daginn við kristna fólkið þegar ég hitti það á þessum degi. Það voru ekki allir sem föttuðu það en margir urðu fúlir og spurðu mig hvað væri svona ánægjulegt við daginn sem jesú var hengdur upp á krossinum. Þar sem ég efast um að karluglan hafi verið til er ég hættur að bögga þetta lið, geri það annars staðar :)

Las skemmtilegan hlut um föstudaginn langa í DV núna um helgina. Áður fyrr var bannað að selja áfengi og spila tónlist á skemmtistöðum á föstudaginn langa. Núna er hins vegar farið að slaka á klónni og það má selja áfengi... en EKKI spila tónlist! Hvað næst? Á segja mér að ég megi ekki raka mig á þessum degi? Þessi lagabálkur er eins og klipptur út úr Afgönskum talíbanalagabókstaf!

Eina góða við þetta er að það má þá væntanlega ekki spila neins konar tónlist og allt FM-viðbjóðs draslið er þá ólöglegt... Það eru sem sagt góðar hliðar á þessu trúarofstæki eftir allt saman... segið svo að ég sé ekki jákvæð týpa!




Bla

Jæja, ekki komust sketcharnir mínir áfram í keppninni. En hvað með það, ég hafði gaman af að gera þá og þetta er mjög sanngjörn keppni að því leiti að áhorfendur kjósa en ekki einhver dómnefnd sem getur þess vegna verið með mjög sérhæfðan smekk. Það er líka mjög stór kostur við svona að það sjá það margir þessa sketcha. Hins vegar í uppistandi þá sjá tiltölulega fáir hvert uppistand, þannig að það er auðvelt fyrir einhverja að rakka niður uppistandið út um allt, þannig að fólk heyri að það sé lélegt, án þess að hafa séð það.

En þetta er nú í fínu lagi þar sem ég er hvort sem er búinn að finna fullkomna leið til að verða ofboðslega frægur. Fyrst þarf ég bara að drepa einhvern og/eða smygla fullt af dópi og vera dæmdur fyrir það. Þá get ég komið á forsíðu DV og talað um hvað mér finnist gaman að safna frímerkjum og horfa á Friends. Síðan getur kannski einhver af stelpunum sem ég hef einhverntíman sofið hjá talað um hvað hún elski mig mikið og ég sé yndislegur þó ég sé glæpon. Kannski ekki frumleg leið til að verða frægur, en a.m.k. sannað að þetta virkar.




Ég verð með uppistand í Stúdentakjallaranum 22.apríl, en ekki 16. eins áður var tilkynnt






Sketchar

Jæja, ég náði loksins að horfa á sketcha þátt nr.3 á Popptíví þar sem mínir sketchar komu. Endilega sendið sms-ið PTV 17 (ef þið viljið kjósa sketchinn "Kynfræðsla í 9.bekk") eða PTV 18 (ef þið viljið kjósa "Kyssiparið") í 1909 til að kjósa sketchana mína. Það er hægt að kjósa þangað til síðasti sketcha þátturinn verður sýndur á Popptíví á miðvikudaginn.

Annars fannst mér þessi þáttur bara nokkuð góður og fín afþreying. Það sem ég hafði heyrt áður var að það hefði verið mjög mikið af algeru drasli í þáttum 1 og 2, en þáttur 3 hefur þá verið mun betri ef eitthvað er að marka það.

Það var margt áhugavert við þennan þátt annars. Það furðulegasta fannst mér að það var heillangur sketch þar sem var verið að sýna af einhverri samkomu hjá Krossinum. Nú veit ég ekki hvort einver var að gera grín að Krossinum með því að senda þetta inn, eða hvort það var bara einhver brjálaður halelújagaur sem var að senda þetta inn í von um að frelsa áhorfendur. Allavegana fannst mér þetta hundleiðinlegt og spólaði yfir það. Síðan var líka fyndið að aðal gaurarnir úr judofélaginu Ármanni voru með sketch þarna, margfaldir Íslandsmeistarar í judo að sýna sig í soldið öðru ljósi en maður hefur séð þá hingað til.

Mér fannst nokkuð góðir sketcharnir um gaurinn sem var að selja "samfarir við mig" og gaurinn sem var svo ljótur að framköllunardaman bannaði honum að koma þangað aftur með myndirnar sínar. Það voru reyndar tveir sketchar þarna sem voru byggðir á eldgömlum bröndörum, um konuna sem vildi fá að finna hvernig það er að vera kona áður en hún dræpist og hommann sem var með dótið lengst uppi í rassinum á sér. Síðan voru tveir sketchar þarna sem voru eiginlega ekkert fyndnir, en frekar svona sniðugt "action flipp", einn með einhverjum víkinga splatter bardaga sem ég hafði ágætlega gaman af.

Það sem mér fannst samt mest snilld var að í pásunum sagði Svessi kynnir alltaf eitthvað á þá leið að þarna hefðu nú verið magnaðir sketchar (flt.) og kannski einhverjar framtíðar stjörnur á ferð. Nema eftir minn sketch, þá sagði hann eitthvað að þetta hefði nú verið frábær sketch (et.) og að þarna væri kannski framtíðarstjarna á ferð. Kannski var hann bara að mismæla sig (en það var þá líka kannski Freudian slip, he, he) en vegna mikillar hégómargirndar þá gerir svona mig bara rosa happy.




Veikindi og leiðindi

Ég er lasinn og ömurlegur þessa dagana. Rétt nógu lasinn til að ég sé slappur og sljór, en samt ekki það lasinn að ég sé með nógu góðri meðvitund til að leiðast alveg herfilega. Aumingja ég lág í sófanum og hafði það ágætt, en þá var kveikt á sjónvarpinu og Grísli Marteinn hrakti mig niður í kjallara í tölvuna. Ég er of sljór til að forrita, þannig að ég er bara búinn að vera að sörfa ruslið á netinu.

Það sem ég er samt svekktastur yfir er að missa af alþjóðkvöldinu í Stúdentakjallaranum sem var á fimmtudaginn. Þýðir bara að vel æfðar setningar eins og "Deine Augen leuchten heller als alle die Sterne der Nacht", "Skall vi kannske komma hemm och knulla lite?" og "And I always thought English women were ugly!" verða bara að bíða betri tíma.





Eldri blogg

-Rökkvi Vésteinsson (rokkvi@lagmenning.is)