Lágmenning.is lágkúrulegasta síðan á landinu!
Lágmenningar sketcharnir sýndir á PopptívíÍ kvöld voru sketcharnir mínir sýndir í sketchaþættinum á Popptíví. Ef þið viljið sjá þá en misstuð af þættinum þá er hann endursýndur á fimmtudaginn kl.18 og sunnudaginn kl.15. Ég held að mínir hafi verið númer 17 og 18, ég missti sjálfur af þessu reyndar. Þið sem fílið lágmenningu ættuð að kíkja á þetta og svo er þetta náttúrulega líka gullið tækifæri fyrir einstaklinga eins og Mæju, Togga, Gummajóh og Beturokk til að horfa á sketchana mína, bara til að þau geti nú sagst hafa séð þá og hrópað hvað þeir séu nú ofboðslega lélegir. Gaman fyrir alla semsagt.
posted by Rökkvi on 3/31/2004 11:04:43 PM
How to irritate peopleÉg og vinir mínir erum búnir að finna upp mjög svo öflugt trikk til að mótmæla því að dj-inn spili lélega tónlist á dansgólfinu. Gamla trikkið var að biðja hann um að spila Panic með the Smiths, en það er brigðult trikk, þar sem hann getur einfaldlega neitað eða það getur hreinlega ekki verið hægt að ná í dj-inn. Nýja trikkið okkar er mun öflugra, en það gengur út á að syngja og dansa badger-badger-badger lagið við lagið sem verið er að spila. Þetta gerðum viðn núna á föstudaginn á 22, alltaf ef okkur fannst lögin ekki nógu skemmtileg. Við sungum meira að segja svo hátt að dj-inn þurfti að hækka í græjunum til að yfirgnæfa okkur. Ekki það að við hefðum neitt stoppað fyrir því. Við dönsuðum og sungum þetta aftur og aftur og nú er bara spurningin hvort hann er ekki búinn að læra hvaða lög okkur finnst leiðinleg.
posted by Rökkvi on 3/28/2004 09:18:07 PM
Það er nú ljótaÉg var að horfa á þáttinn "Í brennidepli" með öðru auganu áðan. Þar var einstæð móðir með mjög lág laun sem var að tala um hversu erfitt væri hjá henni og hvað hún gæti gert lítið sér til upplyftingar með svona litla peninga. Síðan var hún sýnd þarna að reykja sígarettu. Gáfulegt að sóa peningunum í reykingar ef maður er svona ofboðslega sár út af að geta ekki gert neitt skemmtilegt í lífinu vegna peningaleysis. Ég hætti eiginlega alveg að geta vorkennt henni.
posted by Rökkvi on 3/28/2004 09:07:39 PM
LaugarásvídeóEins og þeir sem lesa þessa síðu vita þá er bara ein vídeóleiga sem við verslum við. Laugarásvídeó! Ég bara verð að segja að þetta er besta leigan sem er í bænum og með besta starfsfólkið. Nú halda örugglega allir að ástæðan fyrir því að ég segi þetta sé bara sú að við fáum góðan díl hjá þeim. En það er ekki svo. Það er einmitt þveröfugt, við ákváðum að leita til þeirra vegna þess að þeir eru besta leigan. Of þið viljið fá gamla sjónvarpsþætti sem þið munið eftir síðan í barnæsku og fá got nostalgíutripp þá farið þið í Laugarás. Ef þið viljið b-myndir, cölt myndir, wresling, tónlist eða bara what ever þá finnið þið það þarna. Spyrjið bara Gunna, Leó eða þá sem eru að vinna þarna og þeir finna það fyrir ykkur. Tékkið líka á dómunum hér til hliðar undir b-myndir, þar sjáið þið örlítið úrval af því sem til er hjá þeim.
posted by Jón Grétar on 3/26/2004 12:40:56 AM
Mótmælin í dagÉg var í dæmatíma í dag og komst ekki til að mótmæla skólagjöldum. Það gerðu nörda vinir mínir hins vegar og notuðu tækifærið til að mótmæla öðrum hlutum í leiðinni, nefnilega kvenmannsleysinu í tölvunarfræði. Þeir voru stoltir með stórt "Fleiri stelpur í tölv.fræði" skilti, ásamt venjulegum skiltum til að mótmæla skólagjöldunum. Mér finnst þetta verðugt málefni til að berjast fyrir, jafnvel þó ég sé að útskrifast í vor, því kvenmannsleysi er óhollt fyrir tölvunörda, gerir þá bara að perrum sem hlaða dýra og dvergaklámi af netinu. Usss og svei.
posted by Rökkvi on 3/22/2004 09:22:41 PM
Lágmenningar-bíóNúna á mánudagskvöldum eru í gangi sýningar á lágmenningar-bíómyndum á Jóni Forseta. Síðast voru John Waters myndirnar Multiple Maniacs (einhverversta mynd allra tíma, samt fyndin), Pink flamingos (mesta snilld sem gerð hefur verið í perraskap) og Polyester (snilldar illska). Núna verða víst 3 50s geimmyndir sýndar. Þetta framlag tengist reyndar ekki lágmenning.is á neinn hátt, en hvet samt fólk til að kíkja ef það fílar lágmenningarlegt efni.
posted by Rökkvi on 3/22/2004 09:18:53 PM
HelginÉg er þokkalega ónýtur eftir þessa helgi. Við fórum fyrst í vísindaferð í Íslandsbanka, þar sem Þorsteinn Guðmundsson hélt smá fyrirlestur um starfsmenn. Mér fannst hann helvíti fyndinn, sem er mjög gott miðað við að ég verð yfirleitt fyrir miklum vonbrigðum með þau uppistönd sem ég sé. Eftir þetta fórum við í einhverja rútu sem ég hafði ekki hugmynd um hvert myndi fara. Í rútunni stóð ég að sjálfsögðu fyrir kraftmiklum hópsöng sem vakti að sjálfsögðu mikinn fögnuð allra. Tvær gellur úr HR sátu meira að segja við hliðina á mér og pöntuðu óskalög. Ég neitaði öllum beiðnum um að taka íslensk hnakkalög, en Bon Jovi, U2 og Whitesnake fengu að njóta sýn vel þarna. Eftir allt þetta gaul komst ég að því að rútan stoppaði í Stúdentakjallaranum, þar sem var verið að halda eitthvert helvítis Bingo. Hverjum dettur í hug að halda Bingo á einhverju stúdentafylleríi á skemmtistað? Bingófólkið reyndi örvæntingarfullt að þagga niður í fylleríislátunum í fólkinu sem kom þarna til að skemmta sér, á meðan bingópakkið reyndi að hlusta á tölurnar sem voru hrópaðar og koma í veg fyrir að bjórklístraðir bingómiðarnir flygju ekki í allar áttir frá þeim. Vegna kurteisi neyddist ég líka til að hætta að syngja fyrir HR dömurnar, en það kom ekki í veg fyrir að við gætum röflað við hvert annað. Það kom greinilega heldur ekki í veg fyrir að einhver gaur yrði fúll út af þessu og segði mér að ég væri sko ekki að fara að hözla þær, þær væru strang giftar báðar. "Það er ekki mitt mál" sagði ég, en gaurinn virtist eitthvað vera ósammála. "Ég ber ekki siðferðislega ábyrgð á öðru fólki" fékk heldur ekki góðan hljómgrunn. Hvað sem leið giftingum og siðferði hinna ýmsu aðila þá endaði ég hvort sem er í pyslupartýi með tölvunördnum og hékk þar þangað til að var allt of seint að fara í HR partýið sem sönggrúppíurnar buðu mér í. Pylsupartýið var hins vegar fyrsta flokks partý sinnar tegundar. Í fyrsta lagi bakaði eina stelpan í partýinu handa okkur pönnukökur. Í öðru lagi komu tölvunördabusarnir okkar þangað með "Óla" sem er Íslandsbanka-lifesize-pappaspjaldskall sem við fengum í vísindaferðinni. Óli var mikill stuðbolti og velkomin viðbót í pylsupartýið. Reyndar kýldi ég óvart af Óla höfuðið, en það var teipað aftur á hann áður en við fórum með hann út á djammið. Ég eyðilaggði líka hendurnar á mér með því að vera að lyfta einhverjum lóðum sem vinur minn átti, endalaust oft. Ég gerði eitthvað 130 sinnum með hægri hendinni og kannski 50 sinnum með vinstri. Samt er mér meira illt í vinstri. Það er virkilega hollt og heilsusamlegt að runka sér sem sagt. Kvöldið endaði með því að við fórum með Óla á djammið og kynntum hann fyrir kvenfólki. Reyndar komu einhverjar stelpur og stálu honum af vinum mínum, svo óðar voru konurnar í hann. Þegar vinir mínir fóru svo að elta stelpurnar, var eitthvert par sem stoppaði þá því þau héldu að þeir væru nauðgarar! Tóm steik allt saman sem sagt, alveg eins og ég vil hafa það!
posted by Rökkvi on 3/21/2004 08:19:18 PM
Breytingar á síðunniEins og þið sjáið þá var ég að fukka aðeins með útlitið á síðunni núna áðan. Setti svona flaming (gay) logo í staðinn fyrir gamla logoið og nýja mynd uppi. En þessar breytingar eru bara á útlitinu, aðrar meiri breytingar hafa nú átt sér stað, eða það að Jón Grétar og Gaui eru praktískt hættir á síðunni. Jón Grétar mun samt kannski blogga eitthvað áfram og senda inn einhverja dóma hér og þar, en hann er að flytja til útlanda í sumar og það meikar ekki sens fyrir hann að reka síðuna með mér. Pistlar og dómar um myndir eftir Jón Grétar og Gaua verða áfram á síðunni og reyndar erum við þrír að reyna að byrja að æfa wrestling aftur (sem sýnir að það er nú ekki öll lágmenningin farin úr þeim strákunum). Ég er hins vegar núna einn með síðuna hvað varðar rekstur og þess háttar. Og það er vel hugsanlegt að ég fái inn nýja einstaklinga til að vera með í síðunni á einn eða annan hátt. Ef þið hafið áhuga og teljið ykkur hafa eitthvað fram að færa, þá getið þið meira að segja reynt að sleikja mig upp. En það kemur allt í ljós. Það verður nóg af lágmenningu hérna hvernig sem þau mál snúast.
posted by Rökkvi on 3/20/2004 01:13:15 PM
Lágmenningarsketchar á PopptívíNú fer sketcha þátturinn á Popptíví að verða sýndur í sjónvarpinu. Ég sendi inn tvo sketcha í þáttinn: "Kynfræðsla í 9. bekk" og "Kyssiparið" þannig að það er um að gera fyrir ykkur lágmenningarpakkið að horfa á þáttinnn og sjá þetta.
posted by Rökkvi on 3/19/2004 03:36:57 PM
Já meðan ég man, næsta uppistand sem ég verð með verður föstudaginn 16.apríl í Stúdentakjallaranum
posted by Rökkvi on 3/19/2004 03:31:54 PM
BetrumbæturJæja, sumir hafa kannski tekið eftir því að það hefur ekki verið hægt að downloada sum wrestling video og ekki neina af audio sketchunum. Þetta er búið að laga núna. Þið getið líka búist við að ég bæti við einhverju meira svona dóti í framtíðinni, allavegana einhverjum fleiri wrestling videoum.
posted by Rökkvi on 3/19/2004 02:42:34 PM
ByssubrjálæðiStrákur skotinn til bana með skammbyssu á Selfossi. Hvað er eiginlega málið með svona hálfvita sem á skammbyssu sem krakkar geta bara gengið að og leikið sér með. Þetta hljómar eins og eitthvað sem myndi gerast í Bandaríkjunum, en því miður eru Íslendingar bara að verða alveg jafn mikil fífl og sú þjóð. Burt með herstöðina. Vonandi mun hún renna úr greipum hórana hérna heima sem reyna að dauðhalda í hana og væla í Könunum um að fara nú ekki burt með peningana sína.
posted by Rökkvi on 3/18/2004 01:34:46 PM
Ég gæti grenjað úr hlátri yfir þessu!Ja, Leoncie hefur þó allavegana rétt fyrir sér í sambandi við FM 957........
posted by Rökkvi on 3/17/2004 05:51:57 PM
Djöfull er Tilveran orðin milljón sinnum betri núna
posted by Rökkvi on 3/17/2004 05:45:01 PM
RatfightUm daginn var ég að sækja systur mína í ónefnda blokk í bænum og allt í einu sáum við kött sem var eitthvað að hoppa um og hegða sér undarlega. Ég fattaði síðan þegar systir mín byrjaði að öskra af viðbjóði, að kisi var að slást við heljarinnar rottu. Eins ógeðslegt eins og systur minni fannst þetta, þá fór ég strax út úr bílnum til að horfa á slaginn. Heljarinnar stuð að horfa á, bara eins og live náttúrulífsmynd. Kötturinn var að buffa rottuna sæmilega, þó hún verði sig nokkuð vel og hefði sennilega náð að kála henni á endanum. Því miður fyrir köttinn smaug rottan hins vegar inn í einhverja sprungu á blokkinni og var horfin. Það er nú meira hvað þessi dýr eru ógeðsleg, smjúga inn allsstaðar, klifra eða synda hvert sem er og örugglega þar á meðal þangað sem þú býst síst við að finna þær. Mér finnst rottur reyndar sætar enda finnst mér eiginilega öll nagdýr (íkornar, múrmeldýr, mýs, naggrísir o.sfrv.) frekar sæt dýr. Það þýðir hins vegar ekki að maður geri sér ekki grein fyrir hversu ógðesleg þessi dýr eru. Maður getur varla ímyndað sér hvar þau eru búin að vera og þetta er einhverjir mestu smitberar sjúkdóma sem fyrirfinnast. Já, þær eru ógeðslegar þó þær séu sætar, nákvæmlega á sama hátt og mellurnar í rauðu hverfunum í Amsterdam. Og nóg um það....
posted by Rökkvi on 3/14/2004 06:05:58 PM
Trúleysingjar sameinistÉg var að finna síðuna Vantrú.net, sem er síða trúleysingja á Íslandi. Gott að sjá svona síðu uppi og vonandi eru fleiri svona á netinu. Látum ekki halelújabull og rökleysu vaða uppi þið sem hafið sjálfstæðari hugsun.
posted by Rökkvi on 3/11/2004 06:04:32 PM
DV er að koma sterkt inn!!Ég hef í gegnum tíðina ekki haft mikið álit á slúðurblaðamennsku eða einhverjum svoleiðis blöðum svo sem eins og séð og heyrt, en ég verð að viðurkenna að eftir að DV vaknaði til lífsins aftur þá hefur álit mitt á því stóraukist. Horfið bara á þessar fyrirsagnir sem koma fyrir í blaðinu, "stjúpson skipstjórans dreymdi fyrir strandinu" svo náttúrulega fengu þeir uppreisn æru í blessaða líkfundarmálinu, en þar fór DV á kostum í fyrirsögnum. Ég er því farin að styðja DV heilshugar bara vegna þess að þetta sem þeir eru að koma með eru alger slúðurfréttamennska, þeir leita bókstaflega að öllu sem getur tengst málinu sem fjallað er um, hversu ómerkilegt það er, en samt geta þeir sett það upp á þannig hátt að það hljómi spennandi og merkilegt, þó það sé í raun svo sáraómerkilegt.
posted by Guðjón Einar on 3/11/2004 12:12:11 PM
Strákur kominn í gelgjuhorniðJæja, mikið skref í jafnréttismálum var stigið með því að helypa strák inn í gelgjuhornið. Gallinn er bara að þessi gaur er viðbjóðshnakki, eins og þið munið sjá ef þið lesið gelgjuhornið. Ég bið því alla sem ætla að lesa gelgjuhornið að hafa það hugfast að þetta geti verið mjög ógeðslegt. Ykkur finnst kannski að ég ætti að reka hnakkann, því við viljum ekki svona óþverra á síðuna, en nei eftir að sjá Grísla Martein um helgina sprakk ógeðsskalinn hjá mér og ég er ófær um að finna til ógeðs í a.m.k. eina viku. Mér er því slétt sama.
posted by Rökkvi on 3/09/2004 05:21:44 PM
Tilveran er komin aftur
posted by Rökkvi on 3/09/2004 12:16:07 PM
Deyðu Grísli, deyðu!Urrgh, ég var næstum búinn að gleyma hvað ég varð pirraður þegar ég óvart kveikti á sjónvarpinu á laugardaginn þegar þátturinn hans Grísla Marteins var. Djöfull eyðileggur Grísli allt sem gestirnir hans segja með heimskulegum spurningum og þessum tilgerðarlega hlátri, í þau örfáu skipti þegar hann fær eitthvað annað en drepleiðinlegt fólk í þáttinn sinn. Það að það væri eitthvað fyndið með Pétri þarna, féll alveg í skuggan af klisjulegum töktum Grísla. Þegar Sirrí fór að tala um þáttinn sinn og hvernig hún myndi spyrja Pétur, vonaði ég svo innilega að hún myndi bara taka yfir þáttastjórnunina af Grísla, bara svo að þessi þáttur gæti einu sinni verið þolanlegur að horfa á. Mig langaði til að öskra á hana að taka yfir helvítis þáttinn í nafni allra okkar kvöldu áhorfenda, en það hefði víst lítið þýtt. Þó ég hefði ef til vill getað öskrað nógu hátt til að það heyrðist yfir í útvarpshúsið, þá er helvítis þátturinn tekinn upp á fimmtudögum. Já þessi fjandans þáttur er nefnilega ekki live frekar en South Park. Þess vegna skil ég ekki af hverju Grísli er ekki alfarið klipptur út úr honum (bæði myndrænt og hljóðrænt) þegar það er verið að vinna hann. Á ekki vinnsla á þáttum að auka gæði þeirra eða hvað? Ég held ekki geði yfir þessu..... arrrrghhhh......
posted by Rökkvi on 3/08/2004 11:36:29 PM
Ég er slefandi hálfvitiÞað er orðið ljóst að ég er slefandi hálfviti. Í fyrsta lagi rann upp fyrir mér að þó ég hafi lifað í þeirri sjálfsblekkingu að ég kunni 5 tungumál, þá kann ég ekki einu sinni almennilega íslensku. Allavegana var ég að leiðrétta íslenskuverkefni hjá danskri vinkonu minni og kenndi henni einhverja algera vitleysu, sem kennarinn hennar var lítið hrifinn af. En það er ekki nóg með það að ég sé hálfviti, heldur er ég einmitt eins og fyrirsögnin segir, slefandi hálfviti með meiru. Ég er búinn að sofna svo oft í tímum undanfarið að það er ekki sniðugt, en síðast vaknaði ég upp við það að ég var byrjaður að slefa yfir alla glósubókina mína, alveg eins og einvher mongó. Ég held ég þurfi kannski loksins að fara að byrja á kaffi. Ég yrði samt ennþá hálfviti ef ég gæti haldið mér vakandi, en það er þó skref í rétt átt að vera hálfviti án forskeytis.
posted by Rökkvi on 3/07/2004 02:53:52 PM
Uppörvandi bréf til okkarÍ dag fékk ég þetta stórgóða bréf frá einum lesenda okkar: ------------------------------------------------------------ "Sæll Rökkvi. Ég er ungur drengur sem lenti í þeim hryllingi að flytjast á Selfoss. Nú þar sem ég er svo mikill nördi hef ég sloppið nokkuð vel, ég hvorki hlusta á FM né annað RnB, hip hop rusl. Ekki fer ég heldur í ljós, og aldrei hef ég aflitað á mér hárið (eða litað það yfir höfuð) Það sem er búið að halda mér frá hnakkaskapnum er lagmenning.is, en þar sé ég að það er fleira fólk sem finnst Selfoss fáránlegt. Með kveðju, einn af örfáum nördum á Slefossi" -------------------------------------------------------------- Alltaf uppörvandi að heyra svona baráttukveðjur frá smekkfólki sem lætur ekki viðbjóðsmenningu hnakkapakksins kúga sig!
posted by Rökkvi on 3/04/2004 05:25:11 PM
ViðbjóðshnakkarEinhver gaur, sem ég sé núna að hlýtur að hata mig mikið, sagði mér að fara inn á Þessa ógðeslegu síðu. Hver er eiginlega afsökunin fyrir svona ógeðslega hnakka að vera með síðu á netinu? Það er ekki eins og það sé ekki til nóg af stöðum fyrir þessa hnakka, eins og Selfossi, Hverfisbarnum og Felix. Það þyrfti bara að endurhanna alla ljósbekki til að dreifa svolítið mikilli gammageislun með útfjólubláa ljósinu. Þá myndum við losna við þetta ógeðslega hnakkapakk.
posted by Rökkvi on 3/01/2004 11:25:31 PM
Eldri blogg
-Rökkvi Vésteinsson (rokkvi@lagmenning.is)
|