Lágmenning.is lágkúrulegasta síðan á landinu!
GervipíkurÉg bara skil ekki hvað veldur því að sumt fólk kaupir sér gervipíkur. Ég þekki reyndar engan og hef ekki séð slíka gripi nema á netinu. Hins vegar hef ég mikið velt fyrir mér hvað veldur því að fólk vill kaupa svona. Hugsið ykkur ungan dreng að springa úr greddu. Hann er á toppi getu sinnar og skotfærageymslan hans er eins full og hún nokkru sinni verður. Hann nær sér í nýja gripinn sem hann var að fá eftir að hafa pantað hana á netinu. Hann nær sér í flösku með píkusafa (það fylgir víst með nýjustu og vönduðustu gripunum) og bleytir hana vel. Síðan klárar drengurinn í titrandi gúmmívasann og er glaður. En þá byrja leiðindin. Að þurfa að skola út viðbjóðinn (rinse and repeat) er ekki beint það sem maður myndi vilja gera eftir að hafa létt á sér. Hvað þá ef þetta er týpískur strákur sem ekki nennir að þvo nokkurn skapaðan hlut, hvorki sjálfan sig, dótið sitt og umhverfi. Örugglega góð lykt í herberginu hjá þeim gaur. Nei þá held ég að Lóa vinkona sé betri eða bara papco pappír... svo gæti liðið líka bara náð sér í gellu.
posted by Jón Grétar on 2/26/2004 10:59:23 PM
KISS á Radíó ReykjavíkÞá er loksins komið að því. Í kvöld verð ég og félagi minn Páll Líndal með þátt um KISS á Radíó Reykjavík 104,5. Þátturinn byrjar klukkan 22:00 og verður til miðnættis. Við ætlum að fjalla um ALIVE plötur KISS sem eru alger stakasta snilld. ALIVE! sem er fyrsta live platan þeirra hefur oft verið valin ein af bestu og áhrifamestu rokkplötum allra tíma. Hlustið á alvöru músík :)
posted by Jón Grétar on 2/25/2004 02:35:17 PM
Djöfuls vesen er að klippa videoÞað er ekkert lítið vesen að klippa video, alla vegana ef maður hefur fáránlega lítinn tíma til þess eins og ég. Mér tókst með mikilli panik að taka upp tvo sketcha fyrir sketchakepnni Popptíví og ég er búinn að klippa einn. Ég mun ekki fá Edduverðlaun fyrir bestu klippingu er ég viss um. Hinn verður samt ábyggilega auðveldari að klippa og mun vonandi koma út aðeins vandaðri. Vesen er þetta allt. Ég ætla nú samt bara að vera með í keppninni til gamans. Skemmtilegt að fá þetta bull sitt sýnt í sjónvarpinu og vonandi einhverjum öðrum sem finnst skemmtilegt að horfa á þetta líka.
posted by Rökkvi on 2/24/2004 08:51:01 PM
Hörmuleg martröðUm daginn fékk ég fáránlegustu martröð sem ég hef hingað til fengið. Hún var þannig að maður gat borgað 40.000 kall fyrir að láta merkja við sig að maður væri frægur í símaskránni (svona svipað eins og maður getur fengið rautt x fyrir framan nafnið sitt, ókeypis). Í frægðarhóruskap mínum borgaði ég að sjálfsögðu minn 40.000 kall til þess að fólk tryði því að ég væri frægur og fékk svona -FRÆGUR, fyrir framan nafnið mitt. Síðan kom sú hryllilega staðreynd í ljós að aðeins tveir aðrir höfðu gert þetta, einhver nobody kall og Harpa Karlsdóttir (fyrrverandi kærasta Ástþórs og fastagestur í Séð og Heyrt blaðinu). Allt alveru frægt lið hafði sem sagt séð sóma sinn í því að sniðganga þessa vitleysu. Ég sat uppi með niðurlæginguna af því að vera einn af þessum þremur hégómafullu fíflum sem höfðu sóað peningunum sínum í bull. Þýðir þessi draumur að einhver ómeðvitaður hluti af mér skammist sín fyrir frægðarhóruskapinn í mér? Ólíklegt held ég. Sennilega frekar hræðsla um að sterk frægðarhórueffort fari til einskis!
posted by Rökkvi on 2/22/2004 07:20:53 PM
Aumingja égÞað er sem sagt komið í ljós að ég er bæði of feitur og hef ekkert sniðugt að segja í rúminu.
posted by Rökkvi on 2/22/2004 07:06:48 PM
Ég vil fá hreinskilið svar frá ykkurOk, nú vil ég bara fá alveg hreinskilið svar frá ykkur. Is it because I´m too fat?
posted by Rökkvi on 2/20/2004 07:49:52 PM
Fjúkk, búinn að finna leikkonu
posted by Rökkvi on 2/20/2004 07:32:08 PM
Mig vantar leikkonu strax !Ég er gera sketcha fyrir keppnina sem Popptíví er að halda og mig vantar bráðnauðsynlega leikkonu eða nokkrar svoleiðis, mjög fljótt. Ef þið hafið áhuga og hafið einhverja smávægilega getu í leiklist, hafið samband við mig mjög fljótt, því ég hef ekki mikinn tíma eftir. Þið getið hringt í mig í 895 0024. Mig vantar líka helst einn karlkyns leikara. Ég get borgað einhvern smápening fyrir þetta líka.
posted by Rökkvi on 2/19/2004 11:23:01 PM
Enn um halelújaHorfði á Kastljósið í kvöld. Þar var prestur að tala um nýjustu myndina hans Mel Gibson sem fjallar um Jesú og hvað gyðingar eiga að hafa verið vondir við hann. Mann fífilið talaði um guðspjöllin og Biblíuna eins og hverja aðra sögulega heimild! Djöfull er þetta lið firrt, að trúa þessari vitleysu!
posted by Jón Grétar on 2/19/2004 09:31:47 PM
Hvað á maður að segja í kynlífi?Nú er íslenska soldið sérstakt mál og hentar ekki jafn vel til allra hluta. Það er til dæmis ekki auðvelt að segja eitthvað sexy meðan maður er að gera það. Setningar eins og "Ég er að fá það" eru einhvernveginn alltaf fjandanum vemmilegri og hljóma svo illa að þær geta einmitt virkað þveröfugt, einmitt komið í veg fyrir að maður fái það yfir höfuð. Oft hef ég heyrt að önnur tungumál séu mun betur fallin til að nota í bólförum, en maður getur nú ekki bara allt í einu skipt um tungumál, eða hvað? Verður maður ekki líka að halda uppi heiðri íslenskrar tungu hvað sem það kostar? Ég vil þess vegna eins og svo oft áður leita ykkar hjálpar, lesendur góðir og bið ykkur um að skrifa í kommentakerfið hvaða setningar maður getur látið út úr sér í rúminu, án þess að það sé dauðhallærislegt. Og þetta er ekki fyrir mig, heldur fyrir vinkonu mína...... ég sver.......
posted by Rökkvi on 2/18/2004 01:00:36 PM
StúdentapólitíkinJæja þá er að reyna taka sig til í andlitinu og fara drattast til að gera eitthvað hérna Allavega talandi um þessar stúdentakosningar, þá var ég að velta fyrir mér afhverju við værum að kjósa, við erum að kjósa milli tveggja flokka sem eru að lofa því nákvæmlega sama, allir ætluðu að berjast á móti skólagjöldum og ganga í lánsmál stúdenta og fleira ég er bara velta fyrir mér þessum sandkassaleik sem við erum öll partur af þarna. Við höfum fólk að leika sér að sama leiknum í mismunandi hornum sankassans í staðinn fyrir það að leika allir saman.
posted by Guðjón Einar on 2/15/2004 07:02:40 PM
Kareoke fíknÉg er löngu orðinn kareokefíkill og nú er mér líka búið að takast að gera alla tölvunarfræðina í HÍ að kareokefíklum núna. Þetta er orðið hræðilegt. Allir starfsmenn Ölvers þekkja mig til dæmis núorðið. Og þeir ljúga líka upp á mig. Ég sagðist hafa komið þangað síðast milli jóla og nýárs, en þá ljúga þeir að öllum þarna inni að ég hafi verið þarna síðustu helgi. Ég viðurkenni að vera forfallinn kareokefíkill, en það er óþarfi að ljúga upp á mann til að ýkja það. Annars var besta performansið mitt þarna á föstudaginn þegar ég tók 99 Luftballons. Vinir mínir trúðu ekki að þetta væri ég og héldu að þetta væri eitthvað svindl, því ég var nákvæmlega eins og þýsk popppíka í söngnum. "Ég er helvíti góður sem þýsk kelling" sagði ég, en sá strax eftir því þegar ég fékk í kjölfarið viðeigandi perraleg tilboð frá karlkyns fastagestum staðarins. Ég sagði að þýska kellingin mín væri lessa og reyndi að taka aðeins minna kellingaleg lög næst (Alive and Kicking með Simple minds og Staying alive með Bee Gees, he, he).
posted by Rökkvi on 2/15/2004 06:38:25 PM
Hægristjórn í HÍÞá er það ljóst... Vökulistinn vann í kostningunum í gær og ég er viss um að þeir kalla þetta stórsigur, alveg eins og í fyrra. Það virðist ekkert skyggja á gleði þeirra að einungis um þriðjungur stúdenta kaus. Það er sem sagt tveimur þriðja hluta stúdenta skítsama hvernig stjórn er í stúdentaráði. Gæti það verið vegna þess að það er enginn munur á fyrlkingunum? Eða að þetta stúdentapólitíkurlið er bara ekki að ná til stúdenta? Ég hins vegar stóð við mitt. Kaus sætari listann, Röskvu. Finnst alltaf heimskar stelpur minna aðlaðandi og hægri fólk finnst mér bara vera aðeins vitlausara. Þannig Röskva var með smá forskot þarna :)
posted by Jón Grétar on 2/13/2004 08:33:36 AM
Stelpur í framboðiÉg nota venjulega sama kerfi og Rökkvi í stúdentakostningum. Tel sætu stelpurnar í framboðunum og vel svo sætasta framboðið. Það er samt frekar ósanngjarnt þar sem vitlausar ljósku bimbós eru oftar hægra megin í pólitík en vinstri. Þessar bimbós eru samt sætar þannig að heildarfjöldi sætra stelpna á Vöku listanum er kannski meiri. Hins vegar hef ég reynt að nota meðaltöl undanfarið við val mitt á listunum. Það er sanngjarnara. Bara gefa öllum stelpunum á listanum einkunn frá 0-10 og finna meðaltalið. Hærri listinn fær atkvæðið alveg. Mjög sniðugt. Djöfull erum við málefnalegir núna
posted by Jón Grétar on 2/12/2004 02:41:40 PM
StúdentakosningarNú eru komnar stúdentakosningar enn eina ferðina og fólk gerir upp við sig hvern það ætlar að krossa við. Ég hef ekki kynnt mér málin mikið, en er búinn að ákveða hvernig ég get kveðið upp hug minn. Ég ætla bara að skoða öll plakötin sem fylkingarnar hafa hengt upp og gefa þeim stig eftir mjög útpældu kerfi. Kerfið virkar svona: Hver fylking fær 1 stig fyrir hverja sæta stelpu sem er á listanum þeirra og -5 stig fyrir hvern guðfræðinema. Ég veit að þetta kerfi er að vissu leiti ósanngjarnt. Það er nú ekkert alltaf hægt að sjá út frá svona myndum hvort stelpur séu sætar eða ekki. Stelpur sem eru á framboðslistanum geta hins vegar komið til mín í eigin persónu og ég mun þá dæma hvort mér finnst þær sætar eða ekki. Þannig geta frambjóðendur í raun gert kerfið sanngjarnt ef viljinn er fyrir hendi hjá þeim.
posted by Rökkvi on 2/11/2004 08:44:59 PM
LeiðindaröflMér varð á að sjá Össur Skarphéðinsson og Guðna Ágústsson í Kastljósinu í gær. Djöfull voru þeir dónalegir og leiðinlegir við hvorn annan og yfir höfuð. Gerðu varla neitt nema hrópa um hvað það væri mikið "bull" sem hinn væri að segja. Guðni virkar einhvernveginn ótrúlega tregur á mig, veit ekki með ykkur hin hvað ykkur finnst um það, en ég sé hann einhvernveginn frekar fyrir mér að moka skít í einhverju fjósi en að vera ráðherra. Sömuleiðis sé ég Össur frekar fyrir mér að kasta skít í einhverjum lélegum raunveruleikasjónvarpsþætti, en að kasta skít sem alþingismaður í umræðuþætti eða á bak við ræðupúltið á Alþingi.
posted by Rökkvi on 2/11/2004 08:39:54 PM
HelginSíðasta helgi var nú vægast sagt eftirminnileg. Við tölvunördarnir héldum árshátíðina okkar með hjúkrunarfræðinemum. Engin önnur deild vill halda árshátíð með hjúkkum, því í öllum öðrum deildum en okkar ráða stelpur einhverju og eru ekki alveg til í að "exposa" strákana sína fyrir mörghundruð megabeibum. Svona eru þessar konur alltaf abbó. Ég var með uppistand og sagði m.a. að allir strákar í hjúkrunarfræði væru hommar. Mig grunaði nú að þá myndu gagnkynhneigðu strákarinir í deildinni safnast saman og reyna að lemja mig, en ekkert gerðist (kannski eru bara engir gagnkynhneigðir strákar í hjúkrun yfir höfuð?). Þó við nördarnir hefðum verið svo spenntir fyrir að djamma með hjúkkunum, að nokkrir okkar hafi meira að segja farið í sturtu, þá hözlaði enginn okkar neina hjúkkukellingu. Hlýtur að vera léleg frammistaða með um 3-4 hjúkkur á nörd. Reyndar var einhver rosaleg brussa sem reyndi að taka Nýnemanöldrarann með valdi, en hann slapp fimlega. Þarna hittum við líka einhverja stelpu sem sagðist vera vinkona Beturokk og kom stolt með eftirfarandi yfirlýsingu: "Sko allar mestu klámsögurnar sem Beta sagði í útvarpinu voru reynslusögur frá mér." En þrátt fyrir hözlleysi er ég bara mjög sáttur. Þegar allt kemur til alls sagði langsætasta hjúkkan við mig að hún fílaði lágmenning.is í tætlur og lang næstsætasta hjúkkan sagðist hafa fílað uppistandið mitt. Fátt sem fullnægir hégómagirndinni betur en það held ég. Og sem betur fer hitti ég heldur ekki hjúkkurnar sem ég lét stelpukossamyndir af á tilveruna. :)
posted by Rökkvi on 2/09/2004 11:02:49 PM
Mínusar og plúsarÉg er nú bara stoltur yfir að lágmenning.is fái mínus í Stúdentablaðinu. Subbuleg og ómálefnaleg síða er góð lýsing á okkur og því sem við stöndum fyrir. En talandi um mínusa, þá hefur einn svoleiðis, sem er líka hljómsveit, neitað að skrifa undir plagg um að hafa ekki notað eityrlyf. Þar af leiðandi mega þeir ekki spila í félagsmiðstöðvum samfés. Spurning hvort þeir fá mínus fyrir það? Ekki get ég sagt að ég vilji vera að gúddera eitthvert dópsukk, en ég vil ekkert frekar vera að gúddera einhverja hræsni. Mínus hafa dópað, það er ekkert leyndarmál. Það væri bara kjaftæði ef þeir færu að skrifa undir eitthvert hræsnisplagg og ljúga því að þeir hefðu aldrei snert neitt. Væru félagsmiðstöðvarnar eitthvað bættari með að hafa yfirlýsta dópista spilandi á sínum vegum, bara ef þeir hefðu skrifað einhverja lygar á eitthvert plagg? Þetta minnir mig bara á kjaftæðisdæmið um "reyklausa bekki" þegar ég var í gaggó. Allir nemendurnir áttu að skrifa undir að bekkurinn þeirra væri reyklaus og svo fengu sumir bekkirnir verðlaun. Það skrifuðu alltaf allir undir þetta, sama hvað. Einhverjir bekkir fengu ferðalög í verðlaun, sem voru síður en svo reyklaus. Ég fíla ekki dópista og ég fíla ekki hræsnara. Síst af öllu fíla ég þá sem eru bæði.
posted by Rökkvi on 2/08/2004 03:06:47 PM
Lágmenning fær mínuseinkunn!Ég var að lesa Stúdentablaðið í gær og rakst á plús/mínus listann á bls 20 hjá þeim. Þar fær þessi síða mínusstimpil fyrir að vera "ógeðfellt og ómálefnaleg" held ég að þeir hafi kallað það. Verð nú að viðurkenna að ég var ekkert að deyja úr skömm og gráti þegar ég las þetta. Var eiginlega frekar sáttur við þennan dóm. Hann er eiginlega ekki réttur. Dómurinn lýsir því sem við ætluðum okkur alltaf að vera. Upp á síðkastið höfum við hins vegar staðið fyrir málefnalegri umræðu og mikilli gagnrýni hér á síðunni. Málefnalega umræðan vaknaði í kjölfar pistils Rökkva um Ísrael og Palestínu. Þar var mikið commentað og einn þakkaði fyrir góða og málefnalega umræðu. Við höfum einnig gagnrýnt ríkisstjórnina og niðurskurð hennar í hinum ýmsu þarfamálum oftast á mjög málefnalegan hátt. Vð höfum allavega ekki kallað fólk drullusokka þar þrátt fyrir að viðkomandi eigi það skilið. Það er kannski ekki skrýtið að fá þennan dóm frá Stúdentablaðinu þar sem Vaka er við stjórnvölin núna. Flokkur hægrisinnaðra stúdenta sem reyna að kalla sig eitthvað annað til að fá nokkur atkvæði frá ráðfandi framsóknarmönnum og pabbastrákum í viðskiptafræði. Kannski er sú fylking ekki sátt við að eins margir og raun ber vitni sjái blaður okkar um niðurskurð í heilbrigðiskerfinu, stríðið í Írak, fáránleikann í Palsestínu og margt fleira sem þessi blessaða stjórn segir já og amen við. Ef þetta er það sem hægri vælukjóarnir segja að sé ómálefnaleg og ógeðsleg umræða þá skal ég sko stoltur halda henni áfram.
posted by Jón Grétar on 2/06/2004 09:31:00 AM
Breskt er bestDjöfull er ég þakklátur fyrir tilvist Breta. Þar sem enska er nú aðal tungumál hins vestræna heims hafa Bretar mun sterkari stöðu til framleiðslu afþreyingarefnis en hinar Evrópuþjóðirnar (ekki eins og bíómynd á þýsku eigi t.d. jafn mikinn séns og mynd á ensku). Þess vegna er ég mjög feginn að það eru Bretar sem eru enskumælandi þjóðin í Evrópu en ekki t.d. Þjóðverjar (af augljósum ástæðum). Og ég er sérstaklega feginn að það skuli vera enskumælandi þjóð í Evrópu yfir höfuð, miðað við hvað amerískt afþreyingarefni hefur sterka tilhneigingu til að totta Holmes. Það er til dæmis varla til sá ameríski sjónvarpsþáttur sem ég get þolað, nema það sé kannski einhver teiknimynd eins og South Park. Ég get aftur á móti næstum alltaf festst í breskum þáttum, hvort sem það eru sápuóperur, grínþættir eða glæpaþættir (t.d. Cutting it, 40, At home with the Braithwaites, Ali G. osfrv.) Bretar eru líka snillingar með það að vera lausir við slepjuna og tilgerðina sem fylgir kanadraslinu. Þeir nota ekki bara eintómt súkkulaðifólk sem leikara í þáttum og myndum, heldur bara venjulegt fólk (sem oftast er ljótt í Bretlandi) og þeirra efni er ekki alltaf að kafna úr væmni. Og ekki reyna að segja mér að Friends séu svo æðislegir þættir - Coupling eru mikið betri.
posted by Rökkvi on 2/05/2004 03:09:37 PM
Hvað segir Maggi Kjartans við þessu?Mér finnst að allir forritarar eigi að fá part af geisladiskaskattinum. Það er alveg jafn auðveldlega hægt að afrita forrit á geisladiska eins og tónlist. Klámmyndastjörnur ættu líka að fá hluta af þessum skatti, þar sem það er alltaf verið að afrita klám á tölvuformi og dreifa því.
posted by Rökkvi on 2/05/2004 02:47:51 PM
Undarlegt...Stundum skil ég bara ekki sjálfstæðismenn! Þessa dagana er allt að verða vitlaust vegna þess að það á að skera niður endalaust í Landsspítalanum. Þegar einhver vogar sér að mótmæla því verða stjórnarþingmennirnir alveg stjörnuvitlausir og benda okkur vinsamlegast á það að við séum nú barasta með besta heilbrigðiskerfi í heimi! Það kosti svo mikið. Sér enginn hvað þetta er heimskuleg röksemdafærsla!? Kannski er heilbrigðiskerfið svona gott af því við EYÐUM MIKLUM PENINGUM Í ÞAÐ!!! Varla á að reyna að segja mér að það verði betra með MINNI peningum! Það er bara hálfvitaskapur. að öllu jöfnu má staðhæfa eitt: betri vörur kosta meiri peninga. Hvort sem þessi vara eru lyf, sprautunálar, sneiðmyndatæki eða heilbrigðisstarfsfólk. Við fáum ekki betri mat í Bónus heldur en Sælkerabúðinni. Við fáum ódýrari mat (og svo er náttúrulega mikið snobb í gangi en bíðum með þá umræðu) sem skemmist fyrr og ávexti sem eru orðnir smá brúnir. Það er allt í lagi að skammast út í óráðsíu í öllum stofnunum, það er hins vegar fáránlegt að skera niður þjónustu og stefna lífi fólks í hættu til þess að hægt sé að byggja fleiri sendiráð, senda fleiri sprengjuleitarmenn til Írak eða dæla peningunum í sérverkefni flokkskálfana sem eru á spenanum.
posted by Jón Grétar on 2/04/2004 02:44:55 PM
DraslÉg sóaði tíma mínum í að horfa á Mulholland Drive í gær. Þvílíkt rusl. Eini ljósi punkturinn í þessari mynd var lessusenan milli tjéllingana, en hún var lítil huggun. Ekki einu sinni hægt að nota hana til að hugsa um þegar maður runkar sér, því þá minnir það mann strax á hversu ömurleg myndin var og maður missir allan kynferðislegan áhuga.....
posted by Rökkvi on 2/01/2004 01:16:31 PM
Eldri blogg
-Rökkvi Vésteinsson (rokkvi@lagmenning.is)
|