Lágmenning.is lágkúrulegasta síðan á landinu!

Gleðilegt ár !

Ég veit ekki með ykkur en ég held að ég muni minnast þessa árs sem árs mikillar hnignunar Bandaríkjanna, einkumm í áliti annarra þjóða. Álit Evrópubúa á Bush er eflaust það versta á nokkrum Bandaríkjaforseta, Evrópubúar telja Bandaríkin undir hans stjórn vera stæstu ógn við heimsfriðinn, enginn hefur lengur samúð með stuðningi Bandaríkjanna við Ísrael, og svo framvegis og svo framvegis. Auk þess eiga Bandaríkin í töluverðum efnahagslegum erfiðleikum. Vonandi er þetta vottur um að Kanarnir geti ekki komist upp með hvað sem þeim sýnist í framtíðinni, en maður má nú aldrei vera of bjartsýnn.




Pistlar

Ég uppfærði pistla síðuna aðeins í gær. Bætti inn smá pistlum til viðbótar eins og ég hafði verið beðinn um að gera. Kannski get ég hent inn einhverjum fleiri seinna.




He he he




Föstudagsdjammið

Eins og svo oft áður var djammið hafið á kareoke á Ölveri. Ég er svo mikil frægðarhóra að ég fæ fráhvarfseinkenni ef ég fer ekki upp á svið og performa fyrir fólk reglulega, þannig að reglulegar ferðir á Ölver hafa verið óumflýjanleg hliðarverkun. Starfsmennirnir þar eru meira að segja farnir að þekkja mig, æ, æ.

Eftir að Ölveri var lokað og okkur hent út, var bærinn auðvitað augljósasti kosturinn. Þar hittum við Katrínu og sögðum henni frá brussustiga keppninni í Nörd(ef þú gerir eitthvað brussulegt færðu brussustig og sá sem fær flest hann tapar). Katrín spurði hvort hún mætti ekki vera með, en ég held hún hafi hætt við þegar ég sagði henni að stelpan sem tapar í keppninni þurfi að sofa hjá Heitum Teit. Ja hún sagði allavegana "ojjjjjj" hvernig sem það á að túlkast.

Mér finnst þetta nú frekar skrítið hjá Katrínu, þar sem hún var ekki fyrir all svo löngu að kvarta undan karlmannsleysi. Ég sem hélt að ungar konur eins og hún væru meira og minna allar kylliflatar fyrir ellitöffurum með tiltla eins og "talsmaður breska sendiráðsins." En kannski skil ég bara konur ekki nógu vel, enda get ég ekki einu sinni móðgað femínista þegar ég er að reyna.

Síðan hitti ég Úlfar Linnet og var að blaðra við hann um uppistand. Þær samræður voru síðan rofnar af stelpum sem höfðu séð mig performa og fóru að tala við mig. Þetta er alltaf að gerast oftar og oftar, að fólk þekki mig af netinu eða úr uppistandinu og fari að tala við mig niðri í bæ bara þess vegna. Þetta er náttúrulega það sem sönn frægðarhóra þráir heitast öllu.

Frábært, því að þá verð ég kannski svo glaður að ég hætti alveg að vera bitur og andstyggilegur dissbloggari með kjaft og fari bara frekar að skrifa endalaus blogg um hvaða fræga fólk ég hafi hitt á djamminu og hvað margir "fans" hafi komið og heilsað mér (nákvæmlega eins og í þessari bloggfræslu hérna).

Á lokaspretti djammsins ákváðum við félagarnir síðan að fara á smá hnakkasafarí, með því að labba í gegnum Hverfisbarinn. Yfirleitt erum við nú samt mjög þjóðernissinnaðir lúðar og reynum því að sýna tryggð með því að fara bara á lúðastaði. Ekki vorum við búnir að vera eina mínútu þarna inni áður en gömul skólasystir mín réðs á mig og sagði: "Rökkvi, ertu að leita að Beturokk?" - "Ojjj, nei", sagði ég, "af hverju ætti ég að vera að gera það." En viti menn, þá var hún ekki bara að bulla, Betarokk var þarna inni og hún dróg mig með valdi í áttina til hennar.

Ekki varð Betarokk glöð að sjá mig. Mér finnst eiginlega bara mjög skemmtilegt að hitta Beturokk, bara til að sjá þessi nánast ljóðrænu vonbrigði sem svipur hennar tjáir við það eitt að reka augun í mig. Já, ekki finnst henni síður leiðinlegt að vera minnt á tilvist mína á djamminu en á netinu.






Skíthræddur við jólapakkann sinn

Meðal þess sem ég keypti handa frændsystkinum mínum voru tvær eins og hálfs metra langar, mjúkar slöngur með hringlum aftast á hölunum. Þetta fannst mér heldur betur vera fín gjöf handa tæplega þriggja ára stráknum og tæplega eins og hálfs ára stelpunni.

Ja, ekki skorti allavegana viðbrögðin þegar pakkinn var opnaður, þar sem litli guttinn hrópaði í andköfum "Æ, æ, slangan Kaa" (því hann var viss um að þetta væri slangan úr Mowgli) og hljóp hið snarasta, náði í púða og byrjaði að berja á nýja leikfanginu sínu.




Það er alltaf von




Jólagjafir

Djöfull er það alltaf lang skemmtilegast að kaupa gjafir handa krökkum. Það er ekkert gaman að kaupa gjafir handa fullorðnum. Ef maður er að kaupa handa krökkum hefur maður góða afsökun fyrir að fara inn í dótabúðir og skoða öll leikföngin (eins og þið vitið þroskast flestir karlmenn aldrei). Það er nú líka ég sem leik mest við litlu krakkana í fjöskyldunni (ég er næstur þeim í þroska en ekki aldri).

Gallinn er bara að maður getur aldrei hætt að kaupa drasl handa krökkunum því manni finnst dótið svo sniðugt sjálfum. Í fyrra keypti ég t.d. mjúkan krókódíl handa frænda mínum, sem var miklu stærri en hann sjálfur. Núna keypti ég svo mikið af dóti handa honum að ég neyðist til að geyma fullt af því þangað til hann á afmæli. Ég held að grey mamma hans (systir mín) verði bráðum brjáluð á mér fyrir að fylla húsið sitt af öllu þessu drasli.




Saddam?

Ekki fór vel fyrir honum Saddam. Hann var búinn að vera með rosa hetjuáróður með sjálfum sér undanfarin ár, en var síðan tekinn mótspyrnulaus af Könunum. Hetjuímyndin alls fjærri þá. Einhvernveginn held ég samt ekki að Bush nokkur hefði sýnt meiri hetjuskap ef einhverjir Talíbanar hefðu náð honum.

Nú á víst að rétta yfir Saddam og skella honum í steininn eða eitthvað, en ég er að spá í hvort Kanar gætu ekki gert annað sniðugra. Fyrst það var hægt að eyða milljónum bukka í að "endurhæfa" Keiko, af hverju má ekki gera það sama við Saddam. Þetta fæli sem sagt í sér að endurhæfa Saddam frá vondum einvaldi yfir í "góðann", All-American, patriotic Yankee. Fyrst mætti t.d. fóðra hann á McDonalds hamborgurum og neyða hann til að horfa á hundruði þátta af BayWatch, Sex and the City, Friends, Guiding Light og hvað sem þær heita allar þessar seríur þar sem er feitur kall giftur sætri konu.

Síðan mætti loka hann inni dögum saman með playstation tölvu eða með sjónvarpi þar sem MTV væri á allan sólarhringinn. Þar næst mætti láta hann horfa á Rambo, Rocky, Commando, Independence day, Legally blonde, Crossroads, The hot chick svo eitthvað sé nefnt. Til að binda síðan endahnútinn á þetta að fjarlægja góðan bút af heilanum á honum og senda hann í Babtistakirkju í Suðurríkjunum. Ég er viss um að þá myndi hann verða orðinn góður Vesturlandabúi sem skildi nauðsyn þess að lifa frjáls, drekka Coca-Cola og sprengja aðrar þjóðir ef þær eiga Olíu .... nei bíddu hann var víst búinn að fatta það áður.




Talibanarama

Djöfull getur pólitískt andrúmsloft breyst hratt. Ég var að horfa á Bond myndina "The living daylights" um daginn, þar sem Bond er meðal annars að berjast við hlið afgönsku andspyrnunnar gegn Rússum. Ehhh, var ekki afganska andspyrnan aðallega Talíbanar? Ætli þessi mynd hafi kannski verið bönnuð í USA eftri 9/11?




Þvílík hörmung

Ég var með uppistand áðan sem verður að teljast mitt versta. Þetta var "uppákoma " á einhverju sameinuðu djammi allra deildana í félagsfræðideild Hí, samt mættu ekki nema um 30 manns. Síðan sprakk hljóðkerfið á mig og var ónýtt. En ætli mér geti ekki verið skítsama - shit happens.






Bara að spyrja

Ef þið skoðið þennan hlekk. Haldið þið þá að fólk sem skoðaði þetta myndi trúa að þetta væri hin íslenska Betarokk? Ég tek það allavegana fram að þetta er ekki hún og ef þið finnið síðu um einhvern Rockvi the sheepfucker, sem ætlar að stofna live webcam síðu með sjálfum sér, þá er það ekki ég heldur.




Jólalög

Heyrði ágætis jólalag áðan á Radíó Reykjavík. Held þetta sé Gildran að syngja "Gleðileg jól" í staðinn fyrir "Run to the Hills" í sönnum Maiden stíl. Það sem mér þykir skemmtilegast við þetta er að í Run to the Hills er einmitt verið að syngja um hvernig hvítu kristnu mennirnir drápu indjána í Ameríku og tróðu á menningu þeirra. Síðan er textanum breytt í að syngja um jólin, akkúrat því sem hvíta kristna fólkið hefur verið að troða ofan í heimsbyggðina.

Gleðileg jól




Þið sem viljið styrkja Geðhjálp

Þið sem viljið styrkja Geðhjálp, getið einfaldlega hringt í síma 907 2070 sem er styrktarsími Geðhjálpar. Lágmark sem þið getið styrkt Geðhjálp um með þessu móti er reyndar 1000 kall en ekki 500 eins og ég stakk upp á. Þið hringið í þetta númer, heyrið rödd sem segir ykkur að bíða og þá verður peningurinn gjaldfærður á símanúmerið ykkar.

Þið sem viljið vita reikningsnúmer Geðhjálpar til að styrkja þá þannig þá er það hérna: 1150-15-553443, kennitala: 531180-0469.

Heimasíða Geðhjálpar er gedhjalp.is Geðhjálp er félag sem ég hef trú á að sé fært um að berjast fyrir réttri meðhöndlun geðsjúklinga. Formaður geðhjálpar heitir Sigursteinn Másson, sem er mjög greindur og frambærilegur maður, en hrjáist af geðsjúkdómi og veit þess vegna manna best hvað þetta snýst um.

Og já ég fór áðan og borgaði 10.000 kall inn á reikninginn þeirra. Þeir sem hafa tjáð sig hérna um að þeir trúi mér og ég eigi að skanna inn kvittun - fínt ég skal gera það næst þegar ég kemst í skanna.




Reyni að sópa upp ruslinu

Ég vil biðjast afsökunar á skrifunum um Togga. Þið megið samt hata mig áfram ef ykkur langar, þið sem gerið það nú þegar. Ég var búinn að útskýra þetta mál nokkuð vel gegnum allt þetta þvarg og ég vil helst að fólk lesi gegnum það allt áður en það myndar sér skoðun. Ég var öskureiður út í Togga og var á leiðinni að fara að skrifa eitthvað um hann talsvert áður en hann skrifaði söguna um bróður sinn. Ég var hins vegar að klára próf og þ.h. og hafði þess vegna ekki gert það fyrr.

Toggi er búinn að biðjast afsökunar á því sem gerði mig mest reiðan og ég tek það sem gilda afsökun. Eitthvað diss um hvort einhver sé lélegur á einhverjum afþreyingarsviðum kom því máli ekki mikið við og er í rauninni lítilvægt, skiptir sama sem engu máli við hliðina á því umræðuefni sem Toggi var að koma af stað (um meðhöndlun geðsjúkra). Ég hef ekki beinlínis verið með alverugefin málefni hérna á þessari síðu (nema í parodyuformi), enda varla tilgangurinn að gera svoleiðis með síðu sem heitir lágmenning.is. En það þýðir ekki að ég geti ekki skilið alverugefin málefni eða tekið þátt í þeim.

Ég þekki sjálfur eða hef þekkt fólk sem þjáist af geðsjúkdómum, ekki eins náið og Toggi auðvitað og ég hef heldur ekki þekkt neinn ennþá sem þjáist af jafn alvarlegum geðsjúkdómi og bróðir hans Togga. Ég get heldur ekki sagt að neinn af þessum einstaklingum hafi verið neitt hættulegur fólkinu í kringum sig. Ég er nokkurn veginn sömu skoðana og Toggi á því hversu alvarlegt það er að svona veikt fólk gangi laust (ég hef áður minnst á Steingrím Njálsson í þessu samhengi). Mér finnst aðal málið vera að vernda samfélagið fyrir þessum einstaklingum, en ég sé engan tilgang í því að refsa svona fólki í þeirri meiningu að það "eigi það skilið fyrir það sem það gerði."

Ég vil hins vegar spyrja fólk, sem las söguna hans Togga, hvort það sé tilbúið til að reyna að gera eitthvað í málunum. Það er hægt að gráta yfir einhverju og senda samúðarkveðjur, en vandamálið fer ekki við það. Ég hef kannski ekki mikið fram að færa í þessari umræðu vegna takmarkaðrar þekkingar á málunum (spurning líka hvort fólk tekur mark á lágmenningarmanninum), en í svona málum þurfa helst að koma einhverjar bitastæðar tillögur að úrbótum.

Ég vil líka benda á að það er til félag sem heitir Geðhjálp, sem eflaust tekur við framlögum. Ég ætla sjálfur að fara núna fyrir jól og gefa þeim 10.000 kr. - upphæðina sem ég fékk fyrir að flytja "lélega" uppistandið mitt í Fyndnasta manni Íslands. Ef ykkur öllum hinum sem hafið tjáð samúð ykkar með Togga og fjölskyldu hans er raunverulega ekki sama um málefni geðsjúkra, þá hljótið þið líka að geta gefið allavegana 500 kall. Takk.




Fegurðarsamkeppni!!!!

Ég veit að þetta kemur seint en ég er búin að vera í smá prófum þannig ég kem með þetta núna, málið er að ég var að horfa á fegurstu konur heims um daginn og það sem var virkilega böggandi var það að í fyrsta lagi var talað inná þetta eins og þetta væri í beinni útsendingu og annað þá voru einhverjar stelpur sem voru að tala þarna sem hljómuðu eins og verstu ljóskur, ekki það að það sé slæmt að vera ljóska það er bara slæmt að láta svona fólk reyna að stjórna svona.
Annað sem fór gífurlega í taugarnar á mér var það að í einu skiptin sem komu skemmtiatriði svona til að lífga uppá stemminguna (sem ekki var mikil) en allavega þá byrja þessar elskulegu ljóskur að tala ofaní mitt atriðið, ekki einu sinni að þetta væri gáfulegar umræður, þetta voru svona umræður eins og akkúrat þegar maður hefur ekkert að segja og er bara að segja eitthvað.
Þetta var svo asnalegt og mikið flopp sérstaklega þar sem var búið að koma með í öllum öðrum fjölmiðlum um hver vann þessa keppni, verð að segja að þetta er eitt af því versta sem hefur komið á skjá einum fyrir utan innlit útlit.




Banzai!!!

Ég hef verið að horfa á Banzai! á Skjá einum og ég verð að segja að þetta eru alveg hreint snilldar þættir! Snobbkerlingin sem á segja eins mörg dónaorð og hún getur, burnout gaurinn sem er kominn í sjónvarpið að láta vigta á sér punginn, hvað getur innkaupakerra stokkið yfir margar súkkulaðikökur og besti djókurinn er auðvitað Shake hands man sem heldur í hendina á frægu fólki í margar mínútur meðan hann talar við það. Snilld að sjá hræðslusvipinn á sumu af liðinu þegar hann sleppir ekki, heldur bara áfram að hrista og blaðra eins og manískur Japani...sem hann er.

Alltaf á föstudögum á Skjá einum...alger lágmenning!




Svífyrðingar á internetinu ofl.

Ég neyðist víst til að skrifa leiðinlegan póst hérna, en studum er nauðsynlegt að fjalla um einhver mál af alveru en ekki í gríni. Nú er internetið miðill sem að flestir geta náð til og næstum hver sem er getur notað til að miðla sínu efni. Blogg er mjög vinsælt nú til dags og margir bloggarar setja persónulegar upplýsingar og sögur um sjálfa sig á internetið. Þetta getur þar af leiðandi um það bil hver sem er lesið. Fólk ætti því að sjálfsögðu að hugsa um afleiðingar þess sem það skrifar.

Þegar ég byrjaði með lágmenning.is og sérstaklega þegar hún byrjaði að vera bloggsíða, var ég alltaf nokkuð klár á því að vera með mjög lítið af persónulegum upplýsingum og sögum frá sjálfum mér. Þetta var bæði vegna þess að ég hafði lítinn áhuga á að deila mínu persónulega lífi með hverjum sem læsi blogg og að ef maður er að segja krassandi sögur, þá geta þær líka varðað aðra einstaklinga, sem gætu þ.a.l. orðið fyrir tjóni þar af.

Fullt af öðru fólki hefur verið með mikið af persónulegum hlutum í sínu bloggi og tekur þar af leiðandi stóra áhættu. Það er fullt af hrægömmum til sem vilja skemmta sér yfir vondum hlutum í annarra manna lífum. Það er líka fullt af fólki sem gerir nafnlausar athugasemdir í kommentakerfi annarra, með það í huga að særa eða brjóta niður viðkomandi. Bloggarar eins og Betarokk og Katrín hafa til dæmis fengið drjúgan skerf að þannig athugasemdum í kommentakerfin sín.

Lágmenning.is hefur vissulega verið með mikið af dónskap og svífyrðingum gegnum tíðina, eins og var planið frá upphafi. Við höfum meðal annars vanvirt skoðanir og trú annarra (tel það vera skoðana og trúfrelsi að gera slíkt) og við höfum rakkað niður opinberar persónur fyrir það sem þær hafa gert opinberlega. Opinber persóna er til dæmis frægur bloggari eins og Betarokk, sjónvarpsmaður eins og Gísli Marteinn eða stjórnmálamaður eins og Árni Johnsen. Það er hins vegar allt annað en að dissa prívat fólk. Það er líka allt annað en að dissa prívat líf fólks, dreyfa slúðri um það eða þ.h.

Ég gerði mér fulla grein fyrir því alveg frá byrjun að maður myndi fá harðyrtar athugasemdir í sinn garð fyrir skrifin hérna. Ég gerði mér líka grein fyrir að það gætu alltaf verið einhverjir sem myndu fara yfir strikið í þeim efnum. Það þýðir hins vegar ekki að ég geti endilega verið sáttur ef það er gert.

Ég er áður búinn að telja upp hvaða reglur mér finnst að eigi að gilda í dissi milli netverja. 1) Dissaðu, en þú ferð ekki að hóta fólki með ofbeldi. 2) Þú dregur ekki prívataðila í fjölskyldu opinbers aðila inn í eitthvað skítkast. 3) Þú lætur persónulíf fólks vera, nema þú getur að sjálfsögðu vitnað í eitthvað sem það hefur sjálft látið frá sér opinberlega. 4) Maður stelur ekki annarra efni. 5) Þú lætur ofsafenginn sora eins og barnaklám og svoleiðis ekki inn í umræðuna.

Þetta eru í raun allt reglur sem gilda um venjulegt fólk í samfélaginu, bloggarar eru engin undantekning frá þeim. Þegar þessar reglur eru brotnar er voðinn vís. Ég hvet alla bloggara til að halda sig við þessar reglur. Ég er samt alls ekki að segja að ég sé einhver engill þó ég hafi nokkurn veginn haldið mig við þær út í gegn. Í bloggstríðum sem ég hef átt við ýmsa bloggara, svo sem Katrínu, Beturokk, Mæju og fleiri hefur líka ýmislegt móðgandi verið sagt, en þessar reglur aldrei brotnar. Þess vegna hefur mér eiginlega aldrei verið alveru illa við neinn bloggandstæðing fyrr en Toggi kom til sögunnar.

Ok, ég er ekki að fara að níða Togga niður neitt meira, nóg komið af því núna, en ég vil útskýra hvernig málum var háttað. Toggi braut eina af þessum reglum með að skrifa niðrandi fullyrðingu um mitt persónulega líf á meðan við vorum í bloggstríði. Auk þess var mér ekki skemmt þegar hann talaði niðrandi um vini mína í tölvunarfræði. Ef þau komment hefðu misst sig þá hefði þetta verið eðlilegt bloggstríð - ekkert merkilegra (eða ætti ég að segja ómerkilegra?) en öll hin. Í ljósi þessara athugasemda gerðu hinir hlutirnir sem Toggi sagði mig miklu fúlli en þeir hefðu annars gert.

Mér finnst t.d. ekki að maður hafi efni á "yfir þig hafinn, hærra plani en einhver með 14 ára þroska" týpu kommentum sem Toggi og vinir hans virtust vera ósparir á. Ég ákvað samt að láta þetta bloggstríð vera þegar Toggi sagðist vera hættur því. Ég tek svoleiðis sem "friðarsamningi" sem ég féllst á því ég var leiður á þessu, þó ég væri náttúrulega ekki nærri sáttur allt sem fór fram.

Þegar Toggi fór aftur að gera athugasmdir varð ég verulega reiður verð ég að viðurkenna, aðallega af því að hitt dótið var bara geymt en ekki gleymt. Þá ákvað ég að láta Togga fá að heyra það. Ég hefði gert það hvort sem hann hefði skrifað söguna um bróður sinn eða ekki.

Þetta sem ég gerði var tiltölulega miskunnarlaus árás á Togga, já, þegar hann var kannski veikur fyrir og ég er nokkuð viss um að þetta fór fyrir brjóstið á honum.

Ég vil bara segja í lokin að þetta er allt slæmt og ef ekkert af þessu hefði gerst þá hefði það verið betra. Mér fannst ég bara ekki geta látið einhvern komast upp með að skrifa eitthvað niðrandi um mitt persónulega líf. Það er ekki svo sem innihald athugasemdarinnar, heldur meira eðli hennar. Svipað ef einhver stelur af þér þúsundkalli, þá munar þig ekkert um þúsundkallinn, en verður reiður yfir að einhver steli af þér. Ég er heldur ekki týpan sem snýr hinni kinnini. Reynsla mín er að ef maður sýni að maður láti vaða yfir sig, þá komi fleiri og reyni það. Toggi skilur kannski núna hvað persónulegt skítkast á lægsta plani er slæmt, þegar hann hefur orðið fyrir því sjálfur - og lærir kannski sína lexíu. Ég vona líka að þetta haldi öðru fólk frá því að gera samskonar vitleysur.

Toggi er hæfileikaríkur penni. Sögurnar hans eru vel skrifaðar, hvort sem þær eru húmorssögur eða alvarlegar. Greinin hans um Stein átti fullt erindi í moggann. Þetta segi ég af því mér finnst það, sama hvað mér finnst um Togga og sama þó hann segi að ég sé lélegur uppistandari. Þetta hafði ekki með öfundsýki að gera. Fólk getur skrifað að ég sé asni, lélegur bloggari/penni/uppistandari og ég mun svara því (kannski með dissi) en ég myndi ekki fara niður á svona skítaplan bara vegna einhvers svoleiðis.

Í siðasta lagi þá getur fólk gert mistök og heimskulega hluti án þess að mér finnist að það þurfi endilega að hengja það fyrir, það er aftur á móti annað ef fólk gerir söum skíthælskuna aftur og aftur. Ég er hættur þessu, búinn að fá mína útrás.

Ég vara fólk við að vera með persónulegt skítkast á netinu og hvet það til að vanda hvaða persónulegu upplýsingar það setur þar, ef það vill ekki að þær séu notaðar gegn því. Og nú skrifa ég ekki aftur nema það sé eitthvað skemmtilegt.




Jólin

Ég þoli ekki þetta halelúja væl fyrir hver jól. Endalust vælt um að frelsarinn hafi fæðst og að við eigum að minnast hans. Ég er alveg hjartanlega sammála þessum pistli. Segir næstum allt sem segja þarf. Að hugsa sér að þetta séu hægri menn!




Má ég fræða ykkur aðeins um Toggapop?

Jæja, nú þegar Toggipop, eða Þorgrímur eins og hann heitir víst er farinn að leika einhverja alþýðuhetju langar mig að benda ykkur á nokkra hluti um gaurinn. Ég tek það sérstaklega fram að allt sem ég segi um hann er byggt á því að lesa hans eigin skrif á hans eigin heimasíðu.

Það er allt gott og blessað með að fólk gráti yfir sögunni um hinn geðklofa bróður hans Togga, enda er það sorgleg saga. Það er líka gott mál ef það er vakin athygli á því hversu fáránleg meðhöndlunin á geðsjúku fólki er í þessu kerfi. Verra dæmi um þetta sama er það hvernig Steingrímur Njálsson (mjög geðsjúkur maður) er látinn ganga um laus með þeim hræðilegu afleiðingum sem það getur haft. (Já þið sem grenjuðuð yfir sögunni hans Togga, en kusuð Sjálfstæðisflokkinn hrópandi húrra fyrir skattalækkunum þeirra ættu kannski að hugsa út í það núna hvort þessir hlutir virkilega batni núna, með heilbrigðiskerfið í verulegum fjárhagslegum vandræðum og minni skatta til að halda því uppi).

Mig langar samt að benda ykkur á, alveg óháð þessu, hvernig karakter Toggi er. Toggi byrjaði að vekja athygli mína með:

þessum skrifum, þar sem hann er að vera svo indæll að segja m.a. að fólkið í tölvunarfræði sé ljótt og hafi örugglega ekki átt neina vini í gaggó, án þess að neinn í tölvunarfærði hefði þá nokkurn tíman dissað hann neitt.

Toggi vissi vel að lágmenning.is er heimasíða með mikilli umferð, svo hann ákvað að það væri sniðugt að fara í bloggstríð við mig til að auka heimsóknafjölda. Þetta er vel þekkt fyrirbæri í bloggheiminum og ég hef ekkert á móti því, svo lengi sem menn virða vissar leikreglur almennrar sómakenndar og skynsemi. Toggi fór hins vegar langt yfir strikið með því að segja um mig

"Að lokum finnst mér stórmerkilegt alveg að maður sem missti sveindóminn á öðru ári í háskólanum sé yfirhöfuð að rífa kjaft."

Mér þætti gaman að heyra frá Togga hvort hann hafi sagt þetta af því að hann "viti" að þetta sé satt eða hvort hann skáldaði þetta upp. Á hvorn veginn sem er eru svona yfirlýsingar það sem kallast ærumeiðingar um persónu annarra og eru ólöglegar.

Ef ég má útskýra þetta aðeins nánar, þá er það ósæmilegt og ólöglegt að henda fram niðrandi fullyrðingum um persónulegt líf annarra á opinberum vettvangi. Þetta er ekki það sama og það sem ég hef verið að gera í bloggstríðum og skrifum hér á lágmenningu, þegar ég tala illa um einhvern eða kalla þá illum nöfnum. Mín skrif hafa alltaf verið byggð á opinberum framkomum eða skrifum annarra, t.d. "biskupinn er asni úr því hann sagði þetta" eða "Toggi er fífl úr því hann bloggaði þetta." Sama hvað þið skoðið lágmenningu mikið, þið getið aldrei fundið athugasemdir frá mér um prívat líf annars fólks, nema það hafi sjálft sagt frá því og ég sé að vitna í þá frásögn.

Ég hef t.d. aldrei sagt "ég þekkti þennan í grunn/menntaskóla og hann er fífl/gimp/með minnimáttarkennd etc." enda væri það ólöglegt. Aftur á móti hef ég sjálfur fengið fullt af nákvæmlega svona athugasemdum í gegnum kommentakerfið mitt, af nafnlausum einstaklingum og ekki strokað þau út.

Toggi hefur hins vegar aldrei viðurkennt að vera frægðarhóran sem hann er því hann þykist vera "yfir svoleiðis hafinn." Toggi þykist líka vera yfir "óþroskaða gaura eins og mig" hafinn. Hver í andskotanum bloggar sögur af sér eins og Toggi gerir nema hann vilji fá heimsóknir og verða frægur (þá er ég að meina allar hinar sögurnar hans)? Af hverju í andskotanum fór Toggi út í bloggstríð við einhvern sem honum finnst vera hundleiðinlegur og óþroskaður? Sér til skemmtunar? Ekki alveg.

Þið megið annars gjarnan skoða hvað Toggi var gáfulegur í þessum bloggstríðum t.d.

hérna

og hérna (held hann hafi gleymt að segja líka að pabbi sinn sé sterkari en pabbi minn)

Bloggstríð okkar Togga endaði tímabundið þegar hans eigin lesendur voru farnir að benda honum á að hann væri síst á hærra plani en ég, hann gerði sér grein fyrir að vera kominn í mótsögn við "yfir þetta hafinn" bullið í sér og ákvað að
sleikja allt yfir og hætta þessu. Þar sem ég var búinn að vera í alveg nógu miklum bloggstríðum ákvað ég að láta þetta þá gott heita og sagði við hann að ég nennti þessu ekki heldur og væri farinn að gera eitthvað annað. Toggi svaraði því með sleikjulegu "gangi þér bara allt í haginn með það vinurinn" í kommentakerfinu sínu.


Ekki gat Toggi haldið sig við þetta samt og fór nýlega aftur að dissa uppistandið mitt. Toggi ætti sjálfur að fara út í uppistand eins mikið og hann þykist vita um það í staðinn fyrir að reyna stöðugt að koma illu orði á mitt. Ef fólk er ekki fyndið Toggi, þá er ekki hlegið að
því og þá er það örugglega ekki klappað upp til að halda áfram eins og á Felix. Fyrir utan það
að Steinn Ármann hrósaði mér fyrir að hafa verið góður þegar ég var að hita upp fyrir hann, án þess að ég hefði eitthvað spurt hann um álit. Sömuleiðis sagði Bjarni töframaður við mig að hann héldi að ég hefði það sem þyrfti til að vera í bransanum, þó honum hefði fundist vissir hlutir vanta í uppistandið hjá mér á Felix. En samkvæmt Togga er ég gimp þannig að gimp geta örugglega ekki verið fyndin.

Give it up Toggi, það getur hver sem er séð að þú ert bara að reyna að rakka mig niður og eyðileggja fyrir mér vegna þess að þú lítur á mig sem samkeppnisaðila um FRÆGÐ. Sem er það sem þú þráir, þó þú þorir ekki að viðurkenna það eins og ég. Þú ert nefnilega hræddur um að missa "kúlið" fyrir fólki.

Toggi hlýtur aftur á móti að vera rosa hetja fyrir að skrifa ádeilu um málefni sem liggur hans eigin hagsmunum nærri. Já lesiði hinar sögurnar hans Togga soldið til að heyra um hvað hann hefur reykt mikið af hassi og drukkið óhóflega um ævina, auk þess að hafa eytt a.m.k. hundrað þúsund krónum í misheppnaðar tilraunir til að kaupa sér kynlíf - og sjáið hvort þið eruð ekki til að að fylkjast að baki honum. Toggi gæti kannski bara haldið svona söfnun í sjónvarpinu og leyst vandamál allra geðsjúklinga á landinu, húrra!








Kannast einhver við tilfinninguna?

Að horfa á skólabók, sem er opin fyrir framan þig, sjá stafina, en þeir bara fara ekki inn í höfuðið á þér. Ekki ólíkt og að reyna að blanda saman vatni og olíu - vatnið er bara þar sem það er og olían þar sem hún er, einhvernveginn eru bara óyfirvinnanleg skil á milli þeirra.

Kannist þið við tilfinninguna að horfa á skólabók eins og ljóta allsbera kellingu, þú veist hvað hún hefur upp á að bjóða og hvað þú átt að gera, en ekkert gerist hjá þér, þú bara horfir í algeru áhugaleysi og ekkert fer í gang. Eini munurinn er að þú þarft ekki að segja eitthvað við bókina eins og "ég skil þetta ekki, þetta hefur aldrei komið fyrir mig áður" eða "ég er stressaður út af vinnunni." Verst er samt að það eru engar svona afsakanir mögulegar heldur þegar maður kemur í prófið.




Þoli ekki þegar íþróttamenn eru með halelújaröfl

Mér finnst fátt fáránlegra þegar íþróttamenn eru að tala um að þeir séu að keppa fyrir guð, eða eru að þakka guði fyrir að hafa unnið. Menn sem þakka guði fyrir að hafa unnið hljóma óneitanlega talsvert eins og þeir séu að segja "ég vann af því guð heldur meira upp á mig en hina." Mér finnst að sjálfsögðu alltaf jafn gott á svoleiðis fífl þegar þeir tapa.

Dæmi um svoleiðis átti sér stað síðasta laugardagskvöld, þegar hnefaleikamaðurinn og halelújafíflið Kirk Johnson frá Kanada steig í hringinn gegn úkraínska risanum Vitali Klitschko. Kirk var búinn að vera að röfla um að allt sem hann gerði væri fyrir guð, t.d.

“Everything I do is for His honor. I get my power and strength from God. Go to Him and He will help you and change you into the person He wants you to be. Any glory I get from winning the championship, I will give it all to Jesus.”

Well mr.Johnson, if god has changed you into the person he wants you to be, I guess he must want you to be a loser. Maður hlýtur allavegana að álykta það af því hvernig bardaginn fór




Viðreynslur

Djöfull þoli ég ekki þegar einhver stelpa er að reyna við mann á djamminu, en fer síðan beint að slefa upp í einhvern ljótan og feitan lúða. Eyðileggur alveg egóbústið af því að hún hafi reynt við mann, ef hún er hvort sem er til í að fara heim með hverju sem er. Óþolandi.




Ég er byrjaður að verða gráhærður

Ég er farinn að verða alvarlega mikið gráhærður fyrir minn aldur. Þar sem mamma var orðin gráhærð um þrítugt á ég bara 5 ár eftir. Sem betur fer hef ég séð að það er ekkert svo slæmt að vera gráhærður. Allir mestu hönkarnir í Dressman auglýsingunum er alltaf gráhærðir ellitöffarar. Ég er að pæla í að sækja um vinnu hjá Dressman fimm ár fram í tímann. Gott plott, ég er eflaust "set for life."




Linkar af öðrum síðum

Nú eru referral reports loksins farnir að virka á stat servernum okkar (það að við sjáum ca. hve margar heimsóknir hafi komið frá hvaða síðum). Djöfull getur það samt verið eitthvað furðulegt stundum. Til dæmis gefur serverinn alltaf upp að ég sé að fá slatta af heimsóknum frá siljadangerpowers.blogspot.com en ég hef skoðað þá síðu nokkrum sinnum og aldrei séð hlekk á lágmenningu þaðan. Nennir einhver að segja mér hver þessi Siljadangerpowers er og hvað hún var að segja um okkur (lítur ekki út fyrir að vera týpan til að fíla lágmenningu þessi stelpa).

Annað sem fer meira í taugarnar á mér er að alltaf vriðumst við vera að fá heimsóknir frá Femínistunum en aldrei hef ég geta fundið nákvæmlega hvaðan. Nú þegar femínistar eru að tala um okkur (að því er virðist vera) væri gaman að vita hvað þær eru að segja. Salvör, getur þú ekki upplýst mig?

Síðan eigum við víst að vera að fá einhvern slatta frá humor.is, en ég hef aldrei séð link á okkur þaðan.




kvótar

Ég hef heyrt að of fullt fólk megi ekki versla sér áfengi í ÁTVR. Ef byttan kemur inn, slafrandi drukkin er kurteis ungur starfsmaður sem segir "komdu þér út vinurinn". Þetta er reyndar orðið að skúrítas verði núna en, skiptir ekki máli.

Það sama ætti að gilda um feitt fólk. Ef feitilíus kemur inn í 10-11 og ætlar að kaupa sér snakk kemur til hans vinarlegur maður og segir "Neinei, þú ert greinilega búin(n) að fá nóg. Farðu bara út, þú hefur barasta gott af því að hreyfa þig aðeins mörkeppurinn þinn". Það sama ætti að gilda í fatabúðum. Of feitt fólk ætti ekki að fá að kaupa sér þrönga eða of stutta boli sem gera ekkert annað en að láta mann missa matarlystina þegar maður rekur í þetta augun.




Sendið inn feedback...og ykkar eigið efni!

Nú þegar ég er búinn að gera breytingarnar á síðunni, væri flott að fá smá feedback, álit lesenda á nýju dálkunum. Hvernig eruð þið til dæmis að fíla sannleikshornið og gelgjuhornið? Finnst ykkur að það ætti að vera einhver annar dálkur á síðunni sem við erum ekki með?

Ykkur gefst líka tækifæri að senda mér efni eftir ykkur sjálf. Parody er til dæmis mestmegnis efni sem aðrir hafa annaðhvort sent okkur eða sérstaklega gert fyrir okkur. Gelgjuhornið er náttúrulega bara tækifæri sem ég gaf nokkrum gelgjustelpum sem ég hef aldrei hitt til að láta ljós sitt skína. Ég er nefnilega einn af örfáum Íslendingum sem er tilbúinn til að koma talenti og góðu dóti áfram, jafnvel þó ég þekki ekki fólkið á bak við það, eða sé skyldur því.

Þið getið til dæmis sent mér fréttir í sannleikshornið og ef mér finnst þær sniðugar, mun ég birta þær. Munið samt með allt efni sem þið sendið mér að það má ekki vera stolið. Ég hef mikla virðingu fyrir höfundarrétti - þannig svoleiðis gerir mann bara reiðan.




Stríð og Friður......

Ég var aðeins að skoða vef morgunblaðsins og rakst þar á frétt með það að Donald Rumsfeld innilegur vinur bandarískra hermanna í Írak og innilegur vinur Afgana. Hann var að óska eftir að NATO komi og hjálpi sér og Bandaríkjunum með þeirri steypu sem þeir eru búinir að koma sér í, það náttúrulega gengur ekki að það sé verið að fella bandaríska hermenn villt og galið heldur á miklu frekar að koma með her frá NATO og láta skjóta þá niður, ég bara spyr hvaða heilvita maður myndi senda herinn sinn við hlið Bandraríkjamönnum og stilla þar með sínum mönnum upp sem hentugum skotmörkum eins og bandarískir hermenn virðast vera orðnir.
Mér finnst að hin Evrópu ríkin eigi að standa saman gegn Bandaríkjamönnum og segja nei við þá einu sinni og sanna það að við getum lifað án McDonalds og Burger King, við þurfum ekki að fá feitan rass eins og þeir, við eigum að berja einhverntíma í borðið og segja að viljum ekki láta skjóta okkur lika.
Eigum við bara ekki að leyfa Bandaríkjamönnum að leiðrétta sín mistök, ég meina allt í lagi að við komum og hjálpum og gefum mat og hjálpargögn hef ekkert á móti því, bara svo það sé á hreinu, en mér finnst samt eins og Bandaríkjamenn séu að koma sínum mistökum yfir á einhverja aðra.




Desperasjón

Eins og allir vita er mikill skortur á kvenfólki í Tölvunarfræðiskor Háskólans. Við erum með eina single stelpu undir þrítugu og eina yfir þrítugu og síðan nokkrar giftar margra barna mæður. Þar af leiðandi erum við afar desparate oft á tíðum, sérstaklega þegar allir erum búnir að vera að horfa á endalaust mikið klám í laptoppunum sínum, eða spila flottustu gellurnar í Tekken 4.

Nú verð ég t.d. næst með uppistand á jólagleði Félagsfræðideildar HÍ (og allir sem eru í HÍ vita að það er sægur af fallegu kvenfólki "hinum megin við Suðurgötuna"). Þar af leiðandi eru nördarnir vælandi í mér um að fá að þykjast vera "aðstoðarmaður" eða "tæknimaður" hjá mér, bara til að fá að koma með.

Ég bið allar nördastelpur sem núna eru í menntaskóla að vinsamlegast íhuga tölvunarfræði (ekki í HR) þegar þið útskrifist.





Eldri blogg

-Rökkvi Vésteinsson (rokkvi@lagmenning.is)