Lágmenning.is lágkúrulegasta síðan á landinu!

Gærdagsdjammið

Núna sit ég uppi í skóla og á að vera að gera hópverkefni með 3 mönnum sem liggja þunnir heima hjá sér. Ástæða: ég var edrú á djamminu í gær, en þeir voru í einhverju mjög svo ólíku ástandi. Mesta snilld kvöldsins hlýtur að hafa verið á Celtic cross. Þar var svona tveggja manna hljómsveit í kjallaranum, hljómborðsleikari og annar á rafmagnsgítar og ég fékk að "spila" á einhverskonar "hristu" hljóðfæri með þeim og syngja með þeim eitt lag. Bara húmor það.

Í gærkvöldi var mér líka sagt að ég myndi aldrei ná mér í konu (ekki í fyrsta skipti sem ég heyri þetta). Það er samt alltaf einhvernveginn þannig að ef þetta er sagt við mig, þá kemur gella að reyna við mig sama kvöldið. Síðast þegar ég fékk á broddinn var t.d. sagt við mig nokkrum tímum áður: "Rökkvi þú átt aldrei eftir að ná þér í gellu. Þú móðgar þær alltaf meira en þú heillar þær." Núna fékk ég reyndar ekkert á broddinn, en helvíti var það nálægt. En hvað með það, minn tími mun koma!




Konur eins og maður vill hafa þær

Um daginn var ég að tala við nördavini mína um kellingar og ég sagði að það væri tvennt sem að mér finndist vera verstu gallarnir á tjellingu ef maður væri að byrja að kynnast henni: það að hún reyki og að hún trúi á guð. Þá spurðu gaurarnir mig náttúrulega hvort mér þætti verra. Þetta er helvíti góð spurning. Ég var eiginlega á því að reykingar væru verri, því það væri auðveldara að venja fólk af ósiðnum að trúa á guð en að reykja. (Reykingar eru náttúrulega líkamlegt fíkn en trú er bara andleg ranghugmynd sem er sennilega auðveldara að yfirstíga). Sumir voru samt ekki sammála mér og sögðu að það væri ógerlegt að fá sumt fólk til að droppa halelújabullinu sínu, jafnvel erfiðara en að fá fólk til að hætta að reykja.

Þess vegna finnst mér kjörið að spyrja ykkur lesendur álits í þessu máli. Hvort er verri galli, að reykja eða vera trúaður og hvort er erfiðara að fá fólk til að hætta að reykja eða trúa?




Hamingjusamur?

Í Birtu í dag var Jónsi í Svörtum fötum á forsíðunni, með fyrirsögnina "Það er hollt að vera hamingjusamur." Einhvernveginn gæti ég trúað því að hann hafi í rauninni sagt "Það er hollt að vera hýr" en ritstjórn Birtu hafi breytt fyrirsögninni.




Gelgjuhornið

Mér finnst gelgjuskarinn í Gelgjuhorninu standa sig með prýði. Þetta er fyrsta flokks gelgjuskapur hjá þeim. Því miður var eitthvað vesen með að setja inn haloscan kommentakerfi inn á það. Haloscan er líka eitthvað vangefið. Það t.d. sýnir oft mun lægri fjölda kommenta við gömul blogg hérna á lágmenningu, en það ætti að gera. Þetta er greinilega ein af þeim refsingum sem maður fær fyrir að kunna ekki php. Vonandi get ég grúskað almennilega í php-ið á næsta ári og gert þetta stöff sjálfur.




Snjóslagur við Hagaskóla

Í dag ákvað ég að gera eitthvað sem fáum heilbrigðum einstaklingum myndi láta sér detta í hug, en það er að fara af fyrra bragði að kasta snjóboltum í 40 nemendur úr Hagaskóla. Fyrst byrjuðu gelgjurnar allar að kasta snjóboltum á móti en síðan þegar þær hittu ekkert ákváðu þær að koma nær. Einn gaurinn ákvað þá allt í einu að hlaupa öskrandi í áttina að mér (planið væntanlega að hlaupa á mig og fá alla hina til að koma og kaffæra mig í snjónum). Því miður fyrir hann stóð ég grafkyrr þangað til hann var kominn alveg upp að mér, steig þá til hliðar og sparkaði undan honum fótunum, þannig að hann flaug fram fyrir sig og beint á smettið ofan í snjóinn. Allir skólafélagar hans sprungu úr hlátri að greyi stráknum. Síðan köstuðu þau 100 snjóboltum að mér og hittu svona 5-6.

Næsta sem ég heyri þegar ég er kominn niður í nördaherbergi er að það hafi komið 40 Hagaskólanemar niður í Háskólabíó, grýtandi snjóboltum. He, he, þau voru væntanlega að leita að mér. Ég verð víst að fræða Hagaskólagelgjurnar um þá staðreynd að ekki öll kennsla Háskólans fer fram í Háskólabíó. Þau hafa sennilega verið að kasta snjóboltum í sálfræði, hagfræði eða verkfræðinema.




Menn á sama máli

Nei viti menn ég held það sé bara margt sameiginlegt með skoðunum þessa manns og skoðunum Jóns Grétars




Nörd eða morðingi?

Þar sem ég þekki talsvert til tölvunörda og eitthvað til geðsjúklinga líka, fékk ég 8/10 í þessu prófi.






Snillingar

Fékk þetta líka snilldar bréf frá einum snillingi sem heitir Vignir Jóhannesson:

"Sæll vissir þú að það er mongólíti sem heitir það nákvæmlega það sama og þú og svo ert þú að gagngrína annað fólk t.d. feitt fólk ekki það að ég sé eitthvað feitur..... =) en þetta er nokkuð góðir pislar en ekki reyna seiga mér að það hafi eitthver kvennmaður reynt við þig eins og þessi feita Þarna sem var að spjalla við þig í strætónum (það er ekki séns) þú ert með þeim asnalegri mönnum sem ég hef séð á mynd. Það er kanski eitthvað verið að láta þetta líta betur út fyrir þig að þú sért alltaf að láta eins og hálfviti á myndum þá held ég að það sé samnt bara rugl ég held að þú sért bara svona hrikalega asnalegur eins myndirnar gefa til kynna....! En ég held að þú sért ansi stutt frá því að vera eitthvað spasstískur (or sum) en þú ert nú samnt fyndinn FÁVITI.......................!"

Takið eftir því hvað maðurinn hefur yndælan stíl, svo ekki sé nú talað um stabsenninguna sem er alveg upp á tíu.
En ég verð að viðurkenna að svona feit, ógeðsleg og illa lyktandi kvenkyns homo sapiens sapiens hefur ekki reynt við mig. Það hefði að öllum líkindum ekki tekist hjá henni þar sem ég hefði verið búinn að troða snakkpokanum hennar ofaní kokið á henni eftir fyrstu tilraun hennar.

Varðandi vin minn Vigni þá er náttúrulega augljóst að hann þjáist af miklum Ödipusarkomplexum, dreymir um að sofa hjá móður sinni (sem sést á því hvað hann notar mikið af punktum........ Ég hef einnig sterkan grun um að hann sé dýrapervert, hverjir aðrir nota svona broskarla =) Þarna eru mjó augun táknræn fyrir dýrslega löngun í lárétta stöðu og sviginn merkir að hann vill lúta í duftið og taka það aftanfrá.

Semsagt: Hann vill njóta kynlífs með móður sinni á meðan hundur tekur hann í rassgatið.




Matrix sökkaði

Mér fannst síðasta Matrix sökka. Það er svosem gaman að horfa á tölvuteiknaðar stórorustur en hvað varðar handrit og söguþráð, þá var hún drasl. Ég var að segja núna áðan að mér hefði ekki fundist myndin hafa neinn endi og að það hefði ekkert verið útskýrt í endann. Þá kom einhver "Hvað meinarðu, hann var Jesú. Fyrst voru milljón tilvitnanir í biblíuna og síðan var þetta alveg eins hjá honum og hjá Jesú (taldi upp einvher atriði um að deyja og rísa upp + eitthvað fleira)." Nú hvernig átti ég að vita það? Ég hef ekki lesið biblíuna af mjög augljósri ástæðu: þetta er crap léleg bók. Og þá fær Matrix líka bara mínus fyrir að vera með eitthvað halelújakjaftæði. Drasl!




Lúserar rokka

Djöfull hef ég gaman af leikurum sem leika næstum eingöngu lúsera í öllum hlutverkum sínum. Þar af leiðandi eru Steve Buscemi (Fargo, Ghostworld, The Big Lebowski), Philip Seymour Hoffman (Happyness, Boogie Nights) og William H. Macy (Fargo, Boogie Nights, A Slight case of murder) í mjög miklu uppáhaldi hjá mér. Og hey, Þorsteinn Guðmundsson náttúrulega líka!




Það er gott að búa á Íslandi

Ef ég t.d. byggi í Ameríku væri ég eflaust kominn í lífstíðarfangelsi fyrir Sannleikshornið




Gærdagurinn

Ég verð að fara að dissa Svansson aftur. Svansson er ritstjóri Stúdentablaðsins. Hann kom á uppistandið eftir að ég var búinn með minn part, tók bara mynd af Steini Ármanni og fór! Svona lætur maður ekki bjóða sér!

En hey er annars til of mikils mælst að fólk fatti þennan: "Það er ekkert mál að sofa hjá spikfeitri konu, pokinn af hveiti kostar ekki nema 200 kall"???




Standup í kvöld

Áður en ég verð með uppistandið í kvöld finnst mér viðeigandi að þakka öllu feitu fólki, femínistum, Selfyssingum, Vestmanneyingum og síðast en ekki síst fólki sem á sér misheppnað kynlíf. Án ykkar hefði ég svo sannarlega ekkert fram að færa sem uppistandari. Ég hvet sem flest af ykkur til að mæta á Stúdentakjallarann í kvöld kl.21




Tip of the day

Ef þið eruð á skemmtistað þar sem dj-inn er alveg að sökka, biðjið hann þá að spila Panic með the Smiths.




Standup í Stúdentakjallarnum annað kvöld

Á morgun, fimmtudaginn 20.nov verður rosa uppistand í Stúdentakjallaranum, þar sem ég mun hita upp fyrir Stein Ármann. FRÍTT INN! Stútdentakjallarinn opnar alla virka daga kl.16 og mun uppistandið byrja upp úr kl.21. Ég hvet alla til að mæta.




Gelgjuhornið komið í gang

Jæja, nú er fyrsti pósturinn kominn inn á gelgjuhornið. Þið gelgjurnar sem eigið að skrifa þar, ég sendi ykkur email núna áðan með username og password. Þið farið inn á www.blogger.com og loggið ykkur inn með username (notendanafni) og password (aðgangsorð) sem ég sendi ykkur í emailinu. Síðan munið þið sjá eitthvað sem heitir "my blogs" eða eitthvað þannig vinstra megin á síðunni, undir því er linkur sem heitir Gelgjuhornið og þið smellið á hann. Þetta á að vera einfalt, jafnvel fyrir gelgjur, so go for it.




Breytingar hafa orðið á síðunni

Nú eru breytingarnar sem ég talaði um komnar:

Sannleikshornið: Átti upphaflega að heita "lygar" en mér fannst sannleikshornið bara miklu betra nafn. Sagan á bak við sannleikshornið er einföld. Ég sendi tvær fréttir inn í samkeppni baggalúts.is um frétt nr.2000 hjá þeim, en vann ekki neitt. Þetta fannst mér nú sóun að vera að skrifa eitthvað bull sem hvergi myndi birtast og síðan fannst mér líka bara mjög gaman að skrifa svona kjaftæðisfréttir.

Þess vegna ákvað ég að gera bara svona lítið bullfréttahorn á lágmenningu. Ég tel líka að ég geti leyft mér að hafa mun dónalegri, ómálefnalegri og meira politically incorrect fréttir en baggalútur hafa hingað til þorað. Núna er fyrsta fréttin komin inn en fleiri munu síðan bætast við.

Parody: Eftir að vera búinn að fá sendar til mín fullt af háðslegum myndum sem gerðu grín að t.d. Beturokk og Sigurði Kára, ákvað ég að það þyrfti að vera sér staður fyrir þær hérna. Í parody fara líka XXX-men teiknimyndasagan og litla strumpateiknimyndin, en þær voru áður í "teiknimyndasögur", sem er nú farin niður.

Gelgjuhornið: Þetta var einhver klikkuð hugmynd sem ég fékk og var ekki fyrr búinn að nefna en hún Kolla klikk (sem er einmitt gelgja) fór stanslaust að tuða í mér um að fá gelgjuhornið sitt. Núna er þetta komið - undirsíða þar sem litlar gelgjur fá að blogga. En ég vara ykkur við glegjur, þið nuðuðuð um þetta og þá er eins gott að þið skrifið líka á þessa síðu, því ef þið eruð latar við það, mun ég verða fljótur að henda henni út (og munið líka að ég get editað það sem þið segið).




Það er vont að verða fyrir óvinamissi

Alltaf er ég að ganga í gegnum þá hræðilegu lífsreynslu að missa óvini mína. Í gærkvöldi endaði ég óvart á ræðukeppni milli hagfræði og stjórnmálafræði og datt bara ofan í það að fara að spjalla við Guðmund Svansson (áður þekktan sem Svansson.net). Svansson er ekki sama wuzzið og ég hafði áður gert ráð fyrir. Hann var ekkert að eipa yfir dissinu sem ég hafði skrifað um hann og hann hafði bara fjandi mikinn húmor fyrir brussukeppninni í tölvunarfræðinni (sjá 6 bloggum neðar). Svansson hafði nú líka áður sýnt mikinn smekk með því að birta mynd af mér í Stúdentablaðinu frá wrestling atriðinu á síðasta Stúdentadegi.

Þetta er annars hræðilegt að glata öllum óvinum sínum svona frá sér einum af öðrum (Bjarna töframanni, Salvöru og núna Svansson). Bráðum á ég enga óvini eftir og gleymi alveg hinni fínu list að dissa fólk.

Annars var fyndið að hlusta á "rökræður" stjórnmálafræðinnar og hagfræðinnar, sem voru með og á móti lauslæti. Rök stjórnmálafræðinnar gengu aðallega út á að hagfræðingarnir væru ljótir og fengju ekkert að ríða (þess vegna vildu þeir skerða hamingju annarra með að banna lauslæti). Besta svar hagfræðinnar fólst í viljayfirlýsingu til að senda samúðarskeyti til allra stelpna sem hagfræðinemarnir höfðu sofið hjá. Þetta kalla ég málefnalega umræðu.




Danir og aðrar norðurlandaþjóðir

Ég var í Stokkhólmi um helgina með fólki allstaðar af norðurlöndunum. Þar komst ég að því sem mig hefur grunað lengi...Svíar eru leiðinlegir og væmnir, Norðmenn líka og Danir eru bara hundleiðinlegt lið sem ég varla nenni að tala við eða um. Þetta lið skildi varla svartann húmor (sérstaklega ekki Svíar) og horfði á mann eins og maður væri að tala um að slátra öllum á staðnum (sem mér datt stundum í hug þegar ég var innan um alla Svíana!). Það er því ekki skrýtið að þessu liði hafi ekki tekist að koma upp síðu eins og knulla.se eða knebe.dk. Ég er viss um að finnarnir eiga svona síðu!

Finnarnir eru nefnilega alvöru fólk! Með kolsvartann húmor, ekkert að taka sig of alvarlega og kunna að skemmta sér eins og fólk (lesist: Íslendingar). Það er sko land sem ég ætla að skoða betur.




Breytingar á síðunni væntanlegar

Innan fáeinna daga mun ég koma með breytingar og nýjungar á síðunni. Dálkunum hérna til vinstri verður breytt þannig að bloggið, b-myndirnar, wrestling, video, tónlist, pistlar og hlekkir verða áfram, en auk þeirra verða dálkar sem heita "lygar", "parody", "gelgjuhornið" og "um okkur."

Gelgjuhornið er hugmynd sem var búið að ræða hér áður, en það verður blogg sem nokkrar vel valdar gelgjur fá að halda uppi. "Um okkur" verður í rauninni ekkert nýtt, bara myndir af okkur á bak við síðuna, email og hvernig á að skoða stats fyrir lágmenningu. "Parody" og "lygar" munu verða útskýrð síðar.




Vanræksla hjá Dönum

Ein fyndnir og Danir eru nú yfirleitt, af hverju er ekki til bolle.dk, kneppe.dk eða fisse.dk? Þetta finnst mér nú vanræksla. Það er til sengekanten.dk og liderlig.dk, en það er ekkert á þeim.

Þar sem Svíar eru aftur á móti ekki eins miklir húmoristar og Danir í svona málum, kom mér mjög að óvart að knulla.se skuli vera til. En þá var það náttúrulega bara einhver fyrirtækissíða sem hafði ekkert með knull að gera (skrifa þeir kannski knulle? - ég var alltaf viss um að það væri skrifað knulla, eins og þeir segja það).




Það er ekki allt hrós auðskilið

Ég var ekki alveg viss um hversu hrós mér fannst það vera þegar Tryggvi félagi minn úr tölvunarfræði skrifaði um mig á freindster að ég væri: "fyndinn eins og múlasni nauðgandi feitum loðnum kalli." En eftir að vera loksins búinn að sjá þetta hérna, veit ég að þetta var mjög feitt hrós. Hef sjaldan hlegið eins mikið eins og þegar ég horfði á þetta (sem var ekki gott, því þá var ég að kenna æfingatíma í tölvunarfræði).




Næsta uppistand

Smáatriðin eru ekki ennþá á hreinu, en ég mun hita upp fyrir Stein Ármann í Stúdentakjallaranum á fimmtudaginn í næstu viku (20.nov).




Brussuskapur

Brussuskapur er eitthvað sem ég og nördavinir mínir höfum mikið rætt undanfarið. Brussa og bredda er ekki það sama, þó það fari mjög oft saman. Brussa er einhver sem er klaufaleg og með brussuskap (sem óneitanlega verður tilþrifameira ef hún er líka bredda). Kynlíf með brussu er jafnan óskemmtilegt, óháð vaxtarlagi hennar (nema þú hafir mjög sérstakan smekk).

Núna höldum við í nörd bókhald yfir allt brussulegt sem allir þar gera. Ef þú t.d. rekur þig utan í, hellir niður kaffi eða gerir innsláttarvillu þegar þú ert að forrita, færðu brussustig. Brussustigin eru síðan samviskusamlega skráð niður í gagnagrunn. Refsingin í lok skólaársins verður síðan að strákurinn með mest brussustig þarf að vakna í brussu en stelpan með mest brussustig þarf að sofa hjá "heitum" Teit.




Nú er búið að toppa allt!!

Ég var í makindum mínum að horfa á skjá einn í gærkveldi nema hvað að þegar það voru auglýsingar kom allt í einu 1 fyndin mínúta úr fyndnasti maður íslands.
Mér væri nú alveg sama um þetta ef þetta hefði verið fyndið, þetta var töframaðurinn að leika sér með spotta, ég brosti ekki einu sinni að þessu atriði, ég vona svo innilega að þetta hafi ekki verið í keppninni bara svona til að segja áhorfendum hvað er ekki fyndið.
En ég er svo sem ekkert verri maður fyrir vikið mér fannst þetta ekki fyndið þetta á frekar heima í barnaafmæli finnnst mér.




Leoncie í wrestling!

Var bara að glugga í Fréttablaðið og sá að þar var viðtal við Leoncie. Hún er greinilega meiri smekkmanneskja en ég hélt, þar sem hún sagði að wrestling væri uppáhalds sjónvarpsefnið sitt. Ég var nú reyndar talsvert móðgaður þegar hún sagði að Shawn Michaels væri uppáhalds wrestlerinn sinn (og mest sexý líka). En ég fyrirgef Leoncie þetta. Sennilega hefur hún bara ekki séð mig í action ennþá.

Leoncie sagði einnig að wrestling væri það sem væri næst á dagskrá hjá henni. Hey Leoncie, þú ert velkomin með í wrestlingið og ég skal meira að segja þjálfa þig persónulega.




Kolbrún og klámið í kringum hana

Nú virðist vera að nafnið Kolbrún Halldórsdóttir komi oftar upp í sambandi við klám heldur en nafn Jennu Jameson. Ekki af sömu ástæðu reyndar - eða hvað? Mikið hefur verið talað um að Kolla hafi víst verið fáklædd í Samúel um árið (kannski fannst henni það svo vond reynsla að hún er staðráðin í að vernda aðrar konur fyrir því sama).

Ekki hefur þessi mikla umræða um Kollu og klámið allavegana farið framhjá mér og það minnti mig á nokkuð áhugaverðan atburð sem átti sér stað þegar ég var ennþá í MH. Svo vildi nefnilega til að pabbi minn, sem er kennari í þeim skóla, þurfti að vísa syni Kolbrúnar og nokkrum öðrum piltum af sviðinu þar, fyrir að vera með klámfengið atriði á dimmisjón.

Þetta atvikaðist þannig að það var dimmisjóndagur, þar sem útskriftarnemar skipta sér upp í hópa, klæðast búningum og eru með skemmtiatriði fyrir hina nemendurna. Í þetta skipti voru þrír gaurar saman í hóp, klæddir sem leðurhommar. Eftir að vera búnir að sýna sig soldið uppi á sviðinu sögðu þeir að þá langaði það fá til sín lítinn sætan busastrák. Þá var sonur Kolbrúnar gripinn upp á svið. Áður en langt var um liðið voru leðurhommarnir búnir að klippa gat á buxurnar hans, þannig sást í rassaskoruna og farnir að klína vaselíni á bossann á grey stráknum. Þetta fannst kennurum skólans vera nóg, sérstaklega þó honum pabba, sem kom hlaupandi og rak allt hyskið niður af sviðinu.

Það kom náttúrulega í ljós að þetta var allt fyrirfram skipulagt og strákurinn hennar Kollu var með í atriðinu af fúsum vilja. Útskriftarhópurinn var síðan eitthvað aðeins skammaður en ekkert stórmál var gert úr þessu. Þó hefur mig alltaf langað til að vita hvort Kolla hafi vitað af þessu atriði og þá hvað það hafi þá þýtt mörg vandarhögg fyrir hann Orra hennar.

Já Kolbrún og hennar familía hafa nú lagt vænt framlagt til kláms í gegnum árin.




Öllum er greinilega sama

Merkilegt að ef maður dissar gersamlega ómerkilegt fólk eins og dr.Gunna eða Beturokk, fær maður milljón sinnum meiri viðbrögð heldur en ef maður segir að allt trúað fólk séu fífl og biskupinn sé heimskt gimp. Íslendingum er augljóslega skít sama um trú. Það er gott mál, en ég held nú samt að landar mínir ættu aðeins að pæla rétt nógu mikið í þessu til þess að losa okkur skattborgara við Ríkiskrikjuna, síðan megið þið aftur hætta að pæla í þessu.




Hvað er málið

Er allt að verða vitlaust í þessu landi hérna, fyrst er biskupinn að fetta fingur útí galdrasýningu sem er meira sögusýning en eitthvað annað, auðvitað segir maðurinn að hann vilji ekki aðskilnað ríkis og kirkju hver ætti annas að borga honum eftir að allir myndu hætta í þessum söfnuði ég bara spyr.




Niðurstöður úr trúarkönnun

Það má kannski deila um hversu marktæk skoðanakönnunin sé með aðeins rúmlega 200 atkvæðum greiddum. Markhópurinn myndi sennilega líka aðallega vera ungt fólk, og ekki gefa góða mynd af heildinni. Ég ætla samt að segja þetta við biskupsfífilið: Skoðaðu þessa könnun litla gimipið þitt úr því þú varst að segja að hér væri frekar einsleit menning og því fínt að hafa Þjóðkirkju.

Ef þetta sýnir bara afstöðu yngra fólks, þá vil ég líka benda á að afstaða yngra fólks sýnir einmitt hvaða breytingar á hugarfari eru að eiga sér stað (framþróun). Niðurstöður kannaninnar eru að þriðjungur fólksins sé trúlaus. Restin trúir á eitthvað annaðhvort ljóst eða óljóst. Aðeins 35% trúa á Guð skv. kristinni trú eða Gyðingatrú. Það má því álykta að minna en 35% af fólkinu á netinu sé sömu trúar og Þjóðkirkjan (því frá þessum 35% myndu dragast Kaþólikkar og Gyðingar).

Í heidina eru aðeins 37% sem hafa einhverja ákveðna trú, 20% trúa að það sé "eitthver æðra máttarvald" og restin (43%) trúir ekki á neina guði yfir höfuð, þar af eru þessi 33% sem eru trúleysingjar og 10% sem trúa á eitthvað sem biskupinn er að fá æðisköst yfir (drauga, dulspeki, hugsanafluting, miðla eða eitthvað álíka).

Niður með helvítis Þjóðkirkjuna. Þið halelújapakkið getið drullast til að borga fyrir ykkar eigin helgislepjubull í staðinn fyrir að nota skattpeninga hins almenna borgara í það. Ég hvet alla sem eru ekki raunverulega kristinnar trúar til að segja sig úr Þjóðkirkjunni (farið upp á Hagstofu til dæmis og fáið eyðublað). Ég hvet jafnframt alla sem eru kristinnar trúar til að skammast sín.




Trúleysiskönnunin

Á maður ekki að byrja á að tala um það sem gott er? 35% þeirra sem lesa þessa síðu og hafa svarað spurningunni eru gáfað, vel upplýst fólk sem trúir ekki í blindni og virðist taka ákvarðanir af yfirvegun þegar kemur að hlutum eða fyrirbærum sem við getum ekki skýrt. Þeir ættu að kíkja á þessa síðu Þetta eru alþjóðleg samtök eða bandalag fólks sem vill þrýsta á það að rödd trúleysis heyrist meira. Endilega skrá sig.

Hinir sem svöruðu könnunnini eru fífl. Að láta sér detta í hug að það sé til e-ð óefnislegt sem hefur áhrif á okkur er í besta falli vitlaust en í versta falli stórhættulegt og forheimskandi. Lesið ykkur aðeins til um eðlisfræði og hvernig heilinn virkar og talið svo við mig...




Könnun um trú

Í tilefni þess að vera búinn að sjá myndina um Helga Hóseasson og hlusta á vælið í Biskupnum, fannst mér fróðlegt að skoða aðeins á hvað fólk raunverulega trúir (ja eða allavegana fólkið sem skoðar netið). Þetta er bara venjuleg könnun, það er enginn falinn brandari í henni eða trikk til að "rigga" hana eins og sumir myndu kannski trúa upp á mig.




Helgin (við töpuðum Ofurnörd)

Þetta var nú einhver klikkaðasta helgi sem ég hef upplifað. Því miður vorum við nördar þegar sigraðir af Háskólanum í Reykjavík þegar ég mætti á Ofurnörd um kvöldið. Þeir voru nefnilega búnir að vinna okkur í fótbolta, bandý og counterstrike um daginn. Það kom samt ekki í veg fyrir að við rústuðum þeim í Tekken 4 og bjórdrykkju.

Eftir þetta var kareoke, mín sérgrein náttúrulega. Eins og ég er vanur tók ég væmið lag og tileinkaði það einni af nördastelpunum okkar. Þá tók hún "I will survive" og tileinkaði mér það til baka. Ég tók þessu sem "nei." Aftur á móti lætur maður ekki bugast, þannig að ég tók bara annað væmið lag og tileinkaði það annarri nördastelpu. Fékk aðeins jákvæðari viðbrögð þar (þó ég verði nú að viðurkenna að hafa endað kvöldið með Lóu Finnboga eins og svo oft áður).

Eftir að hafa nördast með nördavinum mínum í salnum sem við vorum með, var tími kominn til að nördast með nördavinum mínum niðri í bæ. Og viti ekki menn, nema að ég bara næstum gangi á Brussurokk og Maju vinkonu hennar. Þær nánast hlupu í burtu þegar ég heilsaði þeim.

En þetta var nú víst ekki eina "fræga" fólkið sem við hittum. Júlli vinur minn benti mér á einhvern ellitöffara sem hann sagði að væri "heitur" Teitur af Stöð 2. Júlli fór náttúrulega að fökka í honum "bleeeesaður, erekki heitur Teitur af Stöð 2?" Ellitöffarinn fattaði ekki að það var verið að fökka í honum og var eitthvað geðveikt góður með sig að fá svona "fan response." Hann fór meira að segja að segja Júlla frá því hvað hann væri að gera og hvaða framtíðarplön hann væri með (like anyone gives a shit).

Kom heim klukkan hálf sjö um morguninn og meikaði ekki einu sinni að blogga fyrr en í dag.




Helgi Hós

Fór á myndina um Helga Hóseasson í gær. Að vissu leiti er maðurinn snillingur, en hann er samt óneitanlega haldinn sjúklegri þráhyggju. Ég held samt með honum. Skil ekki af hverju stjórnmálamennirnir og halelújapakkið gat ekki bara skrifað í Þjóskrá að skírn hans væri ógild. Síðan voru skyrslettingarnar hans einhver frumlegustu og tilþrifamestu mótmæli sem ég veit um.

Mér finnst líka gott á halelújaslepjurnar hérna að einhver eins og Helgi skuli gera þeim lífið leitt. Samt finnst mér sorglegt að sjá hvernig maðurinn hefur slitið sér út með þessari þráhyggju sinni - ekki að hann hafi ekki rétt fyrir sér - en ég held þetta hafi allt saman farið fjandi illa með hann greyið.




En skömmustulegt

Ég var að horfa á videoið af uppistandinu í Stúdentakjallaranum. Ég var ógeðslega falskur þegar ég söng kartöflugeymslulagið. "Ég skil þetta ekki, þetta hefur aldrei komið fyrir mig áður." Ég allavegana skammast mín því það er fátt verra en syngja falskur fyrir fullt af fólki. Og ég sem er svo góður í kareoke.





Eldri blogg

-Rökkvi Vésteinsson (rokkvi@lagmenning.is)