Lágmenning.is lágkúrulegasta síðan á landinu!
Fyndnasti maður Íslands í gær: aftur dómaraskandallVegna þess að Bjarni töframaður hafði skorað á mig til að mæta, gat ég ekki annað en kíkt á lokakvöld fyndnasta manns Íslands í gær. Ég hef þetta um keppendurna að segja: 1. Tafeta Starwood: Crap! Hún kóperaði gamla prógrammið sitt gersamlega frá því síðast. Og þvílíkt crap sem það var. Nú þegar ég fékk tækifæri til að hlusta almennilega á þetta hjá henni hef ég síður en svo skipt um skoðun á því að ég hafi verið "screwed over." 2. Gísli: Ja, hann var ekki eins slæmur og Gísli MARTEINN. Hann hafði góða raddhæfileika en var með frekar lélegt prógam. Allt of lengi að segja einhverjar sögur sem höfðu of fá punchline. Ótrúlega mikið af kúk og piss, klósetta og úldnum mat bröndurum sem voru ekkert fyndnir. 3. Júlíus Júlíusson: Fannst mér talsvert betri en hinir á undan honum, hafði líka gott "presence." Var með of mikið af stolnu efni en kom með fjandi góða kynlífsbrandara. Kom með klapplið að norðan með sér. 4. Birgir Búason: Kom með ennþá stærra klapplið en Júlíus. Það var hins vegar ekki aðal málið, því hann var margfalt betri en allir hinir keppendurnir. Náði að koma með fjöldann allan af bröndurum, með því að sleppa öllum málalengingum og flestir þessir brandarar voru líka fyndnir. Sagði við hann eftir performansið að hann væri pottþétt búinn að vinna. Held líka að flestir þarna hafi verið sammála mér. Jæja, viti svo ekki menn nema að Gísli þessi vinnur. Rugl segi ég. Birgir var eini keppandinn þarna sem ég hefði ekki fengið kast yfir að tapa fyrir - hann var lang bestur af þeim. Reyndar er ég svo mikil tík að mér fannst þetta pínulítið gott á hann. Honum fannst nefnilega að það hefði verið rétt að ég tapaði fyrir Tafetu (hvað er fólk að hugsa) og hann var alveg handviss um að vinna þessa keppni, frekar góður með sig, fannst hann sennilega yfir "tapsáran" gaur eins og mig hafinn. Veit ekki hvað hann hefur um það að segja núna (en kaldhæðið). Samt verð ég eiginlega að segja að mér finnist hann hafa átt betra skilið. Í fyrra tapaði hann fyrir Fílnum og þó ég hafi ekki séð keppnina í fyrra, þá hlýtur það að hafa verið ripoff (ég lét þær skoðanir mínar í ljós þarna á Felix og sá víst ekki að Fíllinn stóð beint fyrir aftan mig, úbbs). Mér finnst nú einum of að sami maður þurfi að ganga í gegnum tvö rippoff. Að keppni lokinni fór ég og spjallaði við Bjarna töframann á mjög góðum nótum. Ekkert vont okkar á milli, enda mættum við nú vera meiri aumingjarnir að geta ekki tekið smá skítkast frá hvorum öðrum án þess að fara að grenja eins og litlar stelpur. Mér finnst Bjarni bara yfir höfuð fínn gaur, en hafið engar áhyggjur, ég er ekkert ennþá búinn að sættast við Brussurokk, dr.Gunna eða Gísla Martein og líklega búinn að móðga Fílinn líka (svona ef þið haldið að skítkastið sé í einhverri útrýmingarhættu hérna).
posted by Rökkvi on 10/31/2003 04:09:51 PM
FeministarMér var víst bent á að femin.is er ekki vefur feminista á Íslandi heldur bara einhver commercial vefur ( feministinn.is er víst þeirra vefur). Æ sama er mér. Ég veit eiginlega ekki hvað femínisti er og mér er eiginlega alveg sama líka. Þó ég viti ekki hvað femínisti er þá veit ég hvað gella, kelling, bredda, skvísa, gyðja, drusla og kvenskörungur eru og ég held að það sé bara alveg nóg.
posted by Rökkvi on 10/30/2003 01:55:03 PM
Feminista hvað????Ég biðst afsökunar hvað ég er ekki búinn að vera aktívur hér, en námið hefur sett mér smá skorður en ég ætla að reyna fara vera duglegri að rífast og skammast smá. Allavegna í öllu þessu umtali um það að heimasíður eins og batman.is og tilveran.is séu stoltar af því að vera feminista fríar, hvað er það eiginlega ég bara spyr, hverjum ætli sé ekki slétt sama hvað er verið að segja um okkur ég meina það er ekki eins og þær þurfi að lesa það sem við skrifum á síðuna okkar. En ef þessir feministar vilja svo sem skoða efnið sem er á síðunni hljóta þær að skilja það að það er fólk sem vill skoða það með öðrum en hneikslunar augum. Mín skoðun er sú að feministar ættu bara að halda sig þá við nema þeim finnist pistlarnir okkar skemmtilegir og geta hlegið með okkur.
posted by Guðjón Einar on 10/30/2003 01:03:42 PM
Ég ætla ekki að láta lágmenning.is vera "Feminist free"Núna eru batman og tilveran búin að koma af stað samtökum vefja sem eru "feminist free." Ég fýla batman og tilveruna mjög mikið en ég ætla ekki að vera með í þessum samtökum. Femínistar hafa nefnilega þótt merkilegt séð aldrei dissað mig, þannig að ég sé enga ástæðu. Minn metnaður liggur mun frekar í því að geta sagt femínistum klám og karlrembubrandara, þannig að þær hlægi samt að þeim (það er list). Betarokk var núna að segja á síðunni sinni að ég hefði verið að glorifæja mig óhóflega með að segja í hi-nem póstinum (þau hjá Stúdentaráði vildu að ég semdi hann sjálfur, hvað get ég sagt) að ég væri svo fyndinn að jafnvel uppskrúfaðasta fólk gæti ekki hatað mig, þó það reyndi. Nú - ef maður getur boðið Salvöru Gissurardóttur - æðsta femínista landsins - á uppistand fullu af klámi og karlrembu og látið hana samt hlægja úr sér vitið - er það þá ekki fullkomin sönnun á einmitt þessari staðhæfingu?
posted by Rökkvi on 10/29/2003 06:51:22 PM
Samantekt á öllu dissinuOk nú vil ég taka allt dissið aðeins saman, ástæðurnar fyrir því og hvað var í gangi. Þar sem visst fólk virðist varla gera annað en hrópa að ég sé bitur af því ég sé með diss finnst mér rétt að gefa smá skýringar á öllum sem ég hef dissað, ekki dissað eða dissað mig. Betarokk: Ég þekki hana ekki persónulega. En Betarokk hefur tranað sér mjög fram á sviðsljósið og hefur sjálf látið út úr sér allskonar slúður, t.d. sagði hún sögu af Guðmundi Svanssyni (fyrrverandi Svansson.net) sem gat ekki talist annað en ólöglegt að setja á netið. Mér finnst að fólk sem er að trana sér fram (líka ég sjálfur) séu réttmætir skotspænar fyrir gagnrýni. Mér finnst persónulega að Betarokk sé nánast gersamlega hæfileikasnauð manneskja sem hafi komist áfram eingöngu út á plögg og kunningsskap. Er ég einn um þá skoðun? Prófið að spyrja fólk úti á götu og athuga það. Mér finnst allt diss og skítkast á hana af minni hálfu vera fullkomlega réttlætanlegt hún er bara fúl því hún er ekki nógu góður penni til að svara fyrir sig. Dr.Gunni: Þekki hann heldur ekki persónulega. Ástæðan fyrir að ég er að dissa hann er einföld. Þegar ég hafði sett "Vaknað í brussu" upp á lágmenningu fékk ég fyndið diss bréf sem var stílað á að vera frá Jóni Mýrdal. Til að vera viss um að þetta væri í rauninni hann (ég hata fífl sem skrifa í nafni þekkts fólks, svo er það líka ólöglegt), skrifaði ég komment á bloggið hans Mýrdals til að spyrja hann hvort hann hefði skrifað bréfið (því ég ætlaði ekki að birta það ef það væri falskt). Þá kommentar dr.Gunni í kommentakerfið hans að ég ætti nú að hætta að bögga Mýrdal, því ég ætti ekkert í hann og ætti kannski að "reyna að vera fyndinn" í staðinn. Mér finnst dr.Gunni ekki hafa rassgat efni á segja að ég sé ófyndinn, allavegana hef ég aldrei heyrt neinn segja að honum finnist gamli skallapopparinn hafa neinn húmor. Síðan finnst mér dr.Gunni ekki vera neitt miðað við svo marga aðra íslenska tónlistarmenn eins og Pál Rósenkrans og gaurana í Quarashi, Ensími, Botnleðju, Maus og jafnvel hnakkahljómsveitina Írafár. Toggipop: Þessi gaur byrjaði að dissa mig og ég svaraði til baka. Nenni ekki að dissa hann meira því við erum dottnir ofan í vopnahlé, en mér fannst hann allavegana ekki hafa neitt efni á að segja að ég væri ófyndinn eða lélegur í standup. Ég allavegana gat viðurkennt að hann hefði skrifað góða sögu á síðuna sína, þó mér væri ekki vel við hann enda er ég ekki eins "biased" eins og margir halda. Maja: Hún byrjaði líka að dissa mig, enda er það ekki skrítið þar sem hún er vinkona hennar Betu. Mér finnst Maja ekkert spes bloggari. Það litla sem ég hef lesið er hún að röfla um fylleríin sín eða hvað henni finnist einhverjir slökkvuliðsmenn og ruslakallar sætir. Ekkert nema wannabe Betarokk. Femínistar: Einhvernveginn hef ég lítið nennt að dissa þær því ég hef ekki gefið mér tíma til að kynna mér þær nógu vel. Salvör verður líka að teljast ótrúlegur töffari að mæta á standupið mitt síðast. Gísli Marteinn: Þarf ég afsökun til að dissa þetta gerpi? Stjórnmálamenn: Það á að dissa þá! Þeir eiga bara skilið að heyra það þegar þeir gerast sekir um spillingu eða taka fáránlegar ákvarðanir. Sumir segja "og þú að þykjast vera eitthvað, dissandi einhverja stjórnmálamenn sem vita ekki einu sinni hver þú ert." Það er kannski bara eins gott að þeir viti ekki hver ég er, því ekkert langar mig að vera kallaður inn á teppi og laminn með reglustiku, eða fá "you ain´t seen nothing yet" bréf.
posted by Rökkvi on 10/29/2003 02:08:36 PM
Snillinga ríkisstjórnin okkarÆðstu menn Íslands eru snillingar. Leggja mikinn metnað í það að flýta sér til að verða fyrstir til að styðja Kana í stríðum við vanmáttugar þjóðir, en þegar kemur að einhverjum leiðinlegum og óspennandi hlutum, eins og að styðja sjálfstæðistilburði hjá annarri lítilli fiskiþjóð, sem vill svo til að er líka næsti nágranni okkar, þá nenna þeir ekki.
posted by Rökkvi on 10/28/2003 09:13:30 PM
Myndir úr síðasta uppistandi
posted by Rökkvi on 10/28/2003 03:58:11 PM
Að hata eða ekki hataSíðan vil ég taka fram að ég hata ekkert Bjarna töframann þannig séð. Ég hata heldur ekki t.d. Beturokk, Jón Mýrdal eða Guðmund Svasson(.net) þó að ég hafi dissað þetta fólk eitthvað (Betu, Svansson), verið dissaður af því (Mýrdal, það var mjög fyndið reyndar) eða sagt að það skorti hæfileika (Betu). Mér er hins vegar mjög illa við fólk sem þykist vera eitthvað miklu betra bara af því það er "in" í bransanum og er að reyna að vera með einhvern hroka út á það. Er dr.Gunni t.d. fyndnari en ég? Er dr.Gunni fyndnari en einhver? Hefur dr.Gunni einhverntíman verið eitthvað annað en þekkt nafn? Ertu tónlistarsnillingur ef þú varst "sidekick" hjá Heiðu í hljómsveitinni Unun og gerðir prumpulagið? Hvernig stóð á að ég fékk meiri hlátur á fyndnasta manninum en Bjarni, ef ég á að vera nóboddí miðað við hann? Mér er jafnvel enn verr við alveru "nobody" fólk, það er að segja hæfileikalausa asna sem eru ekki rassgat frægir, eru með eitthvað tilþrifalaust og leiðinlegt blogg á netinu, halda að þau séu merkileg og eru að reyna að dissa mann eitthvað. Þetta er yfirleitt fólk sem þráir athygli meira en nokkuð annað og vildi óska að það væri með helminginn af mínum heimsóknafjölda. Samt segja þau að ég sé ömurleg hit hóra og "ég er bara að skrifa fyrir vini og kunningja" því það er biturt og þorir ekki að viðurkenna að það vilji verða frægt. Þetta eru bara fífl sem gætu aldrei náð sama árangri í uppistandi og ég (myndu sennilega pissa á sig af hræðslu fyrir framan mikið af fólki) og eru þegar búin að sanna að þau geta ekki haldið uppi jafn vinsælli heimasíðu og ég. Samt segja þau að ég sé ógeðslega ófyndinn, sökki sem bloggari og grínisti og fá síðan milljón komment frá öllum vinum sínum hvað þeir séu sammála. Ég get lofað þessu pakki að þau myndu fá trilljón sinnum fleiri neikvæðar athugasemdir en ég, ef síðurnar þeirra væru eitthvað nærri því jafn mikið sóttar og mín. Heyriði það Mæja og Toggiflop. Það er nefnilega öllum drullusama um ykkur, en nú getiði hoppað hæð ykkar í loft upp yfir að hafa fengið link frá mér.
posted by Rökkvi on 10/27/2003 06:41:51 PM
Lokaorð um fyndnasta mann Íslands og uppistandið alltJæja, Bjarni töframaður og Haukur vinur hans eru nokkurnveginn búnir að draga allt diss til baka og bjóða sættir. Ég get nokkurn veginn fallist á sættir við þá, eða allavegana vopnahlé, þó mér finnist nú hálf neyðarlegt hjá þeim hvernig þeir byrjuðu með diss og lippuðust síðan niður þegar þeir fengu eitthvað til baka. Þar sem Bjarni skoraði líka á mig til að mæta á lokakvöld fyndnasta manns Íslands, þá mun ég gera það, enda er sjálfsagt áhugavert að sjá hvað keppendurnir hafa fram að færa (og drullist þið þá til að gefa mér frítt inn). Ég er hins vegar búinn að taka feitt (í mjög bókstaflegri merkingu) diss á Bjarna á síðasta uppistandi, sem var tekið upp á video og mun síðar fara á internetið. Ég er ekkert viss um að Bjarni verði áfram sáttfús eftir að hann sér það. Já, ég mun mæta þarna og hver sem vill getur talað við mig ef þeir hafa eitthvað við mig að segja. En þið getið gleymt því að ég fari að taka aftur það sem ég sagði um dómnefndina. Þau eru bara fólk sem mega hafa skoðanir og dæma eftir sinni vitund/samvisku og þau geta líka hugsanlega gert mistök án þess að eiga að vera hengd fyrir það - en: Ég held mig samt við þá skoðun að það hafi verið kjaftæði að ég skyldi ekki komast áfram og heimsk ákvörðun hjá þeim. Eins og ég sagði áður og Mýrdal var að benda á, þá skiptir kannski ekki rassgat máli hvað einhver dómnefnd segir, en það skiptir óneitanlega máli í bransanum að vera með "fyndnasta mann Íslands" titilinn, bara út á prómó. Það verður miklu meira stand að prómótera sig án hans, en ég lofa ykkur samt þessu: Ég mun halda áfram og ég mun skara fram úr öllum hinum keppendunum sem voru í þessari keppni (þetta er bein áskorun á ykkur öll). Ég tel mig allavegana hafa heilmikið fram að færa sem grínisti og ég hef alltaf fengið góð viðbrögð. Það hreinlega sökkar þegar einhver sem er "nafn" getur fyllt sal af fólki, bara út á nafnið, bara til að valda þeim öllum vonbrigðum og fara heim með fullt af peningum fyrir það. Grínistar og sér í lagi uppistandarar brenna ofsalega hratt út. Menn eins og Jón Gnarr og Sigurjón Kjartansson, sem voru einu sinni snillingar, eru t.d. algerlega útbrunnir í dag. Mér finnst satt að segja mjög skítt ef ég á að vera að vera með geðveikt góð standup fyrir einstaka hræður og verða síðan kannski fyrst frægur þegar ég er loksins endanlega útbrunninn, fylla síðan salina af fólki sem fer svekkt heim. (Kannski svipað að vinna alla ævi til að verða ríkur og getað fengið golddiggingbimbó út á peningana sína en vera síðan orðinn getulaus af elli þegar það loksins tekst).
posted by Rökkvi on 10/27/2003 06:10:22 PM
Uppistandið í gærÉg er bara nokkuð ánægður með uppistandið í gær. Það var reyndar ekkert sérstaklega fjölmennt þarna, svona 50 manns á að giska, en fín stemmning. Ég var með alveg nýtt prógram en tók aðeins nokkra gamla brandara í endann. Bjarni töframaður mætti náttúrulega ekki en það stöðvaði mig ekki í að gefa honum þá umfjöllun sem hann átti skilið. Aftur á móti hafði ég persónulega boðið engri annarri en Salvöru Gissurardóttur og hún gerði sér lítið fyrir og mætti á staðinn! Verður að teljast fjandi svalt hjá henni að mæta á standup þar sem næstum allir eru 20 árum yngri en hún, að hlusta á grínista sem hún er sannfærð um að ætli að vera með argasta dónaskap við hana. Svo endaði nú bara á því að Salvör hlóg manna mest að uppistandinu og fannst það allger snilld. Við létum meira að segja taka nokkrar myndir af okkur saman. Það er allavegana lítil spurning um að hún er með "more balls" heldur en töframaðurinn. Hápunktur kvöldsins var samt eflaust þegar gamall vinur minn frá Þjóðhátíð 2002, Bjarni trúbador, kom og tók með mér kartöflugeymslulagið. Alltaf hefur mig langað að syngja það lag uppi á sviði. Ég og Bjarni eigum eflaust eftir að endurtaka þann leik innan skamms.
posted by Rökkvi on 10/25/2003 08:15:54 PM
Bjarni töframaður er djöfulsins heigull !Ekki tók Bjarni töframaður áskoruninni um að mæta á standuppið og hlusta á dissið mitt. Halló Bjarni - ég bauð líka Salvöru Gissuarardóttur, æðstafemínista - og hún þorði að koma. Hún er nefnilega ekki eins mikil kelling og þú. Bjarni, fínt að þú ert núna allt í einu að reyna að sleikja yfir allt dissið sem er búið að ganga á milli okkar og skrifa í kommentakerfi "Ég sagði aldrei að Rökkvi væri ófrumlegur eða ófyndinn." Það er bara of seint því ég er búinn að halda standuppið mitt, búinn að dissa þig frá toppi til táar og búinn að lofa að setja það á netið líka.
posted by Rökkvi on 10/25/2003 02:48:33 PM
HetjanÉg sá Kastljósið um daginn og þar var sönn hetja. Helgi Hóseasson var þar ásamt einhverju liði sem geri um hann heimildarmynd. Fyrir þá sem ekki vita það þá er Helgi búinn að berjast fyrir því nærri allt sitt líf að fá samningnum við himnadrauginn ógiltan. Hann sér lítinn tilgang í því að láta einhverja kirkjulygara gera samning í sínu nafni við sögupersónu úr bókum frá miðausturlöndum. Algerlega tilgangslaust. Helgi hefur barist gegn kirkjunni, árásarstefnu USA, heimskum pólitíkusum og heimsku fólki alla tíð. Hann sletti skyri á þingmenn sem ekki vildu hlusta á hann og hann makaði tjöru á Stjórnarráðið. Núna er í Regnboganum heimildarmynd um Helga sem allir ættu að sjá. Kynnast manninum sem þorir að standa einn gegn fávitum og yfirgangi þeirra. Þeir sem hafa bein í nefinu mótmæla og hafa skoðanir á hlutunum. Það skiptir engu máli hvar það er gert; á prenti, á netinu, með mótmælastöðu eða undirskriftarsöfnunum svo lengi sem þú lætur þína skoðun í ljós rétt eins og Helgi hefur gert í öll þessi ár. Eða eins og Helgi sagði: "Ég trúi engu. Ég hef skoðun á hlutunum!"
posted by Jón Grétar on 10/24/2003 10:44:41 PM
Ég nenni ekki að blogga í dagÉg er að spara dónaskapinn fyrir standupkvöldið í kvöld. Mætið bara kl.9 í Stúdentakjallarann.
posted by Rökkvi on 10/24/2003 02:19:05 PM
Ég skora hér opinberlega á Bjarna töframann til að mæta á standuppið mitt og heyra það sem ég hef við hann að segja
posted by Rökkvi on 10/23/2003 02:05:18 PM
Frægðarhóran ég !Úr því ég er frægðarhóra er það prinsipp hjá mér að elta uppi fræga einstaklinga, troða mér upp á þá og láta taka mynd af mér með þeim. Hér tóks mér t.d. að ná mynd af mér með hinum heimsfræga Pikachu.  Það fer mjög svo vel á með okkur Pikachu enda eigum við mjög margt sameiginlegt. T.d. finnst okkur báðum mjög gaman að segja "píka" en orðið "píka" var einmitt fyrsta dónaorðið sem ég lærði.Já hann Pikachu minnir mig mjög á sjálfan mig þegar ég var í leikskóla, segir ekkert nema "píka, píka" og stundum líka nafnið sitt. (Mér finnst nú heldur ekkert að því að hrópa nafnið sitt þegar maður er á annað borð svona frægur). Þar sem ég hef lítið þroskast síðan í leikskóla (hætti eiginlega bara að segja píka því ég var beittur brögðum sem má lesa um hér) þá finnst mér Pikachu ekkert smá fyndinn og skemmtilegur. Og svo þykist Betarokk vera eitthvað merkileg af því hún hefur hitt Elijah Wood og Viggo Mortensen, hnusss.....
posted by Rökkvi on 10/22/2003 09:15:04 PM
Standup í Stúdentakjallaranum kl.9 á föstudaginnÞá er loksins komið að því að ég komi með comeback eins og ég var búinn að lofa. Eins og allir vita var ég verulega pissed off út í fyndnasta mann Íslands keppnina og lofaði að ég myndi þá bara finna aðra leið til að koma mér og mínum politically incorrect boðskapi á framfæri. Kíkið í Stúdentakjallarnann á föstudagskvöldið kl.9 til að heyra ósvífnasta, mest politically incorrect standupið sem völ er á. Það er frítt inn fyrir alla og 20 ára aldurstakmark. Smellið hér
posted by Rökkvi on 10/22/2003 03:53:19 PM
BiskupinnÉg hata biskupinn. Ég barasta þoli ekki þennan helvítis aumingja sem sífellt er að tjá sig um alla skapaða hluti í krafti valds síns. Eins og dæmið með Galdrasafnið sem hann sagði vera merki um hindurvitni (en kristin trú er náttúrulega algerlega sönn), myrka tíma (rannsóknarrétturinn og galdrabrennur voru sem sagt ljós tími líka) og að banna ætti svoleiðis. Við eigum sem sagt ekki að muna það að fólk trúði á drauga og að til eru fullt af skemmtilegum sögum um drauga og huldufólk. En herra biskup vill bara að við munum eina tegund ævintýrasagna, þá sem eru í biblíunni. Hann bara gleymir því að núna trúir fólk á miðla og annann ókristilegan viðbjóð. Hann bara þorir ekki að gagnrýna það því það er svo vinsælt. Hann þorir hins vegar að ráðast á lítið safn sem er í litlu skítapleisi úti á landi, safn sem það hefði örugglega enginn nennt að skoða ef hann hefði ekki verið að blása sig. Ég ætla pottþétt að fara þangað þegar það opnar. Hann sagði líka að hér væri ekki fjölmenningarlegt samfélag. Neinei auðvitað ekki blindi þröngsýni heigull! Hér búa bara þúsundir manna sem trúa á annann guð en þann sem þú predikar um. Til þess að vera viss um að halda þínum völdum og peningum segirðu bara að hér sé ekki fjölmenningarlegt samfélag og styrkja beri ríkiskirkjuna. Ég get bara sagt eitt við þig biskup: Þú-ert-fífl!
posted by Jón Grétar on 10/22/2003 09:25:35 AM
GrúppíurÉg er löngu búinn að gefast upp á því að vera að leita mér að grúppíum (ég náttúrulega verð að segja þetta þar sem ég er með kærustu). En ég held samt að ég hafi nokkra pointera fyrir þá sem eru fyrir svoleiðis lagað. 1. Farðu og vertu strætótöffarinn. Stræðtótöffarar fá alltaf nóg á broddin og fullt af kjellingum vilja þá. Þeir keyra stóra bíla og hafa völd 2. Vertu aðstoðarrassaskeinari á elliheimili og spilaðu brids við kerlingarnar þar. Þá munu þær elska þig út af lífinu. Sæta unga drenginn sem nennir að tala við gamla fólkið og eyða tíma sínum í það. Svo verðuru kannski heppinn ;) 3. Liggðu í ljósum nokkra tíma á dag, reyndu helst að brenna þig því þá færðu þetta flotta göngulag sem allar brunarústirnar þrá hjá karlmönnum. Þá geturðu líka fengið fleiri tegundir af grúppíum, bæði plastrórústir og krumpurústir (sem eru þessar rúmlega fertugu sem reyna við alla karlmenn af því að þær voru vinsælustu rúmteppin þegar þær voru 16 á Súðavík) 4. Vertu Goth. Gangtu um í síðum svörtum leðurfrakka, með stáldrasl á öllum mögulegum og ómögulegum stöðum í líkamanum, púðraðu á þér andlitið svo þú sért líklegri í framan (eins og lík), hlustaðu á kirkjubrennuþungarokk og vertu með harða skel en mjúkann kjarna (gubb). Þá færðu svona 16 ára Goth gellur sem eru sko "alvöru rebels" og kunna Manson textana utanað og eiga lögheimili í spilasölum Nexus. Sem leiðir okkur í næsta flok... 5. Role Play nördi. Safnaðu saman nokkrum stelpum sem vilja spila role play (svona teninga role play). Segðu þeim svo að þú viljir leika ævintýri þar sem þær eiga að vera kynsveltar amasongyðjur í stálbikiní í leit að hinum sanna karlmanni. Gáðu hvað þær eru lengi að verða graðar í þig. Ég vona að þetta gangi e-ð handa þeim sem eru að leita sér að grúppíum. Gangi ykkur vel í leitinni.
posted by Jón Grétar on 10/22/2003 09:06:07 AM
Lítil gelgja skrifar "Týpískt blogg" um migEkki var það neinn af þeim sem ég hafði verið að dissa sem skrifaði loksins "týpískt blogg" um mig, heldur var það bara hin 14 ára ex-lágmenningargrúppía hún Kolla. En Kolla hætti einmitt að vera lágmenningargrúppía þegar hún sá myndir af mér á nord.is sem "sýndu hvað ég er ljótur." Þetta voru mikil vonbrigði fyrir Kollu, sem hafði alltaf horft á myndina af mér hérna á síðunni, þar sem ég er tvítugur og lít út fyrir að vera 16 eða eitthvað, en sá síðan að ég er bara 25 ára gamall skröggur. Já, lífið er eriftt þegar maður er 14, þar skiptast á skin og skúrir. Kolla verður bara að fara aftur að vera hrifin af Leonardo DiCaprio, verst bara að hann er ekki með heimasíðu þar sem hann svarar kommentunum frá gelgjustelpum. En hér er allavegana "Týpíska bloggið" sem hún sendi mér og er það nú bara fjandi gott fyrir einhvern sem er bara 14 ára (kannski Kolla geti bara tekið við síðunni eftir 10 ár): -------- Hæ ég heiti Rökkvi og er ógeðslega mikill nördi og segi það alltaf því að ég hef gaman að því Ég leyfi stundum öðrum meðlimum af lagmenning.is að skrifa í bloggið en það er ekki oft sem þeir nenna því. Ég var í wrestling og svo fór ég að nördast vá hvað ég er mikill nördi og svo fór ég að djamma og svo að fylgjast með gísla marteini til að geta alveg örugglega sagt eitthvað ljótt um hann. Vá hvað ég djammaði mikið á laugardaginn maður ég drakk alveg 1 ávaxtabjór og var á rassgatinu á hvað það var gaman. ég þorði loksins að viðurkenna fyrir betu sem er alltaf á djamminu líka að hún er ástin mín eina og ég er ennþá á þroska á við 8 ára barn því ég segi að ég sé ekki hrifinn af henni og hrekki hana til að fá athygli. síðan fór ég beint á netið til að gá hvað við erum búnir að fá margar heimsóknir og þær voru miklu fleiri en hjá betu, hi hi hi hi ég er mesta hit hóran á netinu og held mig ósvífnan því að ég er alltaf að dissa betu og stjórnmálamenn sem vita ekki einu sinni hver ég er og eru alveg sama. Ég er alltaf að reyna að tala við einhverjar stelpur en það gengur allt á afturfótunum og svo skrifa ég alltaf inn á bloggið hvað mér gengur vel í þeim efnum því að mér finnst það fyndið Jæja skrifið nú í commentakerfið til að ég geti rifið kjaft við ykkur. Tíhíhíhíhíhíhí ------------
posted by Rökkvi on 10/21/2003 03:06:22 PM
Snilldar síða !Í gegnum þessa snilldarsíðu er hægt að þýða síður á milli ólíkra tungumála. Prófið t.d. að þýða lagmenning.is yfir á ensku, það er mjög fyndið.
posted by Rökkvi on 10/21/2003 02:37:17 PM
Djöfuls viðbjóður alltafÍ gær kvaldi ég sjálfan mig með því að horfa á hluta af Grísla Marteins þættinum. Djöfull er Grísli alltaf ömurlegur þáttastjórnandi með þennan stöðuga uppgerðarhlátur og vemmilega smjaður fyrir gestunum. Hvað er líka verið að tala við þennan Þórhall miðil? Hann er asni. Þegar hann sagði að í næstum öllum tilvikum sæju ólíkir miðlar ólíka "anda" þegar þeir væru saman komnir, gefur það þá ekki smá hint. Auðvitað sjá þessi fífl ekki sömu andana, því að þeir hafa enga leið til að vita hvað hinir miðlarnir eru að ímynda sér í sínum brengluðu hausum. Það var líka nokkuð gott þegar hann sagðist stundum lesa hugsanir "ómeðvitað." Þá getur hann alltaf sagt, ef að hann á einhvern hátt sagði eða gerði eitthvað sem leit út eins og hann hefði vitað hvað einhver var að hugsa, "Ó, ég hef verið að lesa hugsanirnar þínar ómeðvitað." Svona eins og ég segðist ómeðvitað hafa séð fram í framtíðina. Það er líka rosalega greinilegt hvað þátturinn hans Grísla er mikið rusl þegar maður er nýbúinn að horfa á "Af fingrum fram." Þáttastjórnandinn þar er milljón sinnum betri en Grísli, og miklu eðlilegri og viðkunnalegri karakter. Þar fyrir utan hefur hann vit á að fá snillinga eins og Hebba í þáttinn sinn, í staðinn fyrir andlega sjúklinga sem þykjast sjá anda og púka.
posted by Rökkvi on 10/19/2003 09:31:23 PM
GærdagurinnVið fórum á Nelly´s eftir vísindaferð. Þegar ég fór á karlaklósettið voru tvær stelpur þarna inni. Ég sagði að mér væri alveg sama, úr því það væru hvort sem er nektarmyndir af mér á netinu, gerði það nú ekki mikið til þó að einhverjar stelpur væru inni á klósetti þar sem ég væri að míga. Þá fór einhver ljóskugella að spyrja mig af hverju það væru nektarmyndir af mér á netinu og ég sagði henni frá veðmálinu sem ég tapaði. "Vá ertu svon grínisti, segðu mér eitthvað fyndið." Ég sagði henni strympubrandarann, sem ég sagði að hefði, ásamt öðrum karlrembudjókum, hugsanlega kostað mig sigurinn. Henn fannst hann ekkert fyndinn. Þá sagði ég henni "straujaðu þetta kelling" brandarann og henni fannst hann ekkert fyndinn heldur. "En ég meina, svon kvenrembubrandarar eru alltaf svo ömurlegir, eins og um ljóskuna sem óskaði sér að hún yrði ennþá heimskari og breyttist í karlmann" sagði ég og þá náttúrulega sprakk hún úr hlátri. "Þetta var ógeðslega góður brandari, hí, hí, hí." Ég fór í fýlu, fór að rúnta, fór í gannislag við grunnskólavin minn á Laugarveginum (safnaðist bara talsverður áhorfendahópur) og endaði síðan á hitta systur mína og spjalla með henni við gaur frá Kólumbíu í svona fimm klukkutíma. Núna veit ég til dæmis heil mikið um Paoblo Escobar og hvað "karamba" þýðir í raun og veru. Ég sagði honum að það væri líka mafía á Íslandi, alveg eins og í Kolumbíu - "and it´s called the octopus." Síðan ákváðum við öll að Bush væri hálfviti, að Íslendingar væru dónalegar fyllibyttur, Páfinn væri asni, að ég væri nörd og að það væri kominn tími til að fara að sofa.
posted by Rökkvi on 10/18/2003 02:15:50 PM
Hebbi rúlarDjöfull var gaman að sjá Hebba í "Af fingrum fram" þættinum. Ég lét meira að segja taka hann upp fyrir mig því ég var í vísindaferð og á djamminu í gær.
posted by Rökkvi on 10/18/2003 02:00:50 PM
Ofboðslega er ég mikill nördiNú vill svo til að ég kenni æfinga og stoðtíma í tölvunarfræði í Háskólanum. Þar uppgötvaði ég hvað ég er forfallinn nörd. Það er nefnilega fullt af mjög fallegum stelpum í tímum hjá mér, en ég tek ekkert eftir því þegar ég er að hjálpa þeim, sé ekkert nema forritskóðann sem þær eru að skrifa og hvernig á að laga hann. Ég er ekki viss um að þetta sé heilbrigt. Ef ég er perri, þá er ég allavegana ekki jafn mikill perri og ég er nördi.
posted by Rökkvi on 10/17/2003 11:24:26 AM
Endanleg sönnun á að þeir eru hálfvitar !
posted by Rökkvi on 10/17/2003 07:51:38 AM
Frægðarhóruherferðin mín er hafinJæja, úr því ég get ekki orðið frægur á heiðarlegan hátt verð ég bara að hórast. Úr því Beturokk tókst að hórast til verulegrar frægðar án nokkurra hæfileika hlýt ég að geta það líka. Núna er það bara að múta, plögga, múta, plögga og hórast utan í frægu fólki þangað til ég fæ mínu fram. Bíðið þið bara!
posted by Rökkvi on 10/15/2003 04:00:04 PM
Viðtal við hetjuHérna er viðtal við gaurinn sem lék Barry í Bad Taste. Eitthvað sem allir verða að lesa.
posted by Rökkvi on 10/14/2003 02:41:57 PM
Það er vont að vera lesblindurTil dæmis ef maður sér ekki muninn á hotmail.com og hotmale.com
posted by Rökkvi on 10/14/2003 09:08:04 AM
Illskan í nördunumÞað er fátt hættulegra en að skilja tölvuna sína eftir opna í félagsaðstöðu nörda eða tölvuverunum. Hver sem svo gerir mun vera kominn með viðbjóðsslegan screesaver, upphafssíðu sem bendir á hommaklám, fiubolluklám eða bloggið hennar Salvarar. Hann má líka búast við að vera búinn að fá ýmsa ófagra linka inn í favorites hjá sér. Svona eru nördar illt fólk.
posted by Rökkvi on 10/13/2003 07:14:19 PM
Nokkrar myndir frá uppistandinu
posted by Rökkvi on 10/13/2003 01:51:01 PM
Rip offiðÉg verð að segja að ég er sammála Rökkva með það að samkynhneigða stúlkan frá Bandaríkjum Norður Ameríku var ekki eins fyndin og hann. Salurinn hló mun meira að Rökkva og þegar hann spurði hvort hann ætti að halda áfram var hann hvattur áfram. Þessi dómnefnd er örugglega lið sem finnst Monty Python ekkert fyndið, þolir ekki pólitískt standup því "þá þarf mar a huxa so miki" en hefur gaman að bröndurunum sem strípufíflin segja á útvarpsstöðvunum sem ég vill ekki nefna. Eitthvað álíka fyndið og "Ég sá gaur áðan og hann var EKKI með low profile og neonljós á getiggibílnum sínum!!! Hallærisgæji!" Einmitt...voða fyndið. En í raun skiptir engu máli að Rökkvi hafi ekki unnið þetta kvöld. Hann er samt miklu fyndnari en hinir keppendurnir og þurrkuntudómnefnd breytir engu um það.
posted by Jón Grétar on 10/12/2003 06:49:13 PM
ÖhhhÉg er svo lítið búinn að sofa síðustu daga að ég veit ekkert hvað ég er að gera. Man samt að ég fór í kareoke á föstudaginn en fékk ekkert á broddin þótt ég hafi sungið algera væmni. Ég var líka í partý í gær. Það er sem betur fer bara einu sinni búið að segja mér að ég sé rosalega fínn strákur (==þú færð aldrei að sofa hjá mér) síðan ég var með standöppið. Læt heyra í mér þegar ég er búinn að fá einhvern svefn.
posted by Rökkvi on 10/12/2003 06:19:52 PM
Ripoff!Ok, ég "tapaði" fyrir amerískri lessu sem var með standuppið sitt á ensku. Kannski ég hefði átt meiri séns á að vinna ef ég hefði sagt dómnefndinni að ég væri lesblindur hommi eða eitthvað. Er þetta á Íslandi eða í Kanalandi? Hvaða minnihlutahópa glorifæing er þetta eiginlega. Kannski hafði þetta eitthvað örlítið með það að gera að 3 af 4 dómurum voru konur (kannski voru þær líka lessur?). Og já núna eru nektarmyndirnar af mér líka komnar á netið (já eins og ég fari að gefa ykkur slóðina). Allavegna þá átti ég salinn, fékk miklu betri viðbrögð en stelpan, þó ég hafi þurft að byrja þetta með óupphitað krád. Síðan fékk ég 10.000 kall í skammarverðlaun fyrir að láta hóp af lessum niðurlægja mig! Annars var þetta mjög skemmtilegt kvöld. Ég þjófstartaði soldið þegar Bjarni töframaður og kynnir kvöldsins var uppi á sviði að segja að það vantaði lýsingu á sviðið. Þá náði ég að öskra að lýsingin ætti ekkert að koma fyrr en fallega fólkið kæmi upp á svið. Besta var að hann sá ekki hver sagði þetta og hélt það hefði verið einhver úr krádinu! Allavegna gekk standupið mitt vel, ég var aldrei stressaður og ruglaðist ekkert. Var með minn trademark soraskap. Ameríska stelpan var stressuð, lengi að komast í gang, þannig að ég hætti að hlusta á hana. Ég heyrði basically að hún sagði svona 50 sinnum "Americans are stupid" og síðan náði hún sér eitthvað á strik seinna. Þriðji keppandinn og gestur kvöldsins floppuðu algerlega, spurning samt hvort gestur kvöldsins var ekki bara að detta um þriðja keppandann mestmegnis (náttúrulega ekki auðvelt að ná upp stemmningu eftir að aðrir drepa hana niður). Bjarni töframaður var ágætur. Ég er allavegana fúll með þessa dómnefnd, ekki eins og það sé neinn í henni sem gæti sjálfur verið með svona standup. Þetta voru bara "einhverjir" starfsmenn frá OgVodafone, Hnakka - ég meina KissFM, Felix og Miller. Af hverju eru ekki alveru grínistar eins og Helga Braga, Þorsteinn Guðmunds, Jón Gnarr og Gunnar Jónsson að dæma svona lagað? Ég meina þetta var að minnsta kosti að hluta til sama dómnefnd og lét FÍLINN vinna í fyrra. Þarf maður að segja eitthvað meira en það? Nú verð ég bara að finna aðrar leiðir til að hóra mér áfram í átt til frægðar. Og ég er sko háklassahóra þegar að frægð kemur!!!
posted by Rökkvi on 10/10/2003 12:59:31 PM
Djöfull ætla ég að vera dónalegur í kvöld!!!!
posted by Rökkvi on 10/09/2003 05:15:30 PM
Charlton Heston er hálfvitiEf þið trúið mér ekki þá skuluð þið horfa á Bowling for Columbine eftir Michael Moore. Þar tókst Moore að niðurlægja Heston svo illa í viðtali að Heston bókstaflega hljóp í burtu. Nú mun ég aldrei aftur getað horft á Planet of the apes (1968) með réttu hugarfari aftur (sama er mér aftur á móti um glorifæjuðu halelújamyndina Ben-Hur).
posted by Rökkvi on 10/08/2003 01:29:41 PM
Prómósíða fyrir Standupið á fimmtudaginnHey, ég bjó til svona prómósíðu til að ég fái nú örugglega nóg af lágmenningarpakki til að hlægja að mér.
posted by Rökkvi on 10/07/2003 09:56:20 PM
Ég verð í Fyndnasta manni Íslands á fimmtudaginn !Jibbbííí, minn er in. Núna næsta fimmtudag mun ég taka þátt í undanúrslitum keppninnar Fyndnasti maður Íslands 2003 og allir mínir aðdáendur eiga að koma á staðinn og vera með læti. Þeir sem hata mig eiga líka að koma á staðinn, því ég mun eiga nóg af boðskap fyrir ykkur í standöppinu mínu. Fimmtudaginn 9.okt á skemmtistaðnum Felix kl. 22, ekki missa af því.
posted by Rökkvi on 10/06/2003 05:47:56 PM
Edduverðlaunin!Hvað er málið með þessi helvítis Edduverðlaun? Stella í framboði í kjöri sem besta myndin?!! Þetta skítlélega drasl stykki sem eingöngu var gert til þess að Edda og Laddi fengju að koma í bíó. Þetta er ömurlegra en Já er ekkert svar sem er ein lélegasta mynd íslandssögunnar. En ég ber víst ekki skynbragð á list þannig ætli ég haldi bara ekki kjafti.
posted by Jón Grétar on 10/06/2003 01:11:11 PM
enn um fituMér er næstum óendanlega illa við feitt fólk. Ég bara ÞOLI EKKI að hafa þetta lið í kringum mig, mengandi umhverfið fyrir okkur hinum sem erum ekki við það að springa úr háþrýstingi og offitu. Sérstaklega er mér illa við þegar þetta lið er að koma við mann á almannafæri! Í gær var ég í bíó (skiptir ekki máli hvaða), skemmti mér vel, fullt af fólki sem vit var í þarna (mikið af liði í Maiden bolum og e-ð af Sniglum sem eru náttúrulega rokkarar), flott gella á skjánum í þröngu leðri, mikð af blóði og bara eitt allsherjar stuð. Þegar ég geng út úr salnumí hléinu finn ég að það nuddast e-ð mjúkt við hendina á mér. Mér stendur nú ekki á sama og varla þori að líta við sem er ekki skrýtið miðað við það sem ég hef lent í (skoðið söguna um strætóferðina í pistlum). En ég gerist hugrakkur og þarna er á ferðinni einn ofurhvalurinn (sem ætti að borga tvöfalt í bíó eins og í flugvélar af því hann tekur plássið frá fólkinu í aðliggjandi sætum líka) að troðast framhjá mér. Þetta mjúka sem ég fann koma við hendina á mér var þá BRJÓSTIÐ á MANNINUM sem var orðið það stórt að sæmileg strýpla væri stolt af því! Másandi og blásandi er hann að troðast í gegnum þvöguna til þess að gera hvað? Jú, fara í sjoppuna að kaupa meira nammi til að gera sig enn feitari svo hann svitni enn meira við það að vera til og mengi umhverfið enn meira fyrir okkur hinum!
posted by Jón Grétar on 10/05/2003 06:43:46 PM
Björgum hvalnum!Ok, þetta er soldið gömul mynd, en mér finnst hún bara eiga ágætlega við núna.
posted by Rökkvi on 10/05/2003 12:37:14 PM
Má ég kynna ykkur fyrir húmorslausum nóboddí ?Ef ykkur langar til að lesa bloggið hjá húmorslausum nódboddígaur, þá smellið á fyrirsögnina.
posted by Rökkvi on 10/05/2003 12:34:43 PM
Þvílík óvissuferð !Ég var eini edrú maðurinn eins og svo oft áður, en það kom ekki í veg fyrir að ég sýndi heimskulegustu hegðunina. Ég kunni nú ekki við að fara allsber í pottinn, þannig að ég klæddi mig í sundskýlu - yfir höfuðið. Gjaldkeri nörd kom síðan til að taka mynd af mér undir ströngum fyrirmælum að láta ramman bara ná niður að bringu, en nei, nú á hann víst nektarmynd af mér, helvítis perrinn. Ég er líka víst búinn að heita því að hann megi setja myndina á netið ef ég vinn ekki Fyndnasta mann Íslands (komið í veg fyrir ógeð á netinu með að veita mér stuðning í keppninni). Ég get ekki sagt að þetta hafi verið ferð til að ná í stelpur. Þær voru allan tímann klemmdar bak við biðröð af nördum sem eru meira desparate en ég (hugsa sér að það skuli vera til)! Góða hliðin á því var hins vegar augljóslega að þær höfðu ekki tækifæri til að sjá mig á sprellanum, en þá hefði ég nú alveg eins getað gefið upp alla von sem ég þóttist hafa.
posted by Rökkvi on 10/04/2003 08:47:54 PM
Óvissuferð á morgunJæja á morgun er óvissuferð nörda (tölvunarfræðinema) og það er bara nýtt met að það verða heilar tvær stelpur með! Í fyrra var bara ein stelpa með, mjög hugrökk að fara í svona óvissuferð með 9 nördum (Mjallhvít og nördarnir níu). Ég var ekki með í fyrra, en eftir mínum bestu heimildum heyrði ég líka að þetta hefði endað með því að allir gaurarnir voru komnir allsberir út í pottinn. Ég spurði gelluna auðvitað hver væri með stærsta typpið, en hún sagðist ekki vita það, því hún hefði ekki verið með linsurnar! Ég vona allavegana að engar konur verði með linsur ef að ég á að fara allsber í pottinn núna (nema náttúrulega að það séu stækkunarlinsur). Áður en ég fer í óvissuferðina verð ég samt að mæta fyrir Og Vodafone liði og sannfæra það um að ég megi vera með í Fyndnasta manni Íslands 2003. (Ég er tilbúinn til að leggjast lágt til að fá að vera með, mjög lágt, jafnvel segja brandara sem eru politically correct).
posted by Rökkvi on 10/02/2003 10:32:13 PM
Meiri smekkleysinginn þessi Mæja
posted by Rökkvi on 10/02/2003 01:58:23 PM
Sálfræði??Ekki myndi ég nenna að vera í sálfræði. Litla systir mín, sálfræðinemi, þurfti sem hluti af náminu sínu að horfa á Pétur Pan og skrifa niður allt ofbeldi, munnlegt og verklegt, sem kom fram í myndinni. Merkilegt nokk, var hún komin með um 2 fullar blaðsíður á endanum. Kannski er bara hollara að lesa lágmenningu.is en að horfa á Disneymyndir.
posted by Rökkvi on 10/01/2003 05:35:23 PM
Hvaða fáránlega gimp er nú þetta?
posted by Rökkvi on 10/01/2003 05:28:59 PM
Eldri blogg
-Rökkvi Vésteinsson (rokkvi@lagmenning.is)
|