Lágmenning.is lágkúrulegasta síðan á landinu!
Fjandinn hafi það !Hvað er eiginlega málið? Það er eins og mér sé algerlega ómögulegt að fá fólk upp á móti mér eða eitthvað. Ég skrifa hérna hvern sorann, dónaskapinn, karlrembuna og persónuníðinn á fætur öðrum og allir láta sem ekkert sé. Ekki einu sinni brjálæðingar sem gera ekki aðra hluti en að kæra fólk hægri vinstri virðast láta í sér heyra. Leoncie til dæmis, hefur ekkert sagt, þrátt fyrir þetta og þetta. Meira að segja femínistarnir láta mig alveg í friði. Katrín Anna, sem kærði tölvunarfræðistjórnina fyrir að senda sms til félaganna, bara af því að það innihélt orðið "súludansari" hefur ekkert látið á sér kræla. Og hvað hefur Salvör vinkona hennar gert: ekkert, nema bara að skrifa í kommentakerfið mtt hvað henni finnist "týpískt blogg" serían vera fyndin. Meira að segja fólkið í týpískt blogg syrpunni svarar ekki fyrir sig. Ég var þó allavegna nokkuð viss um að hafa móðgað Svansson nokkuð vel (enda minntist hann aldrei á þá grein í blogginu sínu og virtist vera fúll að sjá mig á stúdentadeginum), en nei, allt í einu vísar hann sjálfur í færsluna án neinna frekari athugasemda. Eina dissið sem ég hef fengið er email frá Jóni Mýrdal sem sagði mér að fokka mér. Það bréf var ekki einu sinni útaf neinu sem ég skrifaði sjálfur heldur bara af því ég birti "skopmynd" sem mér var send (grín að Beturokk). Hvað á þessi aumingjaskapur að þýða? Kann fólk ekki að svara fyrir sig nú til dags? Eða er þessi væmna ömurlega mynd af mér hérna á síðunni bara svo sakleysisleg að enginn vill vera með diss við mig. Ég krefst svara!
posted by Rökkvi on 9/29/2003 02:35:46 PM
SamsæriÉg frétti það í gær að það er stöðugt samsæri gegn hjúkkunemunum. Það er nefnilega engin deild sem vill vera með þeim í árshátíðum og böllum og svoleiðis (og meira að segja ekki heldur lögguskólinn og vélskólinn). Af hverju eiginlega? Jú, skýringin er einföld: Í stjónum allra þessara nemendafélaga er kvenfólk (örugglega bara útaf einhverjum femínista rembingi að troða kvenfólki alls staðar). Þetta kvenfólk í nemendastjórnunum veit að það eru næstum eingöngu kellingar í hjúkrunarfræði og vilja þess vegna ekki fá samkeppnina frá þeim. Ég spyr þá bara til hvers þessi kvennabarátta sé eiginlega úr því konur eru hvort eð er konum verstar. Til hvers að vera að setja kvenfólk í stjórnunarstöður bara svo að þær geti verið tíkur við hverja aðra. Viljið þið kannski svara mér því Salvör og Katrín Anna?
posted by Rökkvi on 9/28/2003 05:55:10 PM
He heMamma mín var yfir sig glöð í morgun þegar hún kom heim á bílnum sem ég var á í gær á 80s djamminu. "Þú hefur verið með ljóshærða stelpu aftur í" sagði hún himinlifandi (mamma er mjög desparate fyrir mína hönd). En þá var þetta bara hár úr hallærislegri 80s hárkollu sem við strákarnir höfðum verið að fíflast með. (En hey, ég var samt alveg feiit að tjatta og dansa við hjúkkurnar allt kvöldið svo ekkert diss hérna).
posted by Rökkvi on 9/27/2003 02:34:30 PM
Kannski ekkert sniðugtÞað er kannski ekkert sniðugt að reyna að hözla sér hjúkku í kvöld á 80s ballinu í kvöld. Ég hef heyrt að vegna þess að hjúkkur vinni við að hjúkra fólki allan daginn, og sýna því umhyggju - að þær hafi ekkert eftir fyrir manninn sinn þegar þær koma heim.
posted by Rökkvi on 9/26/2003 03:36:57 PM
Skúrkarnir í tölvunarfræðiÁðan var ég að kenna hjálpartíma í Tölvunarfræði 1, sem er fyrir 1.árs nema. Á meðan ég var að útskýra fyrir einni stelpu, kom perrinn formaðurinn okkar og setti upp klámsíðu á skjánum mínum. Og ég sem var að reyna að vera góð fyrirmynd fyrir nemendurna (sem betur fer virðast flestir þeirra heldur ekki vita að ég eigi lágmenning.is þannig að það er raunhæfur möguleiki).
posted by Rökkvi on 9/25/2003 06:48:11 PM
SnilldÁ morgun verður 80s ball hjá okkur nördunum með hjúkrunarfræðinemum. En eins og allir vita eru mjög ójöfn kynjahlutföll í þessum tveimur deildum og þar af leiðandi vel til fundið að hafa þær saman. Aðal snilldin er samt að fá að klæða sig í asnaleg 80s föt og dansa við Duran Duran, Wham, Kiss, New Order, Whitesnake, Human League, Falco og jafnvel viðbjóð eins og Milly Vanilly, Culture Club og Kajagoogoo. Ég er að sjálfsögðu búinn að skanna gegnum allar helstu djammmyndir frá félagi hjúkrunarfræðinema til að leita eftir sætum gellum......
posted by Rökkvi on 9/25/2003 06:43:34 PM
Jibbí - ædolið sjálft!
posted by Rökkvi on 9/24/2003 02:20:44 PM
Já, hnökkum er oftast illa við okkur
posted by Rökkvi on 9/24/2003 02:09:04 PM
Myndir úr wrestling á stúdentadeginumSmellið á fyrirsögnina og þá farið þið yfir á myndasíðu nörd af stúdentadeginum. Skrollið síðan niður til að sjá myndirnar úr wrestlinginu.
posted by Rökkvi on 9/23/2003 09:36:26 PM
Þetta byrjar snemmaUm daginn fékk ég góða sönnun fyrir því að typpakomplexar eru mjög rótgrónir hjá okkur karlmönnum. Ég var að sýna 2 1/2 árs frænda mínu nagrísinn minn og hann spurði hvort naggrísinn væri ekki með typpi. "Já hann er bara með lítið typpi" sagði ég honum og sýndi honum hvar typpið á naggrísnum er. "Ég er með STÓRT typpi" sagði litli frændi þá, rogginn með sig.
posted by Rökkvi on 9/23/2003 07:20:59 PM
Setti nýtt met í gærMér tókst að segja orðið "hnakki" með viðeigandi fyrirlitningartón, a.m.k. 50 sinnum inni á Felix síðustu nótt, án þess að neinn reyndi að lemja mig.
posted by Rökkvi on 9/21/2003 06:24:45 PM
Scary shitÉg fór í partý til vinkonu minnar í gær. Hún á uppstoppaðan hamstur, sem var einu sinni gæludýrið hennar. Djöfull finnst mér það eitthvað scary, hálf svona eins og að stoppa upp ömmu gömlu eða eitthvað.....
posted by Rökkvi on 9/21/2003 11:51:41 AM
Ég trúi þessu ekki !Svansson er raunverulega að vitna í það sem ég skrifaði um hann á síðunni hans Más. Þessu hefði ég aldrei trúað, miðað við það að Svansson minntist aldrei á Týpískt bloggið um sig á sínu eigin bloggi. Þar af leiðandi hafði ég nú ályktað að Svansson langaði ekkert sérstaklega til að fólk læsi það.
posted by Rökkvi on 9/20/2003 02:56:25 PM
Jæja Már, úr því þig langar svona mikið í það...Eins og margir vita hefur Már Örlygsson bloggari nöldrað mikið um að fá ekki týpískt blogg af sér. Það var hin margrómaða Salvör Gissurardóttir sem upphaflega fékk þá hugmynd að hann ætti að vera tekinn fyrir í "týpískt blogg" syrpunni og Má leist vel á hugmyndina. Fyrir skömmu ákvað ég að vera ekkert að gera svona týpískt blogg um Má, en nú er ég búinn að láta til leiðast. Þetta er afar stutt og laggott týpískt blogg, en ég held að það nái engu að síður að segja nokkurn veginn að segja allt sem Már hefur að segja. Smellið hér til að lesa
posted by Rökkvi on 9/19/2003 01:11:35 PM
Viðtal við Kynþokkafyllsta mann Íslands !Jæja, nú höfum við á lágmenningu ákveðið að byrja með nýjung hérna á síðunni. Það er veftímaritið Heyrt og Séð, sem er á engan hátt eftirherma af Séð og Heyrt, frekar en Séð og Heyrt er eftirherma af danska blaðinu Se og Hør. Fyrsta Heyrt og Séð exclusive viðtalið okkar er við Kynþokkafyllsta mann Íslands. Sem stendur svo sannarlega undir nafni. Smellið hér til að lesa
posted by Rökkvi on 9/18/2003 05:46:29 PM
Týpískt blogg: Zeranico.comJæja, hérna er það sem ég lofaði honum Má. Reyndar var þetta frekar erfitt að gera týpískt blogg um svona leiðinlegan og óspennandi bloggara, því ef maður gerir týpískt blogg um einhvern, neyðist maður nefnilega til að lesa bloggið þeirra. Sem betur fer var bloggið hans zeranico svo einhæft og ófrumlegt að ég þurfti mjög lítið að lesa til að ná öllum helstu atriðum. Reyndar mun ég sennilega þurfa að þola endalausan straum af kommentum frá zeranico hér á eftir um misnotkun og sifjaspell, sem eru zeranico alltaf ofarlega í huga (ég vil ekki vita af hverju), en það er alltaf hægt að stroka þau út jafn óðum.
posted by Rökkvi on 9/17/2003 07:27:34 PM
Már ósátturMár Örlygsson, bloggari, er ekki sáttur við að vera skilinn útundan í týpískt blogg seríunni. Hann veltir m.a. fyrir sér hvort það sé vegna þess að hann sé of fullkominn, eða bara of leiðinlegur. Ok Már, til að þér líði betur þá skal ég sanna að það sé ekki vegna þess að þú sért of leiðinlegur. Það ætla ég að gera með því að bæta zeranico.com inn í týpískt blogg seríuna, en hann er án efa leiðinlegasti bloggari landsins.
posted by Rökkvi on 9/17/2003 06:52:02 PM
Offita út um alltMér blöskrar. Það er ekki hægt að fara í sund eða í Nauthólsvíkina án þess að sjá sorglegar afleiðingar hreyfingarleysis og aumingjaskaps íslenskra barna í dag. Í gamla daga þegar ég var krakki, var kannski í mesta lagi einn feitur í hverjum bekk og það var auðvitað gert grín að honum. Núna er það meira staðlað að 8-10 ára strákar séu með bumbu, fellingar og jafnvel skvapbrjóst. Það er heldur ekki fallegt að sjá allar þessar stelpur sem eru komnar með brjóst, löngu áður en þær eru komnar með brjóst. Oj, bara hvað íslendingar hljóta að vera orðin ógeðslega heit og viðbjóðsleg þjóð þegar þetta lið er orðið fullorðið. Annað sem ég hef stórlega áhyggjur af, er að nú sé farið að gera grín að eðlilega vöxnum krökkum í skólanum, nú þegar fituhlussurnar ná meirihluta (verið að benda á þau og segja "Hí á hann, hann er ekki með neinar fellingar"). Eins og ég hef áður sagt, þá á bara að banna offitu með lögum (plús það náttúrulega að banna halelújapakki að tala og Selfyssingum að flytja tónlist).
posted by Rökkvi on 9/16/2003 09:45:27 PM
Kvennaíþróttir!Ég komst því miður ekki hjá því að sjá hluta úr leik Íslands og Póllands þar sem íslenska liðið tók það pólska í kennslustund í rassskellingum. En það er annað mál því eftir það fór ég að pæla aðeins í kvennaíþróttum. Að sjá konur reyna að apa eftir körlum með því að spila boltaíþróttir er bara eitt það sorglegasta sem ég veit. Einu sinni var ég að gera heiðarlega tilraun til þess að hafa gaman að handbolta af því að það var ein ofursæt handboltastúlka með mér í bekk. Ég fór því að horfa á handbolta. Það er barasta fátt sorglegra en að sjá stelpur spila handbolta. Það er eins og þær missi alla samhæfingu handa og fóta þegar þær eru á vellinum. Þær kasta bolta eins og krakki á leikskóla sem er nýbyrjaður að kasta bolta. Að sjá þær síðan reyna að hoppa upp er ekki mikið skárra, þær varla lyftast upp frá gólfinu og hlunkast svo niður þegar boltanum er sleppt. Ekki virðist skotkrafturinn heldur mikill, þar er rétt að boltinn drífi að markinu. Körfubolti er þó enn verri því þar er þörf á almennilegum stökkkrafti og hæð sem stelpurnar hafa ekki. Þær eru þarna undir körfunni í cat-fight, missandi boltann og hlaupandi á eftir honum eins og íbúar á Sólheimum...reyndar er ég ekki svo viss um að karlkynsíbúar á Sólheimum myndu standa sig eins illa. Fótboltinn er síðan álíka sorglegur og handboltinn, mér finnst alltaf eins og ég sé að horfa á replay úr síðasta bekkjarleik í frímínútum hjá 6. bekk þegar ég horfi á kvennafótbolta. Ég bara get ekki að því gert.
posted by Jón Grétar on 9/15/2003 09:09:47 AM
Okkar trukkalessur eru bestar !Við Íslendingar eigum miklu betri trukkalessur en Pólverjar. Okkar unnu þessar pólsku nefnilega 10-0 í fótbolta.
posted by Rökkvi on 9/13/2003 09:19:09 PM
KrambúleraðurÉg er með höfuðverk og er allur hálf krambúleraður eftir þetta wrestling. Þeir lesendur síðunnar sem hata mig geta þess vegna líka glaðst í dag.
posted by Rökkvi on 9/13/2003 09:17:10 PM
Wrestlingið í dagJæja, þá er wrestling bardaginn búinn. Því miður voru fáir til að sjá hann, því hann var inni í Aðalbyggingu og næstum enginn nennti þangað inn (þó að ég hafi gert mitt besta til að fara út og láta eins og fífl til að smala fólki). Það gerir þó ekki mikið til, því að hann var tekinn upp á video og ljósmyndir voru líka teknar sem ættu að birtast í stúdentablaðinu. Video-ið af wrestinginu mun eflaust líka koma á síðuna innan tíðar.
posted by Rökkvi on 9/12/2003 04:14:13 PM
Kæru félagarÉg vil hér votta samúð mína til okkar sem búum hér, það er endanlega komið í ljós hvað við þurfum á Bandaríkjunum að halda, ekki nóg með það að við viljum hafa þá hér til að vernda okkar litla sker heldur þurfum við að apa allt eftir þeim, ég held að við ættum að breyta nafninu í Litlu Ameríku. Þarna á ég við Idol, þarna kemur saman fólk sem kann ekki að syngja(þó svo að sumir kunni það sem fari þarna) en þá eru sumir þarna sem virðast hafa það að markmiði sínu að gera sig að endalausu fífli þó svo að þeir viti ekki endilega af því, ég held að við ættum að halda okkur við sturtusöngvarana. Við verðum að fara að læra af mistökum okkar, í gegnum tíðina höfum við reynt að gera íslenskar "þýðingar" af vinsælum bandarískum sjónvarpsþáttum og besta dæmið um það er hjá Gísla Rúnari, þarna var verið að taka amerískan þátt og íslenska enda var hann ekki lengi á dagskrá. Förum að læra, hættum að apa eftir könum!!!!!!!
posted by Guðjón Einar on 9/12/2003 12:34:09 AM
Við eigum afmæli í dag !Hinn 11.september árið 2000 kom lágmenning.is fyrst upp á netinu. Þá var þetta bara eitthvað basic html klambur og innihélt nokkrar klámvísur, dónatexta og b-mynda umfjallanir eftir mig auk linka á hinar ýmsu síður. Brátt kom almennilegt útlit á síðuna og fullt af efni bættist við (ekki bara frá mér) og síðan náði fljótlega að komast í u.þ.b. 1000 heimsóknir á mánuði. Það virðist fjandi langt síðan þetta var, núna þegar lágmenning.is er uppfærð á hverjum degi og er með rúmlega 10.000 heimsóknir á mánuði. En einhversstaðar verður maður að byrja. Þó að ég sé mesta hit hóra netsins í dag, þá má ekki gleyma því að jafnvel hinar verstu hórur voru einhverntíman hreinar meyjar. Allavegana þá eru afmæliskveðjur til okkar á lágmenning.is vel þegnar, í kommentakerfinu eða annars staðar.
posted by Rökkvi on 9/11/2003 10:31:38 AM
Wrestling á stúdentadaginnEf ekkert fer úrskeiðis, verður wrestling atriði á stúdentadeginum á morgun (föstudaginn 12. sep). Atriðið verður haldið inni í Aðalbyggingu Háskólans. Ekki er enn kominn nákvæmur tími á atriðið. Meira síðar...
posted by Rökkvi on 9/11/2003 10:19:21 AM
Lausnin á Keiko kjaftæðinuÉg veit lausn á þessu bulli með Keiko. Eins og allir vita er Keiko náttúrulaus og Kanavædd fitubolla sem aldrei á eftir að læra að bíta í fisk sem ekki er búið að drepa fyrir hann fyrst. Þessum ofvaxna kjölturakka er ekkert við bjargandi. Þess vegna á bara að taka villtan háhyrning, beygla á honum uggann og skipta á honum og Keiko. Síðan á að búa til maddak úr Keiko og senda það til Kulusuk fyrir Grænlendingana þar að éta. Þegar þetta er búið mun "Keiko" allt í einu taka rosalega hröðum framförum. Grínpís fíflin í Ameríku munu öll tárast yfrir því að nú sé "Keikó" loksins farinn að bíta lifandi fiska, og sé alveg hættur að vera hræddur ef ljótu þorskarnir í sjónum komi og syndi framhjá. Þá geta þeir meira að segja loksins sleppt "Keiko" til annarra hárhyrninga, og hann mun feginn fara með þeim burt frá vitfirrta liðinu sem áður snerist í kringum alveru Keiko. Það má síðan taka upp þegar Keiko syndir í burtu og sýna á Pay Per View í Ameríku, undir tiltlinum "The road to freedom - Keiko meets his destiny - only on PPV."
posted by Rökkvi on 9/09/2003 10:11:51 PM
Jenný komin afturDruslan hún Jenný er víst búin að snúa aftur og er að blogga inni á síðunni hjá Herði Mar, kærastanum sínum. Þið munið kannski eftir Jennýju frá því fyrir nokkrum mánuðum þegar hún var að rífa sig á þessari síðu.
posted by Rökkvi on 9/09/2003 09:45:05 PM
LandmannalaugarÉg var alla helgina í stórfjölskylduferð í Landmannalaugum. Það var náttúrulega einhver pest búin að finna sér samastað í laugunum þannig að það var ekkert hægt að baða sig. Þetta voru víst einhverjir ógeðslegir sniglar sem bora sig undir húðina á manni og verpa eggjum. Þess vegna fór enginn í laugarnar, nema mótorhjólatöffarar úr Sniglunum sem voru þarna og voru náttúrulega of miklir naglar til að láta svona stoppa sig. Litlu sniglarnir fundu strax mikla samkennd með þeim stærri þegar þeir komu út í laugarnar og komu sér þægilega fyrir hjá þeim. Síðan hófu þeir að skreyta nýju heimilin sín með stórum rauðum útbrotum. Ég vona allavegana að sniglarnir hafi fundið gott heimili í stóru Sniglunum og muni eiga þar farsæla daga.
posted by Rökkvi on 9/08/2003 02:35:29 PM
Kvenmannsleysi í tölvunarfræðiVegna mjög lágs hlutfalls kvenna í tölvunarfræði erum við að spá í að fara að karlvæða umhverfi okkar almennilega. Í því myndi meðal annars felast að allir kæmu með gömlu klámblöðin sín og settu saman í stórann kassa inni í félagsherbergi og svo myndum við hengja "centerfold" plakötin úr þeim upp á vegg. Þetta myndi minna okkur á tilvist kvenfólks í daglegu amstri tölvunördsins, svona svo við gleymum því nú ekki alveg. Það er reyndar brjálaður femínisti í tölvunarfræði sem heitir Katrín Anna, sem gæti kært okkur, en ég held við slyppum, þar sem hún kemur aldrei inn í félagsaðstöðuna. Ég vil annars benda á að við nördarnir myndum vel þiggja smá félagskap kvenfólks, illa staddir eins og við erum. Ef þú ert kvenmaður sem kannt að tala nördamál, eða að minnsta kosti þolir að hlusta á það, mátt þú gjarnan mæta á bjórkvöldið okkar kl.8 í kvöld á Stúdentakjallaranum. Takk fyrir.
posted by Rökkvi on 9/05/2003 03:50:25 PM
snobbliðiðÞað er alveg merkilegt hvað sumt fólk eru mikil snobbhænsni. Það er t.d. einn drengpjakkur sem stundum hefur skrifað í kommentakerfið hérna sem er að væna okkur (allavega mig) um hræsni og hroka í skrifum mínum. Nú veit ég ekki alveg um hvað maðurinn talar því skrif mín eru uppfull af sannleika, studd vísindalegum skoðanakönnunum ásamt staðbundnum athugunum. Ég segi mína skoðun, umbúðalaust án þess að fela mig bak við leyninafn. Mér Jóni Grétari finnast hnakkar vera leiðinlegt fólk, mér finnst líka Skímó leiðinleg hljómsveit og allir sem í henni eru, mér líkar illa við röflara sem hafa ekkert fyrir sér og sérstaklega hata ég og fyrirlít fólk sem trúir á æðri mátt og sækir allar röksemdir gjörða sinna þangað. Ég er EKKI hrokagikkur, ég get barasta ekkert gert að þvi að ég sé svona gáfaður!!
posted by Jón Grétar on 9/04/2003 08:42:05 PM
stúdentadagurinnNú er að koma að stúdentadeginum hjá HÍ og eins og gott fólk veit þá var wresling slagur á síðasta stúdentadegi. Því spyr ég ykkur lesendur þessarar ómálefnalegu síðu: Á lagmenning.is að wresla á stúdentadeginum?
posted by Jón Grétar on 9/04/2003 02:21:54 PM
Búinn að laga kommentakerfið !Jæja, nú ætti kommentakerfið að virka hjá öllum. Það var slyngur tölvunörd sem benti mér á hvað hlyti að vera að og ég fór beint og lagaði. Nú hvet ég alla sem ekki hafa getað tjáð sig til að fara í gang. Það eru eflaust margir sem eru lengi búnir að bíða eftir að geta rifið kjaft við okkur, eða aðra lesendur síðunnar. Gleði, gleði...
posted by Rökkvi on 9/03/2003 04:18:48 PM
Ég hef vond áhrif á lítil börnÉg gerði mikil mistök síðasta föstudag þegar ég las Hringadróttinssögu teiknimyndabækurnar fyrir tveggja og hálfs árs systurson minn. Síðan þá hefur hann hlaupið um snælduvitlaus með ullarsokk af afa sínum, sem hann segir að sé sverð: "Lemmmmja tröllin, lemmmmja tröllin." "Ef að tröllin koma ætla ég að lemja þau með sverði og skjóta þau!" Hann talar varla um annað og er alltaf að reyna að fá mig til að lesa bækurnar fyrir sig aftur, svo hann geti orðið ennþá brjálaðri. í gamla daga var hann alltaf bara vanur að tala um að hlaupa í burtu og fela sig, ef vond fyrirbæri eins og tröll, Grýla eða nornir komu til talsins. Nú er víst búið að innræta honum alls konar ofbeldi í staðinn. Næst þegar ég les þetta fyrir hann, er ég að hugsa um að hætta að kalla orkana tröll og kalla þá bara Selfyssinga í staðinn. Þá myndi ég strax innræta honum réttar hugmyndir í þeirra garð, he, he, he.
posted by Rökkvi on 9/03/2003 03:00:28 PM
Yfir 3 milljón hits komin á lágmenning.is samtals
posted by Rökkvi on 9/02/2003 01:15:27 PM
Svo er alltaf hægt að fela sig.....
posted by Rökkvi on 9/01/2003 03:28:48 PM
Eldri blogg
-Rökkvi Vésteinsson (rokkvi@lagmenning.is)
|