Lágmenning.is lágkúrulegasta síðan á landinu!

Áfram Sigurður Kári !

Kjósum Sigurð Kára í bílstjórasætið (í boði ÁTVR). Eða "vitiði ekki hver hann er" ??

Smellið hérna fyrir tilboð sem er ekki hægt að hafna!




Kommentakerfið

Því miður er það víst þannig að margir lesendur hafa kvartað yfir því að geta ekki notað kommentakerfið hérna á síðunni. Í mörgum tölvum kemur bara "page not found" ef maður reynir að lesa kommentin. Þetta er náttúrulega frekar súrt og kom mér að óvart, þar sem haloscan kerfið er held ég mest notaða kommentakerfið á netinu.

Ég vona að ég geti lagað þetta bráðum. Ég ætlaði eiginlega að reyna að drullast til að læra php og gera þetta sjálfur. Annars skortir ekki að ég þekki tölvunörda sem kunna að gera svona kerfi sjálfir. Allavegana er öllum velkomið að senda tölvupóst ef þið viljið tjá ykkur en getið ekki komist inn í kommentakerfið.




Jæja þá er komið að því, það er endanlega búið að staðfesta hvað við erum lítil og vanmáttug þó svo að Dabbi stjórni hér öllu með reglustrikunni sinni.
Ég rakst á frétt þar sem segir að við höfum strjábýlustu höfuðborgina, í fréttinni sagði að í Reykjavíkinni væru 419 íbúar á hvern ferkílómeter en tæplega 6000 íbúar á ferkílómeter í Danmörku, Í DANMÖRKU!!! landið sem er minna en Ísland og enginn myndi sakna!!!!(nema merkjamyndanna auðvitað).




Góð afsökun Hannes

Í gær var frétt um það að Hannes Hólmsteinn hefði dvalist 2 vikur í munkaklaustri til að "afla sér heimilda." Já, einmitt það já. Hannes í klaustri með fullt af kaþólkskum munkum....... þarf að spyrja ????




Kvikmyndagagnrýni af lágmenning.is birtist á adult.is

Meiri snilldin. Aðstandendur adult.is voru svo hrifnir af kvikmyndagagnrýni minni um dönsku merkjamyndirnar, að þeir ákváðu að setja textann á síðuna sína, þar sem þeir eru einmitt að selja þessar myndir.

Smellið hér til að skoða og ég get vel mælt með að kaupa myndirnar, þar sem um hágæða efni er að ræða.




Meira um hvali

Mér finnst þessir hvalafriðunarsinnar æðislegir. Rökin hjá þeim að það megi ekki veiða hvali vegna þess að þetta séu svo greindar skepnur stafar einfaldlega af því að þetta fólk er að bera greind hvalana við sína eigin. Þessi fífl sem halda virkilega að þau hafi verið að gera eitthvað gagn í því að "bjarga" gæludýrinu honum Keiko með því að sóa milljónum í að leika við hann úti á sjó, mættu gjarnan fá að vita eitt. Þegar þeir eru að tala um hvað hvalir séu veiddir með grimmilegum aðferðum, ættu þeir kannski að hugleiða það, að aldrei eru hvalir drepnir eins grimmilega nema akkúrat þegar háhyrningar - eins og Keiko - ráðast á þá úti í náttúrunni.

Háhyrningar ráðast nefnilega saman í hópum á stórhveli, og bíta bita úr þeim þangað til þeim blæðir út og þeir drepast. Þeir sem horfðu á náttúrulífsþættina "Hafið" eða "Blue planet" sem voru í sjónvarpinu nýlega, muna kannski eftir því að hafa þar séð hóp háhyrninga, sem réðust á hvalskýr með kálf, voru í 6 klst. að þreyta mæðginin og átu síðan bara tunguna og neðri kjálkann af kálfnum þegar hann var loksins dauður.

Ég get ekki sagt að mér finnist þær veiðiaðferðir grimmilegar, sem eru mun vægari en þær sem framkvæmdar eru af villtum dýrum í náttúrunni.

Ef þessir bjánar vilja væla yfir einhverju, væri kannski hægt að benda þeim á hvernig bandarískir hermenn hrúguðu Talibönum saman í þrönga klefa, eða jafnvel gáma, þegar þeir voru teknir til fanga (og skutu síðan á fangana í gámnum þegar þeir voru með hávaða yfir því að vera að deyja úr hita). En kannski telja þeir Talibana ekki til gáfaðra skepna vegna þess að þeir eru vondir.




Er þetta satt ??

Það kæmi mér fjandans ekkert að óvart allavegana.




Spilling í pólitík

Þá er það staðfest með fádæma vísindalegri könnun Fréttablaðsins, það er SPILLING í íslenskri pólitík! Þetta hefði mér aldrei dottið í hug og ég er satt að segja miður mín yfir þessari niðurstöðu. Einnig kemur mér sérstaklega mikið á óvart að Sjálfstæðisflokkurinn skuli vera talinn spilltastur. Ég bara trúi þessu varla upp á hann Dabba kóng, ég meina hæstvirtann forsætisráðherra Davíð Oddsson.
Heil 60% telja flokkinn með Dabba fremstann í flokki vera spilltastann en á samt telja yfir 60% hann vera hæfastann til þess að vera forsætisráðherra í þeim könnunum sem gerðar eru reglulega fyrir kosningar. Nújá, það er aldeilis gott að Íslendingar skuli vera svona þolinmóð og umburðarlynd þjóð að við skulum telja formann spilltasta flokks landsins vera hæfastann til þess að vera forsætisráðherra. Ég bara nenni ekki einu sinni að fara út í allt það sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur, ég meina á að hafa, gert til þess að fá stimpilinn spilltasti flokkur landsins.

Það sem mér þykir áhugaverðast er það að yfirgnæfandi hluti landsmanna treystir best formönnum/forystumönnum þeim flokka sem spilltastir eru til þess að vera forsætisráðherrar.
Davíð Oddsson og Ingibjör Sólrún Gísladóttir eru venjulega talin vænlegustu kostirnir í skoðanakönnunum. Nú er ér búinn að rasa út um Davíð og þá er Imba næst.
Íslendingar treysta sem sagt manneskjunni sem sagðist Ekki ætla að bjóða sig fram til Alþingis. En gerði það samt og afsakaði sig svo með því að segja að hún væri bara varaþingmaður. Ekki trúir því nokkur maður nema íbúar á fávitahælum að hún hafi ekki viljað verða þingmaður. Hún ætlaði EKKI að bjóða sig fram til formanns Samfylkingarinnar. En gerði það samt og sumir eru voða fúlir, aðrir frekar fúlir og Össur byrjaður að grenja. Við treystum manneskjunni sem keyrir um á lánsjeppa frá Heklu sem er sama fyrirtækið og seldi Reykjavíkurborg rafala og tæki í Nesjavallavirkjun.

Þið eruð öll FÁVITAR!




Opið bréf frá mér til Leoncie

Ég hef lengi verið mikill aðdáandi hennar hátignar, indversku prisessunnar Leoncie. Leoncie er hæfileikarík manneskja sem er sums staðar á villigötum, og hefur þurft að þola mikið ranglæti frá íslensku þjóðinni (nema manninum sínum honum Viktor, eins og kemur fram í laginu "Come on Viktor").

Þess vegna hef ég ákveðið að skrifa Leoncie opið bréf hér á lágmenning.is, henni til leiðbeiningar og stuðnings.

Smellið hér til að lesa það




Æ nú verð ég ábyggilega kærður

Æ þetta komment mitt hérna að neðan mun eflaust leiða til þess að Katrín Anna femínisti í tölvunarfræðinni muni klaga mig og kæra.




Sénsinn

Jæja, nú er skólinn byrjaður. Ég mun þá bráðum komast að því hvort það er einhver nýr kvennemandi í tölvunarfræði sem er ekki gift, fjögurra barna móðir á fertugsaldri eða einstæð fjögurra barna móðir á fertugsaldri. Ekki líklegt, en maður verður að fá að halda í vonina.....




Mike Tyson í K-1

Fjandinn hafi það, Mike Tyson er farinn yfir í kickbox/muay thay í K-1 félaginu. Örugglega tilbreyting að fá spörk í hausinn frá því að vera bara laminn í hausinn.




Tvífarar

Er ekki Laila Ali lík Angelinu Jolie? Sjá boxingtalk.net




Svarið við getrauninni

Það sem ég og Ron Jeremy eigum sameiginlegt, fyrir utan að nöfin okkar byrja á R, eins og Hörður Mar benti á, er að pabbar okkar eru báðir eðlisfræðingar. Ég leyfi mér að trúa því að Ron líkist sínum pabba reyndar minna en ég líkist mínum.




Right on !




Og ég þoli ekki....

Þessa heimsku amerísku náttúruverndarsinna, sem væla og grenja yfir hverjum einasta hval sem er drepinn og eyða milljónum í að mótmæla hvalveiðum, eða jafnvel enn verra - stússast í þessum skrípaleik með gæludýrið hann Keiko, - í staðinn fyrir að einbeita sér að því sem skiptir máli í náttúruvernd, eins og mengun og eitrun (t.d. frá iðnjöfrum í Bandaríkjunum).

Þessir hálfvita Kanar hafa líka þvílíkt "nerve" eins og það heitir í þeirra landi, að vera að hóta viðskiptaþvingunum á Íslendinga, fyrir að kála nokkrum hvölum, meðan þeir neituðu að samþykkja Kyoto sáttmálann (það er náttúrulega enginn til að setja viðskiptaþvinganir á þá sem menga jörðina eins og vitleysingar, þvert við það sem þjóðir heimsins koma sér saman um).

Þessar fávita Greenpeace tussur ættu kannski að prófa að rífa kjaft við Bush og co. yfir mengun áður en þeir fara að væla yfir fáeinum hvölum lengst úti í heimi. Ef þeir eru svona sentimental, að það sé svona ljótt að drepa grey dýrin með sprengjuskutlum, geta þeir kannski íhugað að mótmæla því þegar Ísraelar varpa sprengjum úr lofti á blokkarhúsnæði í Palestínu. Eða þeir gætu kannski reynt að safna frekar peningum til að hjálpa fólkinu í Afganistan og Írak, löndum sem eru gersamlega í rúst, skít, stjórnleysi og almennu öngþveiti.

Og svona til að kvarta yfir einhverju hversdagslegu og smáborgaralegu lika, þá þoli ég ekki RÚV. Þetta ógeðslega sjálfumglaða pakk virðist bara vera að stefna að því að verða sjálfbær stofnun. Gísli Marteinn fær Loga Bergmann í þáttinn sinn, Gísli Marteinn kemur síðan í viðtal í Kastljósi. Fínt, bráðum þurfa þeir aldrei að fá utanaðkomandi fólk í þessa skíta þætti sína - nema náttúrulega meðlimi úr Sjálfstæðisflokknum.

RÚV gæti nefnilega næstum heitað SÚV. Aumkunarvert að heyra Gísla Martein segja í Kastljósinu "Ég kom bara og sótti um og Bogi Ágústsson og Ólafur Sigurðsson tóku mér bara mjög vel". Af hverju sagði hann ekki bara: "Ég kom hingað veifandi Heimdallarskírteininu mínu og Bogi og Ólafur tóku mig strax fram yfir alla hina sem biðu í röð að sækja um. Síðan hef ég oft fengið að taka einkaviðtal við Davíð eins og mig hefur alltaf dreymt um."




Ég þoli ekki...

Jæja, þá ætla ég aðeins að pústa aðeins og segja hvað ég þoli ekki í þessum heimi:

Ég þoli ekki gamlar leiðinlegar kerlingar sem röfla yfir verðinu á öllum sköpuðum hlutum, illa lyktandi fitubollur sem neita að viðurkenna að fita og sviti safnast í fellingarnar, SUS-ara sem endalaust blaðra um yndislegheit frelsis, plastrópakk sem núna reyndar er flutt á Hverfisbarinn eða Nasa.
Ég þoli ekki gamla kalla sem segja að ekkert sé vinna nema þú svitnir og lyktir illa og helst þurfir þú að vinna á sjónum, fólkið sem finnst skítalykt á túnum gott eða segir „finnuru peningalyktina" þegar fiskifýlan liggur yfir öllu.
Ég gjörsamlega hata fólk sem heldur að hvíti kynstofninn sé e-ð merkilegri en aðrir kynstofnar, frjálslynt pakk sem segir að allar skoðanir séu jafnar en röflar svo yfir þröngsýnum skoðunum og er því nákvæmlega eins og allir aðrir, fólk sem setur neonljós undir bílinn sinn til þess að bæta upp fyrir þá staðreynd að það er skert á kynferðislega sviðinu, Selfyssinga af því þeir eru Selfyssingar, skáldsnobbara sem telja kvikmyndir bara vera góðar ef franskur ljótur kall fer með póstmódernískar rímur í þeim.
Ég hef enga þolinmæði fyrir trúuðu fólki sem reynir að segja mér að ég muni á endanum trúa eða setur upp svipinn sinn þegar ég segist vera trúlaus, fólk sem er í nýjaldarpælingum, Vestmannaeyinga af sömu ástæðu og Selfyssinga og bara fólk yfir höfuð!

En ég er samt frekar umburðarlyndur maður




Getraun !

Hvað eiga Ron Jeremy og ég sameiginlegt? Svarið í kommentakerfinu.




Hvað er málið með tölvuvírusa, talvan mín er búin að vera í tómu tjóni útaf þessum ormi þarna sem einhver hjá þessum tölvufyrirtækjum sem búa til vírusvarnarforritin bjo til.

Allavegna ég vildi bara segja það að ég fór nú niðrí bæ í gærkveldi sem er ekki svo frá sögum færandi nema hvað að ég sá bara engan mun á því að vera niðrí bæ á neinu öðru kveldi, það var öll dagskrá búin ég meina hvað er málið með að blása þetta upp sem einhverja fylleríshelgi þvílík menning.

Við getum sem sagt spurt einhvern menningalega sinnaðan hvað hann gerði, þá kannski fór hann að skoða listasýningu og svo á klassíska tónleika fór á kaffihús og blabla guð veit hvað meira svo um kvöldið var hann svo fullur að hann vissi ekki hvað hann hét eða hvað sneri upp né niður enda stóð hann á haus á Lækjatorgi ég meina ég sé þessi menningu núna, þetta er bara þessi týpíska íslenska menning, ég meina þurfum við virkilega allt í einu að gera okkur upp ástæðu til að fara á eitthvað fyllerí þetta er einhver asnalegasta ástæðan sem ég hef heyrt um.




Fór ekki á menningarnótt

Mér finnst líka lágmenningu mismunað mjög gagnvart hámenningu á þessu kvöldi.




Krakkavitleysingar

Í fyrradag hringdi einhver 10 ára strákur dyrabjöllunni hjá mér. Hann var með einhvern plast gítar og spurði hvort hann mætti syngja fyrir mig. "Já, já" sagði ég "Ef þú endilega vilt".

Ég sá strax eftir þessu, því að gólið í honum skar í eyrun - vægast sagt. "Nei, nei, hættu, ég skal gefa þér tíkall" sagði ég og rétti honum tíkall.

Þá kom annar 10 ára vitleysingur hlaupandi út úr runna með videokameru og sagði: "FALIN MYNDAVÉL"

Kemur þessi sami vitleysingur síðan ekki aftur í gær og spyr hvort hann megi syngja fyrir pabba. Ég sagði honum að hann væri nú búinn að koma hingað áður. Hver lánar annars svona litlum vitleysingum videovél? Ekki það að mér finnist þetta ekki bara fyndið hjá krökkunum, ég er bara svekktur að enginn hafi lánað mér myndavél þegar ég var lítill. Hefði getað gert svo margt sniðugt sem ég hef ekki afsökun fyrir að gera lengur því ég er of gamall.




Það er svona frasi í Ameríku sem er einhvernveginn svona "If you don´t have anything nice to say, don´t say it". Ef ég væri Kani í Ameríku, þá myndi ég, samkvæmt amerískum hefðum, kæra fólk sem segði þetta, því það mismunaði gegn mínum líkum.




Háttvirtur fangi...

Rosalega er Ísland æðislegt. Ekki er nóg með að Árni Johnsen, sá háttvirti þingmaður, hafi brotið af sér og sé þess vegna ekki inni á þingi heldur erum við núna með sitjandi þingmann sem kemst ekki á þing af því hann þarf að sitja af sér dóm! Æðislegt. Þetta er að verða eins og Ítalía, þar sem eintómir glæpamenn og ræningjar sitja á þingi.
Það má ekki gleyma því að við erum líka með sjávarútvegsráðherra sem var dæmdur fyrir rógburð og ummæli hans dæmd dauð og ómerk.
Það kemur mér sosum ekkert á óvart en allir þessir menn eru úr flokkum sem segjast vera hægri menn




Týpískt blogg: Svansson.net

Jæja, þá er ég búinn að skrifa innlegg nr.2 í "Týpísk blogg" syrpunni, og í þetta sinn fjallar það um hjartaknosarann hann Guðmund Svansson, betur þekktan sem svansson.net.

Smellið hér eða á titil bloggsins til að skoða.




Næsta "Týpískt blogg" kemur á morgun

Já, næsta fórnarlambið fær að kenna á því á morgun. Ég er þegar búinn að velja tvo bloggara í viðbót sem munu verða fyrir þessu, en ef þið viljið benda mér á einhverja, sem ykkur finnst að ætti að vera skrifað "Týpískt blogg" um, þá látið mig vita.




Nýtt Plastró

Einhvernveginn var ég svo mikill kjáni að gera mér vonir um bakslag hjá plastró-tjokkópakkinu þegar (Pl)Astró var lokað. En nei, nú er búið að breyta Sportkaffi í Felix, sem gæti alveg eins heitað Plastró 2 eða Selfoss eða Skímó bar. Djöfulsins viðbjóður er þessi FM tónlist sem þeir spila. Það er ennþá stundum eðlilegt lið þarna inni, en því verður eflaust rutt burt af plastliðinu innan skamms.




Heyr, heyr !




Ég er mesta hit hóran á netinu

Fyrir nokkrum mánuðum gaf ég hið bjartsýna loforð um að fara fram úr Katrínu (katrin.is) í hits. Núna er það búið að takast. Nýjastu tölur eru lágmenning.is með 2.758.320 hits og katrin.is með 2.696.213.

Þetta segir reyndar ekki að við séum með fleiri heimsóknir, en gefur mér aftur á móti fullan rétt til að bera titilinn "Mesta hit hóra netsins." Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeir sem vilja fagna með okkur geta skrifað í kommentakerfið.




Týpísk blogg serían fer í gang

Jæja, pródjektið sem ég var að tala um hérna er komið í gang og heitir "Týpísk blogg." Í þessari seríu mun ég taka nokkra þekkta bloggera á Íslandi og herma eftir blogginu þeirra með mikilli nákvæmni.

Fyrsta fórnarlamb "Týpísk blogg" syrpunnar er að sjálfsögðu hún Betarokk, sem er nú ekki nema eðlilegt framhald af þeirri umfjöllun sem hún hefur verið að fá á síðunni að undanförnu.

Smellið hér til að lesa "Týpískt Beturokkblogg"

Önnur fórnarlömb munu bætast inn síðar.....




Þjóðhátíð 2003

föstudagur

Ég get með góðri samvisku sagt að ég hafi komist á 3 sénsa með mjög stuttu millibili, en það var ekki alveg jafn æðislegt og það hljómar. Fyrst var það einhver spólgröð 45 ára kelling (reyndar mjög myndarleg eftir aldri), sem þurfti náttúrulega fyrst að spyrja mig ítrekað hvort ég væri hommi. Kynnum mínum við þessa konu lauk snögglega þegar einhver grútsvekktur gaur kom þar að, ekki alveg sáttur við málin

"Nei, þú ert ekkert búin að finna þér nýjan gaur á tveimur mínútum, þú ert með mér. Drullaðu þér bara burt!"

Ég er nú ekki alveg svo desparate að ég fari að slást um einhverjar ellimellur, þannig ég lét mig bara hverfa, aðeins til að vera umsetinn af hverjum hommanum á fætur öðrum.

Fyrsti náunginn kom og fór að tala við mig. Einhvernveginn bárust samræðurnar að því að hann hefði sofið hjá ónefndum íslenskum poppara. "Nú, ertu semsagt hommi?" spurði ég. "Nú ert þú ekki hommi?" sagði hann svekktur "Ég sem ætlaði svo að hösla þig."

Næsti hommi yrti ekki einu sinni á mig, gaf mér bara merki um að leiða sig. Ég yppti öxlum.

Nú spyr ég bara, hvað í fjandanum þarf ég að gera til að fólk trúi að ég sé ekki hommi - sofa hjá Beturokk?? (Gallinn er reyndar að þá myndi ég eflaust breytast í homma).

laugardagur

Ég var að hanga með einhverjum gellum úr Grindavík sem ég man ekki einu sinni hvernig ég hitti og aðal djókurinn hjá okkur var að spyrja alla í gæslunni hvort þeir fengju sér rjóma í swissmissið sitt. Þeir eru bara svo helvíti saklausir, þessir skátar þarna.

"Já, mér finnst það nú mjög gott, sérsaklega svona til hátíðabrigða"

"Ha, ég drekk nú bara vatn"

Síðan hittum við Gaua, því hann var í gæslunni, og sögðum honum að hverju við hefðum verið að spyrja alla vini hans, og þeir hefuðu ekki fattað hvað við vorum að tala um

"Já Rökkvi, ég fatta alveg að þú ert að tala um að rúnka sér út í kakóbollann sinn áður en maður drekkur hann"

.......Góður Gaui......

sunnudagur

Djöfulsins væl í Árna Johnsen. Hann sendi bréf sem lesið var upp fyrir okkur, þar sem hann vorkenndi sér. Þar talaði hann um "menn sem hata fólk" og vilja þess vegna eyðileggja það fyrir þeim að skemmta sér (eins og enginn skemmti sér á Þjóðhátíð nema Árni sé þar).

Síðan talaði hann um "Fólk sem reynir að stjórna öðrum með valdi." Já Árni, það er til eitthvað sem heitir ríkisvald (sem þú varst einu sinni partur af, gáfnaljós) og ríksivaldið á það til að taka fólk með valdi og setja það í fangelsi ef það stelur.





Eldri blogg

-Rökkvi Vésteinsson (rokkvi@lagmenning.is)