Lágmenning.is lágkúrulegasta síðan á landinu!

Helvítis kallinn...

Ég ætla rétt að vona að Árna Johnsen verði ekki sleppt út úr fangelsinu til þess að spila í brekkusöngnum á Þjóðhátíð. Ef hann sleppur út þá vona ég líka að allir sem hafa smá vit í kollinum búi á kallinn.
Svo má líka henda í hann tómum plastflöskum.




Kellingar...

Um daginn þurfti ég að bera miðaldra túristakellingu á hestbaki í vinnunni minni í Grænlandi. Þetta var einhver þýsk kelling sem gat ekki labbað niður steinana í fjörunni til að fara í bátsferð. Mér finnst ofboðslega leiðinlegt að hlusta á röfl um að eitthvað sé ómuglegt og ekki hægt og ekki bjóðandi (og þessi kona virtist eiga nóg af því inni handa mér). Ég þar af leiðandi hætti á það að detta á sleipum steinunum og missa kellinguna og vera í framhaldi kærður og kannski rekinn úr vinnunni minni, skellti kellunni á bakið og skjögraði með hana niður.

Síðan löngu seinna koma kellingin að þakka mér sérstaklega fyrir. "Ég hélt nú aldrei að þú gætir borið mig, því þú lítur út fyrir að vera svo mjór. Þetta var nú bara þvílíkt ævintýri - hápunktur ferðarinnar."

Ég er nú ekkert óvanur því að rogast með einhver hlöss, þar sem ég er nú einu sinni wrestler (og hef stundum upplifað atvik í mínum kvennamálum sem ég heldur vildi gleyma) en fjandinn hafi það hvað þessi vinna getur verið absúrd....




Vesen

Var fastur á Grænlandi í gærkvöldi, og tafðist þar með með nýju herferðina mína sem ég hef verið að plana (kemur í ljós). Nú þarf ég að fara og skipuleggja hvernig hægt sé að fá tölvunörda til að skemmta sér almennilega, því í maí var ég víst kosinn í skemmtiráð Nörd, með þeim skilyrðum að ég þyrfti aldrei að gera neitt af þessu leiðinlega (komst upp með þvílíka prímadonnustæla þar).




Vitleysingaskríll

Sumum finnst kannski að ég sé skemmdur maður. Ég er nú samt ekkert viss um að ég hafi farið neitt verr en liðið sem ég umgengst í grunnskóla:

Sjáiði bara!

Fyrir utan það hvað klámvísurnar mínar eru miklu betri en þeirra




Bloggstríð og dónaskapur á netinu

OK, nú þar sem ég er oft í bloggstríðum og almennum internetsora, og sérstaklega af því að núna er ég bráðum að fara út í sérstaka syrpu í þeim efnum (meira um það innan fárra daga), þá ætla ég aðeins að tala um það hvað er innan marka og hvað er ekki réttlætanlegt í slíkum efnum.

1) Maður villir ekki á sér heimildir til að skrifa í nafni einhvers annars

2) Maður getur ekki verið að draga upp persónulegar sögur um fólk úr þess prívat lífi, ef það hefur ekki sjálft skrifað um það á netið fyrst

3) Maður dregur ekki fjölskyldu þessara aðila inn í umtalið, nema aðilinn hafi sérstaklega minnst á eitthvað í sambandi við fjölskyldu sína á netinu sem þú sért að vitna í

4) Maður hótar ekki fólki með einhverju eins og þú ætlir að berja það eða passa að það fái ekki vinnu einhversstaðar framar - maður heldur deilunni á netinu

5) Það eru nú líka einhver takmörk fyrir hvað fólk má vera miklir hálfvitar, t.d. að kalla einhvern barnaperra eða segja að hann stundi sifjaspell, bara út af einhverju smá dissi, segir meira um þig en hann

Fyrir utan þetta, þá finnst mér nú bara flest allt leyfilegt. Ef þú ert að flagga þér og segja þínar skoðanir eða dissa eitthvern/eitthvað, þá máttu búast við að fá svar. Kannski líka svar sem þér líkar ekkert allt of vel að heyra. Það er líka eitthvað til sem heitir grín, parodya eða ýkjur. Stundum er það bara þín eigin heimska eða húmorsleysi að geta ekki tekið því.




Betarokk og co. eitthvað ósátt

Beturokk fannst þetta víst ekkert fyndið. Hún var víst líka eitthvað ósátt við að þarna væri mynd af "sjötugri feitri klámkellingu" eins og hún orðaði það sjálf. Ég sem hélt að Beta fílaði klámfólkið. Var hún ekki eins og frímerki utan í Ron Jeremy og þessari Chloe fyrir stuttu?

Síðan fékk ég bara nokkuð óvingjarlegt email frá að því er virtist vera Jóni Mýrdal, vini hennar Betu. Það hljómaði svona:

hvað eruð þið að meina
með þessum ógeðslega "gríni "sem þið heilalausu
hálfvitar greinilega haldið að sé fyndið "
http://www.lagmenning.is/i-brussu.html" vaknaði í brussu "
mér finnst þið aumingjar og fávitar að setja svona upp fökkið ykkur aular

jón mýrdal

Þýðir þetta þá að ég megi ekki vera með í kareoke keppninni þinni hr.Mýrdal ?




bara snillinga í útrýmingarráðuneytið

Búinn að finna nafn á nýju stofnunina mína. Útrýmingarráðuneytið. Frekar en Útrýmingarstofnun, það er ekki nægilega high-class. Þarf að vera yfirstofnun frekar en undirplebbar.
En Rökkvi þarf ekki að vera hræddur um að það komist plebbar og fávitar í Útrýmingarráðuneytið, ég skal lofa honum að vera með í að velja liðið sem á að taka af lífi og gelda. Hann má líka vera með í því að velja starfsfólk ráðuneytisins.

Þegar við verðum svo búnir að taka til og losa okkur við Selfissinga, hnakka, chockóa, plastróplebba, gimp, fávita og alla hina þá bara getum við gert grín af öllum þeim sem við erum búnir að gelda. Þá geta allir sem lesa lágmenningu hlegið að geldingunum. Það er náttúrulega minnihlutahópur sem gaman að er að stríða!






Johnny Nazi ?

Mér sýnist nú svei mér þá á póstinum hans Jóns hérna fyrir neðan að hann sé orðinn hálfgerður Nasisti. Ég er að vissu leyti sammála sumum þessum hlutum, t.d. hefur mér alltaf fundist að það ætti að banna undirmálsfólki að fjölga sér (sbr. "Þú uppskerð eins og þú sáir" - einn fárra góðra frasa úr leiðinlegu skáldsögunni um Gyðingastrákinn sem var negldur á plúsmerki). Til að mynda væri hægt að láta alla taka IQ próf um 14 ára aldur og framkvæma ófrjósemisaðgerð á þeim sem skoruðu undir 80.

Hins vegar hef ég mjög svo sjálfhverfar og eigingjarnar áhyggjur af því hvaða afleiðingar það hefði að útrýma öllum hnökkum, tjokkóum og heimskingjum landsins. Þá hefði lágmenning.is mun færri aðila til að gera grín að og níðast á og myndi strax skorta efni og hrapa í vinsældum meðal almennings.

Ég efast líka stórlega um að nokkur ríkisstofnun væri fær um að velja úr hálfvitana - ég meina ef Árni Johnsen komst á þing og Siv Friðleifs náði að verða ráðherra - hvernig væri þá hægt að treysta ríkinu til að hafa sans fyrir því hver er bjáni og hver ekki?




fleiri ríkisstofnanir!

Já! fleiri ríkisstofnanir! Ég er ekki einn af þessum frjálshyggjupésum í SUS sem allt vilja einkavæða og láta markaðinn ráða. Ég var að ræða við góðann mann um daginn (reyndar er hann dreyfari að norðan en hann er fluttur í bæinn og er því viðbjargandi). Þar sem þetta er gáfaður maður gerði hann sér grein fyrir því að það þarf að taka til í samfélaginu. Hnakkar, gimpildi og súkkulaðifólk eru lífsform sem á að eyða. Hvernig á að gera það? Jú, eftir miklar umræður komumst við að því að best væri að setja á stofn nýja ríkisstofnun sem hefði það hlutverk að velja það fólk sem taka ætti af lífi sökum fávitaskaps. einnig hefði stofnunin það vald að gelda þá sem hægt væri að nýta í þrælavinnu (kassafólk, lagerstrákar og fleira fólk í þeim dúr). Þessi stofnun ætti líka að flytja inn heppilegt fólk sem hæft væri til undaneldis.
Þannig gætum við tekið til í gensúpunni okkar og orðið almennilegt fólk.

LIFI RÍKISVALDIÐ!!!




Geiri greddusvín

Flestir bloggarar sökka. Nei, réttara sagt þá sökka næstum allir bloggarar á landinu og oftast feitan Holmes. Þessi vitleysingur hérna sem kallar sig Geira greddusvín er hins vegar fyndinn, og það sem meira er, persistently fyndinn. Nú er hann hins vegar að væla um að fara að hætta vegna þess að hann fái ekkert út á broddinn fyrir bloggið sitt.

Hey, Geiri, það var einu sinni fertug dönsk kelling að reyna við mig með grófum aðferðum, og hún missti strax áhugann þegar ég sagði henni frá heimasíðunni minni. Ekki búast við því að fá eitthvað á broddinn (eða í rassinn úr því þú ert víst gay) út á svona blogg. Sannir sóðabloggarar eins og ég blogga af hugsjón, ekki til að græða. Mér þykir leitt ef þetta snilldarblogg þitt var bara í þeim tilgangi að vera blogghóra en ekki til að hrista upp í þessum dapra íslenska bloggheimi, sem er fullur af drepleiðinlegum, ófrumlegum, ófyndnum wannabes sem hafa ekkert að segja, eins og t.d. Beturokk, Zeranico og Svansson.net




Litli 2 ára frændi minn er alger snillingur. Alltaf að hakka í sig grænjaxla í berjamó og segir "lítil epli" - hæstánægður.




XXX-men framhald komið

Jæja, blaðsíða 5 af XXX-men er komin.




Heimsk kvikyndi

Það er könguló sem er búin að spinna vef á herbergisglugganum mínum. Einn þráðurinn tengist beint í opnanlega gluggann, þannig að í hvert sinn sem ég opna eða loka honum, hristist köngulóin í heila mínútu í vefnum sínum. Hlýtur að vera orðin helvíti sjúkuð á þessu kellingin...




Ég trúi ekki að enginn hafi kommentað við Rís auglýsinguna




Ég tók eftir því að góði vinur minn hann Jón var aðeins að dissa Bush og vin hans Blair sem er nú í þessu fína finnst mér.

Ég heyrði í fréttunum um daginn að það kostaði bandaríkjamenn 300milljarða á mánuði að hafa her sinn í Írak,og á sama leiti þegar Bush var í heimsókn í Afríku þá hætti Bandaríkjaþing við 15 milljarða stuðning við þá.

Þetta er alveg það gáfulegasta sem ég hef heyrt lengi, sérstaklega ef mér skjátlast ekki að hann var nýbúinn að lofa auknum stuðningi við Afríkuríkin,HVAÐ ER MÁLIÐ!!, þessi maður er til í að borga 300 milljarða á mánuði í einhver ár en ekki setja skitna 15milljarða til þróunarlanda sem þurfa á þeim að halda.

Jæja ég ætla fara út og njóta góða veðrisins aðeins á þessu skeri meðan það er hér, það stoppar svo stutt alltaf.




Birgitta í nýrri Rís auglýsingu?

Það er nú vanalega prinsipp hjá mér að setja ekki klámmyndir á síðuna, en þetta er bara of fyndið til að virða það.

Smellið hér til að skoða




bleh...

Góðan dag gott fólk, long time no see. Ég hef ekki bloggað mikið undanfarnar vikur (eða jafnvel mánuði). Það er frekar erfitt að vera að blogga þegar maður er að vinna 150% vinnu og hefur ekki nettengingu heima. Sem þýðir líka að það er mikill uppsafnaður pirringur í mér. Maður veit varla hvar á að byrja...Bush og Blair að viðurkenna að þeir hafi veriðað bomba Írak af þvi að þeir sáu gömul gögn „í nýju ljósi" sem veitti þeim kjörið tækifærifæri til þess að prófa öll nýju vopnin, kúka á arabana og stela olíunni þeirra. Með dyggri aðstoð fyrrverandi hottintottaríkja úr austur evrópu, asíu, afríku og völdum ríkjum úr Evrópu.

Svo er það líka okkar frábæra velferðarkerfi. Velferðin er fyrir alla hérna. Sérstaklega þegar kemur að því að fara til tannlæknis. Ef þið lendið í þeirri ógæfu að brjóta tönn eru þið í vondum málum. Sérstaklega ef það eina í stöðunni fyrir ykkur er meiriháttar aðgerð sem felur í sér að bora í kjálkann, setja skrúfu og setja tönn ofan á það. Ég veit um tvo menn sem lentu í þessu. Báðir þurfa að punga út á bilinu 150 til 200 þúsund krónum vegna þess að velferðarkerfið okkar tekur því miður ekki þátt í neinu sem tengist tannviðgerðum. Þá vitum við það. Eftir nokkur ár verður hægt að þekkja ríka fólkið á flottu tönnunum sem er í kjaftinum á því á meðan fátæka fólkið er með brotnar og skemmdar tennur vegna þess að það hefur ekki efni á að borga tannlækninum.

Um daginn fékk ég góðar fréttir. Samgönguráðherrann ætlaði að hætta við að grafa göng í Siglufirði og spara okkur þá margar milljónir sem hægt hefði verið að nota í sjúkrahúsin í staðin. Þá fóru sveitalubbarnir að væla og eftir pólitíkusarnir bökkuðu með allt. sögu að þeir væru bara að fresta framkvæmdum og þegar sveitaplebbarnir voru búnir að væla enn meira var búið að ákveða að dæla fyrst peningum í uppbótaraðgerðir fyrir þá og byrja svo á helvítis göngunum eftir nokkur ár. Djöfulsins tilgangslausa eyðsla á peningum!

Best að fara að gera eitthvað annað en að röfla.




B-mynda gláp

Nú er ég búinn að vera afar tómur í hausnum síðustu daga, sem er einmitt gott ástand til að horfa á b-myndir í. Í Laugarásvideo er til safn af eldgömlum B-myndum sem heita Killer B´s (how clever). Þetta er afar fínt til áhorfs, fyndið og krefst engrar hugsunar. Sérstaklega sniðug þessi mynd sem er mestmegnis gerð af stolnum klippum úr annarri mynd.

Dómarnir eru allavegana komnir inn fyrir þessar myndir (smella á bmyndir), og síðan náttúrulega líka fyrir eðalmyndina Hopla på sengekanten sem ég horfði á um daginn.




Mass destruction

Jæja, Kaninn er bara farinn að viðurkenna að hafa vitað að það hafi ekki verið nein sérstök gereyðingarvopn í Írak, á meðan Blair reynir lynnulaust að búa til nýjar afsakanir. Vandamál Blairs er nefnilega að hann fer fyrir upplýstri þjóð, sem gerir kröfur, meðan Bandarískir borgarar taka bara við hvaða bullshit sem er. Aumingja Blair.

Ég held hins vegar ennþá að það hafi verið út af mass destruction vopnum sem Bretar og Kanar réðust á Írak. Það mass destruction vopn heitir olía. Sko það er nefnilega hægt að kveikja í olíu og brenna hluti með henni. Með öllum sínum olíuforða hefðu Írakar sjálfsagt geta gert roknalegt bál, jafnvel kveikt í heilu borgunum. Það var mjög mikilvægt að Kaninn gerði þessa olíu strax upptæka, svo hún væri nú ekki í höndum rangra manna.




If you love me let me know !

Þar sem það er ágætis kommentakerfi hérna, þá vinsamlegast, sýnið mér ástúð og umhyggju í bundnu máli. Takk fyrir.




Archives

Núna virkar aftur að skoða öll gömlu bloggin (archives). Ef að þið veljið "gömul blogg" hérna neðst, þá er hægt að skoða allt. Það er ekki "error page not found" kjaftæði eins og í gamla daga. Kommentakerfið er hins vegar allt í einu dottið niður (það er eins og haloscan.com hafi gufað upp).




Loftmynd af Selfossi

Smellið á þessa loftmynd af Selfossi (aðeins ef þið hafið sterkar taugar) og vinsamlegast segið mér síðan í kommentakerfinu hvort þetta er nógu fyndið til að bæta upp fyrir hversu viðbjóðslegt þetta er. Ég er sjáfur á báðum áttum....




Talandi um ofurhetjur og hasarblöð....

....munið þið þá hvað gömlu Hulk og Spider-man blöðin sem voru til á Íslandi á níunda áratugnum voru illa þýdd? Ég man hvernig ég, tíu ára strákur, var að paufast í gegnum að lesa þetta óskiljanlega bull. Þegar ég síðan kom heim frá ársdvöl í Ameríku og las þau aftur, þá fattaði ég hvað hafði átt að standa í þessum blöðum, ef þýðandinn hefði ekki verið lesblindur mongólíti sem þýddi blöðin með að fletta hverju einasta orði upp í orðabók.

Nokkur dæmi:

"Farðu Hulk, tökum þá" (Go, Hulk, let´s go get them)

"Sjáðu úti" (look out)

"Taugin" (the nerve)

"Notum ratarkerfið til að draga hann niður" (Let´s use the radar system to track him down)

"Ef strákinn vantar Teddy-björn, þá er ég til" (If the boy needs a teddy bear, then I´m up to it)

Fyrir utan þetta þá var kall sem hét "Wolverine" látinn heita "Úlfynjan" eins og hann væri einhver kelling. Þetta var væntanlega eina orðið sem þýðandinn fletti ekki upp í orðabók, heldur ákvað að nota instinct til að þýða, annar hefði hann væntanlega heitað "Jarvinn".




Hulk

Eftir að kærasta bróður míns ákvað að fara á Charlies Angels 2, varð brósi að hefna sín með því að fara á jafn heimska mynd sjálfur. Það verður því bráðum að við bræðurnir förum að sjá Hulk.

Þetta er án efa crap mynd. Það verður hins vegar gaman að sjá æskuhetjuna sína á skjánum, því ég dýrkaði Hulk blöðin sem krakki. Pabbi minn, sem er eðlisfræðingur, þurfti oft að kveljast við að lesa Hulk blöðin fyrir mig, miður sín yfir bulli um gammageisla sem gerðu menn að ofurhetjum. Það er þá kannski ekki nema viðeigandi að maður sjái þetta bull í bíó líka.




Katrín ansi reið núna....

...en það er ekki út í mig. Ég skil nú bara ekki af hverju Salvör reynir ekki alfarið að sleppa því að minnast á Katrínu yfirleitt, miðað við hvernig Katrín hakkar hana alltaf í spað. Kannski er Salvör bara í keppni við Hannes bróður sinn um hvort geti fengið meira af neikvæðri athygli....(hart barist þar).




Enn frekari sönnun

Í gær drakk ég tvo litla túborg bjóra og ég gat varla staðið í fæturna. Þetta sannar endanlega að ég sé eskimói, eins og áður hefur verið talað um....




Hopla på sengekanten

Í gær horfði ég á hina velvönduðu dönsku gæðamynd, Hopla på sengekanten og hafði mjög gaman af. Það er alltaf gott og þroskandi að skoða menningu annarra þjóða, svo ég tali nú ekki um hversu nauðsynlegt það er fyrir mig að viðhalda góðri þjálfun í dönsku, þar sem ég er nú fararstjóri til Grænlands.





Eldri blogg

-Rökkvi Vésteinsson (rokkvi@lagmenning.is)